Morgunblaðið - 19.12.2001, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 19.12.2001, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ EINAR Gíslason, smíða- og sund- kennari í Hafnarfirði, segir að samningi sem sérgreinakennarar í Hafnarfirði gerðu við bæjaryfirvöld árið 1980 hafi ekki verið sagt upp. Það sé því krafa kennara að greitt verði eftir þessum samningi. Hann segir að ef þessi krafa verði ekki virt ætli kennarar með málið fyrir dóm- stóla. Einar sagði að 12. september 1980 hefðu bæjaryfirvöld í Hafnarfirði gert samning við sérgreinakennara, þ.e. smíðakennara, tónmenntakenn- ara og kennara í heimilisfræði, um að annast innkaup og viðhald véla og verkfæra. Samkvæmt samningnum endurnýjast hann árlega ef honum er ekki sagt upp. Sveitarfélögin hefðu tekið þá afstöðu að líta á þenn- an samning sömu augum og samn- inga um viðbótarkjör sem gerðir voru árið 1997. Þessari túlkun hefðu félög sérgreinakennara mótmælt harðlega og bent m.a. á að innkaup og viðhald verkfæra gætu ekki talist til faglegra kennslustarfa og því bæri að greiða fyrir það sérstaklega. Einar sagði að kennarar væru búnir að reyna mikið til að fá Hafn- arfjarðarbæ til að virða samninginn frá 1980 en það hefði ekki enn borið neinn árangur. Niðurstaðan hefði því orðið sú að höfða mál á hendur bænum. Einar sagði að þessum störfum, þ.e. innkaup og viðhald verkfæra, hefði verið sinnt með ýmsum hætti hjá sveitarfélögunum. Í Reykjavík hefði lengst af verið maður sem sinnti þessu í fullu starfi. Sum sveitarfélög hefðu hins vegar gert samning við kennara um að sinna þessum störfum. Hann sagði að þó að Hafnarfjarðarbær hefði aldrei sagt þessum samningi upp hefði Akraneskaupstaður hins vegar sagt upp sambærilegum samningi við sérkennara sem þar starfa. Kennarar á Akranesi hefðu fyrr á þessu ári fengið formlegt bréf þar sem þeim samningum var sagt upp. Afstaða launanefndar sveitarfé- laganna er sú að þessi samningur hafi fallið úr gildi þegar nefndin gerði samning við Félag grunn- skólakennara í byrjun þessa árs, enda komi fram í samningnum að forsendur hans séu að samningar um viðbótarkjör falli brott. Grein- argerð lögmanns Kennarasam- bandsins um þetta mál hefur hins vegar orðið til þess að vekja efa- semdir meðal sveitarstjórnarmanna um að þetta ákvæði haldi. Það hefur svo aftur orðið til þess að launa- nefnd sveitarfélaganna hefur enn ekki samþykkt samning sem nefnd- in gerði við Félag tónlistarskóla- kennara, en sá samningur byggist á þeirri forsendu að ákvæði um við- bótarkjör falli á brott. Þess má geta að hæstaréttardóm- ur hefur fallið um mál þar sem tekist var á um hvort löglega hefði verið staðið að uppsögn viðbótarkjara- samnings. Vinnuveitendur töpuðu því máli. Sérkennarar í Hafnarfirði vilja að viðbótarsamningur frá 1980 verði virtur Samningnum var aldrei sagt upp SÓLVEIG Pétursdóttir dómsmála- ráðherra sagði, í ræðu sem hún flutti á heimsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna gegn kynferðislegri mis- notkun barna í ágóðaskyni, í Yoko- hama í Japan, síðdegis í fyrradag, að þjóðir heims hefðu sameinast um mikilvægar aðgerðir til þess að berj- ast gegn kynferðislegri misnotkun barna fyrir fimm árum í Stokk- hólmi. Nú væri tímabært að strengja ný heit til þess að færast nær sameiginlegu markmiði þjóð- anna. Fulltrúar 138 ríkja sækja ráð- stefnuna í Yokohama auk fulltrúa fjölmargra alþjóðastofnana og fé- lagasamtaka að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu. Markmið