Morgunblaðið - 23.05.2002, Síða 12
FRÉTTIR
12 FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ALÞÝÐUSAMBAND Íslands tók í
fyrradag í notkun nýtt húsnæði
sambandsins í Sætúni 1. Um er að
ræða fyrstu hæð byggingarinnar
þar sem Samvinnuferðir-Landsýn
voru áður til húsa. Efling – stétt-
arfélag, Lífeyrissjóðurinn Fram-
sýn og Landssamtök lífeyrissjóða
auk fleiri aðila, eru einnig með
skrifstofur sínar í húsinu.
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra var á meðal þeirra sem
óskuðu forseta Alþýðusambands-
ins til hamingju með nýja hús-
næðið í fyrradag.
„Það sem skiptir máli er að nú
erum við í sambýli með Starfs-
greinasambandinu og Sjómanna-
sambandinu. Félagslega skiptir
það auðvitað miklu máli fyrir Al-
þýðusambandið og vonandi þessi
sérsambönd líka. Þá er Efling
líka fyrir í húsinu sem skiptir
máli félagslega,“ segir Grétar
Þorsteinsson, forseti Alþýðu-
sambands Íslands.
Hann segir að ekki sé búið að
ganga frá sölu á húsnæði ASÍ við
Grensásveg en ýmis mál séu í
deiglunni sem kunni að skýrast á
næstunni.
„Við höfum út af fyrir sig ekki
miklar áhyggjur af því að við
losnum ekki við það.“
Alþýðusambandið festi kaup á
húsnæðinu í Sætúni í nóvember á
seinasta ári fyrir framtíð-
arstarfsemi sambandsins.
Morgunblaðið/Kristinn
ASÍ flytur í nýtt húsnæði
STEINUNN Valdís Óskarsdóttir,
borgarfulltrúi R-listans og formaður
Íþrótta- og tómstundaráðs Reykja-
víkur, ÍTR, segir að í umræðum í
borgarráði hefði það verið mat
manna að áhugi og geta annarra að-
ila, til að byggja upp líkamsræktar-
stöð í Laugardalnum í Reykjavík,
hefði ekki verið eins mikil og hjá
Birni K. Leifssyni í World Class. Í
Morgunblaðinu í gær mátti skilja orð
Steinunnar sem svo að það mat hefði
byggst á umsögn borgarverkfræð-
ings og framkvæmdastjóra ÍTR. Í
umsögn borgarverkfræðings, Stef-
áns Hermannssonar og fram-
kvæmdastjóra ÍTR, Ómars Einars-
sonar, til borgarráðs, frá 2. nóvember
1998, og birt er í heild í blaðinu í dag,
er hins vegar hvergi lagt mat á það að
áhugi eða geta Björns sé meiri en
hins aðilans sem sýndi verkefninu
áhuga, þ.e. Ágústu Johnson hjá
Hreyfingu. Slíkt mat kemur heldur
ekki fram í bréfi borgarverkfræðings
og framkvæmdastjóra ÍTR dagsettu
4. janúar 1999, en síðarnefnda bréfið
var lagt fram á fundi borgarráðs 16.
mars sama ár þegar ákveðið var að
taka upp viðræður við Björn Leifs-
son. Steinunn segir um þetta í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að það
kunni að vera að hún hefði ekki orðað
þetta nógu nákvæmlega í viðtali við
Morgunblaðið í fyrradag. „Það kann
að vera að þetta hafi verið misvísandi
hjá mér,“ segir hún „en það er alveg
klárt hvernig málið liggur. Borgar-
verkfræðingur og framkvæmdastjóri
ÍTR skiluðu inn umsögn um málið til
borgarráðs. Þar fór fram umræða um
umsögnina. Síðan var hins vegar
ákveðið, eftir ekki bara umræður í
borgarráði heldur líka viðræður við
borgarverkfræðing og framkvæmda-
stjóra ÍTR, að fara ekki í forval.
Menn töldu m.a. að Björn Leifsson
ætti í þessu máli að fá að njóta frum-
kvæðis síns,“ segir Steinunn og vísar
til þess að Björn hafi átt hugmyndina
að því að byggja líkamsræktarstöð
við nýju sundlaugina í Laugardal.
Steinunn ítrekar að það hafi verið
samdóma álit allra sjö borgarráðs-
fulltrúa að ganga til samninga við
Björn á fundi 16. mars 1999. Á sínum
tíma hefði svo verið rætt um málið í
fjölmiðlum og rætt við málsaðila.
