Morgunblaðið - 21.02.2002, Page 20
ERLENT
20 FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HANDTAKA Mogens Amdi Pet-
ersen í Los Angeles í sl. viku hef-
ur vakið mikla athygli í heima-
landinu en Petersen, sem oftast
er nefndur Amdi, tókst að halda
dvalarstað sínum leyndum í meira
en tvo áratugi en þá fann danska
dagblaðið Jyllandsposten hann í
Flórída. Hann varð á sínum tíma
þjóðþekktur í Danmörku fyrir að
stofna Tvind-skólana (Den Rejs-
ende Højskole) 1974 þar sem
hampað er hugsjónum sósíalisma,
umhverfisverndar og alþjóða-
hyggju. Amdi gerði stofnun sína
að alþjóðlegu risafyrirtæki, með-
alannars var skipulögð í Bretlandi
mikil fjársöfnun á vegum samtak-
anna fyrir nauðstadda í þriðja
heiminum. Dönsk yfirvöld saka
hann um margvíslegt bókhalds-
svindl og fjárglæfra, meðal ann-
ars skattsvik og nema kröfurnar
75 milljónum danskra króna, um
900 milljónum ísl. króna.
Jyllandsposten komst að því í
fyrra að Amdi byggi í gríðarstórri
munaðaríbúð á Fisher-eyju,
skammt frá Miami í Flórída,
ásamt lagskonu sinni, Kirsten
Larsen. Hann var handtekinn á
laugardag er hann var á heimleið
frá húsi sínu í Zimbabwe í Afríku
og ætlaði til bústaðar sem hann á
í Baja Kalifornia í vesturhluta
Mexíkó. Amdi er sagður hafa haft
til ráðstöfunar einka-golfvelli,
fjölda glæsibíla og hafa notið
hjálpar og þjónustu mörg þúsund
tryggra liðsmanna Tvind í fjöl-
mörgum löndum.
Milljarðavelta og skattsvik
Ársvelta fyrirtækja og stofnana
Tvind er talin nema milljörðum
danskra króna en illa hefur geng-
ið að fá botn í tengslin milli ein-
inganna og bókhaldið. Auk Amdis
eru sex aðrir ráðamenn sam-
steypunnar sakaðir um svik.
Aðalverjandi Amdis vestra
verður Robert Shapiro sem
heimsfrægur varð fyrir þátt sinn í
að verja fótboltahetjuna O. J.
Simpson í umtöluðu morðmáli
fyrir nokkrum árum. Virðist nú
sem hinn danski verjandi Amdis,
Jørgen Quade Andersen, sé kom-
inn í aukahlutverk. Amdi og
Tvind-samtökin eru ekki óvön
málaferlum og unnu meðal annars
fyrir nokkrum árum mál gegn
danska ríkinu er tengdist opin-
berum styrkjum við skólana en á
þeim byggðist í upphafi allur
reksturinn. Oft hafa sannanir um
afbrot stofnunarinnar þótt svo af-
gerandi að flestir hafa spáð hruni
en heimildarmenn segja að Tvind
sé eins og kötturinn, eigi sér níu
líf.
Hinn holdgranni Amdi, sem er
63 ára gamall, er tæpir tveir
metrar að hæð og var frjálslega
klæddur er hann kom fyrir dóm-
arann, í gallabuxum og bindislaus.
Hann er ótvíræður andlegur leið-
togi Tvind-samtakanna og þykir
hafa einstaka fortöluhæfileika auk
þess að vera svo slóttugur að
aldrei hefur tekist að hafa hendur
í hári hans þar til nú. Hann hefur
um áratuga skeið haldið sig fjarri
öllu sviðsljósi og lengi var nýjasta
ljósmyndin af honum frá 1979.
Var hann þá enn síðhærður í
anda hippatímans en Amdi stofn-
aði á sjöunda áratugnum þekkta
kommúnu fólks með svipaðar lífs-
skoðanir og andúð á borgaralegu
samfélagi. Nú er hárið orðið hvítt
og leiðtoginn með skalla en hann
virðist vera við góða heilsu.
