Morgunblaðið - 28.12.2001, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2001 9
Glæsilegur
samkvæmisfatnaður
allar stærðir
Mikið úrval af brúðarfatnaði til leigu
Efnalaug og fataleiga
Garðabæjar Opið alla daga frá kl. 10-19,
laugardaga frá kl. 10-14.Garðatorgi 3, s. 565 6680
Glæsilegir síðir kjólar
í miklu úrvali
Einnig módelkjólar
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Bestu þakkir fyrir frábærar móttökur
Gleðilegt ár!
DUKA
Vandaðar heimilis- og gjafavörur
Kringlunni 4-12, sími 533 1322
Skólavörðustíg 12, Bergstaðastrætismegin, sími 551 9090
ÁRAMÓTA-
ÚTSALA
Föstudag, laugardag og sunnudag
20-70% afsláttur
• kerti 30%
• jólaskraut 70%
• gjafavara 30%
• pottaplöntur 70%
SÍMINN ætlar að hefja útsendingu
á stafrænu sjónvarpi næsta haust,
að því er fram kemur í fréttatil-
kynningu frá fyrirtækinu. Með staf-
rænu sjónvarpi er átt við nýja
tækni sem eykur möguleika við
dreifingu sjónvarpsefnis og er áætl-
að að bjóða mun fleiri sjónvarps-
rásir en nú eru til staðar. Þessa
dagana er Síminn í samningavið-
ræðum við þá sem selja búnaðinn
og þá sem leggja til nýtt sjónvarps-
efni.
Samhliða því að hefja útsendingu
á stafrænu sjónvarpi áætlar Síminn
að ljúka við að gera breiðbandsnet
sitt gagnvirkt, en breiðband Símans
nær nú til um helmings heimila á
höfuðborgarsvæðinu. Þá er gert ráð
fyrir að breiðbandið verði lagt inn í
öll ný hverfi auk hverfa þar sem
lagnir eru endurnýjaðar. Á breið-
bandinu verður síðan hægt að bjóða
upp á háhraða sítengingu við Netið,
en hingað til hefur sú þjónusta ver-
ið takmörkuð við Múlasvæðið.
Gagnvirknin er einnig forsenda
stafræns sjónvarps sem býður upp
á ólíka þjónustumöguleika. Dæmi
um slíka þjónustu er sala á sjón-
varpsþáttum, heimaverslun, pöntun
á tölvuleikjum, sendingar á tölvu-
pósti, nettenging o.fl. Í fréttatil-
kynningu segir að vonir standi til
að innlendar sjónvarpsstöðvar sýni
verkefninu áhuga, bæði hvað varð-
ar dreifingu á sjónvarpsrásum og
einnig nýtingu á nýjum möguleik-
um stafræns sjónvarps.
Síminn undirbýr útsendingar
á stafrænu sjónvarpi
ÞAÐ sem af er þessu ári hafa lög-
reglunni í Reykjavík borist 25 kær-
ur vegna nauðgana sem er heldur
meira en í fyrra og segir Sigurbjörn
Víðir Eggertsson aðstoðaryfirlög-
regluþjónn að í fljótu bragðist virð-
ist sem kærum vegna kynferðis-
brota hafi fjölgað talsvert frá því í
fyrra.
Um síðustu helgi var lögreglunni
tilkynnt um tvær nauðganir og hef-
ur önnur þeirra verið kærð.
25 kynferðisbrot gegn börnum
hafa verið kærð til lögreglunnar og
fimm aðilar hafa verið kærðir fyrir
kynferðislega áreitni gegn börnum.
Tilkynnt hefur verið um 11 mis-
neytingartilfelli, en undir það brot
falla m.a. svokallaðar svefnnauðgan-
ir. Flest voru fórnarlömbin rænulítil
eða rænulaus þegar brotið var gegn
þeim, oftast vegna áfengisneyslu, en
í einhverjum tilvikum voru þau und-
ir áhrifum lyfja.
Þá hafa 14 manns verið kærðir
fyrir blygðunarsemisbrot.
25 nauðganir kærðar
í Reykjavík á árinu
ATVINNULEYSISBÆTUR
hækka um áramót um 8,5% og
hækka dagpeningar bótaþega
sem er með fullar bætur úr
3.137 krónum í 3.404 krónur.
Fullar atvinnuleysisbætur á
mánuði hækka því úr 67.979
krónum í 73.765 krónur.
Hlutfallslega eru þetta sömu
hækkanir og verða á bótum al-
mannatrygginga, en þær
hækka í samræmi við ákvæði
laga um almannatryggingar.
Atvinnuleysis-
bætur hækka
um 8,5%