Morgunblaðið - 23.05.2002, Qupperneq 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, for-
seti Íslands, sæmdi í gær Önnu
Kisselgoff, aðalballettgagnrýn-
anda New York Times, ridd-
arakrossi hinnar íslensku fálka-
orðu við hátíðlega athöfn í
Skandinavia House í New York.
Að athöfninni lokinni bauð Magn-
ús Bjarnason, aðalræðismaður Ís-
lands í Bandaríkjunum til hádeg-
isverðar, en meðal þeirra sem
samglöddust Önnu Kisselgoff voru
Dorrit Moussaieff, heitkona forset-
ans, Helgi Tómasson og Marlene
kona hans, og sendiherrahjónin
Jón Baldvin Hannibalsson og
Bryndís Schram auk annarra
gesta.
Orðuna hlaut Anna fyrir fram-
lag sitt til danslistar, en óhætt er
að segja að hún hafi um áratuga
skeið öðrum fremur beint sjónum
manna erlendis að þeim íslenska
fulltrúa hennar sem lengst hefur
náð, Helga Tómassyni, en hún tel-
ur hann einn fjögurra bestu klass-
ísku karldansara 20. aldarinnar.
Að auki hefur hún fylgst náið með
starfi hans sem stjórnanda elsta
ballettflokks Bandaríkjanna, San
Francisco-ballettsins, og mik-
ilvirks danshöfundar.
Helgi tók við San Francisco-
flokknum árið 1985, þegar flokk-
urinn átti nokkuð á brattann að
sækja, og kom honum í fremstu
röð á mjög skömmum tíma, en
hans eigin útfærsla á Svanavatn-
inu markaði m.a. þáttaskil í því
ferli.
Í ávarpsorðum sínum við athöfn-
ina vísaði Ólafur Ragnar Grímsson
til þess að fálkaorðan ætti upp-
runa sinn að rekja til þess að fálk-
ar hefðu á öldum áður verið mesta
heiðursgjöf sem hægt var að færa
konungum að skáldskap und-
anskildum. Listræn tjáning hefði
því ætíð verið í öndvegi í íslenskri
menningu og mönnum hefði þótt
mest sæmd að henni.
Fyrir hönd íslensku þjóðarinnar
þakkaði Ólafur Önnu Kisselgoff
fyrir skrif hennar um feril Helga
Tómassonar. Hann lýsti þeirri ferð
sem Helgi tók sér fyrir hendur frá
litlu fiskiþorpi á Íslandi, til Kaup-
mannahafnar og síðan til New
York og San Francisco, sem ótrú-
legu ævintýri velgengni og frama.
„Hér í bókasafni Halldórs Lax-
ness,“ sagði Ólafur Ragnar, „lýsi
ég þeirri staðföstu trú minni að
ásamt Halldóri sé Helgi Tómasson
mesti listamaður sem Ísland hefur
fætt af sér á tuttugustu öldinni. Ég
veit að þetta eru stór orð, en ég
flyt þau hér í dag af mikilli sann-
færingu.“ Hann ítrekaði hversu
mikilvægt hlutverk Önnu Kissel-
goff hefði verið á þessari löngu
ferð Helga, „með skilningi sínum
og djúpri tilfinningu fyrir ball-
ettlistinni, og með þekkingu sinni
á menningarlegum bakgrunni,
ekki bara Bandaríkjanna heldur
einnig Evrópu, gat hún skrifað um
velgengni hans þannig að æðstu
markmið ballettlistarinnar voru
höfð að leiðarljósi.“
Ólafur vék einnig að löngum
ferli Önnu í New York og að
dyggri þjónustu hennar við hinn
alþjóðlega listheim, „þar sem hún
hefur verið í forystu við að draga
athygli heimsins að hinum stóru
viðburðum ballettheimsins.“
Anna Kisselgoff þakkaði í
nokkrum orðum þann heiður sem
henni var sýndur. Hún sagðist
hafa talað við Helga í fyrsta skipti
árið 1975, þegar henni var boðið
að skrifa litla bók um hann. Helgi
sagði henni þá að á Íslandi hefðu
allir unglingar verið í sveit eða á
sjó á sumrin. Anna sagðist alltaf
hafa tengt þessi orð Helga við
frammistöðu hans á sviðinu þar
sem hann hefði ætíð haft mjög sér-
stök tengsl við hinn ytri heim í list
sinni, sem mótuðu helstu einkenni
hans, þ.e.a.s. tærleika formsins og
hina stórkostlegu mennsku eins og
hún komst að orði.