„Þess vegna hlýt ég að velta því fyrir
mér hvort þessi fréttaflutningur [af
umræddu máli] dag eftir dag tengist
á einhvern hátt komandi kosningum
og áróðursstríði minnihlutans í borg-
arastjórn Reykjavíkur.“
Vilji annarra yrði kannaður
Inga Jóna Þórðardóttir, borgar-
fulltrúi D-listans, leggur áherslu á að
þegar ákvörðun hafi verið tekin um
það í borgarráði 16. mars 1999 að
taka upp viðræður við Björn Leifsson
í World Class hafi málið verið kynnt
þannig í borgarráði að aðeins einn að-
ili hefði haft áhuga á verkefninu. „Á
sínum tíma, þegar við erum að taka
afstöðu til málsins eða í mars 1999, er
ekki verið að ræða um neitt forval,“
segir Inga Jóna. „Þá lá fyrir niður-
staða úr könnunarviðræðum sem
borgarverkfræðingi og fram-
kvæmdastjóra ÍTR var falið að fara
út í. Niðurstaða þeirra var kynnt með
þeim hætti í borgarráði að það væri
einungis um einn aðila að ræða sem
hefði sýnt raunverulegan áhuga;
komið fram með hugmyndir og sýnt
að hann hefði burði og getu til að ráð-
ast í þetta verkefni. Á þeim forsend-
um er ákveðið að ganga beint til
samninga við hann.“ Inga Jóna segir
að þá hefðu verið liðin nokkuð mörg
ár frá því Björn Leifsson hefði sett
fram upphaflegu hugmyndina um lík-
amsræktarstöð í Laugardalnum.
„Við sjálfstæðismenn lögðum hins
vegar á það áherslu á fyrri stigum
málsins að vilji annarra yrði jafn-
framt kannaður. Þess vegna var farið
í þessar könnunarviðræður og sam-
þykkt að gera það í nóvember 1998,“
útskýrir Inga Jóna. Í bréfi borgar-
verkfræðings og framkvæmdastjóra
ÍTR til borgarráðs, dagsett 4. janúar
1999, kemur fram að báðir þeir aðilar
sem lýst hafi yfir áhuga á verkefninu,
þ.e. Björn í World Class og Ágústa
hjá Hreyfingu, hafi enn áhuga á mál-
inu. Bréfið var lagt fram á fundi
borgarráðs 12. janúar 1999, en þar
var frestað að taka það til umræðu,
og það aftur lagt fram á fundi borg-
arráðs 16. mars sama ár, eins og fyrr
sagði. Spurð um þetta bréf, segir
Inga Jóna að bréfið hafi verið lagt
fram 16. mars með þeim skýringum
að það væri einungis einn aðili sem
hefði enn áhuga á málinu, þ.e. Björn
Leifsson, enda bréfið skrifað rúmum
tveimur mánuðum áður eða 4. janúar.
Byggt á viðræðum
við Björn
Í umræðunni um þetta mál hefur
komið fram hjá fulltrúum R-listans
að Björn Leifsson hafi haft meiri
burði en aðrir til að sinna verkefninu
í Laugardalnum. Spurð að því á
hvaða mati það byggist segir Stein-
unn að það hafi m.a. byggt á viðræð-
um við Björn á sínum tíma. „Borg-
arlögmaður fór yfir það þegar
samningurinn var gerður við Lauga
ehf., félag í eigu Björns Leifssonar,
hvort Laugar væru í skilum og svo
frv. Þar kom ekkert óeðlilegt í ljós,“
segir Steinunn og bendir á að sú
málsmeðferð sé í samræmi við ákveð-
in vinnubrögð sem borgin viðhafi
þegar gerðir eru samningar sem
þessir.
„Við erum ekkert að fara sérstak-
lega ofaní bankabækur viðkomandi
aðila en ef menn eru í skilum og reka
rekstur sem ber sig og eru hvergi á
neinum svörtum lista höfum við enga
ástæðu til að ætla annað en að fólk
geti staðið undir svona fjárfestingu.“
Steinunn bætir því við að þó svo komi
í ljós í framtíðinni að ekkert verði af
uppbyggingunni í Laugardalnum af
hálfu Lauga sé það tryggt að nýja
keppnislaugin verði byggð. Enn-
fremur sé það tryggt að það svæði
sem fara á undir heilsuræktina verði
ekki ráðstafað til annars en íþrótta-
starfsemi.
Uppbygging heilsuræktarstöðvar í Laugardalnum
Málið kynnt þannig
að einungis einn
hafi haft áhuga
HÉR á eftir eru birt í heild bréf sem Stefán
Hermannsson borgarverkfræðingur og Ómar
Einarsson, framkvæmdastjóri Íþrótta- og tóm-
stundaráðs skrifuðu til borgarráðs, hinn 2. nóv-
ember 1998 og 4. janúar 1999. Fyrra erindið var
lagt fram á fundi borgarráðs 3. nóvember 1998
og samþykkt af borgarráði. Síðara erindið var
fyrst lagt fram í borgarráði 12. janúar 1999. Þar
var því hins vegar frestað að ræða erindið. Það
var aftur lagt fram í borgarráði 16. mars. Á þeim
fundi samþykkti borgarráð að taka upp viðræð-
ur við Björn K. Leifsson í World Class vegna lík-
amsræktarstöðvar í Laugardalnum.
