Morgunblaðið - 23.05.2002, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 23.05.2002, Qupperneq 20
LANDIÐ 20 FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ LEIKSKÓLINN Klettaborg út- skrifaði börn fædd 1996 með við- höfn í Félagsmiðstöðinni Óðali fimmtudaginn 16. maí. Nemend- urnir koma af þremur deildum og var skipt í hópa eftir þeim. Fyrst fluttu nemendur frá deildinni Katt- holti ljóð eftir Halldór Laxness, þá fluttu börnin á Sjónarhóli ljóð úr Stafrófskverinu eftir Þórarin Eld- járn, og krakkarnir í Ólátagarði fluttu leikþátt um stafinn sinn og þuluna „Einn og tveir, inn komu þeir“. Þá var sameiginlegur söng- ur allra deilda og dansatriði frá danskennslu vetrarins við lagið „Hey babe“. Í lokin voru börn- unum afhent útskriftarskjöl. Fullt hús var af foreldrum, ömmum og öfum og systkinum sem nutu dag- skrárinnar og síðan veitinga í boði foreldra í umsjá foreldrafélagsins. Leikskóla- nemendur útskrifast Borgarnes Morgunblaðið/Guðrún Vala Börnin á „Sjónarhóli“ fluttu ljóð úr Stafrófskverinu eftir Þórarin Eldjárn. LILLUKÓRINN er kvennakór, skipaður söngvurum vítt úr Húna- þingi vestra. Kórinn hélt upp á tíu ára afmæli sitt nú á dögunum, með- al annars með söngskemmtun í Fé- lagsheimilinu Hvammstanga. Stjórnandi kórsins er Lilla, Ingi- björg Pálsdóttir, og heitir kórinn eftir henni. Undirleikari nú er Guð- jón Pálsson. Kórinn hefur árlega sungið á vordögum, bæði heima og eins farið í söngferðir. Gestasöngv- ari á tónleikunum var Jóhann Már Jóhannsson, söngbóndi úr Skaga- firði. Fékk kór og einsöngvari afar góðar viðtökur gesta. Mikið framboð er á sunginni tón- list í héraðinu, starfandi margir kórar og sönghópar. Fyrir skömmu tóku nokkrir einstaklingar sig sam- an og efndu til „Eurovision“ skemmtunar í Félagsheimilinu Hvammstanga. Rúmlega tuttugu söngvarar spreyttu sig á lögum úr keppninni, allt frá 1969 til þeirrar síðustu, við undirleik hljómsveitar. Verðlaun fyrir bestan söng hlaut Brynja Ósk Víðisdóttir, en nokkrir fengu viðurkenningar. Kunnu hér- aðsbúar vel að meta framtakið og var húsfyllir. Sönggleði á Hvammstanga Morgunblaðið/Karl Á.Sigurgeirsson Lillukórinn á tónleikum, Lilla lengst til hægri. Hvammstangi HENDUR stóðu fram úr ermum fyr- ir skömmu í Sumarbúðum kirkjunn- ar við Vestmannsvatn í Aðaldal er Soroptimistaklúbbur Húsavíkur og nágrennis mætti á staðinn til þess að laga og bæta það sem látið hefur á sjá í húsnæðinu á undanförnum árum. Félagar eru konur í héraðinu sem hafa að markmiði að láta eitthvað gott af sér leiða og nú var ákveðið að gefa vinnu eina helgi. Unnið var að verkefninu í tvo daga. Á fyrri deginum voru 19 konur að störfum í tólf klukkutíma og 9 konur seinni daginn frá kl. 9–17. Konurnar máluðu matsalinn og saumuðu í hann gluggatjöld, máluðu anddyri í aðal- inngangi, máluðu skrifstofur prest- anna og saumuðu gluggatjöld í þær, þá var setustofa í efra húsinu máluð og þar settir nýir gluggakappar og margt fleira. Mikil ánægja var yfir því hjá fé- lagskonum að geta orðið þarna að liði en að sögn Helgu J. Stefánsdóttur formanns klúbbsins var skipuð ný stjórn sumarbúðanna sem fjallað hef- ur um endurreisn þeirra og m.a. hef- ur verið samþykkt þriggja ára end- urbótaáætlun. Þar sem nokkurt fjármagn fékkst var ákveðið að virkja heimamenn til