Morgunblaðið - 23.05.2002, Side 10
FRÉTTIR
10 FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BJÖRN Bjarnason, efsti maður á
borgarstjórnarlista Sjálfstæðis-
flokksins, kynnti í gær ásamt
nokkrum meðframbjóðendum sín-
um verkefna- og aðgerðaáætlun
flokksins vegna borgarstjórnar-
kosninganna. Þar hefur verið sett
niður tímasett áætlun um hvenær
flokkurinn ætlar að vera búinn að
framkvæma sín stefnumál, komist
hann til valda eftir kosningarnar á
laugardaginn.
Er þetta á fjórða tug mála þar
sem níu þeirra á að vera búið að
framkvæma 48 klukkustundum eftir
kosningar, fjórtán mál eiga að vera
afgreidd 48 dögum eftir kosningar
og ellefu mál 48 vikum eftir kosn-
ingar.
Í samræmi við stefnuskrá og
samning við borgarbúa
Björn Bjarnason sagði á fundi
með blaðamönnum í gær að 48 mán-
uðum eftir kosningar, eða í lok kjör-
tímabilsins eftir fjögur ár, ætlaði
Sjálfstæðisflokkurinn að vera búinn
að efna þann samning við borgarbúa
sem nýlega var sendur inn á hvert
heimili í borginni. Hann sagði að
áætlunin væri í samræmi við þann
samning sem og stefnuskrá flokks-
ins. Í lok kjörtímabilsins yrði samn-
ingurinn birtur þar sem unnt yrði
að bera saman orð og efndir.
„Með þessu erum við að boða til
hvaða aðgerða við ætlum að grípa
strax um helgina, þegar við höfum
fengið umboð til að stjórna Reykja-
víkurborg,“ sagði Björn og bætti við
að aðgerðaáætlun hefði aldrei áður
verið lögð fram tímasett með þess-
um hætti.
„Það er í samræmi við hvernig við
höfum hagað okkar kosningabar-
áttu. Við viljum að hún snúist um
málefnin og sé rekin á jákvæðum
forsendum þannig að borgarbúar
hafi alveg skýra kosti. Við höfum
staðið þannig að málum af okkar
hálfu, framboðslistinn er samhuga
og samhentur og hefur komist að
sameiginlegri niðurstöðu fyrir kosn-
ingar um það hvernig hann ætlar að
vinna að framkvæmd sinnar stefnu-
skrár,“ sagði Björn og benti á að að-
gerðaáætlunin yrði auglýst ræki-
lega fyrir borgarbúum í dag þannig
að þeir vissu nákvæmlega að hverju
þeir gengju þegar þeir veittu Sjálf-
stæðisflokknum atkvæði sitt á laug-
ardaginn.
Björn sagði í samtali við Morg-
unblaðið að meginmarkmiðið með
aðgerðaáætluninni væri að gefa
kjósendum sem skýrasta kosti og
sýna fram á að stefnuskráin væri
framkvæmanleg með þessum hætti.
Björn sagðist ekki kvíða þeim sam-
anburði í lok tímabilsins þegar farið
yrði að bera saman orð og efndir
flokksins.
Lína.Net og Geldinganes með-
al fyrstu verkefna eftir helgi
Meðal þess sem Sjálfstæðisflokk-
urinn ætlar að vera búinn að gera
48 klukkustundum eftir kosningar
er að hefja rekstrarúttekt á fjár-
málum borgarinnar og fyrirtækja
hennar, hefja undirbúning að sölu á
Línu.Neti, stöðva það sem hann
kallar umhverfisslys í Geldinganesi,
gera áætlun um aukið aðgengi borg-
arbúa að upplýsingum og þjónustu,
boða til opinna borgarafunda í öllum
hverfum, boða til fundar með íbúum
og hagsmunaaðilum í miðborginni
og halda fund með dómsmálaráð-
herra til að fara yfir löggæslumál
borgarinnar. Þá ætla sjálfstæðis-
menn að vera búnir að óska eftir
viðræðum við ríkisvaldið um upp-
byggingu hjúkrunarrýma í borginni
þar sem Reykjavík skuldbindur sig
til að leggja fram minnst 250 millj-
ónir á ári til málaflokksins. Einnig
ætla þeir, tveimur dögum eftir
kosningar, að vera búnir að óska
eftir fundi með ríkisvaldinu og hags-
munaaðilum til að ræða framtíðar-
skipan Reykjavíkurflugvallar með
það að markmiði að mæta þörf fyrir
aukið byggingarland í borginni án
þess að vegið verði að flugöryggi
eða gengið gegn hagsmunum
Reykjavíkur og landsbyggðarinnar í
samgöngumálum.
