Morgunblaðið - 23.05.2002, Page 17
Alls hafa borist tæplega 550
ábendingar um barnaklám frá
notendum Netsins hér á landi,
eða tæplega 100 á mánuði að
meðaltali, frá því verkefni Barna-
heilla, Stöðvum barnaklám á Net-
inu, fór af stað í lok október sl.
Þá var komið upp tilkynninga-
hnappi á vef samtakanna,
www.barnaheill.is, þar sem not-
endur Netsins eru hvattir til að
láta vita ef þeir rekast á barna-
klám. Allar vefsíður með barna-
klámi, sem Barnaheill hafa fengið
ábendingar um hingað til, eru
vistaðar á netþjónum erlendis.
„Þessi viðbrögð sýna að Íslend-
ingar láta sig þetta mál miklu
varða og eru tilbúnir að vinna
með Barnaheillum að því að upp-
ræta það ofbeldi á börnum sem
hefur viðgengist á Netinu. Og við
erum ekki ein í þessari baráttu
því fleiri samtök og félög hér á
landi, s.s. Heimili og skóli og
bandalag evrópskra tölvunot-
enda (CECUA), vinna einnig að
því að auðvelda foreldrum að
verja börn sín gegn hættum á
Netinu,” segir Kristín Jónasdóttir
framkvæmdastjóri Barnaheilla.
Barnaheill eiga aðild að Inhope,
alþjóðlegum samtökum sem berj-
ast gegn barnaklámi á Netinu.
Verkefnið nýtur styrks undir fram-
kvæmdaáætlun Evrópusambands-
ins um öryggi á Netinu, Safer
Internet Action Plan.
Starfsfólk Barnaheilla fylgir
reglum Inhope um meðferð
ábendinga. Vefsíður sem ábend-
ingar berast um eru skoðaðar og
metið hvort á þeim komi fram
barnaklám. „Sem betur fer er ekki
alltaf um barnaklám að ræða
og/eða vefsíða er þannig sett upp
að það er erfitt fyrir okkur að
meta það. Stundum hefur síðum
verið lokað eða slóðum breytt. Því
er brýnt að skoða ábendingar
fljótt og koma þeim í réttan
farveg. Upplýsingar um síður, sem
virðast vistaðar í landi þar sem
Inhope starfar, eru sendar áfram
til samstarfsfólks þar. Að öðrum
kosti er lögreglu hér tilkynnt um
slóðirnar.”
Kristín segir að hið alþjóðlega
samstarf Inhope og yfirvalda hafi
þegar leitt til handtöku barna-
níðinga í mörgum löndum og
fjöldi barna hafi fengið hjálp.
Hún hvetur notendur Netsins hér
á landi til að halda áfram að
senda ábendingar til Barnaheilla
og taka þannig þátt í því að
stöðva barnaklám á Netinu. „Því
fleiri sem leggja okkur lið, því
meiri von gefum við þeim börn-
um sem verða fyrir þessu ofbeldi
og óhamingju.”
Tvö ungmenni, Haukur Sigurðsson
og Íris Ósk Traustadóttir, voru full-
trúar Íslands á Barnaþingi Samein-
uðu þjóðanna sem haldið var í
New York nú í maí í tengslum við
aukaallsherjarþing Sþ um réttindi
barna. Ráðgert hafði verið að
halda þingið í september á síðasta
ári en því var frestað vegna
hryðjuverkanna í New York. Páll
Pétursson félagsmálaráðherra
leiddi opinbera sendinefnd Íslands
en í henni áttu m.a. sæti tveir full-
trúar frá Barnaheillum.
Barnaþingið sóttu 350 börn og
ungmenni víðs vegar að úr heim-
inum. „Tilgangurinn með þing-
inu var m.a. að gefa ungu fólki
tækifæri til að hafa áhrif á fram-
kvæmdaáætlun sem snertir þeirra
málefni. Félagsmálaráðuneytið
og fastanefnd Íslands hjá Sþ eiga
þakkir skildar fyrir góða skipu-
lagningu. Fulltrúar Íslands, þau
Haukur og Íris Ósk, stóðu sig frá-
bærlega og voru góðir fulltrúar
lands og þjóðar,” segir Kristín
Jónasdóttir.
F R É T T I R A F S T A R F S E M I N N I
1. TBL. 3. ÁRG. MAÍ 2002
Barnaheill-Save the Children Iceland
Laugavegi 7, 101 Reykjavík
Sími: 561 0545 Fax: 552 2721
Ábyrgðarmaður: Krístín Jónasdóttir
barnaheill@barnaheill.is
www.barnaheill.is
P
R
[pje err]
Barnaheill þakka stuðninginn:
Akraneskaupstaður
Akureyrarbær
Austurbæjarskóli
Ás fasteignasala
Bárðdælahreppur
Bifreiðaverkstæði Kópavogs
Bolungarvíkurkaupstaður
Borgarbyggð
Bónstöð Reykjavíkur
Breiðagerðisskóli
Búðarhreppur
Dalvíkurbyggð
Davíð S. Jónsson
Deiglan
Eignamiðlunin
Endurskoðun Norðurlands
Fagus hf.
Félag málmiðnaðarmanna
Flugleiðir
Garðabær
Glerborg ehf.
Grindavíkurbær
Hagaskóli
Hátækni ehf.
Hitaveita Suðurnesja
Hríseyjarhreppur
Húsavíkurbær
Ísafjarðarbær
Ísboltar hf.
