Morgunblaðið - 19.12.2001, Blaðsíða 22
SUÐURNES
22 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
meistar inn. is
GULL ER GJÖFIN
Höfundur
byggir sö
guna m.a.
á dagbók
um
skipbrots
mannann
a og legg
ur sig fra
m
um að seg
ja ógleym
anlega sög
u og skap
a
einstæðar
persónur.
Þetta er fy
rst og frem
st
glæs i leg
t sköpu
narverk
höfunda
r,
sem lætur
mann san
narlega ek
ki ósnortin
n.
Áhrifam
ikil saga
skipbrot
smanna
Örlygur
Steinn Si
gurjónsso
n
FÖSTUD
AGUR 14
. DESEMB
ER 2001MOR
GUNB
LAÐI
Ð
Í Ísherranum er það Vilhjálmur Stefánsson
sem er skúrkurinn og er fátt tínt honum
til varnar. Ef marka má bókina var hann
athyglissjúkur og með mikilmennsku-
brjálæði. Hann yfirgaf leiðangurinn
fljótlega ásamt þeim sem hann þurfti
á að halda en setti hina á guð og gaddinn.
Feigðarför
DVMÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2001
Guðmundur J. Guðmundsson
Íslensk þýðing
Rúnar Helgi Vignisson rithöfundur.
ÍSHERRANN
Þessi kynngimagnaða
mannraunasaga
lætur engan ósnortinn.
Hver urðu örlög
mannanna sem fylgdu
Vilhjálmi Stefánssyni
landkönnuði
norður í Íshaf
árið 1913 ?
LAGT verður parket á gólf íþrótta-
hússins við Sunnubraut í Keflavík á
næsta ári og byggt við fimleikasalinn,
samkvæmt tillögum að framkvæmda-
áætlun um uppbyggingu íþrótta-
mannvirkja í Reykjanesbæ. Aðal-
knattspyrnuvöllur Keflavíkur verður
tekinn upp ári síðar, innisundlaug
byggð á árinu 2004 og eftir það tekið
til við byggingu íþróttamiðstöðvar í
Innri-Njarðvík og svokallaðrar tóm-
stundakringlu. Auk þessa verður
unnið að uppbyggingu skotsvæðis í
Höfnum, uppbyggingu fyrir kylfinga
á Hólmsvelli í Leiru og ýmsum fleiri
verkefnum.
Tómstunda- og íþróttaráð Reykja-
nesbæjar hefur á undanförnum mán-
uðum unnið að framkvæmdaáætlun
um byggingu íþróttamannvirkja í
Reykjanesbæ. Nú liggja fyrir tillögur
að áætlun til næstu sex ára, 2002 til
2007. Íþróttabandalag Reykjanes-
bæjar, ÍRB, hefur lýst yfir ánægju
með tillögurnar, segir að þær ein-
kennist af framsýni og metnaði og
muni bæta aðstöðu íþróttahreyfing-
arinnar í bæjarfélaginu. Tillögurnar
voru lagðar fyrir bæjarstjórn á fundi í
gærkvöldi.
350 milljónir lagðar
í íþróttamannvirki
Framkvæmdaáætlunin er unnin að
frumkvæði tómstunda- og íþróttaráðs
en í kjölfar þess að Keflavík, íþrótta-
og ungmennafélag, mótaði stefnu sína
um uppbyggingu íþróttamannvirkja í
Keflavík og afhenti bæjaryfirvöldum.
Áætlun TÍR nær yfir allt bæjarfélag-
ið.
Að sögn Gunnars Oddssonar, for-
manns ráðsins, og Stefáns Bjarkason-
ar, íþrótta- og tómstundafulltrúa,
hafa einstök félög og deildir áhuga á
uppbyggingu á sínu sviði. Ekki er
hægt að gera allt fyrir alla á sama
tíma en þegar forystumenn deildanna
sjá að mál þeirra eru komin á áætlun
á ákveðnu ári er auðveldara fyrir þá
að bíða. Þeir sjá þá hvenær röðin
kemur að þeim.
Áætlun TÍR er nokkuð bundin á
næstu árum af ákvörðunum sem þeg-
ar hafa verið teknar, svo sem með
verksamningum við íþróttafélögin. Þá
liggja fyrir ákveðnar áætlanir í fjár-
hagsáætlun Reykjanesbæjar til
þriggja ára og eru þær staðfestar í
fjárhagsáætlun næsta árs sem nú er í
vinnslu hjá bæjaryfirvöldum. Þá er
við gerð áætlunarinnar höfð hliðsjón
af framkvæmdum við íþróttamann-
virki frá 1995. Samkvæmt yfirliti sem
Stefán hefur tekið saman hefur
Reykjanesbær lagt rúmar 350 millj-
ónir kr. í framkvæmdir á þessu sviði á
þeim sjö árum sem liðin eru frá sam-
einingu sveitarfélaganna í Reykja-
nesbæ. Er það fyrir utan byggingu
Reykjaneshallarinnar sem byggð var
sem einkaframkvæmd og bærinn á
því ekki.
