Morgunblaðið - 23.05.2002, Síða 14

Morgunblaðið - 23.05.2002, Síða 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 14 FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ GOLFHERMAR, fullkominn tækjasalur, þolfimi, verslun, veitingastaður, hnefaleikar, skvass, tennis, fótbolti, körfu- bolti, badminton, gufubað, jóga, sjúkraþjálfun og margt fleira verður hægt að nálgast í nýju alhliða heilsuræktar- stöðinni sem opnuð verður í Dalsmára í Kópavogi í ágúst. Húsið sem áður var Tennis- höll Kópavogs verður nýtt undir stöðina og verður ný og glæsileg miðbygging, sem mun m.a. hýsa móttöku og verslun, rísa á næstu vikum. Það eru fyrirtækin Sport- vangur og Baðhúsið sem sam- einast hafa um rekstur hins nýja Sporthúss. Áætlaður kostnaður við bygginguna nemur um 200 milljónum króna. Stöðin verður rúmir 6.000 fermetrar að flatarmáli og á að geta þjónað um 15 þúsund manns að sögn Þrast- ar Jóns Sigurðssonar og Páls Kristjánssonar frá Sporthús- inu. Fylgst náið með árangri Byggingaraðili hússins er Norðurstál. Nú er búið að rífa eldri byggingu sem var milli húsanna tveggja sem munu hýsa Sporthúsið og einnig er vinna við að setja upp milli- veggi og annað inni í húsunum sjálfum hafin, en fram- kvæmdir hófust fyrir um tveimur vikum. Nýja mið- byggingin mun taka að rísa innan fárra daga. Ýmsar nýjungar verða í Sporthúsinu og má þar nefna svokallaðan þjónustulykil sem veitir fólki aðgang að stöðinni og skráir niður allar æfingar sem viðkomandi gerir. „Iðk- endur geta látið setja upp fyr- ir þig æfingaprógramm í þjónustulykilinn, gengið síðan á milli tækja, stungið honum í og fengið upplýsingar um hvað þú átt að gera,“ útskýrir Þröstur. „Síðan getur þú prentað út árangur og hvern- ig þú fylgir prógraminu eftir.“ Páll segir mikla eftirspurn eftir golfhermum, enda golfið ein vinsælasta íþróttagrein sem stunduð sé hér á landi. „Aðstaða hefur ekki fylgt auknum áhuga að en Sport- húsið kemur til með að bæta úr því.“ Páll segir að hugsanlega komi milli 30 og 40 manns til með að vinna í Sporthúsinu en viðræður við starfsfólk standa yfir. „Við sjáum skemmtilega íþróttahöll rísa sem á að þjóna mjög breiðum hópi fólks á ýmsum sviðum.“ Alhliða heilsurækt verður í Sporthúsinu Morgunblaðið/Golli Búið er að rífa eldri miðbyggingu á lóðinni. Kópavogur Svona kemur Sporthúsið í Kópavogi til með að líta út að utan þegar húsið verður fullbyggt en framkvæmdir við miðbygginguna hefjast á allra næstu vikum. FYRSTA skóflustunga að Hamraborg 8, byggingu yfir Hafnarfjarðarveginn sem til þessa hefur klofið miðbæ Kópavogs, var tekin af Gunn- ari Birgissyni, formanni bæj- arráðs, í gær. Í fréttatilkynn- ingu segir að þetta sé fyrsta bygging sinnar tegundar á Ís- landi þar sem húsnæði er byggt yfir fjölfarin umferðar- mannvirki. Byggingin sem um ræðir er fyrsti hluti yfirbyggingar allr- ar gjárinnar á milli brúna og kemur til með að tengja vel saman eldri kjarna Hamra- borgar við nýja tónlistar- og náttúrugripasafnshúsið og Gerðarsafnið. Húsið verður á tveimur hæðum og er grunnflötur hvorrar hæðar u.þ.b. 1.000 fermetrar. Gert er ráð fyrir að í byggingunni verði m.a. op- inber stofnun, verslanir, lyfja- verslun og fleira. Ráðgert er að framkvæmd- ir hefjist nú um mánaðamótin og að húsið verði fullbúið að ári liðnu. „Steyptir verða burðar- veggir upp í sömu hæð og brýrnar og á milli þeirra koma stálbitar,“ segir Krist- inn Jörundsson hjá Ris ehf. sem er lóðarhafi og bygging- araðili hússins. „Ofan á þá koma síðan holplötur. Húsið sjálft verður síðan byggt ofan á þetta. Endar hússins og miðja verða uppsteypt, en á milli koma stálbitar og hol- plötur. Báðar langhliðar húss- ins verða síðan alsettar glugg- um og léttri klæðningu.“ Ris ehf. vinnur verkið í samvinnu við Kópavogsbæ og Vegagerðina og er heildar- kostnaður við framkvæmdirn- ar áætlaður 300–350 milljónir króna. Benjamín Magnússon arkitekt hannaði húsið og Verkfræðistofan Hamraborg annast hönnun burðarvirkis og lagna. „Húsið fellur inn í heildar- mynd miðbæjar Kópavogs,“ segir Kristinn, „sem er í sam- ræmi við verðlaunatillögu sem unnin var af Benjamín Magnússyni arkitekti og Auði Sveinsdóttur landslagsarki- tekti.