Morgunblaðið - 21.02.2002, Page 45
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2002 45
Heimsferðir bjóða nú vikulegt flug til Mallorka alla fimmtudaga í
sumar á frábærum kjörum og við stórlækkum verðið til þessarar vin-
sælu eyju í Miðjarðarhafinu, sem hefur verið einn vinsælasti áfanga-
staður Íslendinga í 30 ár. þeir sem bóka fyrir 15. mars geta tryggt sér
allt að 32.000 afslátt fyrir fjölskylduna í valdar brottfarir, eða 8.000
kr. á manninn. Glæsilegt úrval gististaða á vinsælustu áfangastöð-
unum. Og að sjálfsögðu bjóðast þér spennandi kynnisferðir í fríinu
og þjónusta reyndra fararstjóra Heimsferða til að tryggja þér ánægju-
lega dvöl í fríinu.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 39.765
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára,
23. maí, Promenade, með 8.000 kr.
afslætti. Alm. verð kr. 41.750.
Verð kr. 48.063
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, 2
vikur, 20. júní, Promenade, með 8.000
kr. afslætti. Alm. verð kr. 50.467.
Verð kr. 49.950
M.v. 2 í stúdíóíbúð í viku, Prom-
enade, með 8.000 kr. afslætti, 23. maí.
Alm. verð kr. 52.450.
Bókaðu til
Mallorka
og tryggðu þér
32.000 kr.
afslátt af ferðinni
Beint flug alla fimmtudaga í sumar
Aukagisting á Fontanellas Playa
Lægsta verðið
til Mallorka
Kringlunni,
sími 588 1680
v/Nesveg, Seltjarnarnesi,
sími 561 1680.
iðunn
tískuverslun
Ný sending frá
Buxur - jakkar
bolir
Glæsilegt úrval
af yfirhöfnum frá
ÞJÓÐERNISKENND er hverjum
manni í blóð borin. Hún lýsir sér í
fleiru en ætt og uppruna. Land, þjóð
og tunga / þrenning sönn og ein,
kvað Snorri Hjartarson. Ættjarðar-
ást er eðlislæg kennd, sem hvorki
verður rakin til óhlutbundinna hug-
taka né ótal mögulegra útlistana á
þeim. Hún er hluti af uppeldi hverr-
ar manneskju.
Íslendingar hafa ekki haldið sjálfir
úti her til eigin uppihalds. Þeim hafa
dugað snapir til góðra verka. Hluti
þjóðarinnar hefur að vísu korrað upp
undir öld friðarsöng til dýrðar full-
komnu heimsskipulagi hins göfuga
villimanns, en hefur jafnframt liðið
þungan af blygðun og skömm yfir
vonsku manna í hinum vestræna
heimi.
Þeir, sem hvað hæst lofuðu sov-
étfriðinn forðum tíð, boða margir
hverjir nú um stundir óheftan sóða-
skap og linku í málfarsefnum. Til
þess að örvitar, sem ekki geta tjáð
sig um neitt sem máli skiptir af neinu
viti, engan veginn, hljóti sama rétt
og hver annar til að fullt mark sé á
þeim tekið. Helst í víðómi, hugstola á
öldum ljósvakans líkt og smámellur í
klóm hórmangara.
Frumstæður ótti við þjóðernið og
skömm leiðir til þess að armingjar
margir leita síns friðar í da-da og ni-
hil, poppi eða súrríl, imbisílsku klám-
sulli, póststrúktúralisma eða bara í
einhverju geysimenningarlegu, ráp-
andi á Netinu, stunda vídeógláp, bíó-
ráp, trantaralýður, bullandi og
blaðrandi, landinn, í sínu einkenni-
lega ástarhaturssambandi við heims-
veldið í vestri, sem stendur vopnað-
an vörð um þegna og lýðræðislega
kjörna stjórnarherra hér á ættland-
inu góða. Ekki skal því slegið föstu,
að kynslóðir Íslendinga, sem nú eru
á dögum, valdi því hlutskipti, sem
þjóðin á skilið. Þar skilur með feig-
um og ófeigum, að við erum frjáls.
Íslenskukunnátta Taílendinga og
Víetnama, sem hér eru búsettir, hef-
ur m.a. óvænt gert þeim kleift að tala
saman. Maður skyldi ætla að við Ís-
lendingar ættum þær skyldur við
okkur sjálf að halda málkennd okkar
lifandi, vakandi. Ætla má að uppeldi
okkar og dómar fari saman í þessum
efnum án tillits til þjóðernis.
JÓN BERGSTEINSSON,
Snorrabraut 30, Reykjavík.
