Morgunblaðið - 19.12.2001, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 19.12.2001, Blaðsíða 16
ÚTBOÐ fyrir tvær göngu- brýr, annars vegar yfir Miklubraut á móts við Kringluna og hins vegar yfir Hafnarfjarðarveg við Hraunsholt, hefur verið aug- lýst. Gert er ráð fyrir að verklok við báðar brýrnar verði í ágúst árið 2002. Það er Vegagerðin í Reykjanesumdæmi, borg- arverkfræðingurinn í Reykjavík og bæjarverk- fræðingurinn í Garðabæ sem auglýsa útboðið, en í auglýs- ingunni segir að brýrnar séu báðar stálbitabrýr í tveimur höfum. Heildarlengd brúar- innar yfir Miklubraut er 54 metrar en heildarlengd Haunsholtsbrúarinnar er 45 metrar. Samtals er um rúm 77 tonn af stálsmíði að ræða, 256 metra af handriði utan brúar og 5 rúmmetra af steypu. Útboð fyrir göngubrýr auglýst Kringlan Teikning/Sigurður Valur Þessari göngubrú við Kringluna sem og brúnni yfir Hafn- arfjarðarveg á að vera lokið hinn 22. ágúst á næsta ári. HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 16 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÍBÚAR í Grafarvogi hafa óskað eftir því við umhverf- is- og heilbrigðisnefnd Reykjavíkur að gerð verði mæling á saurgerlamengun í fjörum í Hamrahverfi og Eiðisvík. Formaður íbúa- samtakanna segir óforsvar- anlegt að fresta tengingu hreinsistöðvar í voginum um ár áður en slík mæling fari fram. Í bréfi sem framkvæmda- stjóri Miðgarðs, fjölskyldu- þjónustunnar í Grafarvogi, ritaði til formanns nefndar- innar segir að ósk um slíkar mælingar hafi komið fram á fundi hverfisnefndar Grafar- vogs sem haldinn var með gatnamálastjóra. Að sögn Knúts Halldórs- sonar, formanns íbúasam- taka Grafarvogs, hefur lengi verið vitað að töluvert klóak komi út við Eiðisvíkina og í fjörunum í Hamrahverfinu. „Nú er Grafarholtið að byggjast þar sem ráðgert er að verði 4.500 manns og allt klóak þaðan kemur út í vog- inn í Hamrahverfinu. Okkur var lofað árið 1999 að búið yrði að tengja hreinsunar- stöð og þetta yrði allt frá- gengið á næsta ári 2002 en síðan sáum við í blöðunum að það er búið að fresta því um eitt ár.“ Hann segir að á fundinum hefðu íbúar verið að spyrj- ast fyrir um á hvaða for- sendum sú frestun hefði verið gerð. „Við vildum vita hvort það hefðu verið gerðar mælingar og annað slíkt en það kom fram að það hefði ekki verið gert. Talið væri í lagi að fresta þessu en það var engin mæling eða annað sem lá til grundvallar því að þessu var frestað.“ Tengist brotthvarfi áburðarverksmiðjunnar Segir Knútur að því vilji íbúar að slík mæling verði gerð og að ákvörðun um frestun tengingar hreinsun- arstöðvarinnar verði ekki tekin fyrr en niðurstöður liggi fyrir. Þá óski íbúar eft- ir því að merkingar um mengun verði settar upp í fjörunum en því hafi sömu- leiðis verið lofað árið 1999, án þess að slíkt hafi verið gert. Hrannar B. Arnarsson, formaður umhverfis- og heilbrigðisnefndar Reykja- víkur, segir eðlilegt og sjálf- sagt að mælingarnar, sem íbúarnir fara fram á, verði framkvæmdar. „Það vita all- ir af þessu ástandi sem þarna er og þess vegna ákváðu menn að bregðast við með því að fara í hreins- un strandlengjunnar. Hins vegar þurfum við að fresta þessari tengingu þar sem skipulagið á svæðinu fyrir dælustöðina er í uppnámi vegna mögulegs brotthvarfs áburðarverksmiðjunnar og mögulegrar landfyllingar á þeim slóðum.“ Hann segir nauðsynlegt að lokið verði við skipulag svæðisins áður en farið verður í að byggja upp hreinsunarstöðina. „Þannig að frestunin var óhjákvæmi- leg en á móti má segja að Grafarvogsbúar sjái hilla undir langþráð baráttumál sitt um að Áburðarverk- smiðjan hverfi af svæðinu. Í því máli hljóta menn að taka meiri hagsmuni fyrir minni og fresta þessu á meðan við klárum skipulagið.“ Að sögn Hrannars verða mælingarnar gerðar. Vitað sé að ástandið á svæðinu sé ekki sem skyldi og verði ekki komið í lag fyrr en hreinsunarstöðin verður virk.