“ Morgunblaðið/Golli Gunnar Birgisson, formaður bæjarráðs, tekur fyrstu skóflustungu að yfirbyggingu yfir gjána í Kópavogi. Byggt yfir gjána Kópavogur STUÐNINGSMENN Víkinga geta farið að hlakka til sum- arsins í Víkinni því þar er verið að koma upp nýrri áhorfendastúku og mun fyrsti áfangi hennar, sem nú er í byggingu, rúma 1.160 manns í sæti. Fyrsti leikurinn sem áhorfendur geta fylgst með úr nýju stúkunni fer fram næstkomandi sunnu- dagskvöld kl. 20 milli Víkings og Stjörnunnar í 1. deildinni. Bygging stúkunnar hófst fyrir tæpu ári. „Stúkan verð- ur algjör bylting þegar hún er komin í gagnið,“ segir Þór Símon Ragnarsson, formaður Víkings. „Það er óhætt að segja að stúkan sé lang- þráður draumur okkar Vík- inga.“ Áætlað er að stúkan með þaki og sætum kosti um 60 milljónir króna fullbúin. Áætlanir eru einnig um að nýta hana sem geymslurými fyrir ýmsan búnað félagsins. Framkvæmdirnar hafa verið fjármagnaðar með fram- lögum félagsmanna og 10 milljónir króna komu frá Reykjavíkurborg. „Við eig- um síðan eftir að fjármagna áframhaldið, en við erum ekki í miklum lántökum ennþá. Við stefnum að því að afla fjár enn frekar meðal fé- lagsmanna og eins vonumst við til að fá frekari stuðning frá borginni, en viðræður eru í raun ekki komnar í gang ennþá.“ Þór segist bjartsýnn á að fjármögnunin gangi vel, með hjálp félagsins og ann- arra. Þór segir að Víkingur hafi nýverið fengið fjárveit- ingu til lagfæringa á húsnæði sínu. „Við erum með óinn- réttað 200 fermetra rými í kjallaranum sem okkur er farið að vanta undir starf- semina. Við stefnum að því að hefja framkvæmdir þar á þessu ári.“ Þór segir að rým- ið verði innréttað sem bún- ingsklefar, geymslur og fé- lagsaðstaða. Þór vonast til að með bættri aðstöðu við höf- uðstöðvar Víkings aukist að- sókn á völlinn. „Við væntum þess að fleiri áhorfendur láti sjá sig, það hefur mikil áhrif og heilmikið að segja.“ Morgunblaðið/Golli Þegar þessi mynd var tekin fyrir tveimur vikum var að komast endanleg mynd á stúkuna. Ný stúka á velli Víkings Fossvogur STARFSMENN á vegum Reykjavíkurborgar eru þessa dagana í óða önn að fegra borgina fyrir sum- arið með gróðursetningum, tiltektum og öðru sem gleður augað. Ungt fólk hafði komið sér fyrir í Ártúnsbrekkunni er ljósmyndari Morg- unblaðsins átti þar leið um í gær. Með skóflur og lit- skrúðug blóm að vopni ætl- uðu þau að setja mark sitt á brekkuna með merki borgarinnar. Morgunblaðið/Golli Merki borgarinnar gróðursett Ártúnsholt ÞEIR sem ganga með arki- tekt eða byggingaverkfræð- ing í maganum geta nú látið ljós sitt skína því næstkom- andi laugardag efnir dag- skrárnefnd Arkitektafélags Íslands og Íþrótta- og tóm- stundaráð Reykjavíkur til sandkastalakeppni á yl- ströndinni í Nauthólsvík. Keppnin er öllum opin og geta hvort heldur einstak- lingar eða hópar tekið þátt. Keppendur þurfa að taka með sér skóflu og önnur verkfæri til sandkastalagerð- arinnar en stórtækum bygg- ingarmönnum skal bent á að vélknúin verkfæri eru ekki leyfð. Keppnin hefst klukkan 12:00 og lýkur kl. 15:00. Verðlaunaafhending verður klukkan 15:30 þegar dóm- nefnd hefur lokið störfum. Veitt verða verðlaun fyrir frumlegasta sandkastalann, bestu eftirmyndina og einnig verða veitt sérstök barna- verðlaun fyrir keppanda/ keppendahóp yngri en 12 ára. Dómnefndina skipa myndlistarmaður, arkitekt og fulltrúi frá ÍTR. Glæsibyggingar úr sandi Nauthólsvík SAMÞYKKT var í borgarráði í vikunni að veita 50 milljón- um króna aukalega til að ráða allt að 200 skólanema til sum- arstarfa hjá stofnunum og fyrirtækjum Reykjavíkur- borgar. Í samþykktinni segir að Vinnumiðlun skólafólks sé falið að gera tillögur um vinnustaði í samráði við við- komandi stofnanir. Alls sóttu 2.160 skólanemar um sumarstarf hjá Vinnu- miðlun skólafólks en sam- kvæmt könnun eru 1.825 um- sóknir af þeim gildar. Áður en viðbótarfjárveiting var heim- iluð var fyrirhugað að ráða 946 skólanema til starfa hjá fyrirtækjum og stofnunum borgarinnar og því voru 879 án starfa. Í framhaldi af könnun á at- vinnumálum skólafólks sem borgarráð samþykkti að ráð- ast í var kannað hvaða stofn- anir gáti tekið við fleira fólki til starfa innan fjárhags- ramma viðkomandi stofnunar og með viðbótarfjárveitingu sem nú hefur verið heimiluð. Viðbótarfjárveiting vegna sumarvinnu skólafólks Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.