Morgunblaðið - 14.03.2002, Blaðsíða 57
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2002 57
Rangt nafn
Rangt var farið með nafn Leifs
Árna Árnasonar í grein um Berg-
ljótu Árnadóttur leikkonu í blaðinu
sl. sunnudag. Er beðist velvirðingar
á þessu.
Í eigu Baugs
Ónákvæmni gætti í frétt í Morg-
unblaðinu í gær um kaup fasteigna-
félagsins Stoða á Borgartúni 21
(Höfðaborg). Félagið er í eigu
Baugs, en ekki Bónusfeðga eins og
sagði fréttinni. Baugur á 48,35% hlut
en ekki 45% hlut eins og sagði í frétt-
inni.
LEIÐRÉTT
OPINN fundur Reykjavíkurráðs
ungmenna með borgarstjórn í Ráð-
húsi Reykjavíkur, borgarstjórnarsal,
verður í dag, fimmtudaginn 14. mars
kl. 14. Fundinn sitja 8 ungmenni úr
Reykjavíkurráði og 7 borgarfulltrúar.
Ungmennin munu tala fyrir tillögum
Reykjavíkurráðs ungmenna og borg-
arfulltrúar veita andsvör. Borgar-
stjóri mun sitja fundinn sem stýrt
verður af forseta borgarstjórnar.
Undanfarin ár hefur eitt af helstu
markmiðum Íþrótta- og tómstunda-
ráðs Reykjavíkur í æskulýðsmálum
verið vinna með lýðræði og ungt fólk.
Í janúar síðastliðnum var Reykjavík-
urráð ungmenna formlega stofnað
eftir langan aðdraganda. Í ráðinu eiga
sæti tveir fulltrúar úr hverju hverf-
aráði ungmenna sem hófu starfsemi
sína síðastliðið haust. Alls eru fjórtán
ungmenni á aldrinum 12–16 ára sem
mynda Reykjavíkurráð ungmenna.
Markmið Reykjavíkurráðs ung-
menna er að skapa vettvang og leiðir
til þess að gera þeim sem eru yngri en
18 ára kleift að koma skoðunum sín-
um og tillögum á framfæri við viðeig-
andi aðila. Frá því ráðið tók til starfa
hefur það fengið fjöldann allan af til-
lögum til umfjöllunar frá ungmennum
í Reykjavík. Fundurinn í borgar-
stjórn er því kærkomið tækifæri til að
koma tillögum ungmenna á framfæri
við stjórnendur borgarinnar, segir í
fréttatilkynningu.
Reykjavíkurráð ungmenna
fundar með borgarstjórn
LIBRA ehf. og Verðbréfaþing Ís-
lands hafa fært viðskipta- og hag-
fræðiskor Háskóla Íslands Libra-
þingspegil að gjöf.
Libra-þingspegill er markaðs-
og upplýsingaforrit sem miðlar
upplýsingum af íslenska fjármála-
markaðnum frá Verðbréfaþingi
Íslands og gerir notendum kleift
að skoða stöðu og þróun við-
skipta auk ýmissa sögulegra upp-
lýsinga frá Verðbréfaþingi í
rauntíma. Libra og Verðbréfa-
þing vilja leggja sitt af mörkum
til að auka þekkingu á verðbréfa-
markaðnum og þeim hugbúnaði
sem notaður er í greininni og er
gjöfin til Háskólans liður í því
fræðslustarfi. Libra-þingspegill
verður notaður við kennslu hjá
viðskipta- og hagfræðiskor Há-
skóla Íslands.
F.v. Gylfi Magnússon, formaður viðskipta- og hagfræðiskorar Háskóla
Íslands, Axel Ómarsson, sölu- og markaðsstjóri Libra ehf., og Helga
Björk Eiríksdóttir, kynningarstjóri Verðbréfaþings Íslands hf.
Færðu HÍ forrit að gjöfFRÆÐSLUFUNDUR verður laug-ardag 16. mars kl. 13.30 í félagsheim-
ili Félags eldri borgara í Ásgarði
Glæsibæ. Fjallað verður um minnk-
andi heyrn hjá öldruðum og Alz-
heimer. Fyrirspurnum og umræður.
Fyrirlesarar verða: Hannes Pét-
ursson yfirlæknir háls-, nef- og
eyrnadeildar og Jón Snædal yfir-
læknir.
Allir velkomnir. Aðgangseyrir kr.
300, segir í fréttatilkynningu.
Heilsa og ham-
ingja á efri árum
SAMFYLKINGIN boðar til opins
fundar í Pakkhúsinu, Höfn, í dag,
fimmtudaginn 14. mars, kl. 20.