ráðstefnunnar er að fara yfir það sem áunnist hefur á undanförnum árum í baráttunni gegn kynferðis- legri misnotkun barna og leggja drög að næstu aðgerðum. Stefnt er að því að ríkin samþykki sérstaka yfirlýsingu þar sem lýst verði næstu skrefum í samstilltu átaki ríkja á þessu sviði, bæði á alþjóðlegum vettvangi og innan hvers ríkis. Í fyrrnefndri ræðu sinni nefndi ráðherra fjögur lykilatriði sem væru forsendur fyrir því að árangur næð- ist í þessum málum. Í fyrsta lagi þyrftu ríkin að fullgilda alþjóða- samninga á þessu sviði sem beinast gegn kynferðislegri misnotkun barna, þar sem í þeim væri að finna skilgreiningar og viðmið sem ríkin geta nýtt til þess að samræma lög- gjöf og aðgerðir í baráttu við glæpi sem ekki virða nein landamæri. Í öðru lagi þyrfti hvert ríki um sig að grípa til aðgerða heima fyrir og fjallaði hún meðal annars um laga- breytingar á Íslandi til þess að sporna við dreifingu barnakláms. Í þriðja lagi sagði ráðherra að brýnt væri að veita lögreglu nægi- lega tæknilega þekkingu og þau tæki sem nauðsynleg eru til þess að hafa uppi á þeim sem misþyrma börnum. Það gæti hins vegar verið vandasamt, t.d. að hafa uppi á fram- leiðendum barnakláms, sem oft starfa ekki þar sem efninu er dreift. Ráðherra sagði þetta endurspegla alþjóðlegt eðli þess vanda sem við væri að eiga og undirstrikaði í fjórða lagi þörfina fyrir aukna alþjóðlega lögreglusamvinnu á þessu sviði. Á ráðstefnunni var sérstaklega kynnt samstarf Norðurlandanna og ríkja við Eystrasaltið á þessu sviði og kynnti dómsmálaráðherra þar breytingar sem gerðar hafa verið á löggjöf sem snýr að rannsókn mála þar sem grunur hefur vaknað um kynferðislega misnotkun barns. Lýsti hún þeirri aðstöðu til viðtala við börn sem komið hefur verið á fót í Barnahúsi og við héraðsdómstóla. Dómsmálaráðherra sótti jafnframt ráðherrafund sem Takamado prins- essa, verndari ráðstefnunnar, boðaði til. Ráðherrarnir lýstu þar stöðu mála í heimaríkjum sínum og að- gerðum sem gripið hefur verið til skv. fréttatilkynningu ráðuneytis- ins. Sólveig Pétursdóttir á heimsráðstefnu SÞ gegn kynferðislegri misnotkun barna Tímabært að strengja ný heit nær sameiginlegu markmiði TOLLGÆSLAN á Keflavík- urflugvelli fann tæplega 2,4 kíló af hassi á Íslendingi sem var að koma til landsins frá Osló á mánudag. Hassið hafði hann límt á sig inn- anklæða en hann var klæddur í víða peysu. Kári Gunnlaugsson, deildarstjóri fíkniefnadeildar tollgæslunnar, sagði í samtali við Morgunblaðið að maðurinn hefði verið tekinn til hlið- ar við venjubundið eftirliti. Toll- vörður leitaði á manninum og kom þá í ljós að hann hafi límt hassið hér og þar á líkamann auk þess sem hass var í buxnastreng hans. Málið telst upplýst og hefur manninum verið sleppt. Hassið var m.a. límt á bak og síður mannsins. Hass var límt víða á líkamann HÆSTIRÉTTUR hefur ákveðið að kalla málsaðila fyrir dóminn til skýrslugjafar. Þetta er í fyrsta skipti í sögu dómsins sem slíkt er gert en heimild hefur verið fyrir slíkri skýrslugjöf um alllangt skeið. Maðurinn mun koma fyrir dóminn í febrúar í lokuðu þinghaldi. Ríkissak- sóknari mun þar geta yfirheyrt manninn, sem og verjandi og dómar- ar réttarins. Hingað til hefur Hæsti- réttur látið sér nægja endurrit af yf- irheyrslum hjá undirrétti en vísað dómum aftur til meðferðar í héraði ef þurfa þykir. Sá sem um ræðir er sakborningur í kynferðisbrotamáli en hann er ákærður fyrir að hafa brotið gegn ungum systursyni