Morgunblaðið - 21.02.2002, Side 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isHaukar eru með sex stiga forskot
í Esso-deild karla / B2
Bjørndalen og Kostelic sigursæl
á vetrarleikunum / B1
4 SÍÐUR12 SÍÐUR
Sérblöð í dag
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I , S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í
Eigið fé Sparisjóðs vélstjóra vex / C1
Aukin ásókn í ferðir til Íslands / C4
Spara má milljarða í bankakerfinu / C6
Bandarískar upphæðir í evrópsku umhverfi / C5
Nýr hágæða laxastofn / C12
SÓLVEIG Pétursdóttir dómsmála-
ráðherra varar við því að draga of
víðtækar ályktanir um þróun af-
brota í borginni út frá
morðinu á Víðimel á
mánudagsmorgun, en
telur samt ástæður til
að kanna hvort meiri
þörf sé á frekara lög-
reglueftirliti í íbúða-
hverfum í kjölfar at-
burðarins. Þá segir
hún fjölda morðmála
ekki hafa verið óvenju-
mikinn síðustu ár,
heldur svipaðan þeim
sem verið hefur síðast-
liðinn aldarfjórðung.
„Vissulega eru
sveiflur milli ára, t.d.
var árið 2000 slæmt
hvað þetta varðar, en
slík ár hefur borið að
garði áður, s.s. 1974 þegar fimm
morð voru framin og 1988 þegar sex
morð voru framin og fjögur morð ár-
ið 1991,“ segir Sólveig. „Þessi alvar-
legu afbrot eru engu að síður
áhyggjuefni og full ástæða til að
skoða þróun mála að undanförnu.
Það er ekki síst umhugsunarvert
hvernig fíkniefnaneysla blandast inn
í afbrot og sviptir menn bæði skyn-
semi og sjálfstjórn. Ég átti fund með
yfirstjórn lögreglunnar í Reykjavík í
dag [í gær] þar sem
þetta mál var m.a.
rætt. Lögreglan vinnur
stöðugt að því að efla
eftirlit og auka öryggi
borgaranna og vissu-
lega verður það að vera
jafnt í hverfum borgar-
innar sem í miðborg-
inni.“
Eftirlit hefur aukist
undanfarin ár
Sólveig telur að
lögreglan haldi uppi
mjög góðu eftirliti og
segir það hafa aukist
undanfarin ár. „Það
hefur verið lögð mikil
áhersla á grenndarlög-
gæslu í hverfum borgarinnar sem
hefur gefið mjög góða raun. Einnig
hefur eftirlit í miðborginni verið eflt.
Það er auðvitað full ástæða til að
skoða þetta mál og athuga hvort
eitthvað þurfi að gera betur. Lög-
reglan vinnur að því og ég ber fullt
traust til hennar. En það er ekkert
skrýtið að almenningur fyllist óhug
þegar manndráp eiga sér stað í
íbúðahverfum og það er full ástæða
til að skoða hvort þörf sé á meira eft-
irliti í þeim.“
Aðspurð hvort ástæða sé til að
taka enn harðar á fíknefnavandan-
um, í ljósi aukinnar ofbeldishörku
honum fylgjandi, segir Sólveig að
mikið átak hafi staðið yfir undanfar-
in ár til að stemma stigu við fíkni-
efnavandanum.
„Markmið ríkisstjórnarinnar hef-
ur verið að taka sérstaklega á fíkni-
efnamálunum og berjast gegn þess-
um vágesti í íslensku þjóðfélagi.
Þannig hefur verið lagt til mjög
verulegt fjármagn til þessara mála.
Við höfum fjölgað í lögreglunni með
því að fá til starfa sérstaka fíkniefna-
lögreglumenn sem sinna þessum
málum eingöngu. Nokkrir þeirra eru
hér í borg og aðrir úti á landi. Lög-
regluembættin hafa líka átt sam-
starf sín á milli til að taka sérstak-
lega á fíkniefnamálunum. Þá hefur
fíkniefnaleitarhundum verið fjölgað
og margt annað gert.“
Vönduð vinnubrögð
lögreglu í Víðimelsmálinu
Hvað snertir atburðinn á Víði-
melnum á mánudag, segir Sólveig
ljóst að lögreglan hafi viðhaft mjög
vönduð vinnubrögð og upplýst málið
með skjótum hætti. „Við verðum í
því samhengi að hafa það í huga, að
fátt hefur jafnmikið forvarnargildi
gegn afbrotum en einmitt það, að af-
brotamenn geti búist við því að lög-
reglan hafi upp á þeim fljótt og
örugglega,“ segir Sólveig.
„Við verðum hins var að varast að
draga of víðtækar ályktanir út frá
þessu sorglega máli um þróun af-
brota í borginni. Við höfum t.d. ekki
séð tilfinnanlega aukningu afbrota í
Vesturbænum, eins og e.t.v. hefði
mátt skilja af fréttaflutningi, en þó
aðeins í vesturhluta miðborgarinn-
ar.“
Dómsmálaráðherra um öryggi borgaranna í kjölfar morðsins á Víðimel
Ástæða til að skoða
hvort þörf sé á meira
eftirliti í íbúðahverfum
Morgunblaðið/Júlíus
Lögregla ræðir við íbúa á Víði-
mel á mánudagsmorgun, daginn
sem morðið var framið.