Nýtt gólf og fimleikasalur
Ef litið er á fyrirhugaðar fram-
kvæmdir á næsta ári ber hæst tvær
nýframkvæmdir. Annars vegar er
lagning nýs gólfs á aðalsal íþrótta-
hússins við Sunnubraut í Keflavík og
hins vegar stækkun fimleikasalar
íþróttahússins, svokallaðs B-salar.
Áætlað er að hvor framkvæmd um sig
kosti um 25 milljónir kr. Fimleikasal-
urinn var keyptur af Keflavíkurfélag-
inu á árinu 1989 og er verið að greiða
hann með tveggja milljóna króna
framlagi á ári fram til ársins 2006.
Salurinn hefur verið notaður til
íþróttakennslu og fimleika. Eftir að
íþróttasalur kom við Heiðarskóla og
Reykjaneshöllin var tekin í notkun
skapaðist möguleiki á því að gera
endurbætur á húsinu til að koma þar
fyrir betri aðstöðu fyrir fimleikafólk,
meðal annars gryfjum. Nú þarf fim-
leikafólkið að fara til Hafnarfjarðar
einu sinni í viku til að geta æft
ákveðnar greinar. Viðbygging salar-
ins hefur verið boðin út og fram-
kvæmdir eru hafnar. Lýkur þeim á
næsta ári. Jafnframt er gert ráð fyrir
að keypt verði tæki í fimleikasalinn
fyrir tæpar fjórar milljónir kr.
Mikið hefur verið kvartað undan
gólfi íþróttahússins við Sunnubraut.
Körfuknattleiksmenn hafa orðið fyrir
álagsmeiðslum sem þeir rekja til lé-
legrar fjöðrunar. Á gólfinu er dúkur
sem lagður er á steypta plötu og er
ending hans á þrotum. Körfuknatt-
leiksmenn leggja áherslu á að fá
parket, Njarðvíkurgólf eins og þeir
orða það. Parketið á gólfi íþróttahúss-
ins í Njarðvík hefur reynst vel og fer
miklu betur með bak og hné íþrótta-
mannanna sem þar æfa og keppa.
Lagning nýs parkets er fjárfrek
framkvæmd því að brjóta þarf upp
steingólfið til að koma parketinu fyr-
ir.
Á næsta ári verður samtals 10
milljónum varið til uppbyggingar
íþróttavallanna á Iðavöllum í Keflavík
og við Vallarbraut í Njarðvík. Er
þetta lokagreiðsla samkvæmt verk-
samningum sem Reykjanesbær gerði
við íþróttafélögin fyrir nokkrum ár-
um. Af minni framkvæmdum á næsta
ári má nefna að gert er ráð fyrir
byggingu hjólabrettapalls í Innri-
Njarðvík, árlegri þátttöku í fram-
kvæmdum í Bláfjöllum og að gerður
verði samningur við Skotdeild Kefla-
víkur um uppbyggingu á skotsvæðinu
í Höfnum. Gert er ráð fyrir að varið
verði hálfri milljón á ári til skotsvæð-
isins í fjögur ár.
Ótalin er þá uppbygging menning-
ar- og upplýsingamiðstöðvar fyrir
ungt fólk. Er þetta mikið áhugamál
bæjaryfirvalda og hefur verið gert
ráð fyrir ákveðnum áfanga í málinu á
næsta ári. Engar ákvarðanir hafa þó
verið teknar enda ekki búið að finna
hentugt húsnæði. Stefán Bjarkason
segir að fyrir liggi að færa meginhluta
tómstundastarfs grunnskólanema inn
í skólana en því er nú sinnt í fé-
lagsmiðstöðinni Fjörheimum. Þörf er
talin á því að koma upp aðstöðu til að
koma til móts við eldri unglinga, á
aldrinum 16-18 ára, með uppbygg-
ingu menningar- og upplýsingamið-
stöðvar. Þar væri nokkurs konar net-
kaffi fyrir þennan aldurshóp,
vinnuskólinn hefði aðstöðu og þar
yrði einnig hægt að sinna því tóm-
stundastarfi sem eftir yrði í fé-
lagsmiðstöðinni. Þessi mál skýrast
væntanlega frekar við afgreiðslu fjár-
hagsáætlunar fyrir næsta ár.
Knattspyrnuvöllur
og innisundlaug
Í tillögu að framkvæmdaáætlun
TÍR er gert ráð fyrir að á árinu 2003
verði samið við íþróttafélögin í Njarð-
vík og Keflavík um uppbyggingu fé-
lagsaðstöðu þeirra. Aðalframkvæmd-
in á því ári verður þó við endurbætur
á aðalknattspyrnuvelli Keflavíkur.
Völlurinn var vígður árið 1968 og er
brýn þörf orðin á að taka grasið upp.
Áætlað er að það kosti hátt í 20 millj-
ónir kr.