„Það frestast um eitt ár – átti að vera 2003 en verð- ur 2004.“ Þá segir hann að verði niðurstaða mæling- anna slík að þörf verði á mengunarmerkingum þá verði þær settar upp. Íbúar gagnrýna frestun á tengingu skólphreinsunarstöðvar við Hamrahverfi Ákveðið án mengunarmælinga Grafarvogur Frestunin óhjákvæmileg vegna skipulagsvinnu segir for- maður umhverfis- og heilbrigðisnefndar Reykjavíkur KIRKJUGARÐURINN í Hafnarfirði átti að anna eftir- spurn eftir greftrun til ársins 2048 samkvæmt upprunaleg- um áætlunum. Þetta segir for- maður stjórnar garðsins. Hann segir bæjaryfirvöld og Vegagerðina hafa dregið lapp- irnar í því að stækka garðinn og því stefni nú í að honum verði sjálflokað innan þriggja ára. Morgunblaðið greindi frá því í gær að stjórn kirkju- garðsins hafi óskað eftir því að loka garðinum fyrir öðrum en þeim, sem greitt hafa kirkju- garðsgjöld til garðsins en af þeim 130 greftrunum sem fara þar fram árlega eru um 60% heimamenn en 40% aðrir. Jónatan Garðarson, formað- ur stjórnar Kirkjugarðs Hafn- arfjarðar, segir enga aðra skýringu á þessu en að þetta sé leyfilegt. „Samkvæmt lögum frá 1993 geta aðstandendur eða þeir sem horfa fram á að látast óskað eftir því að láta jarðsetja sig hvar sem er og þetta fer bara eftir því hvernig fólki líst á staðinn. Garðurinn hér í Hafnarfirði þykir falleg- ur, hann er vel hirtur og hefur jafnan þótt aðlaðandi og alúð- legt að koma í hann. Við finn- um fyrir því þegar fólk kemur uppeftir að það horfir yfir og segir „Hér vildi ég vera.“ Það er eina skýringin sem við höf- um.“ „Helgasti réttur hvers manns“ Hann segir fólkið ekki endi- lega tengjast Hafnarfirði á nokkurn hátt. „Hlutfallið er til- tölulega hátt og þetta er að aukast. Við höfum séð að fólk úr nágrannabyggðunum, eins og Kópavogi og Suðurnesjum, óskar frekar eftir því að liggja þarna en til dæmis í Grafar- vogi. Ástæðan er kannski fjar- lægðin þangað.“ Að hans sögn kom um tíma fólk úr Bessastaðahreppi eftir að kirkjugarðurinn þar lokað- ist fyrir nýjum gröfum og eins var tímabundið vandamál í Keflavík. „Það var áætlað að garðurinn dygði til 2048 en nú eru innan við þrjú ár eftir í garðinum. Það sjáum við á fjölda greftrana og hvernig garðurinn hefur grafist undan- farið.“ Jónatan segir að vandamálið sé ekki nýtt af nálinni. „Það hefur dregist von úr viti hjá bæjaryfirvöldum í Hafnarfirði að gangast í þetta mál. Ég er búinn að sitja hér í stjórn kirkjugarðsins sem formaður síðan 1997 og mitt fyrsta verk var að óska eftir því að það yrði hafist handa við að stækka garðinn þá þegar en þeir hafa dregið lappirnar. Það hefur líka dregist hjá Vegagerðinni að ganga frá sínum málum og með því að færa Reykjanes- brautina upp fyrir garðinn hafa þeir tekið talsvert af því landsvæði sem var búið að taka frá fyrir garðinn til fram- búðar. Þannig að mér finnst bæði bæjaryfirvöld og landsyf- irvöld horfa fram hjá því að þetta er helgasti réttur hvers manns sem er að ganga hinstu gönguna.“ Hann segir að í raun megi ekki neita fólki um legu í vígðri mold en til standi að beina þeim tilmælum til manna að þeir líti á garðinn sem neyð- arúrræði. „Þetta er alls ekki það sem við óskum okkur en ef fæst ekki undanþága þá lokast garðurinn einfaldlega sjálf- krafa innan þriggja ára.“ Stefnir í að kirkjugarðurinn lokist sjálfkrafa innan þriggja ára Fólki finnst garðurinn fallegur og aðlaðandi Hafnarfjörður BÆKUR og jólaljós eru án efa ein helstu kennileiti þess tíma sem nú fer í hönd og kristallast það ágæt- lega í þessari mynd sem ljósmyndari Morgunblaðsins tók á dögunum. Enda eru þær ófáar bækurnar sem verða lesnar um og eftir jólin þó að fæstir þurfi vonandi að takast á við stafla á borð við þann sem gnæfir hér yfir menn og mýs í Eymundsson í Austurstræti. Morgunblaðið/Ásdís Ljós og bækurMiðborg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.