Morgunblaðið - 19.12.2001, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 19.12.2001, Blaðsíða 47
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2001 47 Heilsuhraustir, áhugasamir og hæfir starfsmenn eru grundvallarforsenda félagslegrar og efna- hagslegrar velmegun- ar í þjóðfélaginu. Því er heilsuefling á vinnustað fjárfesting til framtíðar, bæði þegar litið er til ein- staklingsins, fyrir- tækja og þjóðfélags- ins alls. Þessi staðhæfing kemur fram í Lúxem- borgaryfirlýsingunni, sem er samþykkt evr- ópsks netverks um heilsueflingu á vinnustað. Evr- ópska netverkið var stofnað árið 1996 með stuðningi Evrópusam- bandsins og tók þá þegar til starfa. Öll 15 aðildarríki Evrópusam- bandsins taka þátt í starfinu og að auki Ísland, Noregur og Liechten- stein. Skrifstofa samstarfsnetsins er hjá Vinnueftirliti ríkisins. Slag- orð netverksins er „Heilbrigðir starfsmenn á heilsusamlegum vinnustöðum“ og hægt er að skoða upplýsingar sem tengjast netverk- inu á heimasíðu Vinnueftirlitsins, www.vinnueftirlit.is. Viðurkenning til íslenskra fyrirtækja Evrópska netverkið veitti nýlega Kirkjugörðum Reykjavíkur, ISAGA og verkefninu Heilsusveit- arfélög á Íslandi viðurkenningu fyrir gott starf á sviði vinnuverndar og heilsueflingar starfsmanna. Verðlaunin voru veitt fyrir milli- göngu Vinnueftirlitsins og tengdist verkefninu Heilsuefling í litlum og meðalstórum fyrirtækjum, sem er þriðja verkefni evrópska sam- starfsnetsins sem unnið hefur verið að hér á landi. Á ráðstefnu sem var haldin í kjöl- far verkefnanna var Lissabonyfir- lýsingin samþykkt, sem er sameig- inlegt álit allra aðildarlanda netverksins um hvað felst í heilsu- eflingu í litlum og meðalstórum fyr- irtækjum. Lissabonyfirlýsingin Upphaf Lissabonyfirlýsingarinn- ar er svohljóðandi: „Heilsuefling á vinnustað er sam- eiginlegt átak vinnuveitenda, starfsmanna og þjóðfélagsins sem miðar að því að bæta heilsu og líðan vinnandi fólks. Þessu markmiði verður náð með því að:  bæta vinnuskipulag og vinnuum- hverfi  hvetja til virkrar þátttöku  ýta undir þroska einstaklings- ins“ Stofnun innanlandsvettvangs Vinnueftirlitið mun gangast fyrir stofnun innanlandsvettvangs um heilsueflingu á vinnustað. Markmið þess verður að efla tengsl á milli þeirra fyrirtækja og stofnana hér á landi sem hafa áhuga á að innleiða heilsueflingu og heilsuvernd sem hluta af stjórnunarstefnu sinni. Með innanlandsnetverkinu skapast tækifæri til að skiptast á upplýs- ingum um gott fordæmi á sviði vinnuverndar og að vinna sameig- inlega að stefnumótun á því sviði. Heilsuefling á vinnustað getur dregið úr veikindafjarvistum í fyr- irtækjum og aukið afköst starfs- manna vegna betri heilsu og aukins áhuga starfsfólks, betri starfsanda og bættra samskipta á vinnustað. Heilsuefling er nútímaleg stjórnun- araðferð sem miðar að því að efla heilbrigði og vellíðan starfsmanna. Því hvetjum við stjórnendur og starfsmenn á öllum vinnustöðum til að kynna sér markmið heilsuefling- ar og leita leiða til að flétta hug- myndir heilsueflingarinnar inn í stjórnunarstefnu og starfshætti vinnustaðarins.Guðbjörg Linda Rafnsdóttir Heilsuefling Heilsuefling er nútíma- leg stjórnunaraðferð sem miðar að því, segja Dagrún Þórðardóttir og Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, að efla heilbrigði og vellíðan starfsmanna. Dagrún er skrifstofustjóri og Guðbjörg Linda er félagsfræðingur hjá Vinnueftirlitinu. Dagrún Þórðardóttir Evrópskt samstarfsverkefni um heilsueflingu á vinnustöðum R A Ð A U G L Ý S I N G A R FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR Jólamessa á þýsku verður í Dómkirkjunni 23.12.2001 kl. 15. Séra Gunnar Þorsteinsson og Pfarrer Jürgen Jamin munu aftur annast jólamessuna sameig- inlega. Að athöfn lokinni er kirkjugestum hjart- anlega boðið í jólate í bústað þýska sendiherr- ans, Hendrik Dane og frú Ursulu Dane á Tún- götu 18. Ath. breyttan messudag. Aðalfundur Matsveinafélags Íslands verður haldinn í Skipholti 50D, 3. hæð, fimmtu- daginn 27. desember kl. 17.00. