Morgunblaðið - 21.02.2002, Qupperneq 35
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2002 35
✝ Erna Sigurleifs-dóttir fæddist á
Bíldudal 26. des.
1922. Hún lést á
Landakotsspítala 7.
febrúar síðastliðinn.
Foreldar hennar voru
Viktoría Kristjáns-
dóttir og Sigurleifur
Vagnsson, aðstoðar-
maður á fiskideild At-
vinnudeildar Háskóla
Íslands. Systkini
hennar eru: Ríkharð-
ur, f. 12. ágúst 1924,
d. 16. sept. 1936,
Stella, f. 12. jan. 1928,
og Rakel, f. 3. mars 1933.
Hinn 4. ágúst 1949 giftist Erna
Árna Ársælssyni lækni, f. í Reykja-
vík 19. sept. 1922, d. 13. ágúst
1993. Börn þeirra eru: Bergljót,
leikkona í Svíþjóð, f. 20. des. 1949,
og Leifur Árni flugmaður, f. 11.
maí 1958. Foreldrar Árna voru
Guðrún Svava Þorsteinsdóttir og
Ársæll Árnason bókaútgefandi.
Erna lærði í leiklist-
arskóla Haraldar
Björnssonar og lék
mörg hlutverk hér á
landi, hjá Bláu
stjörnunni, Leik-
félagi Reykjavíkur
og í Þjóðleikhúsinu.
Árið 1954 fluttust
Erna og Árni til
Þórshafnar í Færeyj-
um, þar sem Árni var
læknir. Í Færeyjum
eignaðist Erna
marga vini og leik-
stýrði hjá Sjónleik-
arafélaginu í Þórs-
höfn. Seinna bjuggu þau í
Strömstad í Svíþjóð vegna starfa
Árna. Erna vann þar í nokkur ár
hjá kunnu fyrirtæki sem verslar
með antikmuni og aflaði sér þekk-
ingar á því sviði. Til Íslands komu
þau aftur alkomin 1970.
Útför Ernu fer fram frá Foss-
vogskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
Erna mágkona mín átti einstak-
lega gott með að ná til fólks og láta
því líða vel í návist sinni. Notaleg
hlýja streymdi á móti gestum og
gangandi.
Og hjá Ernu var gott að láta hug-
ann reika. Henni var eðlilegt að búa
til dálítið ævintýri úr því sem í fyrstu
virtust hversdagslegir smámunir og
öðrum, sem ekki höfðu eins næmt
auga, sást auðveldlega yfir.
Þetta vakti mann iðulega eins og af
dvala. Birtan í stofunum tók að
breytast og málverkin lifnuðu við.
Stundum glitraði þannig á stórt mál-
verk af fiskistúlku, að engu líkara var
en hún ætlaði að stíga niður til okkar
til þess að taka þátt í samræðunum.
Af þessum ástæðum og mörgum
öðrum urðu stundirnar með Ernu
ógleymanlegar.
Björn Gíslason.
Sumar persónur af holdi og blóði
eru sem sveipaðar töfrablæ og virð-
ast sækja lífskraft sinn til framandi
vídda. Þær geisla af hárfínum en ör-
um og mögnuðum krafti og láta ekki
njörva sig niður í gráma amsturs og
leiða. Andinn er frjáls og flýgur í
heiðríkju og birtu eins og litfagur
dreki í náttúrlegu umhverfi sínu. Það
er ævintýri líkast að mæta slíkri per-
sónu í þessu jarðlífi. Það er gæfa.
Þegar ég var lítil fór ég einu sinni
með fjölskyldu minni í heimsókn til
Ernu, Árna og barna þeirra í Sví-
þjóð. Þetta frí varð mér ógleyman-
legt. Ég kynntist gullinni sandströnd
þar sem hægt var að dýfa kulvísri tá í
saltan sjó eða láta marglytturnar
brenna sig, þau kynjadýr. Í garðin-
um við húsið suðuðu iðnar hunangs-
flugur í blómstrandi runnum og
þarna fékk maður ósköp gott og
skrítið að borða, til dæmis stórar,
fagurrauðar rækjur í skelinni sem
héngu á undursamlegu margra hæða
glerfati. Það þótti mér tilkomumikil
sjón, og bragðið gleymist ekki. Þarna
var líka þvottahús sem mér virtist
feikistórt og óhugnanlegt með ótal
skúmaskotum, búið háskalegum
tækjum og rullum, dýflissa í ævin-
týrahöllinni, þar sem onkel Árni og
Erna tanta réðu ríkjum. Þarna var
líka glókollurinn Leifur Árni og stór
stelpa með dökkar fléttur, hún Berg-
ljót.
Tíminn er afstæður og verður ekki
endilega mældur í árum eða skynj-
aður sem taktföst hringrás. Oftar en
ekki birtist tíminn eins og fljúgandi
röð svipmynda sem skipa sér í fylk-
ingar, hverfult oddaflug eða ófor-
gengilegt skart, sumar bjartar, aðrar
dimmar, sumar þéttar og aðrar gisn-
ar. Sumar eru myndirnar gersemar
og bera af öðrum. Fríinu í Svíþjóð
lauk, önnur atburðarás tók við, lífið
hélt áfram. Einhvern veginn óx ég úr
grasi og næst lágu leiðir okkar Ernu
saman á Grenimel og var margt
pískrað og flissað yfir ótal kaffiboll-
um, aldursmunur að engu hafður,
litlar stelpur inn við beinið. Þá nam
ég í mestu makindum ótalmargt
smálegt en margbrotið, undur og
stórmerki sem hefðu ella farið fram
hjá mér, utan gátta krakkakjána, veg
allrar veraldar. Þannig var Erna.
