Morgunblaðið - 21.02.2002, Qupperneq 40
FRÉTTIR
40 FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Verka-
lýðsfélaginu Hlíf:
„Fundur í Verkalýðsfélaginu
Hlíf, þriðjudaginn 19. febrúar
2002, fordæmir það bruðl og eig-
inhagsmunapot sem átt hefur sér
stað hjá æðstu yfirmönnum Sím-
ans við undirbúning á sölu fyr-
irtækisins og telur að á engan hátt
sé hægt að afsaka kæruleysislega
eyðslu sem einkennir fjármála-
meðferð fyrrgreindra manna.
Vítaverðast er þó að viðkomandi
ráðherrar skuli, að ókönnuðu máli,
reyna að réttlæta og afsaka gjörð-
ir þessara manna jafnvel þótt þeir
séu flokksbræður þeirra.
Fundurinn vill að óháð rann-
sóknarnefnd verði skipuð til að
skoða fjármál Símans og þá sér-
staklega þær greiðslur sem inntar
hafa verið af hendi vegna und-
irbúnings undir sölu og einkavæð-
ingu fyrirtækisins. Niðurstöður
nefndarinnar verði síðan birtar op-
inberlega svo að eigendur Símans,
sem er allur almenningur í land-
inu, fái réttar upplýsingar um fjár-
mál og rekstur síns eigin fyrirtæk-
is.
Með hliðsjón af niðurstöðu
nefndarinnar geta síðan ráðherrar,
alþingismenn eða æðstu menn
Símans afsakað það klúður sem er
hér á ferðinni.“
Fordæma bruðl og
eiginhagsmunapot
GAMLIR Nesbúar ætla að hittast í
Naustkjallaranum föstudagskvöldið
22. febrúar eftir kl. 20. Skemmtanir
sem þessi hafa verið haldnar á nokk-
urra ára fresti.
Naustið mun bjóða upp á þriggja
rétta máltíð, og þeim sem það vilja er
bent á að hafa samband við Naustið.
Það er viðbúið að árgangar sem voru
í „Mýró“ fram til ársins 1970 muni
fjölmenna, segir í fréttatilkynningu.
Endurfundir fyrr-
verandi nemenda
Mýrarhúsaskóla
KOSNING um bestu ljósmyndina í
ljósmyndakeppninni á ljósmyndari-
.is stendur nú sem hæst, alls bárust
233 myndir í keppnina.
Allir geta tekið þátt í kosningu
þessari með því að fara inn á slóðina
www.ljosmyndari.is. Þar er hægt að
sjá allar 233 myndirnar og gefa
„uppáhaldsmyndunum“ atkvæði.
Kosningu lýkur 28. febrúar, en úrslit
verða tilkynnt 2. mars. Fyrir þrjár
stigahæstu myndirnar verða veitt
bókaverðlaun; fyrir fyrsta sæti er
bókin Ísland – töfrandi land, með
ljósmyndum eftir Hauk Snorrason,
Jón Karl Snorrason og Snorra
Snorrason eldri og yngri, og fyrir 2.
og 3. sæti bókin Northern Light,
með myndum eftir Maryam Khoday-
ar, sem kom út fyrir síðustu jól.
Ljósmyndari.is er vefsíða fyrir allt
áhugafólk um ljósmyndun, segir í
fréttatilkynningu.
Ljósmyndakeppni
á www.
ljosmyndari.is
FORELDRAÞING SAMFOK 2002
verður haldið í Hamraskóla, Dyr-
hömrum 9, laugardaginn 23. febrúar
kl. 9.30 – 12.30.
Leitast verður við að fá svör við
m.a. spurningum um lengda viðveru
(heilsdagsskólann). Hver er framtíð-
arsýn borgaryfirvalda í málefnum
lengdrar viðveru? Hvernig viljum
við að brugðist sé við breyttum þjóð-
félagsaðstæðum þar sem vinnutími
foreldra og lengd skóladagsins
stangast á? Frummælendur og þeir
sem svara fyrirspurnum koma úr
Foreldraþing
SAMFOK
röðum foreldra, fagfólks og borgar-
fulltrúa. Allir eru velkomnir, en ósk-
að er eftir að þátttaka sé tilkynnt á
samfok@samfok.is eða í síma. Dag-
skrá þingsins er að finna á www.sam-
fok.is, segir í fréttatilkynningu.
