Morgunblaðið - 19.12.2001, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 19.12.2001, Blaðsíða 29
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2001 29 MAÐURINN sem sjá má ræða við Osama bin Laden á myndbandinu sem bandaríska varnarmálaráðu- neytið sýndi í síðustu viku er ekki klerkur, eins og talið var, heldur fyrrverandi skæruliði úr stríðinu gegn Sovétmönnum í Afganistan og aldavinur bin Ladens, að því er sádi- arabískir embættismenn greindu frá. Bandarískir og sádi-arabískir embættismenn höfðu upphaflega sagt að maðurinn, sem á myndband- inu ræðir vinsamlega við bin Laden um hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september, væri Suleman al- Ghamdi, yfirmaður lítillar mosku sem eitt sinn var fangelsaður af sádi- arabískum yfirvöldum fyrir róttæk- ar skoðanir. En sádi-arabísk yfirvöld segja nú, að maðurinn sé í raun Khaled al- Harbi, sem kynntist bin Laden í stríðinu gegn hernámi Sovétmanna í Afganistan á níunda áratugnum og barðist síðar við hlið múslima í Bosn- íu og Tsjetsjníu. Talið er að um 15.000 Sádi-Arabar hafi fylgt hvatn- ingu sádi-arabískra stjórnvalda og haldið til Afganistans til að berjast gegn Sovétmönnum. Sádi-arabískir embættismenn segja að það veki engar sérstakar grunsemdir um sádi-arabísk tengsl við bin Laden þótt Harbi hafi verið með honum á myndbandinu. Bin Laden er Sádi-Arabi að uppruna, en var sviptur ríkisborgararétti 1994 vegna tilrauna til að skipuleggja andspyrnu gegn valdhöfum. Harbi, sem missti báða fætur í bardaga, hélt til Afganistans tíu dög- um eftir hryðjuverkin í Bandaríkj- unum. Sagði sádi-arabískur embætt- ismaður að Harbi hefði viljað sýna stuðning við hið heilaga stríð. Lík- lega hafi hann vonast til að geta veitt bin Laden „andlegan styrk“, og ef til vill hafi hann séð fyrir að til bardaga myndi koma við Bandaríkjamenn og vildi láta lífið í þeirri baráttu, sagði embættismaðurinn. Enn óljóst hver var á myndbandinu með bin Laden Talinn vera sádi- arabískur skæruliði AP Osama bin Laden og Sádi-Arabinn ræðast við á myndbandinu umtalaða. Kaíró. The Washington Post. LEIÐTOGAR bráðabirgðastjórn- arinnar í Afganistan eru reiðubúnir að samþykkja komu 5.000 manna al- þjóðlegs friðargæsluliðs til lands- ins, að því er haft var eftir afg- önskum embættismönnum í gær. Er það mun fjölmennara lið en þeir höfðu áður ljáð máls á. AFP-fréttastofan hafði þessar fregnir eftir starfsmönnum í afg- anska varnarmálaráðuneytinu í gær. Sögðu heimildamenn innan ráðuneytisins að formlegir samn- ingar hefðu enn ekki náðst um til- högun friðargæslunnar, en að það gæti gerst á allra næstu dögum. Norðurbandalagið, sem hefur mest ítök í bráðabirgðastjórninni sem tekur við völdum í Afganistan 22. desember n.k., hefur krafist þess að ef alþjóðlegt friðargæslulið komi til landsins verði það fámennt og valdsvið þess takmarkað. Varn- armálaráðherrann, Mohammad Fa- him, sagði til að mynda í síðustu viku að hann sæi einungis fyrir sér að um 1.000 gæsluliðar yrðu sendir á vettvang til að tryggja öryggi nýju stjórnarinnar í Kabúl. Síðustu daga hafa hins vegar far- ið fram strangar viðræður milli full- trúa bráðabirgðastjórnarinnar og vestrænna sendimanna undir for- ystu breska herforingjans John McColl. Þess er vænst að McColl muni fara fyrir friðargæsluliðinu, en hann ræddi meðal annars við Fa- him og fleiri leiðtoga bráðabirgða- stjórnarinnar um helgina og var viðstaddur fund Fahims og Donalds Rumsfelds, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, í herstöðinni í Bagram í Afganistan á sunnudag. Ágreiningsefnin varða staðsetningu og valdsvið AFP hafði eftir Barna Salihi, embættismanni í afganska varnar- málaráðneytinu sem einnig var við- staddur viðræðurnar á sunnudag, að leiðtogar bráðabirgðastjórnar- innar hefðu fallist á að 5.000 frið- argæsluliðar yrðu sendir til Afgan- istans. Þá hafði fréttastofan eftir öðrum afgönskum embættismanni, Dr. Gulbuddin, að ekki væri lengur deilt um stærð friðargæsluliðsins, heldur