Morgunblaðið - 21.02.2002, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 21.02.2002, Blaðsíða 27
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2002 27 HESTAMENN eru ævareiðir borgaryfir- völdum í Reykjavík. Þeir eru felmtri slegn- ir yfir ótrúlegu skipu- lagsslysi á útreið- arsvæði hestamanna við Elliðavatn og Rauðavatn, sem veld- ur hættu á auknum slysum í hesta- mennsku. Eru þau þó næg fyrir. Hættuleg breyting Þegar hestamenn í hesthúsahverfum kringum Elliðavatn og Rauðavatn höfðu tekið hesta á hús eftir hausthvíld blasti við þeim hættuleg breyting á útreiðarsvæði þeirra. Reiðleiðir höfðu verið skornar sundur með hjóla- og göngustígum, ekki einu sinni, held- ur margoft. Hestamenn geta átt von á því að göngu- og hlaupafólk eða hjólreiðamenn birtist skyndi- lega og að óvörum fyrir skarpt horn við trjálund við Norðlinga- braut og háa tréveggi í göngum undir Breiðholtsbraut við Fáks- svæðið og Suðurlandsveg við Rauðavatn. Afleiðingin er augljós. Hvort heldur um er að ræða vanan hestamann á vökrum gæðingi eða barn á rólyndum fjölskylduhesti, hesturinn getur fælst og slys á mönnum yfirvofandi. Á þessu bera borgar- yfirvöld ábyrgð. Skörun umferðar Grundvallarhug- mynd í umferðar- skipulagi er að að- skilja umferð ólíkra ferðalanga. Tilgangur- inn er að minnka slysahættu. Þannig leggja skipulagsyfir- völd um allan hinn vestræna heim áherslu á að umferð gangandi fólks skarist sem allra minnst við bílaumferð. Þar sem slíkt er óumflýjanlegt eru byggðar göngubrýr, undirgöng eða lagðar merktar göngubrautir, oft með handstýrðum umferðarljósum. Hið sama á við um umferð hesta og bíla, leitast er við að skilja umferð að eftir mætti. Ábyrgð borgaryfirvalda Borgaryfirvöld í Reykjavík ættu að vita betur en að skapa svo aug- ljósa slysahættu sem raun ber vitni. Umferð hjólreiðafólks og gangandi fólks annars vegar og hestamanna hins vegar verður að skilja að. Ann- að er ábyrgðarleysi. Borgaryfirvöld verða hið snarasta að bæta þetta skipulagsslys, áður en alvarlegri skaðar hljótast af. Þegar fer að vora og fram yfir miðjan júní, þeg- ar fyrirsjáanlegt er að skörun um- ferðar hestamanna og hjólreiða- og göngumanna á svæðinu verður í há- marki, er veruleg slysahætta á svæðinu. Varla hafa borgaryfirvöld áhuga á að vera dregin til ábyrgðar vegna hættulegra og vanhugsaðra lagninga göngu- og hjólastíga, þvert á reiðleiðir. Hið nýja skipulag hjóla- og út- reiðarstíga við Elliðavatn og Rauðavatn er hættulegt. Útivistar- fólk í Reykjavík og nágrenni á betra skilið. Borgaryfir- völd skapa slysahættu Ásta Möller Slysahætta Umferð hjólreiðafólks og gangandi fólks annars vegar, segir Ásta Möller, og hestamanna hins vegar verður að aðskilja. Höfundur er þingmaður Sjálfstæð- isflokksins í Reykjavík. HÉR á Íslandi hef- ur töluvert verið rætt um heilbrigðismál að undanförnu. Sem þegn í þessu landi lít ég þannig á að þessi heil- brigðismál komi mér við og ég þurfi að mynda mér skoðun á þeim. Nýtt ár er gengið í garð og í eyrum okkar hljómar sama setning fyrri ára, sparnaður í heilbrigðiskerfinu en aukin þjónusta. En þegar biðin er löng telst þjónustan skert, ekki viðhaldið eða aukin! Þar að auki hefur tekist að draga með skuldahala frá fyrra ári og það þýðir að enn á að þrengja að þessu kerfi. Í ræðu forsætisráð- herra á gamlárskvöld heyrðum við að það væri ,,góð sátt um traust velferðarkerfi á Íslandi, þar sem þeir fjármunir sem menn hafa úr að spila eru vel nýttir“. Staðreynd- in er sú að það er skortur á fjár- magni til þess kerfis sem við öll þurfum að nota á lífsleiðinni. Sam- eining spítalanna hefur verið mjög dýr og það er ekki rétt hjá Magn- úsi Péturssyni, forstjóra Landspít- alans, í Fréttablaðinu 3. janúar að hann telji að sjúklingar