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Matsveinafélag Íslands. HÚSNÆÐI Í BOÐI 3ja herbergja íbúð til leigu í Lindahverfi í Kópavogi. Falleg 3ja herbergja 100 fm íbúð, búin hús- gögnum og húsbúnaði, til leigu í a.m.k. 1 ár frá áramótum. Áhugasamir sendi upplýsingar um starf og fjölskyldustærð til auglýsingadeild- ar Mbl. merkt: „Lindahverfi — 266366“. TIL SÖLU Til sölu Til sölu er úr búi Burnham á Íslandi hf. ýmiss skrifstofubúnaður, s.s. skrifborð, skrifborðsstól- ar, tölvur, skjáir, prentarar, ljósritunarvélar, símkerfi, borðlampar, reiknivélar auk margra annarra hluta. Framangreint lausafé verður til sölu og sýnis í starfsstöð fyrirtækisins Vegmúla 2, 4. hæð, Reykjavík, fimmtudaginn 20. desember nk. milli kl. 13 og 16. Sigurmar K. Albertsson hrl., skiptastjóri Burnham á Íslandi hf. TILKYNNINGAR Auglýsing um breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016 og deiliskipulagi í Reykjavík Hraunbær, (Hraunbær, Bæjarháls, Bæjarbraut) breyting á deiliskipulagi. Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst til kynningar að nýju tillaga að breytingu á deiliskipulagi reits sem afmarkast af Hraunbæ í suður, Bæjarbraut í vestur, Bæjarhálsi í norður (lóðir á móts við Hraunbæ 102-120). Tillagan varðar eingöngu lóð C (þ.e. lóð vestan við lóð Skátanna) og gerir ráð fyrir að í stað þess að heimilt verði að reisa heilsugæslu á lóðinni verði heimilt að reisa þar hús undir verslunar- og þjónustustarfsemi. Tillagan felur ekki í sér neina breytingu á byggingarmagni eða lóðarfyrirkomulagi. Til upplýsingar skal þess getið að ný lóð fyrir heilsugæslustöð verður að öllum líkindum afmörkuð vestan Bæjarbrautar. Tillagan var í kynningu frá 8. ágúst sl. með athugasemdafresti til 12. september sl. Sá ágalli var á fyrri kynningu að athugasemdafrestur var viku of stuttur. Er tillagan því kynnt að nýju. Stakkahlíð 17, breyting á Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016. Í samræmi við 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst til kynningar tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016 varðandi lóðina nr. 17 við Stakkahlíð. Tillagan gerir ráð fyrir að landnotkun lóðarinnar, sem nú er verslunar- og þjónustusvæði, breytist í íbúðarsvæði. Samhliða framangreindri tilllögu að breytingu á aðalskipulagi eru kynntar teikningar af fyrirhuguðu íbúðarhúsi á lóðinni. Tillögurnar liggja frammi í sal Borgarskipulags og byggingarfulltrúa í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10.00 – 16.00 frá 19. desember 2001 til 16. janúar 2002. Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega til Borgarskipulags Reykjavíkur eigi síðar en 30. janúar 2002. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Reykjavík, 19. desember 2001. Borgarskipulag Reykjavíkur ÝMISLEGT Jól í Metró Jólagjafir fyrir: ✭ Handlagna Verkfæratöskur, skrúfjárna-, sporjárna- og út- skurðarsett. ✭ Potteigandann Ryksugur sem ekki þurfa rafhlöður, fljótandi glasabakkar. ✭ Jólabörnin Jólaskraut í miklu úrvali, seríur úti og inni, greni- greinar, dansandi jólasveinar og snjókarlar. Ljósaslöngur í metratali og í settum, krossar, stjörnur, jólatré og bjöllur. Metró, Skeifunni 7, s. 525 0800. Opið alla daga til kl. 19. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 18  18212198  Jv.  GLITNIR 6001121919 I Jf. I.O.O.F. 7  18219127½  I.O.O.F. 9  18212198½  Hörgshlíð 12. Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. Háaleitisbraut 58—60 Samkoma í Kristniboðssaln- um í kvöld kl. 20.30. Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson talar. Samkoma verður á annan í jólum, 26. desember, kl. 20.30. Sr. Arngrímur Jónsson predikar. Allir hjartanlega velkomnir. sik.is Súrefnisvörur Karin Herzog Vita-A-Kombi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.