Morgunblaðið - 19.12.2001, Qupperneq 58
DAGBÓK
58 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Brú-
arfoss, Þerney og
Björn koma í dag.
Dettifoss fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Karilla kom í gær,
Severypa kemur í dag,
Brúarfoss fer í dag.
Fréttir
Bókatíðindi 2001.
Númer miðvikudagsins
19. des. er 101079.
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur Sól-
vallagötu 48. Skrifstofa,
s. 551 4349, flóamark-
aður, fataúthlutun og
fatamóttaka, s.
552 5277, eru opin
miðvikud. kl. 14–17.
Styrkur, samtök
krabbameinssjúklinga
og aðstandenda þeirra.
Svarað í síma Krabba-
meinsráðgjafarinnar,
800 4040, kl. 15–17.
Mannamót
Aflagrandi 40. Jóla-
súkkulaði verður föstu-
daginn 21. des. og hefst
kl. 14. með hátíð-
arbingói, drengjakór
Neskirkju kemur og
syngur. Upplestur,
Gerður G. Bjarklind.
Allir velkomnir.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta og opin
handavinnustofan, kl.
13 spilað, kl. 13–16.30
opin smíðastofan. Allar
uppl. í s. 535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, kl. 8–
12.30 böðun, kl. 9–12
vefnaður, kl. 9–16
handavinna, kl. 10–17
fótaaðgerð, kl. 10 banki,
kl. 13 spiladagur, kl.
13–16 vefnaður, kl. 14
dans.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, á Kjalarnesi og
í Kjós. Félagsstarfið,
Hlaðhömrum, er á
þriðju- og fimmtudög-
um kl. 13–16.30, spil og
föndur. Jóga föstudaga
kl. 13.30. Kóræfingar
hjá Vorboðum, kór eldri
borgara í Mosfellsbæ, á
Hlaðhömrum fimmtu-
daga kl. 17–19. Uppl.
hjá Svanhildi í s.
586 8014 kl. 13–16.
Uppl. um fót-, hand- og
andlitssnyrtingu, hár-
greiðslu og fótanudd, s.
566 8060 kl. 8–16.
Félagsstarf aldraðra,
Dalbraut 18–20. Kl. 9–
12 aðstoð við böðun, kl.
9–16.45 hárgreiðslu- og
handavinnustofur opn-
ar, kl. 10–10.45 leikfimi,
kl. 14.30 banki.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Viðtalstími í
Gjábakka í dag kl. 15–
16. Skrifstofan í Gull-
smára 9 opin í dag kl
16.30–18.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga frá kl.
10–13. Kaffi – blöðin og
matur í hádegi. Mið-
vikudagur: Göngu-
Hrólfar eru komnir í
jólafrí, ganga næst 9.
janúar frá Hlemmi kl.
9.45. Söngfélag FEB,
kóræfing kl. 17. Línu-
danskennsla Sigvalda
kl. 19.15. Silfurlínan er
opin á mánu- og mið-
vikudögum kl. 10–12.
Skrifstofan er flutt að
Faxafeni 12, sama
símanúmer og áður. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði, Glæsibæ.
Uppl. á skrifstofu FEB
kl. 10–16, s. 588 2111.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting,
kl. 10–12 verslunin op-
in, kl. 13 föndur og
handavinna, kl. 13.30
enska, byrjendur.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Glerútskurður kl. 13.
Píla kl. 13.30.
Áramótadansleikurinn
verður laugardaginn 29.
des. kl. 20.30.
Caprítríó leikur fyrir
dansi. Happdrætti.