Fórnfúsir kennarar Tvind
Vinnudagur kennara við Tvind-
skóla er oft langur og þeir láta
15% launa sinna renna í sameig-
inlegan sjóð sem æðstu valda-
menn ráðstafa síðan.
Amdi útskýrði eitt sinn mót-
sagnakennda lífsspeki sína með
því að Tvind nýtti sér grundvall-
arreglur kapítalismans til að
græða peninga og verði hagnaðin-
um til að hjálpa fátækum. Tvind-
skólarnir fengu opinbera styrki í
Danmörku þar til í fyrra en þá
skýrðu talsmenn samtakanna frá
því að ætlunin væri að hætta allri
starfsemi í landinu innan þriggja
ára.
Danir fengu alþjóðalögregluna
Interpol til að setja Amdi á skrá
yfir menn sem grunaðir eru um
afbrot og vegna aukinna örygg-
isráðstafana á flugvellinum eftir
hryðjuverkin í september var
Amdi stöðvaður í Los Angeles og
alríkislögreglunni FBI gert við-
vart. Var hann síðan fluttur í
fangelsi í borginni.
Amdi notaði vegabréf með eigin
nafni á ferðalögum. Er Robert
Shapiro ræddi væntanleg mála-
ferli í gær við fréttamenn ruglaði
hann nokkrum sinnum saman
Danmörku og Hollandi en hann
var sigurviss og fullyrti að skjól-
stæðingur sinn, góðviljaður og
fórnfús herramaður sem aldrei
hefði verið dæmdur fyrir nein
lagabrot, hefði ekki verið í felum
eins og ljóst væri af aðstæðum við
handtökuna. Sagði hann að farið
yrði fram á að Amdi yrði látinn
laus gegn tryggingu. Þótt hún
yrði há myndi skjólstæðingur
sinn ráða við að borga hana þar
sem honum hefði áskotnast arfur
í Bandaríkjunum.
Shapiro hyggst
verja Amdi Petersen
Tvind-skólarnir eru nefndir öðru nafni Den Rejsende Højskole. Einn
af mörgum skólum Tvind er í Fakse á Sjálandi.
Leiðtogi Tvind-
samtakanna var
handtekinn í Los
Angeles og Danir
krefjast framsals
vegna meintra
fjárglæfra
UFFE Ellemann-Jensen var rekinn
sem stjórnarformaður Royal Green-
land, flaggskipsins í grænlensku at-
vinnulífi, á aðalfundi þess í Nuuk í
fyrradag. Svo var einnig með hina
dönsku stjórnarmennina tvo, Knud
Heinesen og Nils Wil-
hjelm. Eru þeir allir
þrír fyrrverandi ráð-
herrar í Danmörku.
Fyrirtækið tapaði 3,36
milljörðum ísl. kr. á
síðasta ári og hefur
það kynt enn undir
mikilli óánægju á
Grænlandi með væg-
ast sagt höfðinglega
starfslokasamninga
við fyrrverandi stjórn-
endur þess.
Það olli mikilli reiði
meðal grænlensks al-
mennings fyrir nokkr-
um vikum þegar í ljós
kom, að tveir fyrrver-
andi stjórnendur Roy-
al Greenland, sem er stærsta sjáv-
arútvegsfyrirtæki í landinu og í eigu
heimastjórnarinnar, höfðu verið
leystir úr garði á síðasta ári með
rausnarlegum gjöfum þótt þá væri
vitað, að bullandi tap væri á fyrir-
tækinu. Var skilnaðargjöfin til fram-
kvæmdastjórans, Ole Ramlau-Han-
sens, um 130 millj. ísl. kr. og til
aðstoðarforstjórans, Lars Emil Jo-
hansens, tæplega 60 millj. kr. Var
fjallað um þetta í dönsku blöðunum í
gær, meðal annars í Jyllands-Post-
en.
Uffe Ellemann
ber af sér sakir
Hefur umræðan um þetta mál
snúist upp í mikla gagnrýni á Uffe
Ellemann og er honum legið á hálsi
fyrir að hafa ekki komið í veg fyrir
þessa samninga. Bent er á, að hann
hafi setið í stjórninni frá 1993, verið
kjörinn varaformaður hennar 1995
og formaður 1999. Hann hafi því átt
að vita allt um samningana.