Bygging innisundlaugar við sund-
miðstöðina er helsta framkvæmdin á
áætlun fyrir árið 2004. Sundlaugin
hefur ekki verið hönnuð en að sögn
Stefáns verða allir möguleikar skoð-
aðir við undirbúning þessa verks. Á
því ári er einnig gert ráð fyrir að sam-
ið verði við Golfklúbb Suðurnesja um
uppbyggingu á Hólmsvelli í Leiru og
árlegu framlagi Reykjanesbæjar til
þeirrar framkvæmdar.
Á árinu 2005 er gert ráð fyrir að
framkvæmdum við sundmiðstöðina
ljúki með framkvæmdum í kjallara
hennar. Þá verði jafnframt hafin
hönnun á íþróttamiðstöð í Innri-
Njarðvík, við nýjan skóla sem þar
mun rísa, og við hönnun svokallaðrar
tómstundakringlu. Íþróttamiðstöðin í
Innri-Njarðvík á að rísa á árunum
2006 til 2007, samkvæmt þessum
áætlunum. Hugmyndin með tóm-
stundakringlu er að bærinn láti hanna
hús sem ýmsir klúbbar og félög um
svokallaðar jaðaríþróttir og fleira
gætu byggt í áföngum fyrir starfsemi
sína. Tekur Stefán fram að ekki sé
ætlunin að Reykjanesbær byggi sjálf-
ur tómstundakringluna heldur leggi
til lóð og teikningar og jafnvel starfs-
mann. Vel kæmi til greina að byggja
húsið í einkaframkvæmd, með svip-
uðu sniði og Reykjaneshöllina.
Stuðningur ÍRB mikilvægur
Stefán og Gunnar telja ekki að öll-
um þörfum á þessu sviði í Reykja-
nesbæ verði sinnt með þeim fram-
kvæmdum sem áformaðar eru til
ársins 2007. Stöðug þróun og breyt-
ing sé í þessum málum, nýjar íþrótta-
greinar verði vinsælar, og svo fram-
vegis. Því þurfi að endurskoða
framkvæmdaáætlunina á hverju ári.
Gunnar segist bjartsýnn á að áætl-
unin nái fram að ganga. Hann tekur
sérstaklega fram að mikilvægt sé að
Íþróttabandalag Reykjanesbæjar
standi með tómstunda- og íþróttaráði
í málinu. Við það hafi ræst draumur
þeirra um að leggja fram tillögur sem
almenn sátt væri um.
Stefán segir að Reykjanesbær hafi
varið miklum fjármunum til upp-
byggingar íþróttamannvirkja.
Ástæða þyki til þess að huga betur að
nýtingu mannvirkjanna, svokölluðu
innra starfi sem er á hendi íþrótta-
félaganna. Fyrsta skrefið í því sé að
aðstoða félögin við að greiða þjálfur-
um barna og unglinga laun þar sem
það auki gæði kennslunnar og létti
fjárhagsbyrðar félaganna. Tillögur
tómstunda- og íþróttaráðs um þetta
efni eru til umfjöllunar hjá bæjaryf-
irvöldum.
Tómstunda- og íþróttaráð gerir tillögur að sex ára áætlun um uppbyggingu íþróttamannvirkja
Íþróttabandalagið
styður áætlunina
Reykjanesbær
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Stefán Bjarkason og Gunnar
Oddsson eru bjartsýnir á að til-
laga um áætlun um framkvæmd-
ir á íþróttasviðinu í Reykja-
nesbæ nái fram að ganga.
HARÐUR árekstur varð á
vegamótum Reykjanesbrautar
og Stekka, við Njarðvíkurfitjar,
í gærmorgun. Ökumaður ann-
ars bílsins kenndi eymsla í
brjósti og var fluttur á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja til
skoðunar.
Bílarnir óku báðir eftir
Reykjanesbrautinni en í gagn-
stæðar áttir. Virðist svo sem
öðrum bílnum hafi verið ekið í
veg fyrir hinn við vegamótin
þar sem ekið er inn í Reykja-
nesbæ með þeim afleiðingum
að bílarnir skullu harkalega
saman.
Kenndi sér
eymsla
í brjósti
Reykjanesbraut
SAMFYLKINGARFÉLAG
Grindavíkurlistans hefur kosið upp-
stillingarnefnd til að gera tillögur
að röðun á framboðslista fyrir kom-
andi bæjarstjórnarkosningar í
Grindavík.
Tillögur uppstillingarnefndar
verða lagðar fyrir félagsfund og
býst Sigurður Ágústsson, formaður
félagsins, við því að gengið verði frá
listanum seinni hluta janúarmán-
aðar.
Fyrir liggur að Pálmi Ingólfsson,
sem skipaði 2. sæti Grindavíkurlist-
ans við síðustu kosningar, gefur
ekki kost á sér áfram. Það gera
hins vegar hinir bæjarfulltrúar
flokksins, þeir Hörður Guðbrands-
son, sem leiddi listann síðast, og
Garðar Páll Vignisson.
Stillt upp á
Grindavík-
urlistann
Grindavík
Mikið úrval af
brjóstahöldurum
verð frá kr. 700
Mömmubrjósta-
haldarar kr. 1900
Úrval af náttfatnaði
fyrir börn og fullorðna
Nýbýlavegi 12, sími 554 4433