Morgunblaðið - 21.02.2002, Qupperneq 43
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2002 43
KVENNADEILDIN á Landspítala –
háskólasjúkrahúsi hefur fengið
hálfrar milljónar króna styrk til
móttöku- og ráðgjafarþjónustu
vegna getnaðarvarna frá lyfjafyr-
irtækinu Schering í Þýskalandi.
Umboðsaðili þess á Íslandi er Thor-
arensen lyf í Reykjavík. Fyrirtækið
veitir styrkinn í tilefni af því að í
fyrra voru fjörutíu ár liðin síðan
samsetta getnaðarvarnapillan
(„pillan“) kom á markað í Evrópu.
Í rúmt ár hefur verið rekin sér-
hæfð getnaðarvarnaráðgjöf á
kvennadeild Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss. Ráðgjöfin felst einkum í
aðstoð við konur sem hafa átt í erf-
iðleikum með getnaðarvarnir. Auk
þess fá konur sem leitað hafa á
kvennadeildina góða almenna ráð-
gjöf um getnaðarvarnir. Sérstök
áhersla hefur verið lögð á aðstoð við
ungar konur. Þetta höfðinglega
framlag frá fyrirtækinu Schering
verður notað til frekari uppbygg-
ingar á getnaðarvarnamóttökunni,
sem er nauðsynlegur þáttur í alhliða
aðkomu þjónustudeildar eins og
kvennadeildarinnar að sem flestu er
varðar heilbrigði og velferð kvenna,
segir í fréttatilynningu.
Móttakan er opin tvisvar í viku
eftir venjulegan vinnutíma og þar
hefur einnig skapast grundvöllur
fyrir kennslu heilbrigðisstétta og
rannsóknir. Lögð er áhersla á að
konur séu ekki til langframa í ráð-
gjöf á kvennadeildinni, heldur leiti
síðan til heilsugæslu og heim-
ilislækna. Við móttökuna hafa unnið
tveir hjúkrunarfræðingar/
ljósmæður og fimm læknar.
Styrkur til getnaðarvarnaráðgjafar
Við móttöku styrksins voru viðstödd (frá vinstri) Jón Hilmar Alfreðsson sviðstjóri á Kvennasviði LSH, Vala Haf-
steinsson frá Schering, Margrét Hallgrímsson sviðstjóri á Kvennasviði LSH, Jóhannes Gunnarsson lækninga-
framkvæmdastjóri LSH, Reynir Tómas Geirsson prófessor og forstöðulæknir á Kvennadeild LSH og Gunnar
Guðmundsson, markaðsstjóri hjá Thorarensen Lyfjum.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
yfirlýsing frá Óskari Bergssyni þar
sem segir m.a.:
„Í kjölfar ákvörðunar minnar um
að draga framboð mitt til baka í skoð-
anakönnun Framsóknarflokksins
hefur mikið verið haft samband við
mig og óskað eftir því að ég gerði bet-
ur grein fyrir ákvörðun minni en
komið hefur fram í fjölmiðlum fram
að þessu.
Í aðdraganda þessara borgar-
stjórnarkosninga hefur Framsóknar-
flokkurinn gengið í gegnum miklar
skipulagsbreytingar í Reykjavík. Öllu
félagsstarfi í Reykjavík hefur verið
skipt upp eftir kjördæmaskiptingunni
og Félag framsóknarkvenna gert
áhrifalaust. Ég lagðist gegn þessum
breytingum en þar sem bæði borg-
arfulltrúar og alþingismenn flokksins
lögðust á árarnar í þessum efnum þá
mátti ég mín ekki mikils í þeirri við-
ureign. Á aðalfundum félaganna sl.
haust voru keyrðar í gegnum fundina
lagabreytingar án þess að leyfðar
væru um þær umræður. Ekki voru
heldur kosnir fulltrúar á kjördæmis-
þing á þessum aðalfundum.