Íslandsbanki
Íslandsmarkaður
Íslensk tækni ehf.
Íslenskir söfnunarkassar
J.Á. Verktakar
Jón Ásbjörnsson hf.
Kaupþing
Kemís
Kjarnavörur
Kópavogsbær
KPMG Endurskoðun
Kvótasalan ehf.
Leikskólar Reykjavíkur
Omega Farma
Ó. Johnson & Kaaber
Raflagnir Íslands
Raftæknistofan hf.
Rolf Johansen
Selfossveitur
Seltjarnarnesbær
Sementsverksmiðjan
Skipasýn
Skólaskrifstofa Kópavogs
Skráningarstofan hf.
Skútustaðahreppur
Smith & Norland
Sparisjóður vélstjóra
Spennubreytar
Starfsmannafél. ríkisstofnana
Stilling ehf.
Stjarnan ehf.
Súðavíkurhreppur
Sveitarfélagið Hornafjörður
Sveitarfélagið Ölfus
Sæhamar
Tempra hf.
Texti ehf.
Trésmiðja Þráins E. Gíslas.
Útgerðarfélagið Bára
Veiðarfærasalan Dímon ehf.
Veiðarfæraverslunin Verbúðin
Verðlagsstofnun
Verkfræðistofan Afl
Verkfræðistofan Vista
Verzlunarmannafélag Rvk.
Vestmannaeyjabær
Vídd ehf.
Þórsberg ehf.
AUGLÝSING
Börn eru okkar hjartans mál
Ríkisstjórn Íslands hefur styrkt
neyðaraðstoð Save the Children
fyrir börn í Afganistan um tvær
milljónir króna. Kristín Jónasdóttir
framkvæmdastjóri segir mikilsvert
að geta tekið þátt í hjálparstarfi
fyrir börn erlendis með stuðningi
ríkisstjórnarinnar og að þetta fé
muni renna til uppbyggingar
skólastarfs í Afganistan.
0
20
40
60
80
100
120
Nóv Des Jan Feb Mar Apr
Á b e n d i n g a r
Kiwanismenn styðja
við Geldingalæk
Kiwanisklúbburinn Höfði hefur
frá upphafi stutt við meðferðar-
heimili Barnaheilla á Geldinga-
læk sem nú hefur verið starfrækt
í tæp tíu ár í samvinnu við
Barnaverndarstofu. Þar dvelja að
jafnaði sex börn.
Kiwanismenn hafa farið í vinnu-
ferðir að Geldingalæk á hverju ári
og dyttað að húsum, gróðri og
girðingum. Þá hafa þeir fært
heimilinu leiktæki, börnunum
glaðning á jólum og flugelda um
áramót. Brynjólfur Gíslason, fv.
forseti Höfða, segir þetta hafa
verið afar ánægjulegt verkefni.
„Við höfum reynt að gera um-
hverfið skemmtilegra og átt mjög
gott samstarf við forráðamenn
heimilisins. Við förum í vinnu-
ferðir á hverju sumri, auk ára-
mótaferðanna. Það er alltaf
gaman að koma að Geldingalæk
og hefur gefið okkur mikið.”
Saltkaup styrkja
starf Barnaheilla
Fyrirtækið Saltkaup hf. færði
Barnaheillum 100.000 krónur að
gjöf í desember síðastliðnum.
Kann stjórn samtakanna fyrir-
tækinu miklar þakkir fyrir þetta
veglega framlag.
Aðalfundur haldinn 30. maí nk.
Aðalfundur Barnaheilla, Save the Children, verður haldinn fimmtudag-
inn 30. maí nk. kl. 17.00 á Grand Hótel Reykjavík. Á dagskrá eru venju-
leg aðalfundarstörf. Allir félagar Barnaheilla eru velkomnir.
Verkefnið Stöðvum barnaklám á Netinu:
Fjöldi ábendinga um barnaklám
Viltu gerast félagi í Barnaheillum? Hafðu þá samband við skrifstofu samtakanna í síma 561 0545 eða með tölvupósti, barnaheill@barnaheill.is
Kiwanisfélagar úr Höfða dytta
að útihúsi á Geldingalæk.
Ríkisstjórnin styrkir
neyðaraðstoð
Save the Children
í Afganistan
Starfsfólk hjá Saltkaupum.
• Barnaheill taka þátt í
að setja upp leikaðstöðu
fyrir börn á hinum nýja
Barnaspítala Hringsins.
• Barnaheill standa að útgáfu
bæklinga og annars efnis sem
ætlað er foreldrum og
forráðamönnum barna.
Meðal þess má nefna
Ritröð Barnaheilla, Barna-
sáttmála Sameinuðu þjóð-
anna, bókina Þetta er líkaminn
minn og Kisuplakatið.
• Samtökin eiga tvær íbúðir í
Reykjavík sem ætlaðar
eru fjölskyldum veikra
barna af landsbyggðinni.
• Barnaheill hafa í samvinnu
við Mannréttindaskrifstofu
Íslands og Kennaraháskólann
efnt til námskeiða um réttindi
barna og mikilvægi
fræðslu um mannréttindi
í skólum.
SMÆLKI
Bi
rt
m
eð
le
yf
i U
N
HC
R
O
S
TA
O
G
SMJÖRSA
LA
N
S
/F
Barnaþing Sameinuðu þjóðanna:
Góðir fulltrúar fyrir Ísland