Morgunblaðið - 19.12.2001, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 19.12.2001, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2001 59 DAGBÓK Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin við Fákafen), sími 553 0100. Opið virka daga frá kl. 10–18, laugardaga 10–16. Jólatilboð Ullarpeysur, silkipeysur 20% afsláttur 15% afsláttur af yfirhöfnum. Tilboð gilda til jóla Kvennsíðbuxur 3 skálmalengdir Smáskór Suðurlandsbraut 52, Bláu húsin við Faxafen, sími 568 3919, fax 581 3919 Opið 10 til 18, lau. 11-15 67505 Rauðir lakk Stærðir 22-30 Verð 2.990 Teg. WINDY Stærðir 24-34 Fjólubláir Verð 5.290 Full búð af jólaskóm á börnin Nýtt - Jacob Jensen hönnun - Nýtt Garðar Ólafsson, úrsmiður, Lækjartorgi. Sími 551 0081. Með veðurstöðinni frá Garðari Ólafssyni úrsmið við Lækjartorg spáir þú sjálfur í veðrið. Veðurstöðin, sem er dönsk hönnun frá Jacob Jensen, samanstendur af einingum sem hver og einn getur raðað saman eftir því hvaða mælitæki nýtast hon- um best. Í veðurstöðina er hægt að fá rakamæli, loftvog, hita- mæli úti og inni þráðlaust, klukku og vekjara og kostar hver eining frá 4.300 kr. Sala og dreifing Ástund Háaleitisbraut 68 sími 568 4240, fax 568 4396 netfang: astund@mmedia.is Nýtt kennslumyndband eftir Reyni Aðalsteinsson Þet ta e r jóla gjöf he stamannsins Út er komið nýtt kennslumyndband, Vinna við hendi, eftir Reyni Aðalsteinsson. Þetta myndband opnar nýja vídd í þjálfun og tamningum. Hér eru kenndar æfingar sem örva hestinn til að gera hann næman í beisli, jafna misstyrk, bæta höfuðburð og gangtegundir. Vinna við hendi Í myndinni kemur fram ný gerð af hringtaumsvinnu sem eykur möguleika við þjálfun. Hér er á ferðinni kennslumyndband sem á erindi til allra hestamanna sem vilja bæta hestinn sinn. LJÓÐABROT ÆTTLERA-ALDARHÁTTUR Þá hugsa geri eg um heimsins art, hversu hún tekur að sölna snart, vindur feyki vítt og hart veiku jarðar hjómi, sviptur er burtu sómi, guð minn, guð minn, gef eg mig þér, gættu að mér, svo orð þín ætíð rómi. Farsæl var sú fyrri tíð, furðu góð og harla blíð; ætíð er nú hregg og hríð með hryggum sjávargangi, hver hefur hart í fangi. Guð minn, guð minn, þakka eg þér, að þanninn sker drottins dómurinn strangi. Ólafur Einarsson Árnað heilla 75 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 19. desember, verður 75 ára Eva Magnúsdóttir, versl- unarstjóri, Heiðargerði 48, Reykjavík. Hún og eig- inmaður hennar, Steinþór M. Gunnarsson, verða að heiman í dag. 75 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 19. desember, er 75 ára Ingi- mundur Ólafsson, Frosta- fold 49, Reykjavík. Eigin- kona hans er Erna Eden Marinós. NADER Hanna – sá sem opnaði á sex tíglum í spili gærdagsins – er aftur í sagnhafasætinu í sama móti, Life Masters Paires, sem fram fór í Las Vegas í síðasta mánuði. Nader var greinilega í stuði, þótt ekki ynni hann til verðlauna, en mótið unnu pólsku meist- ararnir Piotr Gawrys og Jacek Pszczola. Zia Mahmood og Sidney Laz- ard urðu í öðru sæti, og Mike Passell og Michael Seamon í því þriðja. Austur gefur; NS á hættu. Norður ♠ 10853 ♥ 9 ♦ Á9753 ♣Á92 Vestur Austur ♠ KD9 ♠ 42 ♥ KDG4 ♥ Á763 ♦ 1042 ♦ DG6 ♣874 ♣10653 Suður ♠ ÁG76 ♥ 10852 ♦ K8 ♣KDG Vestur Norður Austur Suður – – Pass 1 lauf Dobl 1 tígull 1 hjarta 1 spaði Pass 3 spaðar Pass 4 spaðar Pass Pass Pass Vörnin virðist eiga þrjá slagi, einn á hjarta og tvo á tromp, en Nader gaf að- eins einn trompslag og þakkaði það fyrst og fremst hinu lauflétta opn- unardobli vesturs, sem benti til að hann ætti spaðahjónin. Útspilið var hjartakóng- ur og vestur hélt áfram með hjarta í öðrum slag. Nader trompaði í borði, tók laufás og spilaði laufi á kónginn. Trompaði aftur hjarta, spilaði tígli heim á kónginn, tók laufdrottn- ingu og trompaði síðasta hjartað. Síðan kom tígulás og tígulstunga og lokastað- an var þessi: Norður ♠ 10 ♥ – ♦ 97 ♣– Vestur Austur ♠ KD9 ♠ 42 ♥ – ♥ – ♦ – ♦ – ♣– ♣– Suður ♠ ÁG7 ♥ – ♦ – ♣– Spaðasjöan að heiman tryggir tvo trompslagi. Af hverju vann þessi maður ekki mótið? BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Rf6 4. e5 Rfd7 5. Rce2 c5 6. f4 Rc6 7. c3 Be7 8. Rf3 O-O 9. a3 a5 10. h4 f6 11. Reg1 cxd4 12. cxd4 Db6 13. Bd3 fxe5 14. fxe5 Rdxe5 15. dxe5 Rxe5 16. Bc2 Bd7 17. De2 Hac8 18. Bxh7+ Kxh7 19. Dxe5 Bd6 20. Be3 Db3 21. Rd2 Staðan kom upp á Heims- meistaramóti FIDE sem lauk að mestu í Moskvu fyr- ir stuttu. Vass- ily Ivansjúk (2731), sem tefla mun einvígi við Ponomarjov um titilinn, hafði svart gegn Bartlomiej Mac- ieja (2588). 