Morgunblaðið - 21.02.2002, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 21.02.2002, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. Lágmúla og Smáratorgi opið kl. 8-24 alla daga HANN fer heldur hægar yfir á jök- unum þessi drengur en Skarphéð- inn forðum yfir Markarfljót enda engin Rimmugýgur í hendi eða óvinavon handan tjarnarinnar fyrir framan Hafnarfjarðarkirkju. En vinurinn fylgist þó engu að síður spenntur með. Morgunblaðið/Golli Jakahlaup í Hafnarfirði ÍSLENSKA útflutningsfyrirtækið Norfisk hefur náð viðskiptum af Coldwater Seafood í Bandaríkjunum með fiskafurðum sem framleiddar eru í Kína úr rússnesku hráefni und- ir vörumerkinu Origin Iceland. Inn- kaupa- og gæðastjóri Coldwater ótt- ast að þessi þróun geti leitt til verðlækkunar á íslenskum fiskafurð- um á Bandaríkjamarkaði en fram- kvæmdastjóri Norfisk segir ekkert athugavert við vörumerkið. Coldwater Seafood, dótturfélag Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna í Bandaríkjunum, kaupir mikið af ýsu í svokölluðum 5 punda pakkningum af íslenskum framleiðendum og er löng hefð fyrir slíkri framleiðslu. Vegna mikilla krafna um vinnslu- og hráefnisgæði afurðanna fer tiltölu- lega hátt hlutfall hráefnisins í þess- ari framleiðslu í blokk. Til að hækka meðalverð til framleiðenda var fyrir allmörgum árum búin til ný afurð, svokallaðir ýsuvafningar, sem seldir hafa verið til lítillar verslunarkeðju í Bandaríkjunum og fyrir hana fæst mun hærra verð en fyrir blokk. Nýverið náði Norfisk þessum við- skiptum af Coldwater og selur vör- una undir vörumerkinu „Origin Ice- land“ sem þýða má sem „íslenskur uppruni“. Varan er hinsvegar fram- leidd í Kína, aðallega úr rússneskri ýsu. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins selur Norfisk kílóið af ýsu- vafningunum á 210 krónum lægra verði en Coldwater. Hagnýta sér orðspor íslensks fisks Jón Jóhannesson, innkaupa- og gæðastjóri Coldwater Seafood Corp. á Íslandi, segir að mörgum íslensk- um framleiðendum svíði mjög að vara sem framleidd sé í Kína úr rúss- nesku hráefni skuli markaðssett með þessum hætti. „Auðvitað setja við- skiptavinir þessa vöru í beint sam- hengi við Ísland. Það er í rauninni verið að hagnýta sér gott orðspor ís- lensk fisks í Bandaríkjunum. Ef þessi þróun heldur áfram yfir í aðrar afurðir leiðir hún til lækkandi verðs á íslenskum fiski. Við getum ekki lækkað verð á þessari vöru um 200 krónur fyrir kílóið enda er það þá orðið lægra en á blokk. Við höfum engan annan kaupanda að þessari vöru og ekki líklegt að við finnum hann. Markaðurinn fyrir þessa fisk- tegund er mjög staðbundinn og ein- göngu bundinn við lítil svæði á aust- urströnd Bandaríkjanna.