Morgunblaðið - 19.12.2001, Qupperneq 20
AKUREYRI
20 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Handmálaðir
englar
sími 462 2900
Blómin
í bænum
Atvinnuhúsnæði - Akureyri
Til sölu um 1.450 fm atvinnuhúsnæði á efri hæð
við Dalsbraut á Akureyri. Húsnæðið skiptist í
rúmgóðan vinnusal, annan sal minni, góðar
skrifstofur svo og góða kaffiaðstöðu. Húsnæðið
hentar vel fyrir hvers konar atvinnustarfsemi og
ekki síður fyrir hvers konar tómstunda- og/eða
félagsstarfsemi. Húsnæðið er til afhendingar nú
þegar.
Upplýsingar hjá Fasteignasölunni Eignakjör ehf., Akureyri, sími 462 6441.
NÝR geisladiskur með söng Kórs
Menntaskólans á Akureyri er
kominn út. Stjórnandi Kórs MA er
Guðmundur Óli Gunnarsson.
Á diskinum eru upptökur sem
Sigurður Rúnar Jónsson, hljóð-
meistari í Stúdíó Stemmu, hefur
gert við lok starfsárs kórsins þrjú
undanfarin vor, þannig að ekki er
um óbreyttan kór að ræða þar sem
mannaskipti eru alltaf töluverð
frá ári til árs. Alls eru tuttugu
sönglög á diskinum, sýnishorn af
helstu viðfangsefnum kórsins, ís-
lensk þjóðlög í gömlum og nýjum
útsetningum, sönglög íslenskra
tónskálda frá ýmsum tímum, í
gömlum og nýjum útsetningum.
Þá er á diskinum að finna Skóla-
söng MA, lag Páls Ísólfssonar við
ljóð Davíðs Stefánssonar, sem nú
er í fyrsta sinn gefinn út á plötu.
Í kórnum eru nú ríflega 50 nem-
endur og kemur kórinn fram við
ýmis tækifæri í skólanum, einnig
hefur hann sungið á aðventunni
víða, en starfsemi kórsins er afar
öflug í vetur.
Guðmundur Óli hefur stjórnað
kór MA frá árinu 1997 en hann er
einn af kunnustu kór- og hljóm-
sveitarstjórum landsins. Hefur
verið fastur aðalstjórnandi Sinfón-
íuhljómsveitar Norðurlands frá
1992 og einnig fastur stjórnandi
Caput-hópsins frá sama ári.
Bæklingur fylgir með söng-
textum og fleiri upplýsingum sem
eru í enskri endursögn Helenu
Frances Eðvarðsdóttur. Fyrst um
sinn verður diskurinn til sölu í
Menntaskólanum á Akureyri, unnt
er að panta hann á skrifstofu skól-
ans eða í tölvupósti. Hann kostar
1.500 krónur.
Morgunblaðið/Sverrir Páll
Kór Menntaskólans á Akureyri hefur gefið út geisladisk með 20 sönglögum. Hér er meirihluti kórfélaga.
Kór MA gefur út nýjan
geisladisk með 20 lögum
STJÓRN Norðurorku samþykkti í
vikunni að lækka gjaldskrá á heitu
vatni á Akureyri, en gjaldið lækkar úr
103 krónum rúmmetrinn í 95 krónur
eða um 8%. Þá samþykkti stjórnin að
hækka alla flokka aukavatnsgjalds
um 1 kr. og mælagjald fyrir kalt vatn,
heimtaugagjald fyrir raforku og hei-
mæðagjöld fyrir heitt og kalt vatn.
Franz Árnason, forstjóri Norður-
orku, sagði það markmið fyrirtækis-
ins að lækka verð á heitu vatni en það
hefði verið gert í smáum skömmtum
yfir lengri tíma. Gjaldskráin var síð-
asta lækkuð 1. janúar 1999. „Það var
því orðið tímabært að lækka núna,
enda gjaldið verið hið sama síðustu
þrjú ár,“ sagði Franz. Ýmsar aðstæð-
ur hefðu valdið því nú að unnt var að
lækka gjaldskrána. „En við teygjum
okkur eins langt og við mögulega get-
um og vitum að ekkert má út af
bregða í rekstrinum án þess að grípa
þurfi til ráðstafana.“
Álagning vatnsgjalds verður einnig
lækkuð um samtals 20 milljónir
króna. Tekjur Norðurorku minnka
um 50 milljónir króna vegna þessara
lækkana. Gera má ráð fyrir að eig-
endur lítilla íbúða muni spara 2–3
þúsund krónur vegna fyrirhugaðrar
lækkunar, en hvað stór einbýlis varð-
ar má gera ráð fyrir að sparnaðurinn
nemi 6–9 þúsund krónum á ári.