Sólveig
Pétursdóttir
FYRIRVARALAUSAR líkams-
árásir á fólk eru mun algengari á
höfuðborgarsvæðinu en á lands-
byggðinni, en líkamsmeiðingar án
fyrirvara áttu sér stað í 38,9% til-
vika á höfuðborgarsvæðinu árið
1999 og í 27,6% tilvika á lands-
byggðinni. Algengast var hins veg-
ar að líkamsmeiðingar ættu sér
stað í kjölfar deilna á landsbyggð-
inni þar sem 58,5% líkamsmeiðinga
áttu sér þann aðdraganda. Sú
ástæða átti við í 35,7% tilvika á höf-
uðborgarsvæðinu.
Þetta kemur fram í skýrslu rík-
islögreglustjóra, Brot gegn lífi og
líkama 1999, sem gefin var út í
mars 2001. Samkvæmt skýrslunni
var langalgengast að árásaraðili og
-þoli þekktust ekki. Á höfuðborg-
arsvæðinu átti það við í 59,2% til-
vika, eða í 555 líkamsmeiðinga-
málum af 937.
Fram kemur einnig að líkams-
meiðingar á almannafæri séu mun
algengari á höfuðborgarsvæðinu,
eða í þriðjungi mála á móti tæplega
fjórðungi á landsbyggðinni. Nánar
tiltekið voru 33% tilvika á almanna-
færi, 22% tilvika á heimilum, 18,6%
inni á skemmtistað og 11,6% utan
við skemmtistað. Aðrir flokkar
vega mun minna.
Fórnarlambið oftast
slegið eða kýlt
Hvað snertir höfuðborgarsvæðið
bera þessar tölur með sér að al-
gengast sé að ráðist sé fyrirvara-
laust á fólk á almannafæri og að
langalgengast sé að fórnarlambið
þekki ekki árásarmanninn. Algeng-
ast er einnig að fórnarlambið sé
slegið eða kýlt, en sú aðferð var
notuð í 41,8% tilvika á höfuðborg-
arsvæðinu. Langalgengustu áverk-
arnir voru smávægileg meiðsl í
andliti, en það átti við um 43,8% til-
vika. Flestar líkamsmeiðingar áttu
sér stað á milli miðnættis og 6 að
morgni á höfuðborgarsvæðinu, eða
í 56,7% tilvika og í 73,8% tilvika á
landsbyggðinni.
Skv. grófri flokkun tilvika eftir
alvarleika, samkvæmt málaskrá
lögreglu, falla 78% tilkynntra brota
á landinu undir vægustu ákvæði
hegningarlaga.um líkamsárásir.
Fyrirvaralausar árás-
ir algengastar á höf-
uðborgarsvæðinu
LAMBHRÚTURINN sem Þorleifur
Hjaltason bóndi í Hólum í Horna-
firði er með í fanginu kom í heim-
inn 11. febrúar. Það er sjaldgæft og
þykir tæpast tímabært að sauð-
burður fari af stað á miðjum þorra
og kvaðst Þorleifur ekki muna til
að slíkt hafi komið fyrir þar á bæ
fyrr.
Morgunblaðið/Guðrún Ingimundardóttir
Snemm-
bæra í
Hornafirði
INNBYGGÐUR bílskúr við Nesveg
125, þar sem kertagerðin Vaxandi
var starfrækt, gjöreyðilagðist í eldi
í gær. Ljóst er að starfsemin stöðv-
ast í einhvern tíma því allt sem í bíl-
skúrnum var er ónýtt að sögn Jó-
hannesar Más Jóhannessonar, eins
eigenda fyrirtækisins; hráefni og
tilbúnar vörur, vélar og tæki. „Það
má segja að skúrinn sé fokheldur,“
sagði Jóhannes. Framleiðsla hefur
farið fram í bílskúrnum, svo og
námskeið í kertagerð fyrir almenn-
ing.
Mikill eldur var í bílskúrnum
þegar slökkvilið kom á staðinn eftir
hádegið. Eldur kviknaði út frá vaxi
sem var í potti á heitri eldavél og
var eldhafið mikið þegar að var
komið, en slökkvistarfi og reyk-
ræstingu var lokið um 40 mínútum
síðar. Húsmóðirin, sem starfar við
kertagerðina, brá sér frá í stutta
stund; fór að ná í dóttur sína í skól-
ann en þaðan hafði verið hringt og
tilkynnt að dóttirin væri orðin veik.
Ljóst þykir að rammger eldvarn-
arhurð milli bílskúrs og íbúðarhús-
næðis gerði það að verkum að ekki
fór enn verr en raun ber vitni.
Morgunblaðið/JúlíusGreiðlega gekk að slökkva eldinn en skemmdir eru miklar.
Kertagerð eyðilagðist í eldi