Morgunblaðið - 19.12.2001, Blaðsíða 62
ÞEIR eru báðir ungir að aldri, þeir
Jón Atli Jónasson og Stefán Máni.
Rithöfundar báðir og báðir orðnir
þreyttir á að vera spurðir að því
hvort þeir líti á sig sem fulltrúa
hinnar títtræddu og margtuggðu X-
kynslóðar.
„Við erum alltaf spurðir að
þessu,“ segir Jón og glottir.
„Bókin mín er alls engin X-bók,“
segir Stefán að bragði. „Eins og
Gísli Marteinn í Kastljósinu orðaði
það, þá er þetta svar landsbyggð-
arinnar við 101 Reykjavík.“
Brotinn taktur
Bók Jóns Atla ber nafnið Brotinn
taktur og er smásagnasafn. Titill
bókarinnar vísar beint í dægurtón-
listarformið „breakbeat“ og reyndar
ætlaði Jón upprunalega að nefna
hana svo, en kom því ekki í gegn hjá
útgefanda.
„Titilsagan fjallar um stráka sem
eru að hlusta á þess lags tónlist,“ út-
skýrir Jón. „Rauði þráðurinn í gegn-
um þetta smásagnasafn er að þetta
er allt saman fólk sem er svolítið
brotið eða brothætt. Sögurnar ger-
ast mest hjá fólki sem er á milli tví-
tugs og þrítugs og tónlist spilar
svona misstóran part hjá mér. Ég
hef alltaf haft mjög gaman af því
hvernig þetta er hjá Haruki Mura-
kami, þar sem sögupersónurnar
hafa svo ofsalega sérhæfðan tónlist-
arsmekk. Þeir sem stunda létt-
hlustun þar eru ekki bara að hlusta
á eitthvað létt heldur á eitthvað sem
er virkilega erfitt að ná í. Þetta hef-
ur mér alltaf fundist frekar fyndið.“
Þeir félagar neita því að vera und-
ir beinum áhrifum frá bókum eins
og Hi-Fidelity og American Psycho,
þar sem tónlistarpælingar og -tilvís-
anir eru úti um allt.
„Það er nú bara þannig,“ segir
Jón, „að í dag er fólk mikið að pæla í
tónlist og kaupa sér geisladiska.
Fólkið í minni bók er að minnsta
kosti á þeim aldri.“
Hótel Kalifornía
Rit Stefáns Mána er skáldsagan
Hótel Kalifornía, og eins og með bók
Jóns Atla er heiti hennar tilvísun í
sögu dægurtónlistarinnar; nánar til-
tekið í víðfrægt lag hljómsveitarinn-
ar Eagles frá 1976.
„Sagan gerist úti á landi árið
1982, svona að mestu,“ segir Stefán.
„Hún fjallar um nafna minn Stefán
sem vinnur í fiski og er svoldið dott-
inn af lestinni. Hann hittir vini sína
um helgi og þeir drekka brennivín í
Pepsí og hlusta á gamalt rokk.“
Tilvísunin í Eagles-lagið er afar
markmiðsbundin, segir Stefán.
„Lagið fjallar um mann sem finn-
ur hótel að nóttu til þar sem ríkir
mjög draumkennt ástand; allir
dansa, drekka og syngja að eilífu.
Þetta er svona útópía og þetta hlust-
ar nafni minn á þegar hann er að
raka sig fyrir helgardjammið. Þetta
er hans draumur en sjálfur lifir
hann í annars konar lokuðum heimi,
frystihúsaheimi sem er frekar lok-
aður og kaldur. Þar er hann fastur
að eilífu en hann langar í eitthvað
annað og meira.“
Stefán lýsir baráttunni í jólabóka-
bransanum á skondinn hátt, segir
stóru strákana valta yfir sig. „Mað-
ur heldur sér á floti í einhverri
þrjósku en þetta er alger villi-
mennska. Þetta er bráðskemmtileg
geðveiki. Þetta er algert stuð og al-
gert stress og maður er úttaugaður
og kexruglaður og stútfullur af ham-
ingju.“
Og að lokum
Jón segir að lokum að þeim fé-
lögum sé oft splæst saman í þessari
jólabókaútgáfu og þarf reyndar ekki
að líta lengra en til þessa viðtals til
að sjá það.