“ Coldwater framleiðir undir vöru- merkinu Icelandic og segir Jón að áður fyrr hafi verið keypt töluvert af fiski frá Færeyjum og framleitt þar undir Icelandic-vörumerkinu. Þess hafi hinsvegar ætíð verið vandlega gætt að gæðakröfurnar væru þær sömu, án tillits til þess hvar varan væri framleidd. Í dag séu allar vörur undir vörumerkinu Icelandic fram- leiddar á Íslandi. Kemur fram á umbúðum hvar varan er framleidd Eyþór Haraldsson, framkvæmda- stjóri Norfisk, segist hafa selt fisk undir vörumerkinu Origin Iceland í 12 ár. Varan komi meðal annars frá Noregi, Íslandi, Kanada, Eistlandi og Kína. „Vörumerki eru til þess fall- in að viðskiptavinurinn viti að hann sé að fá vöru frá ákveðnum aðila sem hann ber traust til. Áður en fram- leiðsla í mitt vörumerki hófst í Kína voru framleiddar fyrir mig vörur undir þessu vörumerki á Íslandi í ein 9 ár, og er það reyndar í gangi enn í dag. Meðal annars er unnið úr Rússafiski, jafnt hér á landi og í Kína. Er þannig um nákvæmlega sama hráefni að ræða. Allt er þetta selt á Bandaríkjamarkaði. Nú fyrst þegar kínverskar hendur vinna fisk- inn virðist þessi starfsemi skapa angist hjá einhverjum aðila.“ Eyþór segir að umræddir ýsu- vafningar séu að hluta unnir í Kína og þá bæði úr íslensku og rússnesku hráefni. „Einnig er til sölu hjá okkur íslensk ýsa unnin hér á Íslandi í þessar sömu pakkningar, en þess er sérstaklega getið á umbúðunum hvar varan er framleidd hverju sinni.“ Eyþór undrast mjög að gerðar séu athugasemdir við að hann noti sitt vörumerki í því tilfelli þegar varan er unnin í Kína. „Eitt er víst, að þeir sem ég versla við, jafnt framleiðend- ur sem kaupendur, eru ánægðir með verðlagið á þessum vörum. Ef ein- hver aðili hjá öðru sölufyrirtæki er það ekki, þá er það líklega vegna þess að einhverjum af hans kúnnum finnst mín verðlagning skaplegri en hans,“ segir Eyþór. Rússnesk ýsa unnin í Kína seld sem íslensk Norfisk hefur náð viðskiptum af Coldwater í Bandaríkjunum TVEIR hlaðmenn á Keflavíkurflug- velli, starfsmenn dótturfyrirtækis Flugleiða, eru meðal þeirra sem eru grunaðir um aðild að smygli á fimm kílóum af hassi til landsins í janúar sl. Grunur leikur á að þeim hafi ver- ið ætlað að fjarlægja hassið úr far- angri áður en hann var settur á færiband í komusal flugstöðvarinn- ar. Þeir hafi síðan ætlað að koma hassinu út af flugvallarsvæðinu, væntanlega með því að fara með það um starfsmannainngang og þannig komast hjá tolleftirliti. Þess- ar upplýsingar hefur Morgunblaðið frá áreiðanlegum heimildarmönn- um. Öðrum hlaðmannanna mun hafa verið sleppt úr haldi í gær en hinn er enn í haldi. Morgunblaðið hefur ekki upplýsingar um hvort þeir hafa játað verknaðinn. Alls sitja fjórir í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar málsins. Fyrri sendingin kom til landsins 13. janúar sl. og sú seinni rúmlega viku síðar, en lagt var hald á hassið í sameiginlegri aðgerð fíkniefnadeild- ar lögreglunnar í Reykjavík og toll- gæslunnar á Keflavíkurflugvelli. Í báðum tilfellum var hassið í farangri manna sem voru að koma til lands- ins frá Kaupmannahöfn. Maðurinn sem kom með seinni sendinguna var úrskurðaður í gæsluvarðhald í þrjár vikur. Næstu daga og vikur voru fimm til viðbótar handteknir vegna málsins og úrskurðaðir í gæsluvarð- hald. Hlaðmenn taka á móti flugvélum á flughlöðum. Þeir taka farangur í vélinni úr farangurslestum og setja hann á vagna sem ekið er inn í töskusal flugstöðvarinnar. Þar er farangrinum staflað á færibönd sem fara um komusal þar sem farþegar geta nálgast hann. Gætu hafa fjarlægt