Á fundinum verða þingmennirnir
Bryndís Hlöðversdóttir, Margrét Frí-
mannsdóttir, Lúðvík Bergvinsson,
Sigríður Jóhannesdóttir, Guðmundur
Árni Stefánsson, Svanfríður I. Jón-
asdóttir og Einar Már Sigurðarson.
Fundarstjóri Margrét Frímanns-
dóttir, varaformaður Samfylkingar-
innar. Allir velkomnir, segir í frétta-
tilkynningu.
Samfylkingin
fundar á Höfn
Í FJÖLBRAUTASKÓLANUM við
Ármúla er að hefjast námskeiðið
Samræður við guð. Námskeiðið er
um trúarheimspeki og tilgang lífsins
og verður frá 19. mars til 16. apríl, kl.
19.45–21.45 fimm þriðjudaga. Nám-
skeiðið er í formi fyrirlestra og um-
ræðna.
Þar verður fjallað um trúarheim-
speki bóka metsöluhöfundarins Neal
Donald Walsch. Leiðbeinandi er
Geir Rögnvaldsson, leikhúsfræðing-
ur og stærðfræðikennari. Skráning
er á vefnum www.fa.is/framvegis,
segir í fréttatilkynningu.
Námskeið um
trúarheimspeki
SJÁLFSBJÖRG félag fatlaðra á
höfuðborgarsvæðinu heldur fé-
lagsfund laugardaginn 16. mars kl.
14 í Gjábakka, Fannborg 8, Kópa-
vogi (ekið inn hjá bensínstöðinni).
Fundarefni: Hver er stefna og við-
horf verkalýðshreyfingarinnar varð-
andi kjör öryrkja?
Frummælendur eru: Halldór
Björnsson formaður Starfsgreina-
sambands Íslands og varaforseti
ASÍ, Jens Andrésson formaður
Starfsmannafélags ríkisstofnana og
varaformaður BSRB. Fundarstjóri:
Tryggvi Friðjónsson, segir í frétta-
tilkynningu.
Sjálfsbjörg fundar
um kjör öryrkja
SAMTÖKIN „Litlir englar“ voru
stofnuð 26. janúar sl. Samtökin eru
ætluð fólki sem hefur orðið fyrir því
að missa börn sín í móðurkviði, í fæð-
ingu eða stuttu eftir fæðingu.Tölur
um barnsburðardauða sl. 4 ár sýna
að 20–30 börn deyja á hverju ári af
mismunandi ástæðum annaðhvort í
móðurkviði eða í fæðingu. Einnig
deyja 5–10 börn áður en vika er liðin
frá fæðingu þeirra. Hér eiga því ár-
lega milli 40–60 manns um sárt að
binda vegna þessa.
Markmið samtakanna er að veita
fólki sem hefur lent í þessari sorg-
legu lífsreynslu stuðning og fer
starfsemin að mestu fram í gegnum
tölvupóst. Markmið samtakanna er
að opna heimasíðu þar sem öll starf-
semin getur farið fram. Þátttaka í
samtökunum er öllum að kostnaðar-
lausu. Formaður samtakanna er
Hildur Jakobína Gísladóttir. Net-
fangið er litlirenglar@hotmail.com,
segir í fréttatilkynningu.
Ný samtök –
Litlir englar
SAMSTARFSNEFND átthaga-
félaga stendur fyrir spurninga-
keppni meðal átthagafélaga í
Reykjavík. 16 félög eru skráð til
keppni og verður keppt fjögur kvöld:
fimmtudaginn 14. mars, föstudaginn
15. mars, fimmtudaginn 21. mars og
föstudaginn 22. mars. Keppnin fer
fram í Breiðfirðingabúð, Faxafeni
14, kl. 20.
Stjórnandi og dómari er Helgi
Seljan fv. alþingismaður. Sigurveg-
arar í keppninni fá í verðlaun gist-
ingu á vegum Ferðaþjónustu bænda.
Allir eru velkomnir. Aðgangseyrir
er kr 1.000, segir í fréttatilkynningu.
Spurningakeppni
átthagafélaga
SENDIKENNARAR í norrænum
tungumálum við Háskóla Íslands og
Kennsluráðgjafinn í Norræna húsinu
bjóða framhaldsskólanemendum til
norræns menningarkvölds í Norræna
húsinu í kvöld kl. 20.
