Morgunblaðið - 14.03.2002, Page 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2002 13
ÞEIR sem eiga íbúð í fé-
lagslega íbúðarkerfinu í
Kópavogi geta nú margir
hverjir selt eignir sínar á
frjálsum markaði eftir að
bæjarstjórn samþykkti að
falla frá forkaupsrétti sínum
að skilyrðum uppfylltum.
Segir bæjarstjóri töluvert
geta munað á söluverði íbúð-
anna eftir því hvort bærinn
leysir þær til sín eða hvort
þær eru seldar á markaði.
Samþykktin kveður á um
að bærinn muni falla frá for-
kaupsrétti sínum hafi eigandi
hennar átt hana í tilskilinn
tíma og að öll félagsleg lán
sem veitt voru til kaupanna
hafi verið greidd upp. Hafi
íbúðin verið keypt fyrir 1.
júní 1990 þarf eigandinn að
hafa átt hana í 15 ár eða leng-
ur en hafi hún verið keypt eft-
ir 1. júní 1990 þarf hún að
hafa verið í eigu núverandi
eigenda í 10 ár eða lengur.
Kemur fram í greinargerð
með samþykktinni að fjöldi
ára sem eigandi þarf að hafa
átt íbúðina sé í samræmi við
lög um húsnæðismál sem
kveða á um kaupskyldu sveit-
arfélags fyrstu 10 eða 15 árin
eftir því hvort íbúðin var
keypt fyrir eða eftir 1990 en
eftir það hafi sveitarfélagið
forkaupsrétt. Þá er í grein-
argerðinni vísað til dóms
Héraðsdóms Reykjaness sem
staðfestur var af Hæstarétti
Íslands en hann kvað á um að
sveitarstjórn væri heimilt að
falla frá forkaupsrétti sínum
að félagslegum eignar- og
kaupleiguíbúðum en óheimilt
að skjóta sér undan innlausn-
arskyldu sinni.
Spurning hvort
sanngirni sé gætt
Að sögn Sigurðar Geirdal,
bæjarstjóra Kópavogs, mun
bærinn því áfram leysa íbúð-
irnar til sín óski eigendurnir
þess. „Við erum í rauninni að
fara í sama farveg og Reykja-
vík. Menn gátu ekki selt fé-
lagslegu íbúðirnar áður held-
ur fóru þær aftur inn í kerfið
og þá á uppreiknuðu verði.
Síðan þegar markaðurinn æð-
ir áfram eru íbúðir, sem við
erum að taka aftur á upp-
reiknuðu verði fyrir kannski
7½ milljón, farnar að fara á
markaði fyrir 9½ milljón.“
Hann segir erfitt að segja
til um hvað sé sanngjarnt og
ekki sanngjarnt í þessum efn-
um. „Það er alveg önnur
stúdía því auðvitað eru menn
ekki einu sinni búnir að borga
vextina af íbúðunum því
menn borguðu svo lítið fyrstu
árin. Svo það er spurning
hvort það sé sanngjarnt að
þeir græði á því að þarna
voru sjóðir til að leysa fé-
lagsleg vandamál og vanda-
mál fólks sem áttu í erfiðleik-
um með að fjármagna íbúð.
En nú er þetta orðið svona
enda erum við sannfærðir um
að þetta muni gerast um allt
land.“
Að sögn Sigurðar varða
breytingarnar 60-70 íbúðir í
félagslega eignarkerfinu í
Kópavogi.
Heimilt að selja félagslega
íbúð á frjálsum markaði
Kópavogur
FRAMKVÆMDIR eru hafn-
ar vegna göngubrúar yfir
Miklubraut á móts við Kringl-
una og er áætlað að verkinu
ljúki síðsumars.
Um er að ræða samstarfs-
verkefni Reykjavíkurborgar
og Vegagerðarinnar auk þess
sem göngubrú í Garðabæ er
með í útboðinu. Verið er að
byrja á jarðvinnu og segir
Harald B. Alfreðsson, verk-
fræðingur hjá Gatnamála-
stjóranum í Reykjavík, sem
sér um nýframkvæmdir hjá
embættinu, að vegna þessa
verði útkeyrslan úr Kringl-
unni færð aðeins til.
Einn verktaki er með jarð-
vinnuna og annar með stál-
verkið. Harald segir að þegar
búið verði að steypa sökkla og
fylla að brúarendunum verði
komið með brúna og hún sett
niður í einu lagi, líkt og gert
hafi verið með brúna yfir
Miklubraut á móts við Grund-
argerði. Gert er ráð fyrir að
brúin verði tilbúin í ágúst.
Göngubrú við Kringluna
Miklabraut
GÓÐAR líkur eru á að sund-
laugin í Breiðholti verði ið-
andi af buslandi krökkum um
páskana því stefnt er að því
að taka í notkun tvær renni-
brautir, sem þar er verið að
setja upp, fyrir þann tíma.
Brautirnar eru fyrst og
fremst ætlaðar börnum á
grunnskólaaldri og eldri en
yngra smáfólk getur þó tekið
sér salíbunu í fylgd með
mömmu eða pabba.
Að sögn Gunnars Hauks-
sonar, forstöðumanns Breið-
holtslaugar, er önnur braut-
in 32 metrar að lengd en hin
28 metrar. Um er að ræða
beinar brautir, sem bugðast
niður á við, sem Gunnar seg-
ir mun sjaldgæfari tegund
rennibrauta en hefðbundnar
hringlaga brautir. „Við vild-
um prófa eitthvað nýtt í stað
þess að vera með það sama
og aðrir. Það er verið að
ljúka við að flísaleggja lend-
ingarkerið og helluleggja að
því og við stefnum að því að
ljúka þessu fyrir páskana,“
segir hann.