Sæmd fálkaorðu
vegna skrifa um
Helga Tómasson
Ólafur Ragnar Grímsson ásamt Önnu Kisselgoff, aðaldansgagnrýnanda
New York Times, er hún var sæmd fálkaorðunni í New York í gær.
Anna Kisselgoff, aðalballett-
gagnrýnandi New York Times,
heiðruð af forseta Íslands
ÞEIR lentu heldur betur í ævintýr-
um í gær félagarnir Friðrik og
Smári, sem búa í Grafarvogi. Þeir
fóru í bíó Smáralind í Kópavogi, en
um það hafði verið talað að þeir
hringdu í foreldra sína sem ætluðu
að sækja þá þegar myndin væri bú-
in. Þeim gekk hins vegar illa að ná
sambandi við þá og eyddu öllum
peningum sínum í símann. Þegar
ljóst var að þeir myndu ekki ná
sambandi og að þeir ættu engan
pening í strætó gripu þeir til þess
ráðs að ganga heim í Grafarvog.
Gangan tók um þrjá klukkutíma.
Foreldrar þeirra voru farnir að ótt-
ast um þá og höfðu hafið leit þegar
þeir birtust. Friðrik og Smári, sem
eru einungis 10 og 9 ára, báru sig
vel þrátt fyrir erfiða göngu. „Ég
var orðinn dálítið aumur í tánum,“
sagði Friðrik.
Lögðu á sig þriggja
tíma göngu
Morgunblaðið/Þorkell
ÓLÍKLEGT er að Persónuvernd
vinnist tími fyrir kosningar til að
skila áliti á því hvort fulltrúum
stjórnmálaflokka sé heimilt sam-
kvæmt lögum um persónuvernd
að sitja inni í kjördeildum og
skrá hverjir taki þátt í kosn-
ingum. R-listinn óskaði eftir áliti
þessu 17. maí sl.
Sigrún Jóhannesdóttir, for-
stjóri Persónuverndar, segir að
henni hafi alls borist sex erindi í
þessa veru, fimm frá einstakling-
um og eitt frá R-listanum. Hún
segir að yfirkjörstjórn beri
ábyrgð á framkvæmd kosninga.
„Þar af leiðandi má segja að
þessar kvartanir beinist að
henni. Því ber okkur að senda yf-
irkjörstjórn þær til umsagnar.
Það höfum við gert,“ segir Sig-
rún.
Sigrún segir að yfirkjörstjórn
ætli að funda um málið fyrir há-
degi á morgun og því sé að
vænta svars frá henni seinna um
daginn. „Ég tel því hverfandi lík-
ur á að við náum að svara áður
en kjördagur rennur upp,“ segir
hún.
Krafa barst
frá R-listanum
Á fundi yfirkjörstjórnar
Reykjavíkur hinn 17. maí sl.
lögðu umboðsmenn R-listans,
Jón Sveinsson hrl. og Lára V.
Júlíusdóttir hrl., fram bókun þar
sem óskað var eftir að yfirkjör-
stjórnin leitaði álits Persónu-
verndar um þetta atriði. Yfir-
kjörstjórn hafnaði erindinu á
þeirri forsendu að hún teldi það
vera utan síns verkahrings. Í
kjölfarið sendu umboðsmennirnir
beiðnina til Persónuverndar.
