Morgunblaðið - 21.02.2002, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 21.02.2002, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2002 9 Laugavegi 56, sími 552 2201 PS. Síðustu dagur útsölunnar Glæsilegur vorfatnaður – sérverslun – Fataprýði Álfheimum 74, Glæsibæ, Reykjavík, sími 553 2347. Fyrir fermingarnar! Fallegur, vandaður og öðruvísi fatnaður Allt eftir hönnuði Sérhönnum st. 42-56 Vorið er komið til okkar! Full búð af glæsilegum nýjum fatnaði Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00. Guðni Ágústsson, varafomaður Framsóknarflokksins og Ólafur Örn Haraldsson, alþingismaður, ræða um árangur og horfur í einkavæðingu ríkisfyrirtækja á opnum hádegisverðarfundi á Hótel Borg í dag, fimmtudag, kl. 12-13.30. Allir velkomnir Hádegisverður kr. 1.450 Fundarstjóri: Þorlákur Björnsson, form. kjördæmisstjórnar Reykjavík norður. Fundarboðandi: Ólafur Örn Haraldsson, alþingismaður. EINKAVÆÐING Betri framtíð eða brostnar vonir? Guðni Ágústsson, varafomaður Framsóknarflokksins Ólafur Örn Haraldsson, alþingismaður Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin við Fákafen), sími 553 0100. Opið virka daga kl. 10–18, laugardaga kl. 10–16. Verðhrun! Síðustu dagar útsölunnar VERSLUNIN Laugavegi 52, s. 562 4244. Brúðhjón A l l u r b o r ð b ú n a ð u r - G l æ s i l e g g j a f a v a r a - B r ú ð h j ó n a l i s t a r Í TILEFNI þess að samstarfs- verkefninu Ísland án eiturlyfja fer senn formlega að ljúka verður efnt til ráðstefnu á Grand hóteli 1. mars næstkomandi. Þar verður tekin til umfjöllunar þróun og árangur fíkniefnaforvarna síðustu fimm ára og horft til framtíðar. Ráðstefnan verður haldin í samstarfi áætlunar- innar Ísland án eiturlyfja og fræðslu- og kynningarhópsins Náum áttum. Ríkisstjórn Íslands, Reykjavík- urborg og evrópsku samtökin ECAD (European Cities Against Drugs) undirrituðu fimm ára sam- starfssamning í febrúar 1997 um áætlunina Ísland án eiturlyfja. Áætlunin er liður í stefnu ríkis- stjórnarinnar í fíkniefna-, áfengis- og tóbaksvörnum sem samþykkt var í árslok 1996. Í febrúar 1998 gerðist Samband íslenskra sveitar- félaga formlegur aðili að áætlun- inni. Í fréttatilkynningu vegna ráð- stefnunnar kemur fram að meg- inmarkmið áætlunarinnar Ísland án eiturlyfja hafi verið að sameina krafta þjóðarinnar í baráttunni gegn ólöglegum fíkniefnum, efla forvarnir og skipuleggja verkefni og aðgerðir sem hafa þetta tak- mark að leiðarljósi. Þróun fíkniefnaneyslu ung- linga kynnt á ráðstefnunni Á ráðstefnunni munu m.a. dóms- málaráðherra, borgarstjóri og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga flytja ávörp. Forsvarsmenn áætlunarinnar Ís- land án eiturlyfja munu fara yfir störf og helstu verkefni á tíma- bilinu, ÍM-Gallup mun kynna mat á starfi og árangri Íslands án eit- urlyfja og framkvæmdastjóri ECAD mun fjalla um stöðu mála í Evrópu. Þá verður þróun fíkniefnaneyslu unglinga á liðnum árum kynnt, fjallað verður um meðferðarúrræði fyrir unglinga og gerð grein fyrir þróun fíkniefnalöggæslu. Þá munu starfshópar gera grein fyrir af- stöðu sinni til stefnumótunar stjórnvalda, um árangur í forvarn- arstarfi og framtíðarsýn. Fundar- stjórar verða Ásta Möller og Guð- rún Ögmundsdóttir. Ráðstefna um þró- un og árangur fíkniefnaforvarna TENGLAR .............................................. www.islandaneiturlyfja.is MIÐSTJÓRN Alþýðusambands Ís- lands, ASÍ, kom saman til fundar í gær þar sem samþykkt var í ályktun að skora á Seðlabanka Íslands að lækka vexti án tafar. Ályktunin er eftirfarandi: „Miðstjórn Alþýðusambands Ís- lands telur að nú séu öll skilyrði í hagkerfinu fyrir því að Seðlabankinn lækki stýrivexti. Mæling á neyslu- vísitölu fyrir febrúar sýndi verð- hjöðnun, krónan hefur styrkst veru- lega á undanförnum vikum og mánuðum og ekkert sem bendir til annars en að þessi þróun haldi áfram. Það er ljóst, að ef Seðlabankinn tekur ekki mið af þessari þróun, þá stuðlar það að því að viðhalda verðbólgu. Miðstjórn ASÍ skorar því á Seðla- bankann að leggjast á sveif með verkalýðshreyfingunni, ríkisstjórn- inni, sveitarfélögum og fyrirtækjum í að draga úr verðbólgu. Það gerir hann með því að lækka vexti þegar í stað.