Árni var þá starfandi á Húsavík og
Erna átti stundum erindi suður.
Einkum er minnisstætt eitt skipti,
þegar Erna kom suður með slæmsku
í hné sem hún losnaði við með und-
ursamlegum hætti, brosandi út í ann-
að. Mikið var líka gaman þegar ég
átti þess kost að kíkja óvænt í heim-
sókn til þeirra hjóna fyrir norðan.
Um sama leyti voru læti í Kröflu,
jörð skalf nyrðra, endur hurfu úr Ás-
byrgi og tún gengu í bylgjum.
Enn síðar fluttu þau Erna og Árni
til Reykjavíkur og komu sér upp fal-
legu heimili við Vesturgötu. Árni tók
á móti Baldri okkar og Erna sat hjá
stráknum nokkrum árum síðar þeg-
ar hann þurfti að liggja í nokkra daga
á Landakoti. Við hittum þau hjónin
stundum að sumarlagi á Snæfells-
nesi, þar urðu ævinlega fagnaðar-
fundir og hlegið dátt. Nú eru liðin
nokkur ár frá því Árni dó. Víst var
það sárt. Víst breyttist margt, en
Erna var alltaf sami höfðinginn heim
að sækja, þótt hún væri orðin ein.
Hjá Ernu fór saman sönn viska og
bernsk forvitni, reisn, fágun, höfð-
ingleg lund og lítillæti, gáski og al-
vara, brosmildur tregi, hlýja … Heil-
steypt og sterk tilfinningavera.
Hvernig er annars hægt að lýsa
Ernu? Hún bar með sér hátíðarblæ,
dagamun, eins og sænskt jólahald,
færeyskt danskvæði, bók um gult
hús … Eins og vestfirsk þula, æva-
forn og síung, margbrotin en auðskil-
in þeim sem heyra.
Erna beið ekki vorsins. Hún
kvaddi þennan heim 7. febrúar síð-
astliðinn.
Ólöf Pétursdóttir.
Nú er hún mjúkan mín farin. Þótt
hún hafi ítrekað við mig að koma fyrr
heim í sumar var það ekki nógu
snemmt. Nú mun maður ekki skunda
upp Vesturgötuna til að kíkja í bolla,
skrafa og fá hlátursköst sem voru al-
geng. Daglegt brauð eins og einhver
sagði en það var aldrei langt í hlát-
urinn hjá henni mjúku minni, þótt
hún hefði kannski ekki alltaf ástæðu
til. Það var alltaf hlýtt og gott að
koma til Ernu. Ég mun aldrei
gleyma henni.
Áslaug.
Menn halda stundum skammt á leikinn liðið,
er lífið dregur tjaldið fyrir sviðið
og skilur milli skars og kveiks.
En stór og fögur stjörnuaugu skína,
er stormsins svanir hvíla vængi sína
til hærra flugs, til fegra leiks.
(Davíð Stefánsson.)
Mig langar til að þakka henni
Ernu minni fyrir sambýlið og kvöld-
stundirnar þar sem við spjölluðum
saman. Síðasta árið var það fastur
punktur í tilveru okkar beggja að ég
færi yfir til hennar eftir fréttir til að
setja í hana augndropa og spjalla
smástund. Það var því undarlega
tómlegt þegar hún fór á sjúkrahús
fyrir jól – eitthvað vantaði í rútínu
dagsins. Þegar ég heimsótti hana á
Landakot viku áður en hún lést
fannst mér hún líta svo miklu betur
út – ég átti alveg eins von á því að
hún kæmi aftur heim. Af því varð
ekki.
Ég hef verið að rifja upp í hug-
anum undanfarna viku þessi ár okk-
ar í sama húsi. Við vorum að mörgu
leyti eins og jafnöldrur þótt 27 ár
skildu á milli. Báðar „steingeitur“ og
líkar um svo margt. Ég hafði oft
óskaplega gaman af samræðum okk-
ar um lífið og tilveruna. Eins og þeg-
ar hún sagði mér frá skondnum hlut-
um sem gerðust þegar hún vann í
Nora Magasin – mikið gátum við
hlegið. Við spjölluðum saman um
leikhúsið og þá sem við höfðum báðar
unnið með þar – margir þeirra
gengnir á undan henni. Við skipt-
umst á bókum – hún var sá mesti
lestrarhestur sem ég hef hitt og
geysilega fróð um margt.
En nú er hún farin og sem ég
minnist góðu stundanna þar sem við
grétum báðar af hlátri yfir vitleys-
unni í okkur verður mér hugsað:
Mikið skelfing þótti mér vænt um
hana Ernu.
Ég sendi Leifi, Bergljótu og öðr-
um ástvinum innilegar samúðar-
kveðjur.
Hrönn.
ERNA
SIGURLEIFSDÓTTIR
Handrit afmælis- og minningargreina skulu
vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett.
Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er
móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru
nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í
úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í
bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess
(minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið
greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi.
Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina
fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við með-
allínubil og hæfilega línulengd – eða 2.200
slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
##
$
%
& &
! ! '
(
!
!
!
"#$%&&
' (
)! * +
! ,
-!
.
#/
,
)))
*
+ ,
-!))
.
))
))
*
-
%
/*0
12
))
'.. ,'
' !
0
"
"#"%&&*3&&
4
. 5
10) 1
%!
##
//
1
! %! !
%!6
6 -
1
0
* '-
1
+
-
1
-
1
'.. ,'
!
2!3 +!
78+&3"#&&
4'
.)!9
)! "
& 5
6
7! + !
!
2!3
!
3#"&&
7
:
10) 1
!
' ! & 5
6
7!
*
/
7 0
;
0'
.
;
.
,
,'
'.. ,'
!
Sími 562 0200
Erfisdrykkjur