Morgunblaðið - 19.12.2001, Side 39
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2001 39
Opið frá kl. 10.00 til 18.00
Síðumúla 13, sími 568 2870, 108 Reykjavík.
Mikið úrval
Dæmi um verð: Áður: Nú:
Kaðlapeysa 3.600 900
Peysa m/tíglamunstri 4.700 2.300
Síð jakkapeysa 3.900 1.900
Leðurjakki 8.900 3.900
Úlpa m/loðkraga 5.800 2.700
Satínskyrta 3.100 1.500
Stretsskyrta 3.900 1.500
Síð túnika m/kraga 3.900 1.900
Flíssett 5.900 2.900
Pils 3.400 1.700
Jakkapeysa 5.200 1.900
Dömubuxur 4.300 1.900
Herrapeysa 5.800 1.900
Herrablazerjakki 6.500 2.900
Herrabuxur 4.900 1.900
og margt margt fleira
ÚTSALA – ÚTSALA – ÚTSALA
50-70% afsláttur
SAMKVÆMT tónleikaskrá List-
vinafélags Hallgrímskirkju hefur
orgelverkið La Nativité du Seign-
eur (sem eftir bókinni ætti að þýða
Fæðing Drottins en var íslenzkað
sem Fæðing frelsarans) aðeins
verið flutt einu sinni í heild á Ís-
landi af einum og sama orgelleik-
ara, þ.e. Ragnari heitnum Björns-
syni dómorganista, þangað til Lára
Bryndís Eggertsdóttir endurflutti
klukkustundar langt verkið sl.
sunnudag.
Þó kváðu nemendur Harðar Ás-
kelssonar tvívegis hafa flutt verk
Oliviers Messiaens á tónleikum og
skipt þá köflum á milli sín.
Gæti Lára hafa verið meðal
þeirra, hafi spilverkið átt sér stað á
síðustu tveim árum þegar hún nam
orgelleik hjá Hallgrímskantor í
Tónskóla þjóðkirkjunnar. Hún
mun nú stunda framhaldsnám
nyrzt á Lapplandi hjá sænska org-
anistanum Hans-Ola Ericsson í
Piteå. Ericsson hefur leikið inn á
marga geisladiska fyrir BIS, þ. á
m. ýmis verk Messiaens, hið hér
umrædda þegar 1989, svo ætla má
að tónsmíð franska meistarans
(1908–92), sem var kantor við
Kirkju heilagrar þrenningar í Par-
ís til dauðadags, hafi verið í kunn-
ugum höndum þrátt fyrir ungan
aldur.
Furðumargt hlustenda var á tón-
leikunum í Hallgrímskirkju miðað
við framsækna dagskrá, sem óhætt
má kalla verk Messiaens þótt sam-
ið sé svo snemma sem 1935, enda á
nærri sístrítt tónmál þess sam-
merkt með t.d. verkum Varéses að
hafa haldizt hámódernískt meira
en hálfri öld eftir tilurðartímann.
Verkið er röð níu tónhugleiðinga
um biblíutexta tengda fæðingu
Krists, og las herra Karl Sigur-
björnsson biskup upp
hvern ritningarstað á
undan. Fyrirsagnir
voru María og Jesú-
barnið (I.), Hirðarnir
(II.), Eilífðar markmið
(III.), Orðið (IV.),
Börn Guðs (V.), Engl-
arnir (VI.), Jesús tek-
ur á sig þjáninguna
(VII.), Vitringarnir
(VIII.) og Guð á meðal
vor (IX.).
Orðspor Messiaens,
er kenndi m.a. tón-
skáldum á borð við
Boulez, Stockhausen
og Xenakis, gæti tæp-
ast farið fram hjá
neinum sem á annað borð hefur
kynnzt nútímalistmúsík í einhverj-
um mæli, og því efalítið dagsönn
staðhæfing tónleikaskrár um að
Messiaen sé „tvímælalaust eitt
virtasta orgeltónskáld tuttugustu
aldarinnar og hefur unnið sér sess
meðal mestu orgeltónskálda sög-
unnar“. Þaðan af síður skal vefengt
að orgelverk hans séu „mörg hver
orðin sígild meðal orgelbók-
menntanna“[…]. Og vissulega voru
staðir innan um í þessu langa tón-
verki sem náðu að ýta við undirrit-
uðum, a.m.k. um stundarsakir,
enda varð ekki betur heyrt en leik-
ið væri af miklu öryggi þrátt fyrir
býsna krefjandi samstiga radd-
færslu, þykka klasahljóma og ekki
sízt fjölda hrynrænna fingur- og
fótabrjóta, m.a. vegna nærri aust-
rænt skaraðra krossrytma, þó að
hefðbundinn gegnsær kontra-
punktur léti lítið á sér kræla.