Lækkun fasteignagjalda og
eyðing biðlista
Fjörutíu og átta dögum eftir
kosningar ætlar Sjálfstæðisflokkur-
inn m.a. að vera búinn að sam-
þykkja lækkun fasteignagjalds um
allt að 20% með afnámi holræsa-
gjaldsins, samþykkja að stórlækka
og leggja af fasteignaskatta og hol-
ræsagjöld á eldri borgara og ör-
yrkja, styrkja stöðu Orkuveitunnar,
taka ákvörðun um stuðning við upp-
byggingu dvalarheimilanna Eirar
og Hrafnistu og frekari uppbygg-
ingu Droplaugarstaða og leggja
fram áætlun um að eyða biðlistum
eftir leikskólaplássi þar sem öllum
börnum eldri en 18 mánaða er
tryggt leikskólapláss.
Samkvæmt aðgerðaáætluninni
ætlar Sjálfstæðisflokkurinn 48 vik-
um eftir kosningar m.a. að vera bú-
inn að fullnægja eftirspurn eftir
íbúðalóðum í Reykjavík með skipu-
lagningu byggðar á Geldinganesi, í
Gufunesi og á SVR-lóðinni við
Kirkjusand, leggja fram áætlun um
lagningu Sundabrautar og boða til
fyrstu Reykjavíkurleika íþrótta- og
áhugafólks.
Sjálfstæðisflokkurinn með tímasetta aðgerðaáætlun vegna borgarstjórnarkosninganna
Níu verkefni
afgreidd
á fyrstu 48
tímunum
Morgunblaðið/Ásdís
Björn Bjarnason, oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavík, kynnti aðgerðaáætlunina í kosningamiðstöðinni við
Skaftahlíð í gær ásamt Gísla Marteini Baldurssyni, Ingu Jónu Þórðardóttur, Kjartani Magnússyni, Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur, Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur og fleiri frambjóðendum.
25.maí2002
Reykjavík
SAMÞYKKT var samhljóða á fundi
skipulags- og byggingarnefndar
Reykjavíkur í gær, að tillögu Ingu
Jónu Þórðardóttur borgarfulltrúa,
að óska eftir við borgarráð að deili-
skipulagstillaga vegna rafstöðvar-
svæðisins í Elliðaárdal verði aft-
urkölluð. Auglýsing um
deiliskipulagið var hins vegar í
Morgunblaðinu í gær.
Árni Þór Sigurðsson, formaður
nefndarinnar, segir að þar sem
komið hafi í ljós að Stangaveiði-
félag Reykjavíkur (SVFR) er ósátt
við tillöguna hafi verið ákveðið að
afturkalla hana og leita lausna með
félaginu beint og milliliðalaust.
Segir greinilegt að nefnd-
armenn hafi verið blekktir
Inga Jóna segir greinilegt að
nefndarmenn hafi verið blekktir
þegar tillagan var afgreidd í skipu-
lagsnefnd 10. apríl sl. Nefndar-
menn hafi fengið þær upplýsingar
á sínum tíma að tillagan væri unn-
in í samráði við SVFR en nú hafi
komið á daginn að svo var ekki.
Tillagan tekur til rafstöðvar-
svæðisins í Elliðaárdal, um 16
hektara að stærð, og er markmið
hennar að heimila að byggja á
hentugum stað í dalnum byggingar
fyrir þjónustu og fræðslu fyrir not-
endur útivistarsvæðisins.Gerði til-
lagan m.a. ráð fyrir byggingum
fyrir orkuminjasafn, fornbílasafn,
fræðslustofu og aðstöðu fyrir
stangaveiðifélag og veiðimenn o.fl.
Í bókun sem Inga Jóna lagði
fram á fundinum segir að nú sé
komið í ljós, þvert á þær upplýs-
ingar sem lágu fyrir þegar tillagan
var samþykkt, að hún væri ekki
unnin í sátt og samvinnu við SVFR
og beiðni félagsins um lóð á svæð-
inu hafi greinilega verið ýtt til hlið-
ar. ,,Afgreiðsla skipulags- og bygg-
ingarnefndar var gerð á röngum
forsendum og ég geri þá kröfu að
auglýst deiliskipulagstillaga verði
afturkölluð,“ segir í bókun hennar.
Gert ráð fyrir aðstöðu SVFR
í tengslum við minjasafn
Í bókun fulltrúa R-lista segir að
sjálfsagt sé að afturkalla auglýs-
ingu um deiliskipulag í Elliðaárdal
m.t.t. misvísandi upplýsinga sem
bárust inn á fund skipulags- og
byggingarnefndar þann 10. apríl sl.
,,Varðandi fullyrðingu um að beiðni
Stangveiðifélagsins hafi verið ýtt
til hliðar er rétt að það komi fram
að gert er ráð fyrir aðstöðu fyrir
SVFR í tengslum við minjasafn í
dalnum. Þar fengi SVFR félagsað-
stöðu og rými fyrir starfsemi sína.
Ef fram eru að koma athugasemdir
frá SVFR varðandi þetta, er rétt
að endurskoða málið.“
Málið kemur væntanlega til
kasta borgarráðs næstkomandi
þriðjudag.