Óskað eftir áliti Persónuverndar
Ólíklegt að
svar berist
fyrir kjördag
ÍSLANDSFLUG mun stórauka
sætaframboð sitt til Vestmannaeyja í
sumar. Félagið hefur ákveðið að taka
ATR-flugvél félagsins heim, en þessi
46 sæta vél hefur verið í verkefni á
Ítalíu í vetur. Jafnframt verður félag-
ið áfram með Dornier-flugvél á flug-
leiðinni. Félagið vonast til að geta
sinnt markaðnum enn betur með
þessari aukningu, auk þess sem hún
gefur möguleika á fjölbreyttari far-
gjöldum.
Viking Tours hefur samhliða þessu
ákveðið að auka kynningu á ferða-
möguleikum til Vestmannaeyja. Vik-
ing Tours munu leiða þá kynningu en
njóta stuðnings samgönguráðuneytis-
ins og Íslandsflugs. Vonast er eftir
góðu samstarfi við bæjaryfirvöld,
ferðamálaráð Vestmannaeyja og aðra
hagsmunaaðila í ferðaþjónustu í Vest-
mannaeyjum um að styðja við verk-
efnið. Viking Tours hefur sett upp eitt
bókunarnúmer, 4884884, til að ein-
falda væntanlegum ferðamönnum
skipulagningu og bókun á ferðum til
Vestmannaeyja.
Aukning á
sætaframboði
til Vest-
mannaeyja
REYKJAVÍKURLISTINN fengi
52,6% atkvæða og Sjálfstæðisflokk-
ur 40,8% ef kosið yrði nú samkvæmt
nýrri skoðanakönnun Gallup og
eykst munurinn á framboðunum lítið
eitt frá síðustu könnun Gallup sem
kynnt var í fyrrakvöld. Samkvæmt
þessari niðurstöðu er Reykjavíkur-
listinn með níu menn kjörna og Sjálf-
stæðisflokkurinn með sex menn.
Fylgi annarra lista er þannig að
Frjálslyndir og óháðir fá 4,3%, Höf-
uðborgarsamtökin 1%, Vinstri hægri
snú 1,3% og Húmanistar mælast
ekki með fylgi.
Samkvæmt niðurstöðum könnun-
arinnar ætla 3,7% ekki að kjósa eða
skila auðu, 9,6% eru óákveðin og
5,7% neita að svara. Könnunin var
gerð 20. og 21. maí og var úrtakið
1.350 manns. Svarhlutfall var 66,1%.
Samfylkingin með
meirihluta í Hafnarfirði
Gallup hefur einnig kannað fylgi
framboðanna í Hafnarfirði og sam-
kvæmt niðustöðunum er Samfylk-
ingin með 49,9% fylgi og sex bæj-
arfulltrúa, en Sjálfstæðisflokkurinn
með 41,9% og fimm menn kjörna.
Önnur framboð koma ekki að full-
trúa samkvæmt könnuninni. Fram-
sóknarflokkur fær 4,7% atkvæða og
Vinstri grænir 3,5%, en tæplega
fimmtungur aðspurðra er óákveðinn
eða 19,6%, 8,6% segjast ekki munu
kjósa eða skila auðu og 8,1% neitaði
að svara. Úrtakið var 1.200 manns og
svarhlutfallið 69,6% en könnunin fór
fram 16.–21. maí.
Reykjavík-
urlistinn
með 52,6%
FÉLAGAR í Húmanistaflokknum
mótmæltu því harðlega í gær að fá
ekki tækifæri til að kynna stefnumál
sín til jafns við önnur framboð í sjón-
varpsþættinum Silfur Egils sem
sendur var út á Skjá 1 í gærkvöldi.
Kröfðust þeir þess að yfirkjörstjórn
stöðvaði útsendinguna sem þeir
sögðu brot á stjórnarskrá og út-
varpslögum. Komu húmanistar að
sjónvarpshúsi Skjás 1 í gærkvöldi á
meðan útsending sjónvarpsþáttarins
stóð yfir til að koma mótmælum sín-
um á framfæri. Engin truflun varð
þó á útsendingu þáttarins.
Húmanistar
vildu stöðva
útsendingu
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