Félagsstarfið,Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
fótaaðgerð, opin vinnu-
stofa, postulín, mósaik
og gifsafsteipur, kl. 9–
13 hárgreiðsla, kl. 9–16
böðun. Opið alla sunnu-
daga frá kl. 14–16, blöð-
in og kaffi, ath. lokað
verður sunnudaginn 23.
des. Næst verður opið
sunnudaginn 6. janúar
og ekki verður spiluð
vist mánudaginn 24.
des. en spilað verður
mánudaginn 7. janúar.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, frá hádegi spila-
salur opinn, kl. 13 kem-
ur Hjördís Geirsdóttir í
heimsókn ásamt göml-
um og góðum félögum,
m.a. „Siffa“, og kynnir
og áritar nýjan geisla-
disk. Allir velkomnir.
Fimmtudaginn 20. des.
jólahelgistund kl. 14,
m.a. kemur Þorvaldur
Halldórsson með tón-
listarflutning og söng.
Sr. Miyako Þórðarson
túlkar á táknmáli. Um-
sjón sr. Hreinn Hjart-
arsson og Lilja G. Hall-
grímsdóttir djákni. Á
eftir eru hátíðarveit-
ingar í veitingabúð.
Jólastemmning í öllu
húsinu. Allir velkomnir.
Veitingar í veitingabúð.
Upplýsingar um starf-
semina á staðnum og í
síma 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum
kl. 10–17, kl. 10.30
boccia, kl. 13 félagsvist,
kl. 17 bobb. Skötuveisla
verður föstudaginn 21.
des kl. 11.40. Vinsam-
lega pantið tíma. Jóla-
markaður verður í Gjá-
bakka föstudaginn 21.
des frá kl. 11–14.
Hraunbær 105. Kl. 9
opin vinnustofa, handa-
vinna, bútasaumur, kl.
9–12 útskurður, kl. 9–17
hárgreiðsla og fótaað-
gerðir, kl. 11 banki, kl.
13 brids.
Hvassaleiti 58–60. Kl. 9
böðun, föndur – klippi-
myndir, kl. 13.30,
gönguferð, kl. 15 teikn-
un og málun, kl. 15.
dans. Fótsnyrting, hár-
snyrting.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa,
kl. 9–16 fótaaðgerðir,
kl. 9–12 tréskurður, kl.
10 sögustund, kl. 13
banki, kl. 14 félagsvist,
kaffi, verðlaun.
Vesturgata 7. Kl. 8.25
sund, kl. 9–16 fótaað-
gerð og hárgreiðsla, kl.
9.15–16 postulínsmálun
og myndmennt, kl. 13–
14 spurt og spjallað, kl.
13–16 tréskurður. Að-
ventuferð 20. desember
kl. 13. Borgarljósin
skoðuð, meðal annars
ekið um Grafarvog.
Heimsókn í Jólahúsið á
Smiðjuveginum. Kaffi-
veitingar í Perlunni.
Leiðsögumaður Helga
Jörgensen. Allir vel-
komnir, takmarkaður
sætafjöldi. Fyirbæna-
stund verður fimmtu-
daginn 20. des. kl. 10.30
í umsjón séra Hjálmars
Jónssonar dóm-
kirkjuprests, allir vel-
komnir. Nýtt námskeið
í leirmótun hefst eftir
áramót. Leiðbeinandi
Hafdís Benediktsdóttir.
Kennt verður á fimmtu-
dögum frá kl. 17–20.
Ath. Takmarkaður
fjöldi, skráning í s.
562 7077.
Vitatorg. Kl. 9 smíði og
hárgreiðsla, kl. 10 fóta-
aðgerðir, morgunstund,
bókband og bútasaum-
ur, kl. 12.30 versl-
unarferð, kl. 13 hand-
mennt og kóræfing, kl.
13.30 bókband, kl. 15.30
kóræfing.
Álftanes. For-
eldramorgna í Hauks-
húsum kl 10–12 í dag.
Heitt á könnunni.
Hallgrímskirkja, eldri
borgarar. Í dag kl. 15
verður farið frá kirkj-
unni með rútu í jólaferð
um borgina, súkkulaði
og fleira á Litlu-
Brekku. Upplýsingar
veitir Dagbjört í s.
510 1034.