Meðal dagskrárliða má nefna stutt-
mynd, upplestur, dans og tónlistarat-
riði auk þess sem gestum gefst kostur
á að skoða sýninguna Tattóveraði
Álendingurinn. Bornar verða fram
veitingar, og farið í spurningakeppni
og upplýsingar veittar um Nordjobb.
Kynning verður á námi í norrænum
tungumálum við Háskóla Íslands og
starfsemi Norræna hússins.
Styrktaraðilar eru Norræna ráð-
herranefndin og sendiráð Svíþjóðar,
Noregs og Finnlands á Íslandi, segir í
fréttatilkynningu.
Menningarkvöld
fyrir mennta-
skólanema
RABB á vegum Rannsóknastofu í
kvennafræðum verður í dag,
fimmtudaginn 14. mars, kl. 12-13 í
Norræna húsinu. Sif Einarsdóttir
sálfræðingur: „Stuðla áhugakannan-
ir að hefðbundnu starfsvali karla og
kvenna? Athugun á kynbundinni
skekkju í Áhugakönnun Strong.“
Fjallað verður um hlutverk
áhugakannanna í náms- og starfs-
ráðgjöf og áhrif slíkra kannana á
starfsval kvenna og karla. Greint frá
niðurstöðum rannsóknar þar sem
skoðaður var kynjamunur í svörum
við Áhugakönnun Strong sem hefur
verið notuð hérlendis til að leiðbeina
ungu fólki við val á námi og störfum.
Starfsval karla
og kvenna
NÁMSKEIÐ um árangursrík sam-
skipti verður haldið hjá Endur-
menntun HÍ 18., 19. og 20. mars kl.
16-18, ætlað þeim sem vilja auka
þekkingu sína og færni í mannlegum
samskiptum á vinnumarkaði.
Farið verður yfir atriði sem ein-
kenna jákvæð og árangursrík sam-
skipti, en einnig einkenni erfiðra
samskipta og leiðir til að bregðast
við þeim. Fjallað verður um ákveðni,
hroka og yfirgang, feimni og hlé-
drægni o.fl. Fyrirlestrar, verkefni og
léttar æfingar. Kennarar: Jóhann
Ingi Gunnarsson og Sæmundur Haf-
steinsson sálfræðingar.
Verð: 20.600 kr.
Nánari upplýsingar og skráning:
http://www.endurmenntun.hi.is og
hjá Endurmenntun HÍ í síma, segir í
fréttatilkynningu.
Árangursrík
samskipti
GLAXOSMITHKLINE hefur afhent
læknadeild Háskóla Íslands nýjan
lungnamæli til eignar. Á síðasta ári
afhenti fyrirtækið 26 heilsugæslu-
stöðvum, eða þriðjungi allra heilsu-
gæslustöðva landsins, sambærilega
lungnamæla, en með því að afhenda
læknadeild slíkan mæli nú vill
GlaxoSmithKline leggja sitt að
mörkum til þess að læknanemar
kynnist notkun mælanna áður en
þeir hefja störf á heilsugæslu-
stöðvum landsins. Til stendur að af-
henda 9 heilsugæslustöðvum til við-
bótar nýja lungnamæla á þessu ári.
„Afhendingin er hluti af þátttöku
GlaxoSmithKline í starfsemi Loft-
félagsins. Loftfélagið, áhugafólk
um öndun, er nafn á samstarfsverk-
efni vinnuhóps á vegum Landlækn-
isembættisins, Tóbaksvarnarnefnd-
ar og GlaxoSmithKline. Auk þess
koma að félaginu Félag lungna-
lækna, heilsugæslulæknar og Félag
lungnahjúkrunarfræðinga. Mark-
mið félagsins eru m.a. þau að
lungnamælingar verði að föstum lið
í heilbrigðiseftirliti, að stuðla að því
að lungnasjúkdómar greinist sem
fyrst í sjúkdómsferlinu og endur-
nýjun á tækjakosti heilsugæslunnar
til lungnamælinga.
Lungnamælingar eru mikilvæg-
ur liður í baráttunni gegn lang-
vinnum lungnateppusjúkdómum og
með aukinni notkun lungnamæla
má telja víst að þær verði að föstum
lið við heilbrigðiseftirlit innan
heilsugæslunnar,“ segir í frétta-
tilkynningu.
Stefán B. Sigurðsson, varaforseti læknadeildar Háskóla Íslands, veitir
nýjum lungnamæli viðtöku frá Guðrúnu Pálsdóttur, GlaxoSmithKline.
Læknadeild HÍ fær
nýjan lungnamæli
KAUPHLAUPSDAGAR hefjast í
Smáralind fimmtudaginn 14. mars kl.