AT V I N N U A U G LÝ S I N G A R
Sölumaður
Sala - afgreiðsla
Innflutningsfyrirtæki óskar að ráða sölu- og
afgreiðslumann nú þegar (eða sem allra
fyrst) til framtíðarstarfa.
Reynsla af sölustörfum nauðsynleg. Starfssvið er
m.a. sala á rafmagnsverkfærum og skyldum
vörum, garðverkfærum og ýmsum vörum til
garðyrkju, smátækjum og skyldum búnaði auk
ýmissa annarra vara. Umsóknir er greini mennt-
un, aldur og fyrri störf sendist auglýsingadeild
Mbl. eða á tölvupósti box@mbl.is fyrir 25. febrúar
2002, merkt sölumaður 12022.
Forstjóri
Rannsóknastofnunar
fiskiðnaðarins
Staða forstjóra við Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins er laus til umsóknar.
Umsækjendur skulu hafa lokið háskóla-
prófi.
Umsóknir með upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf skulu sendar Sjávarút-
vegsráðuneytinu, Skúlagötu 4, 150
Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til 25. febrúar
2002.
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins er
rannsókna- og þjónustustofnun fyrir
sjávarútveginn, annan matvælaiðnað og
tengdar greinar. Hlutverk Rf er að stunda
rannsóknir, framkvæma mælingar og
prófanir, veita ráðgjöf, miðla upplýsing-
um og annast fræðslu á þekkingar- og
þjónustusviðum sínum.
Nánari upplýsingar um Rannsóknastofn-
un fiskiðnaðarins má sjá á heimsíðu
hennar: www.rf.is .
Sjávarútvegsráðuneytið,
20. febrúar 2002.
Við hjá Pharmacia óskum að ráða háskólamenntaðan starfsmann (lyfjafræðing, lækni
hjúkrunarfræðing eða líffræðing) í starf markaðsfulltrúa.
Í hverju felst star fið?
Starf markaðsfulltrúa felst meðal annars í því að kynna lyf fyrir læknum og öðru
heilbrigðisstarfsfólki, koma að gerð kynningarefnis, skipuleggja fræðslufundi, taka þátt í
ráðstefnum heima og erlendis og annast samskipti við móðurfyrirtækið erlendis.
Til hvers ætlumst við af þér?
Við leitum að áhugasamri manneskju sem er rösk og skipulögð og getur unnið sjálfstætt
að krefjandi verkefnum. Gott viðmót, vandvirkni og metnaður til að ná árangri eru skilyrði.
Viðkomandi þarf að hafa vald á ensku og einu norðurlandamáli.
Hvað veitum við þér?
Við bjóðum þér gott og gjöfult starf hjá nútímalegu fyrirtæki í alþjóðlegu rekstrarumhverfi.
Þú vinnur með hressu samstarfsfólki að fjölbreyttum verkefnum og við tökum vel á móti
þér. Miklir möguleikar á símenntun og að vaxa í starfi.
Pharmacia
Pharmacia er ört vaxandi lyfjafyrirtæki á heimsmælikvarða með um 60.000 starfsmenn í
60 löndum. Fyrirtækið framleiðir og markaðssetur mörg þekkt lyf og rækir öflugt vísinda-
og þróunarstarf. Á Íslandi er Pharmacia sjálfstæð markaðsdeild innan Pharmaco.
Hvenær þurfum við að fá umsókn þína?
Vinsamlega sendu okkur umsókn þína fyrir 27. febrúar, merkta:
Pharmaco hf., b.t. Pharmacia, Hörgatúni 2, Pósthólf 200, 212 Garðabær.
Trúnaður
Við leggjum áherslu á trúnað og hreinskiptni og förum með umsókn þína sem trúnaðarmál.
Pharmaco
Pharmaco kappkostar að vera leiðandi fyrirtæki í þjónustu við framleiðendur og kaupendur
lyfja, lækninga- og rannsóknartækja, heilsu- og snyrtivara. Gæðakerfi fyrirtækisins er vottað
samkvæmt ISO 9002 staðlinum. Aðsetur Pharmaco er í Garðabæ og starfsmenn eru nú um
130 talsins. Rekstrartekjur fyrirtækisins á Íslandi námu um 3,4 milljörðum árið 2000.
Áhugaver t
...hjá sterku ly fjafyrir tæki
miki lvægt
gjöfult star f. . . &
Ly f jafræðingur, læknir, hjúkrunar fræðingur eða l í f fræðingur