„Stefán er úti á landi í sinni bók
en ég í bænum. Ég sé nú ekki mikil
tengsl þarna.“
Stefán segir:
„Við erum þó báðir að fást við fólk
sem finnur sig ekki eða er búið að
týna sér. Fast í einhverjum hjólför-
um.“
Jón víkur þá að öðru.
„Nú til dags eru allir voðalega
áhugasamir um að gera einhverjar
bíómyndir eða plötur og áherslurn-
ar hvað tilganginn varðar eru að
breytast. Það er varla að fólk nenni
að gefa út plötur lengur á Íslandi,
þ.e. eins og það sé bara prufumark-
aður fyrir eitthvað „stærra“ sem
fólk er að fara að gera. Mér finnst
fólk hlaupa yfir mikilvægt grund-
vallaratriði með þessu; þ.e. sam-
félagið sem þú býrð og hrærist í –
fólkið í kringum þig. Að þessu leyti
finnst mér bókin vera einfaldasta og
um leið besta formið til að miðla
hugmyndum.“
Jón Atli og Stefán Máni eru báðir með titla í bókaflóðinu
Morgunblaðið/Þorkell
Stefán Máni og Jón Atli: Ungir menn á uppleið (alltént í lyftunni
þar sem þessi mynd er tekin).
Að lesa tónlist
arnart@mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
62 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SÍMI 564 0000 - www.smarabio.is5 hágæða bíósalir
Miðasala opnar kl. 15
Mögnuð mynd með stórleikurunum
Bruce Willis, Cate Blanchett og Billy Bob Thornton
Sýnd kl., 5.30, 8 og 10.30. B. i. 16.
Sýnd kl.4 og 6.
Missið ekki af nýjasta glæpaþriller Bruce WillisÞau veittu henni
öruggt heimili...
en henni var ekki
ætlað að komast burt!
Æsispennandi sálfræðitryllir
með Leelee Sobieski (Joyride)
í aðalhlutverki.
Sýnd kl. 4 og 6.
Glæsileg leysigeislasýning á undan myndinni
Sýnd kl. 5.15, 8 og 10.30.
Leyndarmálið er
LONGCILEXTENDER!
Sjálfstætt apótek með persónulega þjónustu er góður nágranni
Apótek Ólafsvíkur
Stykkishólms Apótek
Ísafjarðar Apótek
Apótek Blönduóss
Siglufjarðar Apótek
Dalvíkur Apótek
Apótek Austurlands
Apótek Vestmannaeyja
Apótek Keflavíkur
Árbæjar Apótek
Borgarapótek
Grafarvogs Apótek
Hringbrautar Apótek
Laugarnes Apótek
Nesapótek Seltjarnarnesi
Rima Apótek
40% lengri augnhár
Þú getur fengið löng og
falleg augnhár á
augabragði með
Longcilextender. Notað með
uppáhalds maskaranum
þínum eða með Longcilmatic
maskaranum frá Longcils
Boncza. Árangurinn er
hreint ótrúlegur.
Longcils Boncza
Paris
ÞAÐ VAR kátt í Borgarleikhúsinu á
laugardaginn þegar Edda – miðlun
og útgáfa stóð fyrir tveimur barna-
og fjölskylduhátíðum. Boðið var upp
á fjölbreytta skemmtidagskrá þar
sem dregin var upp mynd af fjöl-
breyttri flóru listamanna sem gefa
út efni fyrir þessi jól á vegum Eddu.
Mest var þó lagt upp úr því að hafa
ofan af fyrir yngstu áhorfendunum
og virðist það hafa lukkast prýði-
lega því þeir skemmtu sér hið besta.
Það var margt áhugaverðara
hægt að gera í Borgarleikhúsinu
á laugardaginn en að gefa ljós-
myndara gaum.
Barnaskemmtun
í Borgarleikhúsinu
Morgunblaðið/Ásdís
Þórarinn Eldjárn og Snuðra og
Tuðra teygðu vel úr sér á sviði
Borgarleikhússins.