Kristniboðssambandið
þiggur með þökkum
alls konar notuð frí-
merki, innlend og út-
lend, ný og gömul,
klippt af með spássíu í
kring eða umslagið í
heilu lagi (best þannig).
Útlend smámynt kemur
einnig að notum. Mót-
taka í húsi KFUM&K,
Holtavegi 28, Rvík, og
hjá Jóni Oddgeiri Guð-
mundssyni, Glerárgötu
1, Akureyri.
Minningarkort
Slysavarnafélagið
Landsbjörg, Stangarhyl
1, 110 Reykjavík. S.
570 5900. Fax: 570 5901.
Netfang: slysavarna-
felagid@landsbjorg.is
Minningarkort Rauða
kross Íslands eru seld í
sölubúðum Kvenna-
deildar RRKÍ á sjúkra-
húsum og á skrifstofu
Reykjavíkurdeildar,
Fákafeni 11, s.
568 8188.
Minningarkort Hvíta-
bandsins fást í Kirkju-
húsinu, Laugavegi 31,
s. 562 1581, hjá Kristínu
Gísladóttur, s. 551 7193,
og Elínu Snorradóttur,
s. 561 5622.
Í dag er miðvikudagur 19. desem-
ber, 353. dagur ársins 2001. Imbru-
dagar. Orð dagsins: En vonin
bregst oss ekki, því að kærleika
Guðs er úthellt í hjörtum vorum fyr-
ir heilagan anda, sem oss er gefinn.
(Rómv. 5, 5.)
LÁRÉTT:
1 sveðja, 4 beiskur, 7
kvabbs, 8 dans, 9 rekkja,
11 þvættingur, 13 hvetji,
14 frek, 15 hæð, 17 heiti,
20 eldstæði, 22 ósannsög-
ul, 23 slóttugur, 24 þefar,
25 tappi.
LÓÐRÉTT:
1 læsingar, 2 ryskingar, 3
skordýr, 4 brjóst, 5 fær af
sér, 6 sefaði, 10 svarar
ekki kröfum tímans, 12
missir, 13 korn, 15 stofn-
anirnar, 16 kyrrviðris, 18
fullkomlega, 19 stinga, 20
skjótur, 21 beltið.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 inngangur, 8 bætur, 9 gegna, 10 arg, 11 iðinn,
13 sárna, 15 Fjóns, 18 subba, 21 tóm, 22 sukki, 23 álaga,
24 hroðvirka.
Lóðrétt: 2 nýtni, 3 gæran, 4 naggs, 5 urgur, 6 obbi, 7
fata, 12 nón, 14 átu, 15 fisk, 16 óskar, 17 stirð, 18 smári,
19 brask, 20 aðal.
K r o s s g á t a
Víkverji skrifar...
FÓLK hefur gaman af að berasaman þær tvær nútímalegu
verzlunarmiðstöðvar, sem risið hafa
á höfuðborgarsvæðinu, þ.e. Kringl-
una og Smáralind. Það þarf engum
að koma á óvart en jafnframt er eng-
in ástæða til að gera lítið úr annarri á
kostnað hinnar á hvorn veg, sem það
er.
Það er ljóst að Kringlan hefur
komizt mun betur frá samkeppni við
Smáralindina en flestir gerðu ráð
fyrir sl. haust. Ástæðurnar fyrir því
geta verið margar. Kringlan hefur
unnið sér mjög fastan sess í huga
fólks. Staðsetning hennar við fjöl-
farna umferðargötu, sem tengir
saman vestur- og austurhluta höfuð-
borgarsvæðisins, er mjög hagkvæm.
Verzlunar- og þjónustufyrirtæki í
Kringlunni eru mjög mörg og skapa
mikla breidd í framboði og þannig
mætti lengi telja.
Þá fer tæpast á milli mála, að ný-
byggingin við Kringluna, sem opnuð
var árið 1999, hefur bætt mjög sam-
keppnisstöðu hennar.