Uffe Ellemann segir, að búið hafi
verið að semja við Ole Ramlau-Han-
sen áður en hann settist í stjórnina
og því hafi ekki verið hægt að
breyta. Hann telur hins vegar ekki
óeðlilegt, að vel hafi verið gert við
framkvæmdastjórann fyrrverandi
þar sem hann hafi verið yfirmaður
fyrirtækisins í mörg ár og átt mik-
inn þátt í uppbyggingu þess. Uffe
Ellemann er hins vegar ekki sáttur
við greiðslurnar til Lars Emil Jo-
hansens.
„Hann gekk frá sínum óvanalega
starfslokasamningi við
Ole Ramlau-Hansen,
sem hafði ekki fyrir því
að skýra stjórninni frá
honum. Það er gagn-
rýnisvert,“ segir Uffe
Ellemann.
Pólitísk sambönd?
Haft er eftir heimild-
um, að Lars Emil Jo-
hansen, sem er fyrrver-
andi formaður græn-
lensku heimastjórn-
arinnar, hafi notfært
sér sín pólitísku sam-
bönd til að tryggja sér
feita stöðu hjá Royal
Greenland og góðan
starfslokasamning.
Johansen segir aftur á móti, að þeir
Uffe Ellemann, Ole Ramlau-Hansen
og Ove Rosing, þáverandi stjórnar-
formaður, hafi hvatt sig til að koma
til starfa hjá fyrirtækinu. Hann við-
urkennir, að hann hafi samið um
starfslokin við Ole Ramlau-Hansen
en segist ekkert í því skilja, að
samningurinn skuli ekki hafa verið
kynntur stjórninni.
Tap á tap ofan
Royal Greenland hefur að undan-
förnu lokað ýmsum fiskvinnsluhús-
um enda voru mörg þeirra ekki rek-
in nema með 25% afköstum. Þar að
auki hefur komið í ljós, að „ýmis
starfsemi á vegum fyrirtækisins fyr-
irfannst ekki þegar betur var að
gáð“. Þessi rekstur, sem enginn var,
kostaði fyrirtækið hátt í 1,6 millj-
arða ísl. kr. á síðasta ári. Tap á
ýmissi starfsemi erlendis var rúm-
lega 700 millj. kr. og allt hefur geng-
ið á afturfótunum með nýtt tölvu-
kerfi fyrirtækisins, sem er ekki enn
komið í gagnið. Vegna þess voru af-
skrifaðar tæplega 660 millj. kr. Út-
gjöld á síðasta ári vegna aðkeyptrar
vinnu ráðgjafa og lögfræðinga og
vegna starfslokasamninga var 470
millj. ísl. kr. og aðeins vaxtagjöld
vegna mikilla skulda fyrirtækisins
voru rúmlega 1,4 milljarðar króna.
Ellemann rek-
inn frá Royal
Greenland
Mikið tap en rausnarlegir starfsloka-
samningar valda ólgu á Grænlandi
Uffe Ellemann-
Jensen
FORSETI Bólivíu, Jorge Quiroga, lýsti yfir
neyðarástandi í borginni La Paz í gær vegna
mikilla flóða í kjölfar þrumuveðurs. Að
minnsta kosti 48 manns höfðu látið lífið í gær-
kvöldi af völdum náttúruhamfaranna.
Víða var rafmagnslaust og samgöngur
lágu niðri í borginni vegna flóðanna. Tuga
manna var saknað og aðstandendur þeirra
biðu áhyggjufullir eftir fréttum af afdrifum
þeirra.
Óveðrið stóð í fjórar klukkustundir, en því
fylgdi haglél og úrhelli. Í kjölfarið urðu mikl-
ir vatnavextir í ánni Choqueyapu í borginni.
Að sögn yfirvalda er þetta mesta slagveður
í 500 ára sögu borgarinnar. La Paz er í And-
esfjöllum og í um 3.500 m hæð.
Slökkviliðsmenn eru hér að störfum í rúst-
um húss sem eyðilagðist í óveðrinu.AP
Tugir
manna far-
ast í óveðri
í La Paz
La Paz. AP.