hassið úr farangri í lest Reynist grunur lögreglunnar réttur um að hlaðmennirnir hafi verið viðriðnir smyglið má gera ráð fyrir því að þeir hafi ætlað að fjar- lægja hassið annaðhvort í lest flug- vélarinnar eða áður en farangurinn kom inn í flugstöðvarbygginguna, þar sem eftirlitsmyndavélar eru í töskusalnum. Hlaðmennirnir hafa síðan haft möguleika á að taka hass- ið með sér út úr flugstöðinni um starfsmannainngang. Lögregla og tollgæsla hafa aldrei útilokað þann möguleika að fíkniefni væru flutt til landsins með þessum hætti. Þá má leiða sterkar líkur að því að þetta hafi ekki verið í fyrsta skipti sem hass var flutt til landsins með aðstoð hlaðmannanna en benda má á að aðeins leið rúmlega vika á milli hasssendinganna sem lögregla og tollgæsla lögðu hald á. Ásgeir Karlsson aðstoðaryfirlög- regluþjónn varðist allra frétta af málinu og segir rannsókn lögreglu eingöngu beinast að innflutningi á fyrrnefndum fimm kílóum. Fyrri réttu ári voru tveir flug- virkjar Flugleiða handteknir á Keflavíkurflugvelli fyrir tilraun til að smygla hassi sem þeir höfðu falið í klæðningu flugvélar. Hassinu var komið fyrir í leirbrúsum undan áfengi. Annar þeirra hlaut sex mán- aða fangelsi en hinn fjögurra mán- aða skilorðsbundinn dóm. Hlaðmenn grun- aðir um aðild að hasssmygli ÁRLEGUR bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda hefst í dag í Perlunni og í Hafnarstræti á Ak- ureyri. Hann virtist ekki par hrif- inn af því að vera truflaður við spennandi lesningu ungi maðurinn enda bíður hans ærinn lestur ef marka má innihaldið í körfu móður hans. Morgunblaðið/Sverrir Heillandi heimur bókanna ÓVENJUMARGIR sæta nú gæslu- varðhaldsvist að kröfu lögreglunnar í Reykjavík, eða 18 manns, og eru öll einangrunarpláss, 12 að tölu, fullset- in í fangelsum. Kvað svo rammt að plássleysinu að lögreglan í Reykja- vík varð að hafa fanga í haldi í gær í fangageymslu á lögreglustöðinni við Hverfisgötu en sjaldan þarf að grípa til slíkra úrræða, sem þykja óæski- leg þrátt fyrir að þau séu leyfileg. Flestir gæsluvarðhaldsfanganna 18 sæta gæslu vegna gruns um fíkni- efnabrot, eða 12 manns, þar af er um helmingurinn útlendingar. Fjórir sæta gæslu vegna fjársvika eða inn- brota og tveir vegna manndráps- mála, annar vegna manndráps við Bakkasel í Breiðholti í nóvember sl. og hinn vegna morðsins á Víðimel. Að sögn Harðar Jóhannessonar yfirlögregluþjóns í Reykjavík er fjöldinn óvenjumikill um þessar mundir þótt lögreglan hafi séð meiri fjölda á liðnum árum. Takmarkaður fjöldi einangrunarplássa hjá Fang- elsismálastofnun getur skapað vanda við vistun grunaðra einstak- linga ef eftirspurnin fer fram úr framboðinu. Aðspurður hvort Fangelsismála- stofnun þurfi ekki að anna eftirspurn eftir gæsluvarðhaldsplássum, segir Þorsteinn A. Jónsson, forstjóri Fangelsismálastofnunnar, ekki svo vera. „Við erum eins og aðrar ríkis- stofnanir, s.s. sjúkrahús og fleiri. Við höfum ákveðinn fjölda klefa og ef þörfin er meiri, þá verða menn að leysa verkefnin með öðrum hætti.“ Ekki pláss fyrir fleiri fanga í einangr- unargæslu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.