21...Hf1+! 22. Kxf1 Dd3+ 23. Kf2 Bxe5 24. Rgf3 Bxb2 25. Hab1 Hc2 26. Hhd1 e5 27. g3 Bg4 og hvítur gafst upp. Ivan- sjúk hefur einatt SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson verið talinn skrýtinn náungi. Þegar dregið var um töflu- röð á móti fyrir nokkrum ár- um var sá háttur hafður á að keppendur gengu undir gröfu er á var stálkubbur mikill. Vassily þorði ekki að fara undir gröfuna en var ósmeykur við að láta mömmu sína draga fyrir sig í staðinn! Þótt furðulegur sé í háttum efast enginn um yf- irburðagetu hans við tafl- borðið. Taugarnar hafa jafn- an verið hans veikasta hlið og verður spennandi að sjá hvernig honum tekst að eiga við landa sinn með stáltaug- arnar, Ruslan Ponomarjov. Svartur á leik. 50 ÁRA afmæli.Fimmtudaginn 20. desember verður fimmtugur Theódór Skúli Halldórsson, framkv.stj. SÁÁ, Brekku- seli 29, Reykjavík. Eigin- kona hans er Ólöf Helga Pálmadóttir leikskólastjóri. Í tilefni dagsins taka þau á móti ættingjum, vinum og samstarfsfólki á afmælis- daginn kl. 18–20 í félags- heimili Vals á Hlíðarenda. STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake BOGMAÐUR Afmælisbörn dagsins: Þið hafið þörf fyrir að vera í sviðsljósinu og gerið ým- islegt til að vekja fólk til meðvitundar um það sem ykkur finnst skipta máli. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þið verðið að leggja öll spilin á borðið því aðeins þannig fáið þið vinnufélagana á ykkar band. Gefið þeim líka nægan tíma til að melta málin. Naut (20. apríl - 20. maí)  Það sem ykkur kann að finn- ast skipta öllu máli getur öðr- um virst þýðingarlítið. Sýnið þolinmæði og skilning og sannið mál ykkar með rökum. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Það skiptir öllu máli að hafa hlutina í jafnvægi svo gætið þess að forgangsraða rétt til þess að ná árangri. Vandið vinnubrögð ykkar. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þið fáið hverja hugmyndina á fætur annarri svo hvernig væri að framkvæma eina þeirra og kalla í félagana og eiga með þeim stund í anda jólanna? Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Gætið þess að lenda ekki í milli þegar vinir ykkar eiga í deilum. Látið málið afskipta- laust því þá er líklegra að það leysist af sjálfu sér. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Það er í mörg horn að líta þessa dagana en gætið þess að gleyma ekki fjölskyldu ykkar því þegar allt kemur til alls er það hún sem skiptir mestu máli. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Það er í lagi að láta sig dreyma ef þið bara haldið ykkur á jörðinni í raunveru- leikanum. Gerið ekki meiri kröfur til annarra en þið gerið til ykkar sjálfra. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Látið það ekki slá ykkur út af laginu þótt þið kynnist ýmsu ógeðfelldu í fari annarra. Horfið á kostina og leitist við að höfða til þess góða í fólki. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Með aðgæslu í fjármálum ætti ykkur að takast að ná settu marki fyrr en þið ráðgerðuð í upphafi. Látið ekki misvísandi fréttir trufla ykkur. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Það getur verið mikil sálubót að eiga trúnaðarvin. Það mun- uð þið reyna fyrr en varir og árangurinn mun koma ykkur skemmtilega á óvart. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Viðkvæmt mál ber á góma og þótt ykkur sé mikil raun að ræða álit ykkar á því verðið þið að gera það. Afgreiðið málið strax og á heiðarlegan hátt. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Notið tækifærið til að rétta vinum ykkar hjálparhönd sem þurfa á henni að halda nú fyrir jólin. Sumir eiga erfiðara með að biðja um aðstoð en aðrir. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúð- kaup, ættarmót og fleira lesendum sín- um að kostnaðar- lausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrir- vara virka daga og þriggja daga fyrir- vara fyrir sunnudags- blað. Samþykki af- mælisbarns þarf að fylgja afmælistil- kynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréf- síma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.