Morgunblaðið - 21.02.2002, Síða 1
42. TBL. 90. ÁRG. FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 21. FEBRÚAR 2002
HÁTT á fjórða hundrað manns fór-
ust í gærmorgun og rúmlega 60 slös-
uðust í grennd við borgina Al Ayatt í
Egyptalandi er eldur kom upp í
troðfullri járnbrautarlest á leið frá
Kaíró til Luxor í suðurhluta lands-
ins. Fólkið hafði tekið þátt í trúarhá-
tíðinni Eid-al-Adha sem tengist
mestu hátíð múslíma, Haij. „Ég sá
mæður vefja örmunum um börn sín
og reyna síðan að varpa sér út um
gluggann með þau til að reyna að
bjarga þeim frá ægilegum dauðdaga
í bálinu,“ sagði aðstoðarlestarstjór-
inn, Ashraf Naguib Takla. Brunnin
lík fundust sum undir sætum í lest-
arklefum, önnur við rimla sem voru
fyrir mörgum gluggum lestarklef-
anna.
Þingmenn samtakanna Músl-
imska bræðralagsins kröfðust í gær
opinberrar rannsóknar á „hrikalegri
vanrækslu“ sem valdið hefði slysinu.
Yfirmaður björgunaraðgerða á
staðnum, Ali Abdel Aal hershöfðingi,
sagði að farþegarnir hefðu verið
fastir í „brennandi fangelsi“ en riml-
arnir og dyr sem ekki reyndist auð-
velt að opna gerðu mörgum ókleift
að sleppa út. Óljóst er hvað olli slys-
inu, sem er eitt mannskæðasta lest-
arslys sem orðið hefur í heiminum
en árið 1989 fórust um 600 manns er
gassprenging varð við árekstur
tveggja lesta í Síberíu.
Atef Ebeid, forsætisráðherra
Egyptalands, sagði í gær að kviknað
hefði í færanlegu suðutæki farþega,
lögreglumenn töldu að skammhlaup
hefði getað verið orsökin eða
sprenging í gashylki. Sjónarvottar
efast um að nokkurs staðar hafi ver-
ið pláss til að kveikja upp í suðutæki
þar sem lestin hafi verið troðfull af
fólki. Ekki var neinn matarvagn í
járnbrautarlestinni. Eldurinn kvikn-
aði aftarlega í lestinni sem var göm-
ul en í henni voru alls 11 vagnar og
brunnu sjö þeirra. Lestarstjórinn
segist ekki hafa vitað um eldinn fyrr
en hann koma að beygju og sá þá öft-
ustu vagnana loga. Hann rauf sam-
bandið við logandi vagnana og segja
talsmenn stjórnvalda að hann hafi
með því bjargað lífi mörg hundruð
manna í fremstu vögnunum.
Lestin var komin á um 120 kíló-
metra hraða og ók hún áfram nokkra
kílómetra eftir að vagnarnir fóru að
brenna. Sumir farþeganna köstuðu
sér út í örvæntingu þótt lestin væri á
ferð og fórust 44 með þeim hætti.
Fleiri um borð en heimilt var
Mikil skelfing greip um sig meðal
farþeganna er eldurinn varð laus um
klukkan tvö um nóttina að staðar-
tíma en margir höfðu sofnað. Sumir
sáust hlaupa í logandi klæðum milli
klefanna í leit að útgönguleið. Emb-
ættismenn viðurkenndu að mun
fleiri hefðu verið um borð en reglur
heimila eða líklega um 1.200 manns;
margir sátu á gólfinu.
„Þegar lestin fór frá Al Ayatt fór
rafmagnið og við fundum sterkan
þef af brennandi plasti,“ sagði einn
af þeim sem komst af, úrsmiðurinn
Sami Zoheir Hanna. „Fólk fór að
hrópa: Eldur, eldur! Ég sá að grasið
fyrir utan lestina brann. Hitinn í
klefanum fór vaxandi. Ég hélt að ég
væri dauðans matur. … Fólk æddi
um og barði í gluggana en komst
ekki út vegna rimlanna.“ Hanna
tókst sjálfum að komast út um
glugga eftir að lestin hafði stansað.
Endastöð lestarinnar var í Luxor
og tekur ferðin þangað um 12
klukkustundir. Svæðið við Al Ayatt
er þéttbýlt eins og víðast er reyndin
við Níl en hjálparstarfsmenn áttu
erfitt með að komast á slysstaðinn
vegna þess að á milli teinanna og
vegar við hliðina er síki. Mikill vind-
ur olli slökkviliðinu einnig vanda og
tók slökkvistarfið nokkrar klukku-
stundir.
Eldsvoði í
lest verður
373 að bana
AP
Egypskir björgunarmenn með lík eins af farþegunum í lestinni sem stöðvaðist loks við Reqa al-Gharbiya,
skammt sunnan við Kaíró. Lestin var troðfull af fólki sem tekið hafði þátt í trúarhátíð í höfuðborginni.
Egypskur embættismaður líkir
lestinni við „brennandi fangelsi“
Reqa al-Gharbyia í Egyptalandi, Al Ayatt. AP, AFP.