Þjóðerni
Frá Jóni Bergsteinssyni:
EFTIR því sem maður les blöðin og
fylgist með fréttaflutningi á hinum
ýmsu fréttamiðlum verður sá sem rit-
ar þetta æ reiðari.
Það virðist sem stjórnmálamenn á
Íslandi komist upp með nánast hvað
sem er! Erlendis sér maður að ef
menn gera afdrifarík embættisglöp í
starfi eru þeir látnir taka poka sinn.
Á Íslandi þurfa þeir helst að vera
gripnir glóðvolgir við bankarán áður
en eitthvað er gert. Samgöngumála-
ráðherra setur Landsímann í sölu vit-
andi að nýir eigendur munu hafa hug
á að stjórna þeim rekstri sjálfir. Þrátt
fyrir það gerir hann samning við einn
af gæðingum sínum, samning sem
tryggir þeim aðila himinháar fjár-
hæðir ef þarf að segja honum upp.
Þegar gæðingurinn gerist óþekkur
er hann látinn fara og hirða poka sinn
og sín litlu laun fyrir næstu 5 ár.
Hvað er í gangi? Hvað ætlum við
Íslendingar að láta þessa menn kom-
ast lengi upp með svona forheimsku
og að mínu áliti mjög svo vafasama
hluti. Samgönguráðherra á að víkja
úr starfi sem fyrst, við höfum ekkert
að gera við svona starfsmenn eins og
hann. Síðan sér maður að enn á að
hygla Flugleiðum með því að gera
ódýrum flugfélögum erfitt fyrir að
komast inn á markaðinn. Það er snúið
út úr orðum forráðamanna GO og
bent á dýrari skattheimtu á öðrum
flugvöllum, þegar forráðarmenn GO
hafa ítrekað sagt að það séu af-
greiðslugjöldin og önnur gjöld sem
gera það að slæmum kosti að fljúga
til Íslands. Ef menn þykjast ætla að
koma til móts við hinn almenna neyt-
anda í landinu og hjálpa við að ná
verðlagi niður þá á einmitt að hvetja
til viðskipta við fyrirtæki sem koma
með lág fargjöld og hjálpa okkur hin-
um við að komast erlendis á góðum
prís. Enda er ávinningurinn svo
miklu meiri við að fá þessa ferða-
menn inn til landsins heldur en smá
tekjur af þessum gjöldum. Er ekki
samgöngumálaráðherra alltaf að tala
um að efla ferðaþjónustu til landsins?
Það á að ganga til viðræðna við þessi
félög sem allra fyrst og fá þau til að
fljúga til Íslands.
Við Íslendingar erum orðnir að
þrælaþjóð sem lætur vaða yfir sig af
fordekruðum embættismönnum og
stjórnmálakóngum. Þegar maður
horfir á þessa talsmenn þjóðarinnar
ræða við fréttamenn sem eru að
spyrja spurninga sem almenningur
vill vita um þá eru þeir ekkert nema
hrokinn og frekjan, svara með útúr-
snúningum og tala niður til manna.
Við verðum að fara að vakna og
kenna þessum mönnum lexíu. Ekki
alltaf að leyfa þessum mönnum að
komast upp með morð. Fjölmiðlar
mega taka sig á og fara að vera harð-
ari við þessa menn, ekki láta þá
sleppa billega ef þeir eru ekki að
standa sig.
Þetta eru menn sem eiga að vera
að vinna fyrir okkur! Þeir eru hátt-
launaðir starfsmenn sem eiga að
vinna fyrir hinn almenna Íslending,
ekki alltaf að vera að hugsa um hags-
muni síns flokks eða vina sinna.
INGVAR RAGNARSSON
Hrísrima 23, Reykjavík.
Afsagnir stjórnmálamanna
Frá Ingvari Ragnarssyni:
ÞÓTT ÉG dvelji langdvölum erlend-
is og það í annarri heimsálfu þá sótti
að mér gleði og feginleiki er ég las
um ávítur þær er Ögmundur Jónas-
son, þingmaður Vinstri grænna fékk
nýverið á Alþingi.
Les ég gjarnan
ræður þing-
manna af hinum
ágæta vef Alþing-
is og þykir mér
sem umræddur
þingmaður leggi
gjarnan þyngri
lóð á vogarskálir
tafa en skilvirkni.
Minnir framkoma
hans um margt á verklagsreglur er
tíðkuðust er ég tók þátt í ungæðis-
legum Morfís-keppnum menntaskól-
anna fyrir allmörgum árum.
Þegar þingræður eru skoðaðar á
vef Alþingis kemur m.a. eftirfarandi
í ljós: Þegar lengingar refsinga voru
ræddar á Alþingi fyrir rúmu ári vildi
Ögmundur vísa umræðunni í nefnd
sem skoða ætti refsiákvæði í löndum
eins og Portúgal, Tyrklandi og Alsír.