hvar það hefði bækistöðvar og hvert valdsvið þess yrði. Meðal annars þyrfti að ná samkomulagi um hvort erlendir gæsluliðar yrðu að störfum í höfuðborginni Kabúl og hvort þeir hefðu umboð til að beita valdi. Búist er við að öryggisráð Sam- einuðu þjóðanna samþykki ályktun síðar í vikunni, þar sem greitt yrði fyrir því að senda friðargæslulið til Afganistans. Sextán þjóðir hafa boðist til að senda friðargæsluliða: Ástralar, Bandaríkjamenn, Bretar, Frakkar, Grikkir, Hollendingar, Ítalir, Jórdanar, Kanadamenn, Mal- asíubúar, Norðmenn, Ný-Sjálend- ingar, Spánverjar, Tékkar, Tyrkir og Þjóðverjar. Varnarmálaráðherra Bretlands, Geoff Hoon, sagði í gær að fyrstu bresku friðargæsluliðarnir gætu verið komnir til Afganistans á laug- ardag, þegar bráðabirgðastjórnin tekur við völdum. Viðræður um tilhögun friðargæslu Afganar sagðir samþykkja 5.000 manna lið Brussel, Kabúl. AFP, AP. Reuters Afganskur andstæðingur talibana á flugvellinum í Kandahar, sem Bandaríkjamenn nýta nú. ÞÓTT fall Kabúl og Kandahar hafi verið áhrifamikið kann lokaáfangi hernaðaraðgerðanna í Afganistan að hafa meiri þýðingu fyrir framtíð landsins, grannríkin og Bandaríkin. Lokaáfangi stríðsins snýst ekki aðeins um örlög hryðjuverkaforingj- ans Osama bin Ladens. Möguleikinn á að alvarleg vandamál komi upp eft- ir að stríðinu lýkur blasir nú þegar við þar sem vopnaðir hópar talibana hafa komist undan frá Kandahar og dvelja nú í þorpum í suðurhluta landsins. Fregnir herma einnig að liðsmenn al-Qaeda hafi flúið yfir landamærin til Pakistans. „Stríðið er rétt að byrja“ Pólitísk vandamál vofa einnig yfir. Leiðtogar hinna ýmsu þjóðarbrota og ættbálka eru þegar farnir að kvarta yfir því að þeir hafi ekki nógu mikil áhrif í bráðabirgðastjórninni sem á að taka við völdum á laugar- daginn kemur. „Við getum ekki slökkt ljósin, lok- að dyrunum og farið heim eftir að síðasti talibaninn hefur verið hrak- inn á brott og Osama bin Laden fundist,“ sagði Judith Yaphe, við National Defense University í Wash- ington. „Hvað Afganistan varðar er stríðið rétt að byrja.“ „Lokataflið skiptir sköpum ef menn vilja koma í veg fyrir að sagan endurtaki sig,“ bætti Yaphe við og skírskotaði til skálmaldarinnar og stjórnleysisins sem ríkti í landinu vegna valdabaráttu afganskra stríðsherra eftir brottför sovéska innrásarhersins 1989. Hún sagði að slíkt ástand gæti orðið til þess að Afganistan yrði aftur griðastaður hryðjuverkamanna. „Ekki nóg að vinna stríðið“ Lokaáfangar annarra hernaðarað- gerða Bandaríkjamanna í þessum heimshluta hafa leitt til vandamála sem eru enn óleyst. Áform stjórnar George Bush eldri um að koma Saddam Hussein frá völdum eftir stríðið í Írak 1991 fóru út um þúfur þegar hún hvatti til uppreisnar með- al Kúrda í norðurhluta landsins og shíta í suðurhlutanum. Samkvæmt vopnahléssamkomulaginu við stjórn- völd í Bagdad fengu þau að halda herflugvélum sem var síðan beitt til að bæla uppreisnina niður. Og nú, tíu árum síðar, er Saddam Hussein enn við völd í Írak. Í Líbanon fór lokaáfangi friðar- gæslu bandarískra hermanna út um þúfur árið 1983 þegar þeim var fyr- irskipað að gera árás á hersveitir múslíma og styðja hersveitir krist- inna hægrimanna. Þetta varð til þess að bandarísku hermennirnir urðu fyrir æ fleiri árásum og svo fór að lokum að þeir fengu fyrirmæli um að fara frá Líbanon. Borgarastríðið geisaði í sjö ár til viðbótar. „Við komumst að því í Írak að það er ekki nóg að vinna stríðið,“ sagði Kenneth Pollack, fyrrverandi starfs- maður Þjóðaröryggisráðs Banda- ríkjanna. „Við getum glutrað niður mörgu af því sem áunnist hefur í hryðjuverkunum ef aðstæðurnar eru ekki réttar þegar við köllum her- sveitirnar heim.“ Meðal annars er óttast að taliban- ar safnist saman í fjöllunum og hefji skæruhernað gegn bráðabirgða- stjórninni, sem kann einnig að falla vegna valdabaráttu þjóðarbrotanna. Mikið í veði í lokaáfanga Washington. Los Angeles Times.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.