Morgunblaðið - 21.02.2002, Qupperneq 50
HITT húsið hrindir nú af stað
glænýrri tónleikaröð undir nafn-
inu Fimmtudagsforleikur. Er hún
hugsuð sem tækifæri fyrir ungt
fólk, á aldrinum 16–25 ára, til að
afla sér reynslu í tónleikaspileríi
og því hvernig slík skipulagning
gengur fyrir sig. Þessi kvöld eiga
sér forföður í Föstudagsbræð-
ingnum, hljómleikakvöldum sem
voru starfrækt í um eitt og hálft
ár.
Þar sem hefð er orðin fyrir þó-
nokkru tónleikahaldi í Reykjavík
á fimmtudagskvöldum hafa For-
leiksmenn hugsað sér tónleikaröð-
ina sem eins konar forrétt að öðr-
um kvöldum, eins og nafnið ber
með sér. Tónleikarnir standa frá
20.00 til 22.30 og er ókeypis inn
og því upplagt að hita sig upp
fyrir aðra tónleika með ferskum
og ungæðislegum tónum.
Á fyrsta kvöldinu leika þrjár
síðrokksveitir, en það form ku af-
ar vinsælt hjá ungu neðanjarðar-
fólki um þessar mundir. Þetta
eru sveitirnar Pan, Jan Mayen
(áður Messías) og Lokbrá (inni-
heldur meðlimi úr hinni örendu
sveit Moðhausi).
Það eru Pan-menn sem hafa
yfirumsjón með kvöldinu.
„Jú, þetta er búið að vera
nokkurt basl en mjög góð
reynsla,“ segir Halldór Örn
Guðnason úr Pan. „T.d. fór allur
sunnudagurinn í að hringja út
og suður og síðustu sveitinni
redduðum við ekki fyrr en á
þriðjudagsmorgun. Svo var
maður að keyra veggspjöld út
um allt. En við erum mjög sáttir
við þetta og við fengum þarna
til liðs við okkur tvö prýðis-
bönd.“
Tónleikarnir fara fram í Geysi
Kakóbar en í framtíðinni verða
þeir haldnir í Pósthússtræti 3–5,
nýju húsnæði Hins hússins.
Aldurstakmark er 16 ára og
er skylt að sýna skilríki við dyr.
Lokbrá er á
meðal þeirra
þriggja
sveita sem
leika á fyrsta
Fimmtu-
dagsfor-
leiknum.
Ný tónleikaröð
Fimmtudagsforleikur Hins hússins
FÓLK Í FRÉTTUM
50 FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Full búð
af nýjum
vörum
REFASK
INNIN
KOMIN
SÖNGVARINN James Brown var í gær
sýknaður af ákæru fyrrverandi starfskonu
sinnar um kynferðislega áreitni. Kviðdóm-
ur við hæstarétt í Los Angeles komst að
þeirri niðurstöðu að Brown hefði ekki
áreitt Lisu Ross Agbalaya, 36 ára, kynferð-
islega eða valdið henni andlegum þjáning-
um eins og hún hefur haldið fram en að fyr-
irtæki hans hefði þó sagt henni upp störf-
um með ólögmætum hætti. Brown var ekki
viðstaddur réttarhöldin.
James
Brown sýkn-
aður
Reuters
Sálargoðsögn-
in var ekki í
réttarsalnum
er hann var
sýknaður en
komst ekki
undan því er
hann bar vitni
fyrr í mán-
uðinum.
SÍMI 564 0000 - www.smarabio.is5 hágæða bíósalir
Miðasala opnar kl. 15
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B. i. 14 ára.
Spennutryllir
ársins
Dóttur hans er rænt! Hvað er til ráða?
Spennutryllir ársins með Michael Douglas.
Sýnd kl. 6 og 10. B.i. 12. Sýnd í LÚXUS kl. 4 og 8.
DVMbl ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
l
i i .
SV Mbl
DV
Sýnd kl. 10.20. B.i 14.
Sýnd kl. 5.40 og 8.
Sýnd kl. 4.
Ath! síðustu sýningar á Lord of the Rings í Lúxussal.
tilnefningar til
Óskarsverðlauna13 il i ill
Gwyneth Paltrow Jack Black
Glæný leysigeislasýning í sal-1 á undan myndinni
ÓGEÐSLEGA
FYNDIN!
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i.16 ára.
NÆSTA plata leik- og söngkonunnar Jenni-
fer Lopez verður endurhljóðblöndunarskífa.
Aðdáendur geta þó ornað sér við það að jafn-
framt verður þar að finna glænýtt lag,
„Alive“, og verður það einnig í nýju mynd-
inni hennar Enough. Platan mun bera nafnið
J To Tha L-O! og inniheldur umvélanir eftir listamenn eins og Ja Rule,
Rodney Jerkins, RJ Schoolyard og Dark Child. Platan kemur út um miðjan
mars.
Garfað í Lopez
Jennifer Lopez