Þá var og hægt að gleðjast yfir
fjölbreyttri registrun, enda þótt
flest kunni þar að hafa verið frá-
gengið frá höfundar hendi. Ekki
stóð heldur á nafntoguðum ómtöfr-
um Klais-pípusinfóníuhljómsveit-
arinnar, sem manni skilst að sé að
miklu leyti hönnuð í frönskum
anda og því væntanlega hið hent-
ugasta hljóðfæri í einmitt verk sem
þetta, auk þess sem rausnarleg
heyrð Hallgríms-
kirkju virtist sem
sköpuð til samblönd-
unar ýmist líðandi
lagferli höfundar, vell-
andi tónarunum eða
brimseygum klasa-
gusum.
En án þess að úti-
loka að eitthvað kunni
að „vanta í hann“, eins
og sagt er, átti und-
irritaður einhverra
hluta vegna erfitt með
að láta sig falla í við-
eigandi tímalausan
trans yfir medítasjón-
um Messiaens.
Kannski skorti mig
úníversalíska kaþólska heimssýn
við hæfi, kannski olli bara dæmi-
gert vestrænt eirðarleysi úr stund-
legum táradal. Alltjent þótti mér
tíminn á köflum anzi lengi að líða –
einna átakanlegast í III. og V.
þætti, en líka víðar.
Ekki var þó við Láru Bryndísi að
sakast, sem lék eins og herforingi,
heldur frekar aðferð tónskáldsins,
sem miðað við framvindukröfu
vestrænnar tónlistar allar götur
frá endurreisnartímanum færðist
varla spönn frá ónefndum líkams-
hluta.
Ef satt er sem hermt, að sum
tónverk séu meira virt en elskuð
(eins og t.d. hefur verið sagt um
Missa Solemnis Beethovens), grun-
aði mann undir niðri, að La Nat-
ivité ætti heima í þeim flokki.
Um það geta sjálfsagt ýmsir ver-
ið mér ósammála. Hvað sem öllu
líður, þá stóð hitt þó heima með
sjötommunöglum, þegar verkið
fjaraði út með „sixte ajoutée“
endahljómi í dúr, ímynd unaðar, að
Lára Bryndís Eggertsdóttir hafði
lokið þungvægum áfanga eld-
snemma á ferli með sannkölluðum
glæsibrag, er gaf hin björtustu fyr-
irheit um eftirtektarverðan árang-
ur á komandi misserum.
Ríkarður Ö. Pálsson
Hugleiðsla handan
rúms og tíma
TÓNLIST
Hallgrímskirkja
Messiaen: La Nativité du Seigneur. Lára
Bryndís Eggertsdóttir, orgel. Sunnudag-
inn 16. desember kl. 17.
ORGELTÓNLEIKAR
Lára Bryndís
Eggertsdóttir
TEKIÐ skal ofan fyrir Graduale
nobili fyrir að bjóða upp á óvenju-
lega og framsækna efnisskrá á
spánnýrri geislaplötu sem hljóðrit-
uð var í september og október sl.
Það er svo ótrúlega mikilvægt að
stundum séu fetaðar ótroðnar slóð-
ir í verkefnavali í útgáfu sem þess-
ari. Þannig má kynna hlustendum
ný og nýleg verk þótt að sjálfsögðu
sé einnig mikilsvert að sjaldheyrð
verk eldri meistara fái að heyrast.
Geisladiskur sem þessi gefur einnig
umheiminum önnur skilaboð: hér er
ungt fólk að flytja nútímatónlist
eins og ekkert sé þeim eðlilegra og
að þetta sé „þeirra“ tónlist.
Platan hefst á tónverkum fimm
íslenskra núlifandi tónskálda, tvö
eru af eldri kynslóðinni og þau
yngstu fara að nálgast miðjan ald-
ur.
Í Maríuljóði Hildigunnar Rún-
arsdóttur, sem samið er við gull-
fallegt ljóð Vilborgar Dagbjarts-
dóttur, tekst tónskáldinu að laða
fram einlægni barnatrúarinnar.
Fallegt lítið lag og sungið af hár-
fínni nákvæmni og með mikilli til-
finningu.
Hin melódíska Vökuró Hróðmars
Inga Sigurbjörnssonar er einnig
flutt af mikilli alúð og einlægni.
Tónmál Mistar Þorkelsdóttur í lag-
inu Vorlauf er talsvert framsækn-
ara og knappur tjáningarmátinn vel
í anda ljóðs Þorsteins Valdimars-
sonar.
Íslensku verkin rísa hæst í lagi
föður Mistar, Þorkels Sigurbjörns-
sonar, hinu glæsilega Haec est
sancta solemnitas, sem kórinn
syngur með miklum tilþrifum. Von-
andi er mér fyrirgefið að ég féll
kylliflatur fyrir hefðbundnasta lag-
inu á plötunni, finnska þjóðlaginu
On suuri sun rantas autius í útsetn-
ingu Matti Hyökki. Bæði er að lag-
ið er ómótstæðilega fallegt og út-
setningin einkar áhrifarík en við
það bætist að einsöngur Árnýjar
Ingvarsdóttur og Dóru Steinunnar
Ármannsdóttur er í einu orði sagt
frábær og hlédrægur kórsöngurinn
undir einstaklega fágaður. Og mik-
ið er finnska tungan vel til söngs
fallin. Ruth Watson Henderson er
píanó- og organleikari, stundar tón-
listarkennslu og er að auki eitt
fremsta tónskáld Kanadamanna.