11 og lýkur sunnudaginn 17. mars kl.
18 þar sem verslanir bjóða nýjar
vörur á sérstöku tilboði. Níu sinnum
á dag verður efnt til spretthlaups þar
sem vara er boðin á sérstökum kjör-
um. Þá er um að gera að spretta úr
spori til að tryggja sér hagstætt verð.
Í Spretthlaupi býður ein verslun
sérvalda vöru eða vörur með afslætti.
Gestir Smáralindar hafa 15 mínútur
til að nýta sér þetta tilboð.
Einnig verður andlitsmálun fyrir
börnin, óvæntar uppákomur og gest-
ir reyna með sér í pokahlaupi.
Í Vetrargarðinum stendur
Íþrótta- og ólympíusamband Íslands
fyrir uppákomu á laugardag og
sunnudag sem ber heitið „Ísland á
iði“. Þar verða ýmsar þrautir, kynn-
ingar og sýnikennsla fyrir gesti, m.a.
á glímu, tae Kwon do, golfi, badmin-
ton og kvennalandslið Íslands verður
með knattþrautir, segir í fréttatil-
kynningu.
Kauphlaupsdag-
ar í Smáralind
LÍFFRÆÐISKOR og Umhverfis-
stofnun HÍ boða til fyrirlesturs til
meistaraprófs í umhverfisfræði
föstudaginn 15. mars kl. 16 í stofu
101, Lögbergi.
Björn H. Barkarson kynnir meist-
araverkefni sitt í umhverfisfræðum
sem fjallar um beitarnýtingu á
miðhálendi Íslands.
Á miðhálendinu eru afréttir nýttir
til sumarbeitar fyrir sauðfé og hross.
Ástand jarðvegs og gróðurs er afar
mismunandi og víða á sér stað jarð-
vegsrof og auðnir eru ríkjandi, segir
í fréttatilkynningu.
Beitarnýting
á hálendi
KRINGLUKAST hefst í dag,
fimmtudag, og stendur fram á
sunnudag. Á Kringlukasti veita
verslanir og þjónustuaðilar 20 til
50% afslátt af nýjum vörum.
Á sunnudag kl. 14 verða boðin upp
hjól, utanlandsferðir, sjónvarp,
tölva, DVD-spilari, GSM-símar, leik-
húsmiðar, náttföt og klippingar.
Afgreiðslutími á Kringlukasti er:
fimmtudag kl. 10-21, föstudag kl. 10-
19, laugardag kl. 10-18 og sunnudag
kl. 13-17, segir í fréttatilkynningu.
Kringlukast í dag
AÐALFUNDUR Ferðafélags Ís-
lands verður haldinn í FÍ-salnum,
Mörkinni 6, í dag, fimmtudaginn 14.
mars kl. 20. Dagskrá fundarins eru
venjuleg aðalfundarstörf. Kaffiveit-
ingar, segir í fréttatilkynningu.
Aðalfundur FÍ
HJALLASKÓLI v/Álfhólsveg í
Kópavogi og Arkó Kortamenn bjóða
fulltrúum leik-, grunn- og fram-
haldsskóla til sýningar á innrömm-
uðum Íslands-, álfu- og dýrakortum
ásamt gervihnattamyndum í Hjalla-
skóla í Kópavogi föstudaginn 15.
mars kl. 14–17, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Sýning í
Hjallaskóla
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eftir
vitnum að ákeyrslu á kyrrstæða bif-
reið hinn 5. mars við Kelduland 15.
Atvikið átti sér stað á milli kl. 15.30
til 17 en ekið var á bifreiðina SH-317,
sem er rauð Suzuki Swift-fólksbifreið.
Tjónvaldur fór af vettvangi án þess að
tilkynna um tjónið til hlutaðeiganda
eða lögreglu. Því er hann eða aðrir
sem geta gefið frekari upplýsingar
beðnir að snúa sér til umferðardeildar
lögreglunnar í Reykjavík.
Lýst eftir vitnum
SAFNARAMARKAÐUR verður
haldinn í Síðumúla 17, 2. h. sunnu-
daginn 17. mars kl.13–17.
Til sölu og skipta verða frímerki,
umslög og ýmislegt annað sem teng-
ist frímerkjasöfnun, þar verða einnig
mynt, seðlar, minnispeningar, barm-
merki, pennar og margt fleira.
Myntsafnarafélag Íslands og Fé-
lag frímerkjasafnara standa að mark-
aðnum, segir í fréttatilkynningu.
Safnaramark-
aður í Síðumúla