Á kjördæmaþingi 2. febrúar sl. var
síðan samþykkt að aðalmenn á kjör-
dæmaþingi hefðu einir atkvæðisrétt í
skoðanakönnuninni. Í kjölfar þess
kjördæmaþings fór að bera á þrálát-
um orðrómi um að einn frambjóðand-
inn hefði haft óeðlileg afskipti af list-
unum sem orðnir voru kjörskrár í
skoðanakönnuninni. Hluti stjórnar
FUF suður sendi formanni kjör-
nefndar bréf þess efnis að löglegur
listi félagsins um aðalfulltrúa á kjör-
dæmisþing lægi ekki fyrir. Sam-
kvæmt lögum FUF-félaganna átti að
kjósa aðalfulltrúa á kjördæmisþing sl.
haust. Þegar mér var þetta ljóst
kærði ég málið til kjörnefndar. Kæru
mína bar ég upp í tveimur liðum, ann-
ars vegar vegna listanna frá FUF
suður og hins vegar vegna þess að
kjördæmaþingið sem samþykkti að-
ferðafræðina hafði í raun ekki vald til
þess. Það vald er samkvæmt lögum
Framsóknarflokkins hjá aðildarfélög-
um en ekki hjá kjörnum fulltrúum á
kjördæmaþingi. Kjörnefnd vísaði
kærunni frá og var þá málinu vísað til
laganefndar flokksins. Álit laganefnd-
ar var á þá leið að ekki bæri að taka
málið upp. ...Um hinn lið kærunnar
gerði laganefnd ekki greinarmun á
kjördæmaþingi og félagsfundi. ... Af
344 fulltrúum voru 87 farnir út og nýir
komnir inn. Af þeim sem búið var að
taka út voru m.a. skyldmenni mín,
vinir, stuðningsmenn og ýmsir fyrr-
verandi virkir forystumenn úr flokks-
starfi. Þegar þetta lá fyrir var ljóst að
sú leynd sem hvílt hafði yfir listunum
hafði að geyma nýja „virka“ fulltrúa á
kjördæmaþingi sem ég þekki hvorki
haus né sporð á þrátt fyrir að vera bú-
inn að vera virkur félagi í flokknum í
áratug....Þegar öll spilin höfðu verið
lögð á borðið og kæra mín hafði fengið
flokkslega meðferð, sem olli mér
miklum vonbrigðum, var ekki um
annað að ræða en að draga framboð
mitt til baka. "
Yfirlýsing frá
Óskari Bergssyni
ÍSKLIFURHÁTÍÐ Alpaklúbbsins
verður haldin á Ísafirði dagana
21.–24. febrúar.
Hátíðin hefur verið árlegur
viðburður hjá klúbbnum síðustu
fjögur árin og verið haldin víða
um land. Um helgina koma klifr-
arar saman og klifra ísleiðir í
fjöllum í nágrenni Ísafjarðar.
Helstu svæði eru Óshlíðin,
Naustahvilft, Valagil í Álftafirði,
svæði í Önundarfirði og víðar.
„Von er á erlendum gestum frá
Bandaríkjunum og atvinnumenn
frá Frakklandi munu vonandi
láta sjá sig. Föstudagurinn verð-
ur helgaður klifri á Óshlíðinni og
getur almenningur rýnt upp í
hlíðina og vonandi greint menn
og konur hangandi á öxum og
broddum einum saman,“ segir í
fréttatilkynningu.
Ísklif-
urhátíð
á Ísafirði
OPINN hádegisverðarfundur um
einkavæðingu, árangur og horfur
verður haldinn á Hótel Borg í dag,
fimmtudaginn 21. febrúar, kl. 12–
12.30 og eru frummælendur Guðni
Ágústsson, varaformaður Fram-
sóknarflokksins, og Ólafur Örn
Haraldsson alþingismaður, en hann
er fundarboðandi. Fundarstjóri er
Þorlákur Björnsson, formaður
kjördæmissambands framsóknar-
manna í Reykjavík norður.