ÍSRAELAR beittu F-16 herþotum
til árása á palestínska bæinn Rafah
syðst á Gaza-svæðinu í gærkvöldi
og særðust átta manns í árásinni. Á
sama tíma réðust Ísraelar með
þyrlum á Jenin á Vesturbakkanum,
að sögn palestínskra fulltrúa. Skot-
markið í Rafah hefði verið lög-
reglustöð. Árásin í Jenin beindist
einnig að bækistöðvum lögreglu.
Þá sögðu ísraelskir heimildamenn
að ísraelskur maður hefði særst
þegar palestínskir byssumenn
skutu á hann á Gaza-svæðinu.
Ísraelska stjórnin tilkynnti í gær
að hún liti nú á átökin við Palest-
ínumenn sem skæruhernað, líkt og
þann sem Ísraelar háðu í Líbanon
gegn Hezbollah-samtökunum, sem
nutu stuðnings Írana. Þeim átök-
um lauk er Ísraelar drógu sig
skyndilega til baka í maí 2000. Eft-
ir fund helstu ráðherra í stjórninni
tilkynnti Ariel Sharon forsætisráð-
herra um „breytta stefnu“ í ljósi
breyttra viðhorfa til átakanna.
AP
Ísraelskir hermenn syrgja félaga sinn, Erez Turgemam, sem féll í fyrir-
sát Palestínumanna á þriðjudag. Hann var borinn til grafar í gær.
Ísraelar halda
loftárásum áfram
Gaza-borg, Jerúsalem. AFP, AP.
Hörðustu árásir/21
LÖGREGLAN á Ítalíu greindi frá
því í gær, að tekist hefði að koma í
veg fyrir eiturefnaárás á sendiráð
Bandaríkjanna í Rómaborg. Hefðu
fjórir Marokkóbúar verið handteknir
og þeir reynst hafa í fórum sínum eit-
urefni, sem skylt væri blásýru, og
teikningar af vatnsveitukerfi borgar-
innar.
Upplýsingar þessar virtust renna
stoðum undir fullyrðingar banda-
rískra embættismanna þess efnis, að
liðsmenn hryðjuverkanets Osama bin
Ladens hygðu á frekari árásir á
bandarísk skotmörk heima sem er-
lendis.
Eiturefni skylt blásýru
Salvatore Vecchione, aðaldómari
Ítala á sviði hryðjuverka, brást hinn
versti við þegar í ljós kom að fregnum
af handtöku fjórmenninganna hafði
verið lekið í fjölmiðla. Var þá komið á
algjöru fréttabanni af máli þessu.
Mennirnir, sem eru á milli þrítugs
og fertugs, voru handteknir skammt
fyrir utan Róm á þriðjudag. Sagði
lögregla að fylgst hefði verið með
þeim í nokkra daga og hefðu fjögur
kíló af efni, sem skylt væri blásýru,
fundist í fórum þeirra. Ekki var gerð
nánari grein fyrir efni þessu. Óstað-
festar fréttir hermdu að magnið hefði
nægt til að eitra vatnið í heilu íbúðar-
hverfi og þannig valda tugum dauðs-
falla.
Á mönnunum fundust og teikning-
ar af vatnsveitukerfi borgarinnar,
fölsuð skilríki og bæklingar, sem
reyndust innihalda boðskap ísl-
amskra bókstafstrúarmanna. Á kort-
unum, sem fundust, hafði sendiráð
Bandaríkjanna í borginni verið auð-
kennt.
Í yfirlýsingu frá sendiráði Banda-
ríkjanna í Róm var staðfest að menn-
irnir hefðu haft í hyggju að ráðast
gegn starfsfólki þess.
Eiturefnaárás
afstýrt í Róm
Fjórir Marokkóbúar handteknir með
eitur og kort sem vísaði á sendiráð
Bandaríkjanna í borginni
Róm. AFP.
DANSKA stjórnin hefur
ákveðið að leggja niður tíu
sendiráð og aðalræðismanns-
skrifstofur í sparnaðarskyni.
Verður tillaga þess efnis tekin
fyrir í utanríkismálanefnd
þingsins í dag. Að því er fram
kemur í Berlingske Tidende og
Jyllands-Posten, verða sendi-
ráðin í Zimbabve, Erítreu,
Malaví, Argentínu, Ástralíu,
Filippseyjum, Sádi-Arabíu og
Úkraínu lögð niður og einnig
aðalræðismannsskrifstofur í
Los Angeles og Düsseldorf.
Friis Arne Petersen, ráðu-
neytisstjóri í danska utanríkis-
ráðuneytinu, vildi ekki stað-
festa, að listinn væri þessi
nákvæmlega, og sagði, að hann
yrði ákveðinn á fundi í ráðu-
neytinu, sem vera átti í gær, og
hann síðan lagður fyrir utanrík-
ismálanefndina í dag.
Talsmenn dansks landbúnað-
ar hafa gagnrýnt þessar fyrir-
ætlanir að sumu leyti og þeir
vara við því, að lokað verði
sendiráðum í löndum, sem eru
mikilvægur markaður fyrir
danskar landbúnaðarafurðir. Á
það ekki síst við um Sádi-Arab-
íu en þangað seldu Danir afurð-
ir fyrir rúma níu milljarða ísl.
kr. árið 2000.
Danir spara
Sendiráð-
um lokað