Morgunblaðið - 19.12.2001, Blaðsíða 19
kenna samsetningu verslana í
Kringlunni og lítið vera um til-
færslur, að verslanir séu að flytja
og aðrar nýjar að koma inn. „Það
var nokkuð um þetta fyrri hluta
ársins en undanfarna mánuði hef-
ur verið mikill stöðugleiki.“
Viðskiptavinir víða að
Í gegnum tíðina hafa verið gerð-
ar kannanir á því hverjir það eru
sem versla í Kringlunni. Ragnar
segir að íbúar í nágrenni Kringl-
unnar séu hennar dyggustu við-
skiptavinir svo og aðrir Reykvík-
ingar, en sömuleiðis eykst alltaf
fjöldi þess fólks utan af landi sem
kýs að versla þar fyrir jólin. „Tíðin
er góð, það er gott ferðaveður,
sem þýðir að fleiri gera sér ferð til
borgarinnar til að versla hjá okk-
ur.“
Stækkun Kringlunnar var lokið í
október 1999 og jókst þá versl-
unarrýmið um 25%. Ragnar segir
að aðsókn að Kringlunni hafi þá
aukist sem því nemur.
Bílastæðin við Kringluna eru
þéttsetin um jólin og því hefur
verið gripið til þess undanfarin ár
að fá afnot af bílastæðum skólanna
í kring, þ.e. Verslunarskólans og
Morgunblaðið/Kristinn
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2001 19
VERSLUNARFÓLK í Kringl-
unni sem Morgunblaðið ræddi
við segir flest jólasöluna svip-
aða og í fyrra og að það finni
lítið fyrir samdrætti.
„Jólasalan hjá okkur hefur
gengið mjög vel,“ segir Ingunn
Magnúsdóttir, verslunarstjóri
Tékk-kristals, en verslunin hef-
ur verið í Kringlunni frá upp-
hafi. „Ég er mjög ánægð og tel
að verslunin sé jafnmikil og
var í fyrra fyrir jólin. Við viss-
um auðvitað ekki hvað myndi
gerast þegar stór versl-
unarmiðstöð bættist við, en við
erum mjög sátt.“
Salome Sævarsdóttir er
verslunarstjóri íþróttafata-
verslunarinnar Maraþon sem
hefur verið í Kringlunni í
nokkur ár. „Það hefur, líkt og
hjá öðrum, verið langmest
verslað hjá okkur um helgar,
en núna er þetta allt að komast
á fullt skrið, alla daga,“ segir
hún. „En það var meira að
gera hjá okkur í fyrra. Það er
samt alls ekki Smáralind sem
hefur þau áhrif, ég held að það
sé mun frekar út af því að
vöruverð er almennt að hækka
og laun fólks hafa ekki hækkað
í hlutfalli við það. Svo almenn-
ur samdráttur í þjóðfélaginu
hefur þessi áhrif, fólk er ekki
að eyða eins miklum pen-
ingum í hverja jólagjöf.“
Verslunarstjóri snyrti- og
gjafavöruverslunarinnar Hyg-
eu í Kringlunni, Bjargey Stef-
ánsdóttir, er mjög ánægð með
jólasöluna. „Mér finnst salan
hafa farið álíka hratt af stað
og undanfarin ár og salan
vera sambærileg við árið í
fyrra. Það hefur auðvitað heil
verslunarmiðstöð bæst við,
svo salan hér hjá okkur er
meiri en við bjuggumst við.
Fólk er líka að gera jólainn-
kaupin fyrr í ár finnst mér.“
Sjöfn Kolbeins er einn af
eigendum verslananna Mons-
oon og Accessorize sem einnig
er að finna í Smáralind. „Ég
er bara hissa á því hversu
mikið er verslað og þetta virð-
ist vera í svipuðu horfi og í
fyrra,“ segir hún. „Þegar
Smáralind var opnuð bjugg-
umst við við ákveðnum sam-
drætti hér í Kringlunni, en
það hefur ekki gengið eftir og
við erum mjög ánægð með
það sem komið er.“
Jólaverslunin
meiri en flestir
bjuggust við
Menntaskólans við Hamrahlíð þar
sem starfsmenn Kringlunnar
leggja nú bílum sínum svo að nóg
framboð sé á bílastæðum fyrir við-
skiptavinina.
Flesta mánuði ársins vinna
tæplega 1.000 manns í Kringlunni
en í jólamánuðinum eru þeir um
1.200.
Salan dreifist aðallega
á tvær helgar
Í Kringlunni eru 150 fyrirtæki
og þar af eru 15 veitingastaðir og
105 verslanir Mest er jólasalan
laugardaginn fyrir aðfangadag en
þar sem aðfangadag ber nú upp á
mánudag dreifist hún jafnar yfir
tvær helgar, að mati Ragnars.
Mikið er um uppákomur fyrir
jólin í Kringlunni og segir Ragnar
að aðstaða til slíks sé ágæt til að
skapa stemmningu á göngum
verslunarmiðstöðvarinnar.
„Það þarf að fara vel með svona
uppákomur, því það er svo margt
fólk á göngunum. Það þarf því að
gæta hófs í þessu, en vissulega er
ýmislegt um að vera sem gleður
börn og aðra gesti okkar.“
Hverja telur þú vera helstu sér-
stöðu Kringlunnar?
„Í Kringlunni eru mörg fyrir-
tæki sem hafa verið hér í fjölda
ára með sinn rekstur og stöðug-
leiki því mikill. Hér er að finna
mjög mörg fyrirtæki, þau eru
kannski að meðaltali minni en í
Smáralindinni, en fjölbreytnin hjá
okkur er miklu meiri. Svo er það
auðvitað staðsetningin.
Þetta er besta staðsetningin á
höfuðborgarsvæðinu, við liggjum
vel við tveimur stórum umferð-
aræðum, Kringlumýrarbraut og
Miklubraut, Kringlan er í alfara-
leið og lítil fyrirhöfn að líta hér
inn.“
..................
„ Þ e t t a e r b e s t a s t a ð -
s e t n i n g i n á h ö f u ð -
b o r g a r s v æ ð i n u .
K r i n g l a n e r í a l f a r a -
l e i ð o g l í t i l f y r i r h ö f n
a ð l í t a h é r i n n . “
..................
..................
„ V i ð á t t u m v o n á a ð
S m á r a l i n d i n o g e f n a -
h a g s á s t a n d i ð a l -
m e n n t m y n d i þ ý ð a
s a m d r á t t u p p á 2 5 % í
v i ð s k i p t u m K r i n g l -
u n n a r. “
..................
..................
S t ö ð u g l e i k i e i n k e n n -
i r s a m s e t n i n g u v e r s l -
a n a í K r i n g l u n n i o g
l í t i ð e r u m t i l f æ r s l u r,
a ð v e r s l a n i r s é u a ð
f l y t j a o g a ð r a r n ý j a r
a ð k o m a i n n .
..................
Morgunblaðið/Kristinn