Hví það? Þegar álykta átti gegn
harðlínustefnu Ariels Sharon, vildi
Ögmundur tefja umræðuna vegna
„skorts á haldbærri stefnu utanrík-
isráðherra í málefnum Mið-Austur-
landa“ eins og hann sjálfur orðaði
það. Hví að tefja það svo? Þegar Al-
þingi vildi gagnrýna sjómenn fyrir
að henda verðmætum fiski var Ög-
mundur einnig á móti því vegna
þeirrar „óskynsemi að brjóta á stétt
sem skapar þjóðarbúinu verðmæti“.
Allsendis svo já.
Af þessum örfáu dæmum má
glögglega sjá að Ögmundur Jónas-
son hefur eitthvað annað markmið
en að gera stjórnsýsluna skilvirkari.
Ávítur þær sem hann fékk nýverið
eru því áminning til hans um að
starfa af meiri alúð, virðingu og heið-
arleika á hinu háæruverðuga Al-
þingi. Hann er hvattur til að drekka
reglulega ölkelduvatn; fá sér svart-
baksegg úr Stagley og gjarnan
sauðaþykkni norðan úr Svarfaðardal
svo að hrollur þessi hverfi sem fyrst
úr huga mannsins.
GUÐMUNDUR HELGASON,
nemi í fjölmiðlun í Kanada.
Hýðing
Ögmundar
Frá Guðmundi Helgasyni:
Kæri heilbrigðisráðherra!
Púkinn á fjósbitanum hvíslaði að
mér: „Elsku ráðherra. Ekki semja
við sjúkraþjálfara!
Þeir halda meðal annars að þeir
ingar og ráðgjöf við skjólstæðinga
sína. Hljóðgervill getur svarað í
síma: „Nei, því miður. Hann er hætt-
ur. Reynið að komast á biðlista
sjúkrahússins við Hringbraut.
Næsta bygging verður tilbúin 2022 –
ef samkomulag næst um nýtingu
Vatnsmýrarinnar.“
Þeir geta látið gömlu tölvurnar
duga árum saman, hætt að fylgjast
með vísindalegri þekkingu og rann-
sóknum.
Sem púki hef ég fylgst með þeim
sem ritar þessar línur. Hann heldur
– forritaður að meira eða minna leyti
af undarlegri hugsun sjúkraþjálfara
og lækna – að hann hafi eitthvert
gagn af því að rífa sig upp eld-
snemma á morgnana og berjast
áfram í snjó og frosti til að komast í
sjúkraþjálfun, teygja sig þar og toga,
hanga í rimlum eins og þorskur til
þerris og ráðfæra sig við sjúkraþjálf-
arann um líðan, blóðþrýsting, hjart-
slátt og verki þegar hann fær smá
hland fyrir hjartað.
Hvílík fásinna!
Ekki semja við sjúkraþjálfara,
ráðherra.“ Þannig mælti púkinn.
ÞÓRIR S. GUÐBERGSSON
Látraströnd 7, Seltjarnarnesi.
geti hjálpað fólki til betri heilsu og
komið í veg fyrir ótímabærar inn-
lagnir á sjúkrahús. Þetta er hugs-
anavilla. Fjöldi fólks í sjúkraþjálfun
pínir sig oft í viku til að mæta í hund-
leiðinlegar æfingar, til að púla og
þjást andlega og líkamlega, í von um
bata – þó að það vilji miklu fremur
liggja á sjúkrahúsi og láta tugi
starfsfólks stjana í kring um sig daga
og nætur í hræódýrum sjúkrahús-
rekstri sem skilar alltaf hagnaði.
Svo eru sjúkraþjálfarar líka
haldnir þeirri ranghugmynd að þeir
efli og styrki sjálfsmynd sjúklinga
sinna og telja þeim trú um að með
virkni til hugar og handar, fræðslu
og þekkingu ráði þeir miklu um eigin
heilsu, líðan og líf.
Hvílík fásinna!
Sjúkraþjálfarar læða líka þeirri
furðulegu hugmynd í vitund sjúk-
linga sinna að þeir geti orðið „sér-
fræðingar“ um eigin heilsu. Svona
lagað látum við bara ekki viðgang-
ast, ráðherra.
Rekstrarkostnað getað þeir lækk-
að t.d. með því að þrífa sjaldnar en
þeir gera, ryk hefur aldrei drepið
nokkurn mann, svo ég viti. Þeir geta
lækkað símkostnað með því að masa
minna og minnkað þjónustu, upplýs-
Púkinn á fjósbitanum
Frá Þóri S. Guðbergssyni: