Morgunblaðið - 19.12.2001, Page 45
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2001 45
Framtíðin hefst ....núna!
Borgartúni 28 • S: 562 2901 & 562 2900 • www.ef.is
159.900,-,
Super A
nti-Alia
s Filter
540 lín
ur
stgr.*
TOSHIBA DVD • 5 gerðir frá
5. kynslóð DVD mynddiskaspilara, með betri myndgæðum
og mun fullkomnari en aðrir bjóða!
TOSHIBA eru fremstir í tækniþróun. Hönnuðir Pro-Logic heimabíókerfisins, Pro-Drum mynd-
bandstækjanna og DVD mynddiskakerfisins.
29“eða 33“
100HZ
DIGITAL SCAN
*Staðgreiðsluafsláttur er 5%
Heimabíó:
Sjónvarp, skápur, magnari og hátalarar,
allt í einum pakka!
Nýjasta og fullkomnasta tækni á
einstöku verði:
frá kr.
• Super-5 Digital Blackline myndlampi
• 180-300W magnari
• 3 Scarttengi að aftan
• 2 RCA Super VHS/DVD
tengi að aftan
Super VHS, myndavéla- og
heyrnartækjatengi að framan
• Barnalæsing á stöðvar
• Glæsilegur skápur m/glerhurð og 3 hillum
• 6 framhátalarar
• 2 bassahátalarar
• 2 x 2 bakhátalarar
Margverðlaunuð tæki:
Önnur TOSHIBA tæki fást frá 14“-61“
34.900,- stgr.*
LAUGAVEGI 15
SMÁRALIND
Ótrúlegt
úraúrval
Mikið úrval
glæsilegra
kvenúra
Gott úr
er góð gjöf
Falleg
og vönduð
karlmannsúr
og vandaðir skartgripir
NÚ HEFUR Birgir
Sigurðsson skrifað
tvær greinar hér í
Morgunblaðið með
skömmu millibili.
Þungamiðja þeirra
beggja er vísindaheið-
ur minn. Það er ný-
næmi fyrir mig, hingað
til hef hvorki ég né aðr-
ir haft miklar áhyggjur
af honum. Þetta er eins
og með skjaldkirtilinn,
enginn hugsar um
hann fyrr en einhver
óáran leggst á hann.
Málavextir eru þeir að
meinleysisleg villa
slæddist inn í frétt blaðamanns af
niðurstöðum mínum um áhrif Norð-
lingaöldulóns á land og vatnafar í
Þjórsárverum. Þar rugluðust saman
lónhæðirnar 575 og 578 með þeim af-
leiðingum að málsgrein um upp-
blástur í Þúfuveri varð misvísandi.
Þá skrifaði Birgir greinina „Rang-
færslur og húsbóndahollusta“ í Mbl.
6. des. en nafnið átti að vísa til
meintra ósanninda minna og þýlynd-
is gagnvart Landsvirkjun. Hús-
bóndahollusta mín bar vísinda-
mennskuna ofurliði, ályktaði Birgir.
Ég ritaði litla svargrein í Mbl. 11.
des. og benti honum á að þetta væri
nú sem betur fer allt á misskilningi
byggt og að hann hefði hlaupið á sig.
Árni Þórður Jónsson áréttaði þetta
líka, í grein í sama blaði, og undir-
strikaði að ekki hefði verið rétt eftir
mér haft í upphafsfréttinni. En í stað
þess að gleðjast yfir því að ég væri
ekki sá ómerkingur sem hann hafði
haldið varð Birgir sýnu argari út í
mig og skrifaði greinina „Vísinda-
heiðurinn góði“ í Mbl. 13. des. Í
þeirri grein voru virkjunar- og um-
hverfismál gleymd og grafin en vís-
inda- og starfsheiður minn eina um-
fjöllunarefnið. Birgir segir: „Vís-
indaheiður er merkilegt hugtak. Það
felur í sér að vísindamaður skuli
ávallt kappkosta að komast að rétt-
um niðurstöðum í rannsóknum sín-
um. Samkvæmt þessu hugtaki ber
vísindamanni einnig að sjá til þess,
eftir mætti, að það sem eftir honum
er haft á opinberum vettvangi sé í
samræmi við niðurstöður hans. Sú
skylda er óaðskiljanlegur hluti af
starfsheiðri hans“. Þessu er ég sam-
mála og það var nákvæmlega það
sem ég var að gera með svargrein-
inni sem hann er nú að agnúast út í.
Birgir gleymir þó að nefna eitt atriði
enn um vísindaheiðurinn góða. Mað-
ur þarf líka að verja hann fyrir upp-
hlaupsmönnum sem vilja reyta hann
af manni að ósekju. Þessi grein er til-
raun til þess.
Ég skal játa að eftir á að hyggja
hefði verið viturlegast að senda leið-
réttingu í Mbl. strax og upphaflega
missögnin birtist þar. Mér þótti hún
þó ekki stórvæg. Hugmyndir um
Norðlingaöldulón og vatnsborð þess
hafa tekið miklum breytingum gegn
um tíðina. Þras um lónhæðir í 575 m,
578 m, 579 m, 581 m, 589 m eða 593 m
rugla flesta bara í ríminu, hugsaði
ég. En þetta var sýnilega rangt og ég
hef enga aðra afsökun en þá hve ég
er bláeygur og einfaldur. Maður trú-
ir öllu því besta um fólk og á ekki von
á að neinn hafi áhuga á að níða af
manni æruna. Og ég er satt að segja
dálítið hissa á Birgi og þessu áhuga-
máli hans. En mér er sagt að hann sé
að öðru leyti hinn besti maður.