sínum. Meirihluti í fjölskipuðum dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra sýknaði manninn af ákærunni hinn 13. apríl 2000 en Hæstiréttur ómerkti hann og vísaði dómnum heim í hérað til munnlegs málflutnings og dóms að nýju. Samkvæmt lögum um meðferð op- inberra mála skal dómur reistur á sönnunargögnum sem færð eru fram við meðferð máls fyrir dómi. „Í þessu máli ræðst úrlausn um sök mjög af mati á sönnunargildi framburðar fyr- ir dómi. Þar þarf einnig að líta til þess hvernig framburður samrýmist því, sem áður er komið fram við lögreglu- rannsókn, og af hverju misræmi staf- ar, ef um það er að ræða. Við skýrslu- gjöf hjá lögreglu 16. október 1998 hafði ákærði viðurkennt tiltekna hátt- semi gagnvart drengnum, sem hann tók aftur við meðferð málsins fyrir dómi og gaf á því skýringar,“ segir í dómnum. Þrátt fyrir þann annmarka á umræddri lögregluskýrslu að ekki var þar skráð hvort manninum hefði verið kynnt að honum væri óskylt að svara spurningum sem varða refsi- verðan verknað taldi Hæstiréttur að það bæri að líta til þess að skýrslan var gefin að viðstöddum verjanda ákærða, eftir að þau höfðu talast eins- lega við. „Einnig verður að hafa í huga að við skýrslutöku hjá lögreglu 5. nóvember 1998 var vísað til þess- arar skýrslu, án þess að fram kæmu fyrirvarar af hálfu ákærða. Að þessu athuguðu verður að telja að héraðs- dómi hefði verið rétt í heildarmati sínu á trúverðugleika og sönnunar- gildi framburðar ákærða fyrir dómi að líta til fyrri framburðar hans og skýringa á fráhvarfi frá honum. Auk þess sem að framan greinir er nið- urstaða héraðsdóms um sönnunar- gildi munnlegs framburðar ekki nægilega skýr og ótvíræð og er samn- ingu dómsins áfátt að þessu leyti,“ segir í dómi Hæstaréttar. Héraðsdómur Norðurlands eystra sýknaði manninn að nýju í desember í fyrra og líkt og áður skilaði einn dóm- ari sératkvæði. Ólíkt hinum dómur- unum taldi hann að sakfella ætti manninn í samræmi við skýrslu hans hjá lögreglu. Sýknudómnum var áfrýjað til Hæstaréttar eins og fyrr og eins og áður segir hefur rétturinn nú ákveðið að kalla manninn fyrir. Yfirheyrsla fyrir Hæstarétti í fyrsta skipti VON er á sendinefnd frá Norsk Hydro til landsins í dag. Er gert ráð fyrir að hún muni eiga viðræður við fulltrúa Reyðaráls hf., sem vinnur að undirbúningi álverksmiðju við Reyðarfjörð. Geir Gunnlaugsson, fram- kvæmdastjóri Reyðaráls, sagði að sendinefndin hygðist koma til þess að fara yfir stöðu mála, enda væri talsvert síðan að fyr- irtækið hefði sent fulltrúa sína til landsins. Gert er ráð fyrir að fulltrúar norska fyrirtækisins verði hér á landi í dag og fimmtudag. Norsk Hydro á helmingshlut í Reyðaráli. Samkvæmt upplýsingum hjá umhverfisráðuneytinu er von á ákvörðun vegna kæru Lands- virkjunar á úrskurði Skipulags- stofnunar, vegna Kárahnjúka- virkjunar, á næstu dögum. Sendinefnd frá Norsk Hydro kemur í dag BJÖRGUNARBÁTURINN Þór frá Vestmannaeyjum var kallaður út um klukkan eitt í gær eftir að eldur kom upp í trillunni Ými VE. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Lands- björgu voru björgunarsveitar- menn komnir á vettvang stuttu seinna, en þá var búið að slökkva eldinn um borð í bátn- um. Einn maður er í áhöfn bátsins og sakaði hann ekki. Ýmir VE, sem er 5 tonna plast- bátur, var staddur út við Smá- eyjar þegar óhappið varð. Hann sigldi fyrir eigin vélarafli inn til Vestmannaeyja í fylgd Þórs. Eldur í trillu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.