Fyrra bréfið, sem dagsett er 2. nóvember
1998, hljóðar svo: „Á fundi borgarráðs 18. ágúst
sl. var lagt fram bréf undirritaðra dags. 31. júlí
1998, varðandi lóð fyrir líkamsræktarstöð við
sundlaugarnar í Laugardal. Borgarráð sam-
þykkti að kannaður yrði áhugi einkaaðila á að
koma að uppbyggingu og rekstri heilsuræktar-
stöðvar í tengslum við sundlaugarnar og fól und-
irrituðum að undirbúa tillögu um hvernig að
könnun skyldi staðið.
Eftirfarandi eru tillögur um hvernig staðið
verði að þessu í áföngum:
1. Könnun á áhuga. Þegar hafa tveir aðilar
lýst yfir áhuga á þessu og óskað eftir viðræðum
um málið. Er lagt til að undirrituðum verði falið
að ræða við þá, og verði með viðræðunum kann-
að hvort áhugi er enn til staðar hjá báðum að-
ilum og hvort þeir geri athugasemdir við þá að-
ferð sem hér á eftir er lögð til og hvort þeir hafi
áhuga á því útboðsformi sem þar kemur fram.
Að loknum þessum könnunarviðræðum er
lagt til að borgarráði verði gerð grein fyrir við-
brögðum áður en lengra er haldið.
2. Forval. Að lokinni könnun tekur borgarráð
ákvörðun um framhaldið, en hér er lagt til að
auglýst verði forval á vegum ISR, að því til-
skildu að í viðræðunum komi ekkert óvænt í ljós
og að áhugi sé enn til staðar hjá a.m.k. einum að-
ila til að bjóða í starfsaðstöðu með þeim hætti
sem hér verður lýst.
Í forvali verði auglýst eftir þeim sem áhuga
kunna að hafa á að gera samning við borgina um
þetta mál með þeim skilmálum sem hér fara á
eftir. Í umsókn sinni skyldu þeir tilgreina hvers
konar starfsemi og hve umfangsmikla þeir hafa
áhuga á að reka á þessum stað, hversu stórt hús
þeir hefðu áhuga á að reisa, hvaða þjónustu þeir
þar myndu bjóða, og hvort þeir myndu sam-
þykkja þá skilmála sem hér fara á eftir. Auk
þess skyldu þeir gefa upplýsingar um umsvif
núverandi reksturs fyrirtækisins og veita upp-
lýsingar um fjárhagslega stöðu þess.
Þegar umsóknir hafa borist í forvali verða
þær metnar og þeim sem álitlegastar umsóknir
eiga, einum eða fleiri, gefinn kostur á að gera til-
boð.
3. Lokað samstarfsútboð. Í útboðslýsingu
verði tilgreint hvaða skilmálar myndu gilda um
gerð hússins, hæð þess og stærð, svo og kröfur
um listræn gæði (húsagerðarlist) og tæknilegar
kröfur um gæði og búnað m.a. með tilliti til
hreinlætis. Um gjöld svo sem gatnagerðargjöld,
heimtaugagjöld og önnur opinber gjöld myndu
gilda almennir skilmálar, en sérstakt gjald væri
tiltekið vegna bílastæða sem yrðu sameiginleg
með sundlauginni og öðrum íþróttamannvirkj-
um í Laugardal. Auk þess er lagt til að sérstakt
gjald kæmi til vegna þessarar aðstöðu, bjóðend-
ur myndu bjóða í það en lágmark væri tilgreint í
útboðslýsingu.
Lóð væri afmörkuð fyrir húsið miðað við
grunnflöt þess eða eftir nánara samkomulagi og
verður lóðaleiga reiknuð eftir þeim almennu
reglum sem þar um gilda á hverjum tíma. Þá
verði þar tilgreint hvaða kjara gestir heilsu-
ræktarstöðvar muni á samningstímanum njóta
fyrir aðgang að sundlaugunum, en í tilboði
skyldi tilgreint hvaða kjör gestir sundlaugarinn-
ar fengju í heilsuræktarstöðinni.
Í útboðslýsingu skyldi jafnframt gerð grein
fyrir hugmyndum um samstarfssamning ÍTR
(rekstraraðila sundlauga) og rekstraraðila
heilsuræktastöðvar um sameiginlega rekstrar-
þætti.
Í tilboði skyldi koma fram hversu mikið um-
fram venjuleg gjöld tilboðsaðili vilji greiða fyrir
þessa aðstöðu, hve stórt hús bjóðandi hyggst
reisa og hvaða þjónustu hann hyggst veita þar.