starfa til þess m.a. annars að nýta betur fram- kvæmdafé. Soroptimistaklúbbur Húsavíkur og nágrennis verður tutt- ugu ára á næsta ári og hefur lagt mjög mörgum málefnum stuðning á starfs- ferli sínum. „Systurnar“ eins og þær kalla sig stundum taka þátt í bæði al- þjóðaverkefnum og landsverkefnum og einnig vinna þær mikið á héraðs- vísu. Þær hafa séð um dreifingu Ár- bókar Þingeyinga, flokkað bækur í bókasafninu í Hvammi, dvalarheimili aldraðra, styðja oft við bakið á fólki í erfiðleikum, eiga gróðurreit sunnan Húsavíkur, halda opna fundi um þarf- leg málefni eins og félagsmál ýmis- konar, tryggingamál, vímuefni, um- hverfismál og margt fleira. Þá hafa félagar haldið opna fundi um sálfræði, stöðu sjúkrahússins og um málefni út- lendinga sem hér búa auk þess sem þær styðja barnaþorp í Afríku. Kirkjunnar menn í Þingeyjarsýslu eru himinlifandi yfir framtaki Soropt- imistaklúbbsins og í sumar verður að venju lífleg starfsemi við Vestmanns- vatn, en þar mun dveljast bæði ungt fólk og eldri borgarar. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Hulda Ragnheiður Árnadóttir á fullu í hreingerningum. Sjálfboðaliðar að störfum í sumarbúðum kirkjunnar Laxamýri HALLDÓR Ás- grímsson utanrík- isráðherra afhjúp- aði á mánudag minnisvarða um Íslendinga, sem fóru frá Vopna- firði til Vestur- heims í kringum aldamótin 1900. Rúmlega 2.700 manns fóru frá Vopnafirði vestur um haf á síðari hluta 19. aldar og í byrjun 20. aldar. Vopnfirðingar vilja halda minn- ingu þessa fólks á lofti og hefur bær- inn verið í sam- starfi við Vestur- farasetrið á Hofsósi, sem gaf minnisvarðann, en til stendur að setja nöfn allra vesturfaranna á plötu, sem sett verður á steininn. Minnisvarðinn er á lóðinni við Kaupvang, gamla kaupfélagshúsið, þar sem Halldór Ásgrímsson fædd- ist og bjó fyrstu árin. Endurbætur eru hafnar á húsi og lóð og er hug- myndin með samstarfinu við Vest- urfarasetrið að koma upp Vestur- faramiðstöð í húsinu. Morgunblaðið/Hafþór Róbertsson Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra Afhjúpaði minnis- varða um vesturfara FYRSTA kynning á grillkjöti nýs kjötvinnslufyrirtækis Brákarsunds ehf. var haldin í Hyrnutorgi á dög- unum. Starfsmenn fyrirtækisins grill- uðu og gáfu við- skiptavinum Hyrnu- torgs að smakka en grillkjötið frá Borg- arnesi hefur löngum verið landsþekkt vara. Nú ættu lands- menn ekki að þurfa að fara á mis við kjötvörurnar því þær eru komnar í dreif- ingu. Brákarsund ehf. markaðssetur vinnsluvöru sína undir merkjunum Borgarnes kjötvara og Íslenskt- franskt, sem allir þekkja. Stofnendur Brákarsunds ehf. eru Sparisjóður Mýrasýslu, Borgarbyggð og Kaupfélag Borg- firðinga. Hlutafé fyrirtækisins er 75 milljónir og mun félagið einbeita sér að slátrun og vinnslu í húsakynnum félagsins úti í Brákarey. Viðsemj- andi félagsins varðandi kjöt- vinnsluvélar og vörumerki var Norðlenska hf. en fasteignirnar voru í eigu Goða hf. en hvort tveggja er nú í eigu hins nýstofnaða félags. Starfsmenn félagsins verða í upp- hafi aðeins 11 en mun fjölga eftir því sem fyrri markaðshlutdeild næst. Grillkjötið frá Borgar- nesi komið í sölu Borgarnes Starfsmenn fyrirtækisins grilluðu og gáfu við- skiptavinum Hyrnutorgs að smakka grillkjötið.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.