Morgunblaðið - 19.12.2001, Síða 24
LANDIÐ
24 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
UNDIRRITAÐUR var samningur
milli sveitarstjórnar í sveitarfélaginu
Skagafirði og RARIK, 17. desember
sl. Hann felur í sér að Rafmagnsveit-
urnar kaupa dreifikerfi Rafveitu
Sauðárkróks og tekur fyrirtækið við
rekstri kerfisins 1. janúar næstkom-
andi. Kaupverð er 330 Mkr., stað-
greitt, og er samkvæmt mati á verð-
mæti eigna og viðskipta.
RARIK hefur annast raforkusölu
til viðskiptavina í Skagafirði undan-
farna áratugi, að Sauðárkróki und-
anskildum, auk þess að eiga og reka
Gönguskarðsárvirkjun.
Í fréttatilkynningu segir: „RARIK
hefur átt gott samstarf við Rafveitu
Sauðárkróks og hefur annast heild-
sölu á raforku til veitunnar auk þess
sem Sveitarfélagið Skagafjörður og
RARIK standa sameiginlega að Hér-
aðsvötnum ehf. sem undirbúa nú
virkjun við Villinganes. Rekstur Raf-
veitu Sauðárkróks fellur því vel að
orkuveitusvæði og starfsemi RARIK
og er víst að aukin hagkvæmni næst
með samrekstri þessara veitukerfa.
Þá mun ljóst að tilkoma Sauðárkróks
inn í veitukerfið kallar á endurskoð-
un á fyrirkomulagi þjónustu í hér-
aðinu og reyndar í öllum landshlut-
anum.
Um áramótin munu verðskrá og
skilmálar RARIK taka gildi hjá flest-
um viðskiptavinum en þó verður veitt
tveggja ára aðlögun að verðskránni
hjá stærri orkunotendum. Verður
reynt að standa að þeirri aðlögun á
sem þægilegastan hátt fyrir orku-
kaupendur á svæðinu.
Aðilar samningsins eru sammála
um að með þessum aðgerðum hafi
verið stigið heillaspor og að þær hafi í
för með sér hagræði fyrir báða aðila.
Vonast RARIK eftir góðri samvinnu
við sveitarstjórn og íbúa, býður nýja
viðskiptavini velkomna og mun leit-
ast við að veita þeim sem besta þjón-
ustu í framtíðinni,“ segir í fréttinni.
Rarik tekur við raf-
orkusölu á Sauðárkróki
Sauðárkrókur
FJÁRHAGSÁÆTLUN Borg-
arbyggðar fyrir árið 2002 var
samþykkt á fundi bæjar-
stjórnar hinn 13. desember sl.
Samkvæmt fjárhagsáætlun-
inni er gert ráð fyrir að skatt-
tekjur ársins 2002 nemi 604
milljónum króna sem er um
8% hækkun á milli ára. Þær
skiptast þannig að útsvar-
stekjur eru áætlaðar 414
milljónir króna, fasteigna-
gjöld 67 milljónir króna og
framlög úr Jöfnunarsjóði
sveitarfélaga 123 milljónir
króna. Þjónustutekjur eru
áætlaðar um 140 milljónir
króna.
Hæstu framlögin
eru til fræðslumála
Kostnaður við rekstur
málaflokka að frádregnum
þjónustutekjum nemur 537
milljónum króna. Þar af fara
330 milljónir króna eða 55%
af skatttekjum til fræðslu-
mála, þar með eru leikskólar
taldir. Framlegð fyrir fjár-
magnsliði nemur samkvæmt
áætluninni 67 milljónum
króna sem er um 11% af
skatttekjum. Rekstraráætlun-
in einkennist af hækkun
launakostnaðar í kjölfar
kjarasamninga sem gerðir
hafa verið á árinu 2001 og á
móti að fylgt verði aðhalds-
semi í rekstri sveitarfé-
lagsins.
Til framkvæmda og fjár-
festinga eru áætlaðar um 140
milljónir króna á árinu 2002.
Þar vega þyngst áform um
bygginu leikskóla á Bifröst en
endanlegar tillögur þar að
lútandi liggja ekki fyrir. Mikil
uppbygging hefur verið á Bif-
röst síðustu misseri og enn
frekari uppbygging er ráð-
gerð þar á næsta ári.
Lántökur á árinu eru
áætlaðar 150 milljónir
Samkvæmt fjárhagsáætlun
Borgarbyggðar eru lántökur
á árinu 2002 áætlaðar um 150
milljónir króna en að afborg-
anir eldri lána nemi um 70
milljónum króna.
Um næstu áramót verða
gerðar breytingar á reikn-
ingsskilum sveitarfélaga sem
mun jafnframt þýða breyt-
ingu á framsetningu fjárhags-
áætlunar sem unnið verður að
í byrjun árs 2002.
Um 8%
hækkun
skatt-
tekna
Borgarbyggð
ÞESSI jólastjarna skín yfir
byggðinni á Hvammstanga og
minnir íbúa kauptúnsins á nálægð
jólanna.
Kirkjukórinn stendur fyrir að-
ventutónleikum í Hvammstanga-
kirkju miðvikudagskvöldið 19.
desember.