Vegna hinnar óvenjulegu staðsetningar á
þessu mannvirki er lagt til að borgarsjóði verði
tryggður forkaupsréttur og kaupréttur á því
ásamt öllum réttindum sem því fylgja.
Við mat á tilboðum er lagt til að auk verðs og
tekna borgarsjóðs vegna bygginga og væntan-
legs reksturs, verði metið hversu vel rökstuddar
tillögur bjóðenda eru, hve umfangsmikil og góð
þjónusta verður í boði, hver reynsla er af rekstri
fyrirtækisins og hver fjárhagsleg staða þess er.
Gæti t.d. fjárhagslegur þáttur vegið 60% en aðr-
ir þættir 40%
4. Hugmyndasamkeppni. Nú stendur yfir
samkeppni: „Hugmyndasamkeppni um 50 m yf-
irbyggða keppnislaug í Laugardal.“ Þar kunna
að koma fram tillögur sem gefa mismunandi
möguleika á því fyrirkomulagi á samrekstri
heilsuræktarstöðvar og sundlaugar sem þær
hugmyndir sem hér eru til umfjöllunar byggjast
á. Því er mikilvægt að allir fletir á þessu máli
komi til skoðunar hjá borgaryfirvöldum á sama
tíma. Er því lagt til að niðurstaða útboðs, ef sam-
þykkt verður, komi til umfjöllunar í borgarráði
samhliða niðurstöðu dómnefndar í hugmynda-
samkeppninni.“ Undir bréfið rita: Ómar Einars-
son, framkvæmdastjóri ÍTR og Stefán Her-
mannsson, borgarverkfræðingur.
Báðir aðilar hafa áhuga
Síðara bréfið, sem dagsett er 4. janúar, 1999
hljóðar svo: „Í framhaldi af bréfi undirritaðra til
borgarráðs dags. 2. nóvember sl. varðandi lóð
fyrir líkamsræktarstöð við sundlaugina í Laug-
ardal höfum við rætt við þá tvo aðila sem lýst
höfðu áhuga á þessu máli.
Báðir aðilar hafa að nýju lýst því yfir að áhugi
þeirra sé enn til staðar og að þeir geri ekki at-
hugasemdir við þá aðferð sem lýst var í bréfi
okkar frá 2. nóvember sl.
Í bréfinu sagði m.a: „Að loknum þessum
könnunarviðræðum er lagt til að borgarráði
verði gerð grein fyrir viðbrögðum áður en
lengra er haldið“.
Það er hér með gert og því þarf borgarráð að
taka ákvörðun um framhald þessa máls áður en
lengra er haldið.
Til frekari upplýsinga er jafnframt rétt að
skýra borgarráði frá því að í ársbyrjun mun
dómnefnd dæma og skila niðurstöðum í sam-
keppni um yfirbyggingu 50 metra sundlaugar í
Laugardal við hlið núverandi mannvirkja og
hugsanlegri líkamsræktarstöð.“
Undir bréfið rita Stefán Hermannsson borg-
arverkfræðingur og Ómar Einarsson, fram-
kvæmdastjóri ÍTR.
Lagt til að farið
verði í forval
BRIGHT EYE nefnist alþjóðleg
leitar- og björgunaræfing á vegum
Atlantshafsbandalagsins (NATO)
sem fulltrúar níu landa taka þátt í
hér á landi og lýkur í dag. Friðþór
Eydal, upplýsingafulltrúi Varnar-
liðsins, segir að einkum sé verið að
æfa samskipti milli björgunar-
stjórnstöðva í norðanverðu Atlants-
hafi og styrkja samstarf nágranna-
ríkja innan NATO á sviði leitar og
björgunar.
Í fréttatilkynningu frá Landhelg-
isgæslu Íslands kemur fram að leit-
arflugvél og varðskip frá gæslunni
hafi tekið þátt í æfingunni, leitar-
flugvélar frá Flugmálastjórn og
varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli
auk björgunarþyrlu og varðskips
frá Færeyjum. Þá hafi þyrlur varn-
arliðsins verið í viðbragðsstöðu.
Friðþór segir að æfingarnar hér
við land fari fram á hafinu suð-
austur af landinu, á milli Íslands og
Færeyja. Fyrr í þessum mánuði
fóru fram æfingar við Eystrasalt og
Norðursjó, sem einnig voru hluti af
björgunaræfingunni.
NATO löndin sem taka þátt í æf-
ingunni eru auk Íslands, Belgía,
Danmörk, Þýskaland, Holland,
Noregur, Bretland og Bandaríkin.
Svíar, sem ekki eiga aðild að banda-
laginu, taka einnig þátt í æfingunni.
Leitar- og björgunaræfing NATO
Æfa samskipti við
leit og björgun