„Ólafur Örn hefur gengist fyrir
fundum af þessu tagi á undanförn-
um árum og hverju sinni er fund-
arefni eitthvert það málefni sem
efst er á baugi. Að þessu sinni er
einkavæðing ríkisfyrirtækja tví-
mælalaust það sem hæst ber í
stjórnmálaumræðunni, enda ræður
árangur einkavæðingar miklu um
stjórnmálaviðhorf. fjárhag og fjár-
lög ríkisins, fjárfestingar innlendra
og erlendra fjárfesta, rekstrarum-
hverfi stærstu fyrirtækja landsins
og kjör starfsfólks svo nokkuð sé
nefnt,“ segir m.a. í fréttatilkynn-
ingu.
Fundurinn er öllum opinn og er
verð á hádegismat kr. 1.450.
Fundur um einkavæðingu
LOMBER-dagur verður hald-
inn á Skriðuklaustri laugar-
daginn 2. mars kl. 14. Lom-
ber-dagurinn er jafnt fyrir
byrjendur sem gamalreynda
spilamenn. Farið verður yfir
undirstöðuatriðin áður en spil
hefst.
Þátttökugjald er kr. 3.300.
Innifalið er ritlingur um Lom-
ber, síðdegiskaffi og tveggja
rétta kvöldverður.
Fjöldi þátttakenda er tak-
markaður. Skráning og nánari
upplýsingar eru í síma eða í
tölvupósti á klaustur@skridu-
klaustur.is.
Lomber-
dagur á
Skriðu-
klaustri
LÍKNAR- og vinafélagið Bergmál
hefur opið hús sunnudaginn 24.
febrúar kl. 16 í húsi Blindrafélags-
ins, Hamrahlíð 17, 2. hæð.
Ræðumaður dagsins verður
Bernharður Guðmundsson, rektor í
Skálholtsskóla. Veitingar og söng-
ur.
Skráning þátttöku er hjá Karli
Vigni Þorsteinssyni, Eskihlíð 16 og
Elfu Björk Gunnarsdóttur, Suður-
hlíð 35, í síma eða á netfangi: el-
fab@li.is
Opið hús hjá
Bergmáli
SAMTÖK lungnasjúklinga halda í
kvöld, fimmtudagskvöldið 21. febr-
úar, kl. 20 fræðslufund um auka-
verkanir lyfja og lyfjafræðilega
umsjá í safnaðarheimili Hallgríms-
kirkju í Reykjavík (gengið inn frá
Eiríksgötu). Fundir Samtaka
lungnasjúklinga eru öllum opnir.
Gestur fundarins er Heimir Þór
Andrason lyfjafræðingur. Fjallar
hann um aukaverkanir astmalyfja og
annarra lyfja lungnasjúklinga.
Einnig mun Heimir Þór kynna
nýja þjónustu sem lyfjaverslanir
Lyfju hf. eru að fara af stað með og
felst í svonefndri lyfjafræðilegri
umsjá. Markmiðið með lyfjafræði-
legri umsjá er að auka heilsutengd
lífsgæði einstaklinga og bæta árang-
ur af meðferð, m.a. með markvissari
og hagkvæmari notkun lyfja, segir í
fréttatilkynningu.
Fræðsla um
aukaverkanir
lyfja og lyfja-
fræðileg umsjá
Í TILEFNI komandi sveitarstjórn-
arkosninga skorar Átakshópur ör-
yrkja á öll þau öfl er hyggjast bjóða
fram að gæta jafnræðis við val á
frambjóðendum og taka í þeim efn-
um fullt tillit til allra þjóðfélagshópa.
Styrkur lýðræðisins grundvallast á
því að kjörnir fulltrúar endurspegli í
hvívetna breidd og fjölbreytileika
mannlífsins, segir í áskoruninni.
Framboðslistar
endurspegli þjóð-
félagið
„UNGT fólk með ungana sína“,
UFU, verður með fund fimtudaginn
21. febrúar kl. 13–15 í Hinu húsinu,
Aðalstræti 2.
Bergþóra Reynisdóttir geðhjúkr-
unarfræðingur heldur fyrirlestur um
„konur og þunglyndi“. Léttar veit-
ingar verða á staðnum og leikað-
staða fyrir börnin.
Aðgangur er ókeypis og allir vel-
komnir, segir í fréttatilkynningu.
Ungt fólk með ung-
ana sína fundar