Þar koma fram ýmsir lista-
menn og flytja leikna og sungna
tólnlist sem tengist aðventu og
jólum.
Tónleikarnir eru liður í fjár-
öflun kórsins fyrir byggingarsjóð
safnaðarheimilis, sem stendur til
að reisa við kirkjuna. Nú þegar
eru í byggingarsjóði um níu millj-
ónir króna, en kostnaðaráætlun
er um 35 milljónir.
Mikið tónleikahald hefur verið
í héraðinu á aðventunni, m.a.
voru tónleikar Sigurðar
Flosasonar og Gunnars Gunn-
arssonar í Hvammstangakirkju á
dögunum.
Jóla-
stjarna á
aðventu
Hvammstangi
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
FORELDRAFÉLAG leikskólans
Klettaborgar bauð krökkunum
ásamt foreldrum í samveru við
piparkökuskreytingar nýlega.
Þessi nýbreytni mæltist vel fyrir
og var þátttaka góð. Á meðfylgj-
andi mynd má sjá áhugasama að
störfum.Borgarnes. Foreldrafélag
leikskólans Klettaborgar bauð
krökkunum ásamt foreldrum í
samveru við piparkökuskreyt-
ingar nýlega. Þessi nýbreytni
mæltist vel fyrir og var þátttaka
góð.
Á meðfylgjandi mynd má sjá
áhugasama aðstörfum.
Piparkökuskreyt-
ingar á Klettaborg
Borgarnes
Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir
KAUPFÉLAG Árnesinga, sem
rekur Hótel Selfoss, hefur skrifað
undir samning við Voglauer möbel
í Austurríki, um kaup á innrétt-
ingum og húsgögnum fyrir ný-
byggingu hótelsins.
„Við völdum Voglauer-innrétt-
ingarnar og -húsgögnin úr mörg-
um tilboðum sem okkur bárust frá
fjölda aðila og það sem réð mestu
um ákvörðun okkar var samspil
verðs og gæða. Húsgögnin verða
afhent uppsett og tilbúin til notk-
unar 24. maí 2002, en nýtt Hótel
Selfoss verður opnað 1. júní á
næsta ári og mun þá verða rekið
undir merkjum Icelandair-hótel-
keðjunnar. Samstarfið við Ísberg
ehf. umboðsaðila Voglauer á Ís-
landi og Voglauer hefur gengið af-
ar vel og öllum okkar spurningum
var svarað fljótt og vel,“ sagði Jó-
hönna Róbertsdóttir, forstöðumað-
ur hótel- og gistisviðs KÁ.
Við rætur Alpanna
Voglauer er við rætur Alpanna, í
litlu þorpi sem heitir Abtenau.
Fyrirtækið hefur starfað á sviði
húsgagna- og innréttingafram-
leiðslu síðan 1932. Fyrirtækið sér-
hæfir sig í framleiðslu hótelhús-
gagna og -innréttinga og er á
meðal stærstu framleiðenda í Evr-
ópu á sínu sviði. Starfsmenn fyr-
irtækisins eru um 550 talsins.
Voglauer starfar eftir mjög
ströngum umhverfis- og gæða-
stöðlum. Voglauer framleiðir hvort
heldur er staðlaðar einingar eða
samkvæmt séróskum viðskiptavina
sinna. Flestar af stærstu og þekkt-
ustu hótelkeðjum veraldar eru
meðal viðskiptavina Voglauer.
Ísberg ehf., umboðsaðili Voglau-
er, er 10 ára gamalt fyrirtæki sem
sérhæfir sig í sölu á vörum fyrir
hótel og veitingahús. Ísberg ehf.
leggur sig fram um að bjóða við-
skiptavinum sínum heildarlausnir
fyrir hótel og veitingahús. Ísberg
ehf. hefur umboð fyrir mörg af
þekktustu fyrirtækjum sem fram-
leiða vörur fyir hótel og veitinga-
hús.
Innréttingar og húsgögn í nýbyggingu Hótels Selfoss
Samið við austurrískt fyrirtæki
Morgunblaðið/Sig. Jóns
Magnús Guðjónsson, framkvæmdastjóri Ísbergs ehf., Wolfgang Schau-
recker, sölustjóri hjá Voglauer, Óli Rúnar Ástþórsson, framkvæmda-
stjóri KÁ, og Jóhanna Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri hótelsviðs KÁ.
Selfoss
TRÉSMIÐJAN Vík ehf. átti lægsta
tilboð í brú yfir Lónsós á Norðaust-
urvegi en alls bárust níu tilboð í
verkið. Vík bauð rúmar 66,7 milljónir
króna, eða 86,6% af kostnaðaráætlun
Vegagerðarinnar.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á
um 77 milljónir króna. Malarvinnsl-
an hf. á Egilsstöðum átti næstlægsta
tilboðið en það hljóðaði upp á tæpar
70 milljónir króna, eða 90,8% af
kostnaðaráætlun. Þriðja lægsta til-
boðið átti Norðurvík ehf. á Húsavík,
um 74 milljónir króna, eða 96,1% af
kostnaðaráætlun.
Norðausturvegur
– brú á Lónsós
Trésmiðjan
Vík bauð
lægst