,,Þessi vinnubrögð eru með
hreinum ólíkindum,“ segir Inga
Jóna. ,,Það er mjög gagnrýnivert
að við í skipulagsnefndinni getum
ekki treyst þeim upplýsingum sem
við þar höfum. Við byggjum að
sjálfsögðu okkar afstöðu til mála á
þeim upplýsingum sem fyrir liggja.
Það er einhver samstarfshópur á
vegum Orkuveitunnar, sem er að
vinna að þessu og að koma fyrir
allskonar starfsemi sem Orkuveit-
an vill hafa þarna og einhvers stað-
ar á leiðinni verður misbrestur á.
Mér sýnist einnig að það sé ekki
bara nefndin sem hafi verið blekkt,
heldur hafi skipulagshöfundur til-
lögunnar líka verið blekktur og
hann verið í góðri trú um að
Stangaveiðifélagið vildi vera með í
þessari starfsemi. Það getur ekki
gengið að borgaryfirvöld ráðstafi
starfsemi einstakra félaga með
deiliskipulagstillögu inn í einhver
tiltekin hús,“ segir Inga Jóna.
Töldu að sátt væri á milli
allra hagsmunaaðila
,,Ástæðan mun hafa verið sú að
Stangaveiðifélagið var að gera at-
hugasemdir við sína félagsaðstöðu
en þeir deiliskipulagshönnuðir,
sem voru í þessu á þeirra vegum
og okkar, sögðu skipulagsnefndinni
að um þetta væri orðin sátt á milli
allra hagsmunaaðila,“ segir Árni
Þór. ,,Við höfðum út af fyrir sig
ekkert tékkað það af við hags-
munaaðilana, enda gerum við það
nú yfirleitt ekki en það kemur í
ljós að þeir voru ósáttir við þetta,
þannig að við ákváðum bara að aft-
urkalla auglýsinguna og leitum svo
lausna með þeim beint og milliliða-
laust,“ sagði hann.
Enginn kynnti breytinguna
fyrir SVFR
Bergur Þ. Steingrímsson, fram-
kvæmdastjóri SVFR, segir félagið
hafa átt í viðræðum undanfarin
þrjú ár við Reykjavíkurborg um
lóð á Rafstöðvarvegi 1. ,,Það var
búið að teikna okkur þar inn á
deiliskipulag og við vorum ánægðir
með það. En svo kemur í ljós að
fyrirvaralaust er búið að henda
okkur út af deiliskipulagi, sem lagt
var fram 10. apríl og komið í stað-
inn lítið og pent veiðihús,“ segir
hann.
,,Það hafði enginn úr borgar-
kerfinu samband við okkur vegna
þessa en við komust að þessu eftir
að búið var að leggja [tillöguna]
fyrir og samþykkja hana. Þegar
einhver spurðist fyrir um málið var
sagt að þetta væri gert í sátt og
samlyndi við Stangaveiðifélag
Reykjavíkur og að þörfum þess
væri mætt annars staðar í Elliða-
árdal. Það er hreinlega ósatt, það
hafði enginn samband við okkur,“
segir Bergur.
Skipulagsnefnd afturkallar auglýsta tillögu að deiliskipulagi í Elliðaárdal
SVFR ósátt við að falla fyrir-
varalaust út af skipulaginu
TVÍTUG kona og rúmlega tvítugur
karlmaður voru dæmd í 25 þúsund
króna sekt hvort fyrir líkamsárás á
Selfossi sl. haust og í byrjun þessa
árs. Bæði játuðu greiðlega brot sín.
Konan sló aðra konu nokkur högg í
höfuðið snemma morguns á nýárs-
dag sl. í þvottahúsi íbúðar á Selfossi
með þeim afleiðingum að hún hlaut
mar undir vinstra auga, eymsli og
bólgu við nefrót og eymsli undir
kjálka beggja vegna.
Karlmaðurinn sló annan hnefa-
högg í andlitið á Tryggvatorgi síðla
nætur í september sl. með þeim af-
leiðingum að brotaþoli fékk bólgu á
vinstri kinn.
Dómar í málum beggja gengu í
Héraðsdómi Suðurlands. Ingveldur
Einarsdóttir héraðsdómari kvað upp
dómana. Ásta Stefánsdóttir sýslu-
mannsfulltrúi sótti málin.
Dæmd
í sekt fyrir
líkamsárás
LÖGREGLAN í Reykjavík leysti
upp fíkniefnasamkvæmi á sunnu-
dagskvöld í miðbænum eftir tilkynn-
ingu um ungmenni við neyslu fíkni-
efna. Á vettvangi voru nokkrar
stúlkur á aldrinum 15–16 ára og
fimm karlmenn um tvítugt. Fannst
mikið af tækjum til fíkniefnaneyslu
ásamt leifum af fíkniefnum. Einnig
fundust hnúajárn og barefli við leit í
húsnæðinu. Lögreglan tók mennina
og vistaði þá í fangageymslu en for-
eldrar stúlknanna sóttu börn sín.
Málið er til frekari rannsóknar hjá
lögreglunni í Reykjavík.
Tekin við fíkni-
efnaneyslu
♦ ♦ ♦