Þegar á heildina er litið geta for-
svarsmenn Kringlunnar og verzlun-
areigendur því vel við unað. Kringl-
an hefur staðið af sér átök fyrstu
mánaðanna og ekki ólíklegt að það
hafi skipt sköpum um það sem síðar
gerist.
x x x
ANNARS er erfitt að ráða í þaðhvernig verzlunin þróast.
Fæstir muna eftir því nú að Skeifan
var upphaflega hugsuð sem iðnaðar-
hverfi. Þar voru reistar miklar
skemmur, sem áttu að hýsa iðnfyr-
irtæki og gerðu raunar í upphafi að
nokkru leyti.
Þetta fyrirhugaða iðnaðarhverfi
hefur orðið ótrúlega líflegt verzlun-
arsvæði, þar sem mikill fjöldi verzl-
ana er saman kominn. Telja má lík-
legt að þetta sé eitt af þróttmestu
verzlunarsvæðum í Reykjavík.
STÓRA spurningin er sennilegahvernig Laugavegurinn og mið-
bærinn gamli fer út úr þessum
breytingum. Einn af viðmælendum
Víkverja, sem rekur barnafataverzl-
un við Laugaveg, kvaðst fyrir nokkr-
um vikum ekki hafa orðið var við
nokkurn samdrátt í sinni verzlun
heldur þvert á móti aukningu.
Sumir telja, að með sama hætti og
yngra fólk hefur mesta löngun til að
búa í gömlum húsum í gamla mið-
bænum og vesturbænum, helzt ekki
yngri húsum en 50 ára, muni sú sama
kynslóð beina viðskiptum sínum til
lítilla verzlana í nágrenni við sig, til
kaupmannsins á horninu. Þessi kyn-
slóð vilji helzt ekki þurfa að aka lang-
ar vegalengdir á milli miðborgar og
úthverfa og muni þess vegna m.a.
ekki sækja hinar nýju verzlanamið-
stöðvar. Það er ekki hægt að útiloka,
að slíkir straumar bærist undir yf-
irborðinu, og ef svo er verður það
Laugaveginum til framdráttar.
Slítum stjórnmála-
sambandi við Ísrael
UNDANFARINN mjög
langan tíma hafa flestir ef
ekki allir fréttatímar í út-
varpi hafist á orðunum:
„Ísraelskir hermenn skutu
í dag nokkra Palestínu-
menn til bana og skrið-
drekar og jarðýtur jöfn-
uðu nokkur hús við jörðu.“
Ísraelsmennirnir eru und-
antekningarlaust hermenn
en Palestínumennirnir eru
oftast kallaðir hryðju-
verkamenn, stöku sinnum
eru þeir borgarar eða
börn. Þessar fréttir virð-
ast flestar matreiddar af
Ísraelsmönnum eða stuðn-
ingsmönnum þeirra. Jafn-
vel minnist ég þess einu
sinni er nokkur börn voru
skotin þá var það réttlætt
með því að „þau voru að
kasta steinum“.
Við Íslendingar styðjum
lýðræði en höfum and-
styggð á yfirgangi, kúgun,
stríði, morðum og drápum
hverju nafni sem það kall-
ast. Göngum á undan með
góðu fordæmi og slítum
stjórnmálasambandi við
Ísrael og fordæmum
framkomu Ísraelsmanna í
Palestínu. Við erum lítil
þjóð og áhrifalítil en mér
finnst við eigum að halda
reisn okkar í því að við-
urkenna ekki ríki sem
stunda það sem Ísr-
aelsmenn gera og ekki
verður réttlætt með
nokkru móti. Jafnframt
veitum við þessu aumingja
fólki í Palestínu í það
minnsta svolítinn móralsk-
an stuðning í þrengingum
þess. Það sama á reyndar
við um allmörg önnur ríki
heimsins en þetta væri
gott sem fyrsta skrefið –
það snýst ekki allt í heim-
inum um peninga!
Ragnar Eiríksson,
Sauðárkróki.