Gjaldskrá á heitu vatni lækkuð
6–9 þúsund króna
lægri reikningur
fyrir einbýlishús
TÍÐARFARIÐ hefur verið einstaklega milt hér
norðanlands í desember. Hulda M. Jónsdóttir á
Ytri-Tjörnum brá sér í kálgarðinn á bænum og
uppskar nokkra hvítkálshausa og gulrætur sem
einhverra hluta vegna urðu eftir í haust. Að sögn
Huldu er hvítkálið af svokölluðu haustafbrigði
sem þroskast síðsumars og á haustin eins og nafn-
ið bendir til en geymist mjög vel og þolir frost
betur en önnur afbrigði. Hulda sagði að hvítkálið
bragðaðist vel og væri algjörlega óskemmt.
Morgunblaðið/Benjamín
Hulda M. Jónsdóttir tók upp hvítkál og gulrætur.
Tók upp
hvítkál og
gulrætur
Eyjafjarðarsveit
TILBOÐ Baksturs ehf. í tæki og bún-
að Kexsmiðjunnar þótti hagstæðast
af þeim þremur tilboðum sem bárust
og að öllu óbreyttu verður skrifað
undir kaupsamning í dag.
Kexsmiðjan varð gjaldþrota í
haust, en Bakstur ehf., félag sem þrír
fyrrverandi eigendur Kexsmiðjunnar
auk eins í viðbót eiga, hefur verið með
reksturinn á leigu hjá þrotabúinu.
Hreinn Pálsson skiptastjóri sagði að
tilboð Baksturs hefði verið hagstæð-
ast og stefnt væri að undirskrift kaup-
samninga í dag, miðvikudag.
„Þeir tóku reksturinn á leigu strax
eftir þrotið, starfsfólk hefur haldið
sinni vinnu og vörur sem þar eru
framleiddar hafa ekki tapað markað.“
Bakstur bauð hæst í
þrotabú Kexsmiðjunnar
Um 150 þúsund
gærur keyptar til
fyrirtækisins
Unnið að endurreisn Skinnaiðnaðar
VINNA við endurreisn Skinnaiðnað-
ar á Akureyri er enn í fullum gangi
en fyrirtækið var lýst gjaldþrota um
miðjan september sl. Frá þeim tíma
hefur félag á vegum Landsbankans,
Skinnaiðnaður – rekstrarfélag, tekið
við rekstrinum. Þar er um tíma-
bunda aðgerð að ræða en nú er ljóst
að bankinn mun halda rekstrinum
áfram fram til loka janúar á næsta
ári í það minnsta.
Þá hefur bankinn staðið fyrir
kaupum á 150.000 gærum, sem slát-
urleyfishafar héldu eftir þegar út-
flutningur á þeim hófst nú í haust.
Ormarr Örlygsson, framkvæmda-
stjóri rekstrarfélagsins, sagði að
áfram væri unnið að endurreisn fyr-
irtækisins en að ekki hefðu enn feng-
ist nein svör frá Byggðastofnun.
Hann sagði að margt jákvætt hefði
verið að gerast en svo væri annað
sem hefði gengið hægar. Fjárfestar
hefðu lýst yfir áhuga á að taka þátt í
endurreisn félagsins en Ormarr vildi
þó ekki upplýsa á þessum tíma-
punkti hverjir þeir væru.
Reksturinn gengið ágætlega
Sigurður Sigurgeirsson, svæðis-
stjóri Landsbankans á Akureyri,
sagði að bankinn ætlaði ekki að
halda úti þessum rekstri til langs
tíma. Hins vegar vildi bankinn leggja
sitt af mörkum, þar sem unnið væri
að því að stofna félag um reksturinn
til lengri tíma. „Við bindum vonir við
að menn nái saman félagi sem hefur
burði til þess að halda áfram. Rekst-
urinn hefur gengið ágætlega að und-
anförnu og við því getað réttlætt það
að halda honum áfram. Það hefur
líka sýnt sig að það var rétt ákvörðun
að fara af stað með rekstrarfélagið,“
sagði Sigurður.
Starfsfólki fjölgað
Ormarr sagði að staðan á mark-
aðnum fyrir vörur fyrirtækisins væri
ágæt um þessar mundir. Menn séu
þó einnig að horfa til næsta vetrar.
Um 120 manns unnu hjá Skinna-
iðnaði fyrir gjaldþrotið en þar starfa
nú um 30 manns. Ormarr sagði
stefnt að því að fjölga starfsmönnum
eitthvað í næsta mánuði. Hann sagði
að unnið yrði við framleiðsluna út
þessa viku og vinna hæfist svo aftur
strax eftir áramót. „Við erum komn-
ir með pantanir fyrir janúar og einn-
ig sjáum við fram í febrúar og mars,
þannig að markaðshorfur eru ekki
slæmar núna. Og hvað það varðar er-
um við nokkuð bjartsýnir.“