En fyrst athuganir mínar á Norð-
lingaöldulóni eru kveikja þessara
skrifa vil ég fara nokkr-
um orðum um þær.
Þótt vatnsorka sé um-
hverfisvæn, endurnýj-
anleg og oft tiltölulega
ódýr þá kostar nokkrar
fórnir að nýta hana.
Sérhver virkjun og
vatnsmiðlun hefur sína
kosti og galla. Stundum
eru gallarnir langt um-
fram kostina og fórn-
irnar allt of miklar en
stundum snýr þetta
rétt við. Allir eru nú
sammála um að Norð-
lingaöldulón með
vatnshæð í 593 m, sem
drekkt hefði gervöllum Þjórsárver-
um, var virkjun sem kostað hefði of
miklar fórnir, enda var horfið frá
hugmyndinni fyrir mörgum áratug-
um. Á síðari árum hafa menn velt
fyrir sér lónhæðum á bilinu 575–581
m y.s. og virðast nú alfarið telja að
lægsta vatnshæðin sé boðlegust.
Hverjir eru svo helstu kostir og gall-
ar þessarar framkvæmdar? Ég tel
gallana fyrst og vona að það verði
ekki talin húsbóndahollusta við ein-
hverja hagsmunaaðila.
Gallar: Norðlingaöldulónið kaf-
færir 29 km² lands, þar af 5,6 km²
innan friðlandsins í Þjórsárverum.
Gróið votlendi með rústum syðst í
Tjarnarveri myndu fara á kaf, svo og
Eyfafen, rennsli í Þjórsá neðan stíflu
myndi minnka verulega og fossarnir
niður með ánni, Hvanngiljafoss,
Dynkur og Gljúfurleitafoss, myndu
rýrna að sama skapi.
Kostir: Þjórsá hefur þegar verið
miðlað í bak og fyrir, með Norðlinga-
ölduveitu er því ekki verið að raska
áður ósnortnu vatnasviði. Verð á
orkunni sem fæst er lágt vegna
þeirra miðlana og virkjana sem fyrir
eru á vatnasviðinu. Gróið land sem
tapast er tiltölulega lítið. Óbætan-
legar náttúruminjar fara ekki á kaf,
lindasvæði eða hverir hverfa ekki í
vatn, leki út í grunnvatnskerfið verð-
ur lítill.
Það mætti lengja báða liði þess-
arar upptalningar verulega þótt ekki
sé rúm til þess hér. Ég get samt ekki
sleppt heiðagæsinni enda hefur hún
verið aðalpersóna Þjórsárveraum-
ræðunnar frá öndverðu. Ljóst er að
mörg hreiðurstæði fara á kaf í Norð-
lingaöldulón, og því hefði mátt bæta í
upptalningu ókostanna, en það er
jafnljóst að gæsastofninn bíður ekki
stóran hnekki af því. Hann hefur
verið í sókn um áratugi þannig að
gróður í verunum ber merki ofbeit-
ar. Gæsin hefur að auki verið að
nema ný lönd, bæði á hálendinu og
niðri á láglendi, svo sumum þykir að
um offjölgun sé að ræða enda reyna
veiðistjóri og Félag skotveiðimanna
að beina veiðisókninni í þennan stofn
til að létta álagi af ofnýttum grá-
gæsastofninum. Sýna má fram á með
tölfræði að því meiri veitur og lón
sem gerð hafa verið á Þjórsársvæð-
inu undangengna áratugi því fleiri
verða heiðagæsirnar. Ég fullyrði
hins vegar ekki að um beint orsaka-
samhengi sé að ræða en þetta er
rannsóknarefni fyrir fuglafræðinga.
Ég vona að ef Birgir Sigurðsson
svarar þessari grein þá beini hann
sóknarþunga sínum að Norðlinga-
ölduumræðunni. Ég er hræddur um
að áframhaldandi karp um vísinda-
heiður minn leiðist út í farsa.
Kannski ættu menn þó engu að kvíða
því við félagarnir ættum að hafa
burði til að skrifa þolanlegan leikþátt
saman, við erum báðir í Leikskálda-
félagi Íslands, annar að vísu með
óspjallaðan heiðurinn en hinn með
glataða æruna.
Um glataða æru leikritaskálds
Árni Hjartarson
Norðlingaalda
Ég vona að ef Birgir
Sigurðsson svarar
þessari grein, segir
Árni Hjartarson, þá
beini hann sóknarþunga
sínum að Norðlinga-
ölduumræðunni.
Höfundurinn er jarðfræðingur
og sérfræðingur um grunnvatn
og vatnafar.
KVEN-
SÍÐBUXUR
3 SKÁLMALENGDIR
Bláu húsin við Fákafen.
Sími 553 0100.
Opið virka daga 10-18,
laugardaga 10-16.