“ Seðlabankastjóri vonar að verð- bólgan haldi áfram að lækka Aðspurður um viðbrögð við áskor- uninni frá ASÍ sagði Birgir Ísleifur Gunnarsson seðlabankastjóri við Morgunblaðið að bankinn myndi skoða þessa ályktun. Hann minnti á að bankinn hefði nýlega sent frá sér ítarlega greinargerð þar sem niður- staðan hefði verið sú að halda vöxtum óbreyttum að sinni. „Við vonum vissulega að verðbólg- an haldi áfram að lækka og okkar spár ganga út á það. Við vonumst einnig til þess að gengið haldi áfram að styrkjast, en það þarf að styrkjast enn frekar til að okkar verðbólgu- spár gangi eftir. Hættan við vaxta- lækkun er að hún hafi neikvæð áhrif á gengið, eins og reynslan var þegar við lækkuðum vexti í fyrra. Það væri mjög slæmt ef það gerðist akkúrat núna þegar verið er að reyna að ná verðbólgunni niður,“ sagði Birgir Ís- leifur. Miðstjórn Alþýðusambandsins skorar á Seðlabankann Stýrivextir verði lækkaðir án tafar FULLTRÚARÁÐ sjálfstæðisfélag- anna á Akureyri samþykkti í gær tillögu að lista Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórnarkosningunum í vor. Í efstu sætum eru: 1. sæti Krist- ján Þór Júlíusson, bæjarstjóri. 2. Þóra Ákadóttir, hjúkrunarfræðing- ur. 3. Þórarinn B. Jónsson, útibús- stjóri. 4. Sigrún Björk Jakobsdóttir, hótelrekstrarfræðingur. 5. Stein- grímur Birgisson, viðskiptafræðing- ur. 6. Laufey Petrea Magnúsdóttir, aðstoðarskólameistari, 7. Bjarni Jónasson, efnafræðingur. 8. Jóna Jónsdóttir, markaðsfræðingur. 9. Páll Tómasson, arkitekt, 10. Jó- hanna H. Ragnarsdóttir, hár- greiðslumeistari. 11. Guðmundur Jóhannsson, þjónustustjóri. Krist- ján Þór Júlíusson er jafnframt bæj- arstjóraefni flokksins, sem á 5 full- trúa af 11 í bæjarstjórn. Bæjarstjórinn í efsta sæti Sjálfstæðismenn á Akureyri ÍSLENDINGNUM sem verið hefur í haldi lögreglunnar í Las Palmas á Kanaríeyjum frá því sambýliskona lést við fall fram af svölum hótels í borginni, hefur verið sleppt úr haldi. Að sögn Péturs Ásgeirssonar, rekstrarstjóra utanríkisráðuneytis- ins, er maðurinn í farbanni frá eyj- unum þar til yfirvöld taka ákvörðun í máli hann. Maðurinn var handtekinn 5. janúar sl. og hefur því setið í gæsluvarðhaldi í rúmlega 6 vikur. Lögreglan grunaði manninn upp- haflega um að hafa af ásetningi hrint konunni fram af svölum á 5. hæð íbúðahótelsins. Íslenskur karlmaður sem varð vitni að atvikinu bar hins vegar að um slys hafi verið að ræða. Maðurinn hafi ýtt við konunni á svalagangi en við það hafi hún misst jafnvægið og fallið á lágt svalahand- rið og síðan fram af svölunum. Túlk- un á framburði hans tókst í fyrstu ekki betur en svo að lögregla fékk ranga mynd af atburðarásinni. Laus úr haldi á Kanaríeyjum TÆPLEGA tveir af hverjum þrem- ur Íslendingum telja að hefja eigi viðræður um aðild Íslands að Evr- ópusambandinu, að því er kemur fram í könnun Pricewaterhouse- Coopers en spurt var: „Telur þú að Íslendingar eigi að hefja viðræður við Evrópusambandið um aðild að því?“ Heldur fleiri karlar en konur eru fylgjandi aðildarumræðum eða tæp 68% á móti tæpum 64% kvenna. Hins vegar er nokkur munur á afstöðu manna eftir aldri; ríflega 70% í ald- ursflokknum 18-29 ára eru fylgjandi aðildarumræðum en aðeins 60,4% í aldurshópnum 50 til 67 ára. Úrtakið var tólf hundruð manns um land allt en svarhlutfall tæp 66%. Meirihluti vill viðræður við ESB ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.