Morgunblaðið - 23.05.2002, Page 18
SUÐURNES
18 FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
UPPSKERUHÁTÍÐ körfuknatt-
leiksdeildar UMFN fyrir nýliðinn
vetur fór fram í síðustu viku.
Fram kom í máli Hafsteins Hilm-
arssonar, formanns deildarinnar,
að veturinn hefði verið einn sá
glæsilegasti í sögu félagsins til
þessa, hvar sem litið væri á í
starfinu. „Árangur sem þessi kem-
ur ekki af sjálfum sér og ljóst að
mikil vinna liggur að baki og ber
að þakka öllum þeim er koma að
barna- og unglingastarfseminni,“
sagði Hafsteinn.
Auk Íslandsmeistaratitils í
karlaflokki unnu yngri flokkar fé-
lagsins til fjögurra titla sl. vetur
og einn bikarmeistaratitil. Bætir
það besta árangur félagsins frá
því í fyrra. Hafsteinn sagði að Ís-
landsmeistaratitlar félagsins í
yngri flokkum væru orðnir 26 og
þar af 7 á síðustu tveimur árum
og bikarmeistaratitlarnir væru
orðnir 10. Alls eru þetta því 17
titlar eftir tvö keppnistímabil hjá
yngri flokkunum.
Á uppskeruhátíðinni voru veitt
einstaklingsverðlaun í hverjum
flokki, sem Íslenskur markaður og
Vífilfell gáfu. Einnig var Elfars-
bikarinn afhentur, en hann er
veittur þeim iðkanda sem talinn
er efnilegastur í yngri flokkunum.
Bikarinn er gefinn í minningu Elf-
ars Jónssonar, leikmanns UMFN,
er lést ungur af slysförum. Jóhann
Árni Ólafsson fékk Elfarsbikarinn
að þessu sinni en hann lék bæði
með 10. og 11. flokki og að auki
með drengjaflokki. Jóhann hefur
leikið stórt hlutverk í öllum sínum
flokkum, verið fastamaður í
drengjalandsliði Íslands og var
t.d. langstigahæsti leikmaður
Scania Cup-mótsins um páskana
með um 32 stig í hverjum leik.
Fríður hópur allra verðlaunahafa á uppskeruhátíð körfuknattleiksdeildar UMFN.
Sautján titlar
yngri flokka
á tveimur
árum
Njarðvík
REYKJANESBÆR hefur lokið
byggingu 25 félagslegra leiguíbúða
fyrir aldraða á Kirkjuvegi 5 í
Keflavík og voru þær afhentar íbú-
um til notkunar við hátíðlega at-
höfn í gær. Fulltrúi verktakans,
Hjalta Guðmundssonar ehf., af-
henti Skúla Þ. Skúlasyni, forseta
bæjarstjórnar, húsið og hann sá
síðan um að leigjendurnir fengju
lykla sína afhenta.
Könnun sem gerð var fyrir
þremur árum í tilefni af ári aldr-
aðra, staðfesti þann grun félags-
málayfirvalda að margir aldraðir
einstaklingar væru í húsnæðis-
vandræðum, samkvæmt upplýsing-
um Hjördísar Árnadóttur, félags-
málastjóra Reykjanesbæjar, sem
er formaður byggingarnefndar
Kirkjuvegar 5. Bæjarstjórn ákvað
að bæta úr þessu með byggingu 25
félagslegra leiguíbúða og fékk til
þess lánsloforð hjá Íbúðalánasjóði.
Kostnaði haldið niðri
Eftir alútboð var samið við
Hjalta Guðmundsson ehf. um
byggingu húss sem teiknað var á
Teiknistofunni ehf., Ármúla 6. Þá
var samið við VSÓ ráðgjöf um eft-
irlit og umsjón með verkinu. Húsið
er samtals 1.575 fermetrar og hver
íbúð 63 fermetrar.
Á sínum tíma kom fram að með
því að nota alútboð tækist að halda
byggingarkostnaði í lágmarki og
þar með leigugjaldi væntanlegra
íbúa hússins. Kostnaður við fram-
kvæmdina var áætlaður 190 millj-
ónir króna eða sem svarar um 7,5
milljónum á hverja íbúð og segir
Hjördís útlit fyrir að sú áætlun
standist eins og áætlun um fram-
kvæmdatíma.
Yfir 30 umsóknir bárust þegar
húsnæðisnefnd Reykjanesbæjar
auglýsti íbúðirnar til leigu og voru
flestir í forgangshópi samkvæmt
settum skilyrðum. Allar íbúðirnar
komast því strax í leigu.
Skúli Þ. Skúlason, forseti bæj-
arstjórnar, óskaði íbúum Reykja-
nesbæjar til hamingju með daginn
og hinum nýju íbúum til hamingju
með ný heimkynni þegar þeir
fengu lyklavöldin að íbúð sinni.
„Þegar ekið er inn á lóðina er eins
og húsið taki okkur opnum örm-
um, það faðmar okkur að sér. Það
er sannfæring mín að andinn inn-
andyra verður jafn notalegur og
utandyra. Staðsetning hússins er í
hjarta bæjarins þar sem stutt er í
þjónustu, mannlíf og notalega úti-
veru,“ sagði Skúli meðal annars.
Við athöfnina færði verktakinn
íbúum hússins að gjöf fánastöng
sem þar hefur verið komið fyrir.
Ljósmynd/Víkurfréttir
Andrés Hjaltason, framkvæmdastjóri Hjalta Guðmundssonar ehf., ávarpaði viðstadda á samkomu sem fram fór
við Kirkjuveg 5, áður en hann afhenti forseta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar húsið sem lokið er við að byggja.