Hún á hér tvö verk, kraftmikla
Gloriu sem sungin er með miklum
bravúr og áræði og hið ljóðræna
Music On the Waters og nýtur kór-
inn í báðum verkum ágæts undir-
leiks Láru Bryndísar Eggertsdótt-
ur.
Plötunni lýkur svo á tveimur
verkum eins fremsta tónskálds nú-
tímans, Finnanns Einojuhani
Rautavaara, bæði frá árinu 1973.
Vonandi móðgast enginn þótt hér
séu þessi tónverk talin hápunktur
plötunnar. Í Suite de Lorca op. 72,
sérkennilegt sambland af hinum
finnska Rautavaara og spænskum
áhrifum, sýnir Graduale nobili fá-
gætt „virtúósítet“ sem ég minnist
ekki að hafa heyrt hjá ungmenna-
kór fyrr eða síðar.
Hafi einhver efast um snilli þess-
ara stúlkna og stjórnanda þeirra,
Jóns Stefánssonar, (sem er reyndar
afar ólíklegt eftir það sem á undan
er komið) þá er vert að benda á
hinn svínslega erfiða El grito (nr.
11) og Malagueña (nr. 13) sem
fluttur er með einstakri snerpu og
nákvæmni. Takið líka eftir örstutt-
um einsöngsstrófum Guðríðar Þóru
Gísladóttur og Láru Bryndísar
Eggertsdóttur rétt undir lok kafl-
ans. Glæsilegt! Lokaverkið á plöt-
unni, Lapsimessu (Barnamessa), er
einnig eftir Rautavaara. Þetta er
mikilfengleg messa, knöpp í formi
en þó innihaldsrík. Hér úir og grúir
af minnisstæðum laglínum, t.d. ægi-
fagurt Agnus dei (nr. 18). Messan,
sem ætluð er börnum, er í sjö köfl-
um og skiptast þar á kór- og hljóm-
sveitarkaflar (íhuganir) en í loka-
kaflanum leikur hljómsveitin með
kórnum. Í hljómsveitinni eru 15
strengjaleikarar og eru þeir flestir
úr röðum kórsins. Sveitin fær það
þakkláta hlutverk að sökkva sér
niður í lúxushljóma Rautavaara, því
fáum tónskáldum nútímans er lagið
að skrifa svona vel fyrir strengi.
Frammistaða allra hlutaðeigandi er
í einu orði sagt frábær.
Hér hafa ekki verið spöruð stóru
lýsingarorðin enda ekki nokkur
vegur að komast hjá þeim. Þetta er
ákaflega heillandi útgáfa hvernig
sem á hana er litið. Sú staðreynd að
nánast allir sem fram koma eru úr
röðum félaga Graduale nobili, bæði
kór, einsöngvarar, píanóleikari og
hljómsveit, gerir útgáfuna enn
merkilegri. Jón Stefánsson og
stúlkurnar í Graduale nobili hafa
unnið þrekvirki. Þetta er ekki auð-
veld tónlist við fyrstu kynni en virk
og endurtekin hlustun ber ríkuleg-
an ávöxt.
Ég tek aftur ofan fyrir hinum
einstaklega músíkölsku Graduale
nobili og Jóni Stefánssyni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Jón Stefánsson og stúlkurnar í Graduale nobili hafa unnið þrekvirki.
Þetta er ekki auðveld tónlist við fyrstu kynni en virk og endurtekin
hlustun ber ríkulegan ávöxt,“ segir meðal annars í umsögninni.
Tekið ofan
TÓNLIST
Geislaplötur
Hildigunnur Rúnarsdóttir: Maríuljóð.
Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson: Vökuró.
Mist Þorkelsdóttir: Vorlauf. Jón Nordal:
Salutatio Mariae. Þorkell Sigurbjörns-
son: Haec est sancta solemnitas. Peeter
Bruun: Agnetes Cradle Song. Ruth Wat-
son Henderson: Music On the Waters,
Gloria. Finnskt þjóðlag útsett af Matti
Hyökky: On suuri sun rantas auttius. Ein-
ojuhani Rautavaara: Suite de Lorca,
Lapsimessu. Kórsöngur: Graduale nobili.
Einsöngur: Árný Ingvarsdóttir, Dóra
Steinunn Ármannsdóttir, Lára Bryndís
Eggertsdóttir, Guðríður Þóra Gísladóttir,
Lovísa Árnadóttir og Regína Unnur Ólafs-
dóttir. Píanóleikur: Lára Bryndís Eggerts-
dóttir. Annar hljóðfæraleikur: Strengja-
sveit Graduale nobili. Stjórnandi: Jón
Stefánsson. Heildartími: 54’37. Útgef-
andi: Fermata FM 018.
GRADUALE NOBILI
Valdemar Pálsson