hafi ekki orðið mikið varir við það sem verið var að gera. Fólk beið eftir að þjáningum þess lyki en í staðinn var þeim viðhaldið meðan á sam- einingu spítalanna stóð eða stend- ur! Þetta fólk hefur ekki krafta til að berjast fyrir sjálft sig og hefur þögn þess því blekkt Magnús! Það er ekki hægt að sameina spítala eins og bókaútgáfur því bækur er hægt að láta frá sér á hillu eða í geymslu í marga mánuði og ár en ekki lifandi manneskjur! Á sjúkrahúsum er verið að með- höndla fólk um lengri eða skemmri tíma. Það er fólksfjölgun í landinu, við búum við hátækni sem gerir mögulegt að lengja líf en á sama tíma er fjársvelti í gangi því við sameininguna á að fækka deildum, ekki satt? Hvernig fer þá með umönnun þeirra sem veikjast eða slas- ast? Á að telja okkur trú um að hún batni við niðurskurð og sameiningu? Þessari spurningu þarf að svara! Önnur setning hefur verið vinsæl síðan sameining hófst þ.e.a.s. að efla ætti bráðaþjónustuna í land- inu. Fyrir þá sem það ekki vita þá er ekkert að bráðaþjónustunni hér á landi. Ef til vill horfir ríkisstjórn- in of oft á Bráðavaktina. Slysa- deildin í Fossvogi er ekki legudeild en það þarf einnig að leggja sjúk- linga inn til meðferðar! Þá þurfa deildir að vera opnar og starfsfólk til að sinna þeim veiku. Látin eru falla fögur orð um bætta þjónustu og hagræðingu en með því er verið að svæfa fólk og blekkja til að það sjái ekki það sem raunverulega er að gerast. Það er erfitt að horfa fram á nýtt ár sem sjúklingur því fréttirnar af heilbrigðismálum eru áframhald- andi niðurskurður og hækkun gjalda í heilbrigðisþjónustu. Á sama tíma er verið að gauka að þeim sem mestar hafa tekjurnar til þess að þeir geti haldið áfram að auka neyslu sína. Stofnað var sendiráð í Japan sem kostaði heilar 800 milljónir (fyrir utan þær millj- ónir sem eyddust alveg óvart þegar áætlanir stóðust ekki). Svo fá bið- listarnir 80 milljónir og kvartað er yfir að spítalarnir fari fram úr fjár- hagsáætlun. Þetta er hrein snilld. Það er bara ekki hægt að skera niður og spara endalaust þegar um heilsu fólks er að ræða. 800 milljónir eru um það bil skuldir spítalanna, ég spyr hver er forgangsröðunin? Er það minnis- varðar um ráðamenn landsins eða er það fólkið sem landið byggir? Þarna ber öll ríkisstjórnin ábyrgð- ina og það er henni ekki í hag þeg- ar borinn er saman vandi spítal- anna og sóunin í Japan því ekki er óeðlilegt að efast um að þeim millj- ónum hafi verið vel varið. Ólafur Örn Arnarsson yfirlæknir hefur ritað góðar greinar sem yf- irstjórn spítalanna ætti að lesa og fara eftir. Ég heyri oft hjá heil- brigðisstarfsfólki að bið eftir þjón- ustu sé eðlileg og hef sjálf tekið undir það en það kemur fljótlega annað hljóð í strokkinn þegar þú sjálf/ur ert komin/n í biðröðina? Veikindi og slys eiga sér stað óháð efnahag, og hlýtur sú hugsun að læðast að hvort það sé ástæðan fyrir því að svo mikið er skorið við nögl til heilbrigðismála. Er e.t.v. gert ráð fyrir því að þeir sem eiga meiri peninga geti notað þá í einka- sjúkrahús sem virðist vera í far- vatninu? Sjúkrahúsin við Hring- braut og í Fossvogi þjóna öllu landinu og við viljum að fjármunir séu settir í að hlúa að og byggja þar upp fyrir okkur, fólkið í land- inu! Ég vil leyfa mér að tala fyrir hönd sjúklinga þessa lands og biðja um að fólk verði sett í forgang. Við getum ekki leyft okkur að vera skoðanalaus um heilbrigðiskerfið okkar! Heilbrigðismál á nýju ári Elísabet Haraldsdóttir Heilbrigði Við getum ekki leyft okkur, segir Elísabet Haraldsdóttir, að vera skoðanalaus um heil- brigðiskerfið okkar! Höfundur er hjúkrunarfræðingur. Á horni Skólavörðustígs og Klapparstígs, sími 551 4050 Útsalan stendur yfir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.