Aðstoð við bílveltu
HINN 25. nóv. sl. lentum
við í bílveltu á Holta-
vörðuheiði. Á slysstað
kom yndislegt ungt fólk
sem hjálpaði okkur mjög
mikið og var hjá okkur
þar til hjálp barst. Viljum
við ná sambandi við þetta
unga fólk og biðjum við
þau um að hafa samband
við okkur í síma 691-2294.
Jólakort á flakki
ÉG hef sl. 3 ár í röð feng-
ið jólakort frá fólki sem ég
þekki ekkert. Í fyrstu hélt
ég að þetta myndi leysast
af sjálfu sér og þau átta
sig á að kortið færi ekki á
réttan stað en enn kemur
kort frá þessu fólki. Það
er ekki hægt að senda
þetta til baka því það
fylgir ekki fullt nafn og
heimilisfang.
Ég veit til þess að hjá
póstinum eru haugar af
jólakortum sem ekki hafa
ratað rétta leið og í þeim
eru jafnvel fallegar mynd-
ir af börnum eða brúð-
hjónum og þessu er hent
því ekki er vitað hver
sendandinn er.
Ég er hissa á að póst-
urinn mælist ekki til þess
að nafn og heimilisfang
sendanda sé aftan á um-
slaginu svo hægt sé að
koma þessu til skila.
Fyrrverandi póstkona.
Til kráareigenda
VINSAMLEGA hafið lok-
að á aðfangadag og annan
í jólum og þá munið þið
gleðja börnin.
Vilhjálmur Sigurðsson,
Njálsgötu 48a.
Tapað/fundið
GSM-sími týndist
GSM-sími Nokia 6110
týndist í veislusal í Húsi
verslunarinnar 12. desem-
ber sl. Skilvís finnandi
hafi samband í síma
581 4969 eða 892 2057.
Fundarlaun.
Gullhringur
týndist
GULLHRINGUR, gatað-
ur, týndist á Seltjarnar-
nesi, á leiðinni frá Látra-
strönd niður að útibúi
Landsbankans á Seltjarn-
arnesi. Skilvís finnandi
hafi samband í s. 562 4780.
Trúlofunarhringur
í óskilum
GULL-trúlofunarhringur
með áletruninni „Þinn
Reynir“ fannst í miðbæn-
um. Upplýsingar á Vega-
mótum eða í síma
511 3040.
Gullarmband
týndist
GULLARMBAND tapað-
ist 16. des. sl. Þetta er þrí-
litt gullarmband (gult-
rautt-hvítt), eintómir
hringir. Eigandi var þenn-
an dag í IKEA, við Holts-
búð í Garðabæ, bensínstöð
við Garðatorg og Ársali 5 í
Kópavogi. Armbandið hef-
ur mikið tilfinningalegt
gildi fyrir eiganda. Finn-
andi vinsamlega hringi í
síma 554 5701 Sigurbjörg,
561 4707 og eða 569 1209,
Berglind.
Gullúr
týndist
Karlmannsgullúr týndist á
Glaumbar eða í miðbæn-
um sl. helgi. Úrið er
erfðagripur og hefur mik-
ið tilfinningalegt gildi fyr-
ir eiganda. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
869 7779 eða 868 7405.
Fundarlaun.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
MIG langar að koma á
framfæri þakklæti mínu
til ungu konunnar sem
seldi mér „stopain“
verkjaúðann í Lyfju,
Lágmúla, 12. desember
sl. Ég ákvað að taka
hana trúanlega og láta
reyna á hvort þessi
verkjaúði myndi slá á
bakverkina sem ég er
búin að þjást af í 10 ár.
Ég keypti brúsann og sé
ekki eftir því því þetta
er í fyrsta sinn sem eitt-
hvað virkar á verkina.
Núna get ég byrjað á
jólahreingerningunni.
Bestu kveðjur,
Jóhanna.
Verkjaúði sem virkar
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16