Brautirnar verða ætlaðar
börnum frá sex ára aldri en
yngri börn geta rennt sér í
fylgd með fullorðnum. „Þetta
er að mínum dómi það sem
hefur vantað í hverfið þannig
að krakkarnir þurfi ekki að
leita eitthvað út fyrir það til
að komast í rennibraut eða
aðra skemmtun í sundlaug-
inni. Þetta verður vestast á
lóðinni en nuddpottarnir eru
austast á lóðinni þannig að
við reynum að halda afþrey-
ingunni sér og afslöppuninni
sér,“ segir Gunnar.
Kostnaður við fram-
kvæmdina er á bilinu 20-30
milljónir að hans sögn.
Morgunblaðið/Ásdís
Fjör framundan
í sundlauginni
Breiðholt
Það hefur verið ansi kalt í vinnunni hjá þeim sem hafa unnið að uppsetningu brautanna und-
anfarna daga og hefur frost og bleyta lagst þar á eitt um að stuðla að kuldanum. Það hafa þó
verið hæg heimatökin að skella sér í heitan pott að vinnu lokinni til að hita kroppinn.
FYRIR skömmu fór fram í
Menntaskólanum í Reykjavík
stærðfræðikeppni fyrir nem-
endur úr 8.–10. bekk í Haga-
skóla og Valhúsaskóla á Sel-
tjarnarnesi með því
markmiði að auka áhuga
nemenda í grunnskólum á
stærðfræði og efla samstarf
við grunnskóla, en verð-
launaafhending fór fram um
helgina.
Keppnin var haldin í sam-
starfi við Flensborgarskóla í
Hafnarfirði og Búnaðarbanki
Íslands, verðbréfadeild, gaf
verðlaunaféð. Til leiks mættu
67 nemendur og fengu nem-
endur í tíu efstu sætunum í
hverjum bekk viðurkenning-
arskjal auk þess sem þrír
efstu í hverjum bekk fengu
peningaverðlaun. Tíu efstu í
hverjum bekk var boðið
ásamt foreldrum til verð-
launaafhendingar á hátíðar-
sal MR sl. sunnudag.
Guðmundur Reynir Gunn-
arsson, Hagaskóla, varð í
fyrsta sæti í 8. bekk, Pétur
Orri Ragnarsson, Valhúsa-
skóla, í öðru sæti og Elvar
Karl Bjarkason, Hagaskóla, í
því þriðja.
Halla Oddný Magnúsdótt-
ir, Hagaskóla, varð í fyrsta
sæti í 9. bekk, Margrét Hlín
Snorradóttir, Hagaskóla, í
öðru sæti, og Aldís Geirdal
Sverrisdóttir, Valhúsaskóla, í
þriðja sæti.
Í 10. bekk varð Benjamín
Ragnar Sveinbjörnsson,
Hagaskóla, í fyrsta sæti,
Kári Steinn Karlsson, Val-
húsaskóla, í öðru sæti, og
Gunnar Már Óttarsson,
Hagaskóla, í því þriðja.
Keppnin gekk mjög vel og
er stefnt að því að bjóða öll-
um nemendum í 8.–10. bekk í
grunnskólum í nágrenni MR
að taka þátt í stærðfræði-
keppni í Menntaskólanum í
Reykjavík á næsta ári.
Stærðfræðikeppni fyrir grunnskólanemendur
Markmiðið að auka
áhuga og efla samstarf
Vesturbær/Seltjarnarnes
Morgunblaðið/Ásdís
BÆJARSTJÓRN Kópavogs
samþykkti á þriðjudag nýtt
aðalskipulag bæjarins sem
gilda mun til ársins 2012.
Með samþykki bæjarstjórn-
ar er formlegri afgreiðslu
nefnda og ráða bæjarins á
skipulaginu lokið. Meðal
þess sem aðalskipulagið
kveður á um er tæplega
1.700 nýjar íbúðir og 5.000
manna byggð í Vatnsenda-
landi og 350-400 nýjar íbúðir
í 1.200-1.300 manna byggð á
landfyllingu við norðanvert
Kársnes.
Aðalskipulagið verður nú
sent til Skipulagsstofnunar
ríkisins sem samkvæmt upp-
lýsingum frá Kópavogsbæ
hefur 4 vikur til að fara yfir
það. Þaðan fer það til sam-
þykktar umhverfisráðherra
áður en það tekur formlega
gildi.
Aðalskipulag samþykkt
Kópavogur
FJÓRTÁN nýliðar voru ný-
lega vígðir í skátafélagið
Mosverja við hátíðlega athöfn
í Lágafellskirkju. Fjölmenni
var við athöfnina, bæði skát-
ar og aðstandendur þeirra.
Margir fallegustu skáta-
söngvarnir voru sungnir, sem
gerði athöfnina sérstaklega
eftirminnilega fyrir þá sem
sungu með eða nutu söngs
annarra. Ræðumaður dagsins
var Sigríður Johnsen, aðstoð-
arskólastjóri Lágafellsskóla.
Á myndinni má sjá eldri
foringja skátafélagsins, þá
Óskar Reynisson, Hrafn
Ingvarsson og Andrés Andr-
ésson, vígja nýliðana. Á eftir
var hefðbundin skátanæring í
boði eða kakó og beinakex
sem rann ljúflega niður í hina
nýbökuðu skáta sem og þá
sem reyndari voru.
Ljósmynd/Andrés Þórarinsson
Mosfellsbær Nýliðar
vígðir