Leiguíbúðir aldraðra við Kirkjuveg teknar í notkun
Húsið tekur okkur
opnum örmum
Reykjanesbær
BÆJARSTJÓRN Sandgerðis hefur
hafnað því að endurskoða andstöðu
sína við staðsetningu nýrra íbúða
aldraðra sem Gerðahreppur hyggst
reisa á eignarlóð hjúkrunarheimilis-
ins Garðvangs í Garði. Jafnframt
lýsir bæjarstjórn stuðningi við störf
fulltrúa síns í stjórn Garðvangs en
hann er formaður stjórnarinnar
þetta árið.
Garðvangur er í eigu fjögurra
sveitarfélaga á Suðurnesjum og
hafa þrjú þeirra, öll nema Gerða-
hreppur, lýsti yfir andstöðu við
byggingu íbúða aldraðra á þeim
stað sem hreppsnefnd Gerðahrepps
vill, en hann er á eignarlóð Garð-
vangs, telja bygginguna þrengja um
of að starfsemi hjúkrunarheimilis-
ins. Hafa sveitarstjórnirnar þannig
tekið undir skoðanir fulltrúa sinna í
stjórn heimilisins og þær hafa ekki
skipt um skoðun þrátt fyrir áskor-
anir Gerðahrepps. Auglýst hefur
verið breyting á deiliskipulagi um-
ræddrar lóðar í samræmi við hug-
myndir hreppsnefndar og á morgun
verða opnuð tilboð í byggingu íbúð-
anna.
Gæta hagsmuna íbúanna
Sigurbjörg Eiríksdóttir, bæjar-
fulltrúi í Sandgerði og formaður
stjórnar Dvalarheimila á Suðurnesj-
um, segir að stjórnin telji að fyr-
irhugaðar nýbyggingar séu of ná-
lægt Garðvangi og þrengi mjög að
sólstofu sem sé aðalsetustofa íbú-
anna. Það sé óþarfi þar sem nóg
landrými sé í Garðinum og hafi
stjórnin frá upphafi bent á annan og
heppilegri stað í nágrenni Garðv-
angs. Sigurbjörg leggur áherslu á
að stjórn heimilisins sé falið að
gæta hagsmuna íbúanna, gamla
fólksins sem þar dvelur nú og í
framtíðinni, og það ráði afstöðu
þeirra.
Óbreytt afstaða
í lóðarmáli
Garður
PATRICIA Hand, sem býr í Vogum
á Vatnsleysuströnd, er félagi í SPIN
(Silk Painters International). Hún
hefur nú málað friðarfána á silkidúk
sem verður til sýnis á ráðstefnu sam-
takanna í Marylandháskóla í Banda-
ríkjunum í júní. Ráðgert er að fáni
þessi verði síðan á farandsýningum
víðs vegar um Bandaríkin. Patricia
er áströlsk að uppruna en hefur búið
á Íslandi áratugum saman.
Myndin var tekin í Háskólakapell-
unni, en þar fara fram guðsþjónust-
ur á ensku kl. 11 annan sunnudag í
hverjum mánuði. Í júní fer guðsþjón-
ustan þó fram í Kálfatjarnarkirkju.
Friðarfáni
á farand-
sýningu
Vogar
HIÐ gamla olíubirgðasvæði
varnarliðsins milli Ytri-Njarð-
víkur og Keflavíkur í Reykja-
nesbæ sem verið er að hreinsa
og bæjaryfirvöld hafa áhuga á
að nýta til uppbyggingar hefur
verið rangnefnt Nikkelsvæði
eða jafnvel Nickel-svæði í frétt-
um og opinberum gögnum.
Svæðið dregur nafn sitt af her-
búðum sem nefndar voru eftir
manni að nafni Julius R. Nikel
og er Nikel-svæðið, með einu
k-i, því réttara heiti.
Samkvæmt upplýsingum
Friðþórs Eydal, upplýsingafull-
trúa varnarliðsins, dregur svæð-
ið nafn sitt af búðum liðsmanna
21. byggingarsveitar Banda-
ríkjahers sem fyrstir hófu fram-
kvæmdir við flugvallagerð í ná-
grenni Keflavíkur snemma árs
1942. Búðirnar nefndu þeir
Camp Nikel eftir ungum liðs-
manni byggingarsveitarinnar,
Julius R. Nikel að nafni, sem lét
lífið í vinnuslysi á Langley-flug-
velli í Virginíu 23. maí árið 1941.
Búðirnar stóðu á svæðinu of-
an og vestan við Reykjaneshöll-
ina, austan Flugvallarvegar.
Varnarliðið reisti eldsneytist-
anka þar snemma á sjötta ára-
tugnum og færðist þá nafn búð-
anna á allt tankasvæðið.
Varnarliðið hætti að nota
neðri hluta svæðisins fyrir
mörgum árum. Verið er að
hreinsa mengun og mannvirki af
Neðra-Nikel-svæðinu og síðan
verður því skilað til íslenskra
stjórnvalda.
Nikel-
svæðið
skrifað
með
einu k-i
Njarðvík
HALLA Har er með málverkasýn-
ingu í Framsóknarhúsinu í Reykja-
nesbæ, Hafnargötu 62 í Keflavík,
fram á kjördag. Framsóknarhúsið er
opið alla virka daga frá kl. 11 til 22 og
á kjördag frá kl. 8.
Sýnir í Fram-
sóknarhúsinu
Reykjanesbær