Morgunblaðið - 23.05.2002, Qupperneq 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 27
Ólífutré eru vel
þekkt fyrir
undraverðan
kraft. Hreint
efni, unnið úr
laufblöðum
þeirra, styrkir
viðnám húðar-
innar gegn
fyrstu einkenn-
um sem tengj-
ast öldrun.
Heimsækið okkur á
www.biotherm.com
AGE FITNESS
Áhrifaríkur kraftur ólífu-
trjáa hefur yngjandi áhrif
á húðina, mýkir og eykur
teygjanleikann.
Kringlunni, sími 533 4533
Velkomin á kynningu í dag, á morgun og á laugardag.
Flott taska fylgir þegar keyptar eru
Biotherm vörur fyrir kr. 3.500 eða meira.
Vilt flú hjálpa til á kjördag?
Samhent vinnum vi› sigur
Sjálfstæ›isflokkurinn í Reykjavík óskar eftir sjálfbo›ali›um
til margvíslegra starfa á kjördag, laugardaginn 25. maí.
Akstur á kjördag
– getur flú veri› á bíl?
Reykjavík
í fyrsta sæti
Allir sem eru rei›ubúnir a›
hjálpa til eru hvattir til a›
hafa samband vi› hverfa-
skrifstofurnar e›a skrifstofu
Sjálfstæ›isflokksins
í síma 515-1700.
EDMUND Stoiber, kansl-
araefni kristilegu flokk-
anna í Þýskalandi, varaði
við hættunni af of mikilli
stækkun Evrópusam-
bandsins í ræðu, sem hann
flutti í síðustu viku, og
jafnframt kvaðst hann vera
algerlega andvígur því, að
Tyrkland fengi aðild að
sambandinu. Var skýrt frá
ræðunni í Financial Times
síðastliðnn föstudag.
Stoiber þótti óvenju ber-
orður í ræðunni, sem hann
flutti í þýska sendiráðinu í
London, en þá sagði hann,
að hætta væri á, að með
stöðugri stækkun og út-
þenslu drægi úr samstöðu
aðildarríkjanna.
ESB á að hafa
eðlileg landamæri
„Evrópusambandið á að
eiga sín landfræðilegum
mörk,“ sagði Stoiber á
fundi með stjórnmála-
mönnum, sendimönnum og
frammámönnum í atvinnulífinu.
„Aðild Tyrklands að Atlantshafs-
bandalaginu, NATO, er mikilvæg og
góð samskipti þess og Þýskalands
eru nauðsynleg en það þýðir ekki að
það eigi að vera í ESB. Evrópu get-
ur ekki teygt sig að írösku landa-
mærunum.“ Evrópskur stjórnmála-
maður hefur aldrei fyrr tekið af
skarið um það, að Tyrkland eigi ekki
að vera í ESB og Stoiber bætti því
við, að yrðu Tyrkir aðilar, myndi
röðin næst koma að Marokkó og
Túnis. Þá væri líka farið að hrikta í
samstöðunni með Evrópu-
ríkjunum.
Þingkosningar verða í
Þýskalandi í haust og
kristilegu flokkarnir hafa
nú 10 prósentustiga for-
skot á ríkisstjórnina, jafn-
aðarmenn og græningja.
Það er því ekki ólíklegt að
Stoiber verði næsti kansl-
ari. Hingað til hefur verið
litið á hann sem efasemd-
armann í Evrópumálunum
en í ræðunni sagði hann, að
enn tengdari Evrópa væri
eina svarið við alþjóðavæð-
ingunni og því, sem henni
fylgdi. Skoraði hann á
Breta að taka fullan þátt í
þeirri þróun. Þá fullyrti
hann, að Bretar gætu ekki
komist hjá því að taka upp
evruna sem gjaldmiðil.
Stoiber sagði, að það,
sem ógnaði Evrópuríkjun-
um helst, væri óöryggi og
óvissa og gegn því yrðu þau
að ráðast saman.
Stoiber átti fund með
Iain Duncan Smith, leiðtoga breska
Íhaldsflokksins, en hann er eins og
kunnugt er mjög andvígur nánari
samruna í Evrópu. Sagði Stoiber að
fundinum loknum, að hann vonaði
að allt ábyrgt fólk tæki fullan þátt í
þróuninni í Evrópu.
Edmund Stoiber, forsætisráðherra í Bæjaralandi og
kanslaraefni kristilegu flokkanna í Þýskalandi.
Varar við of mikilli
stækkun ESB
FLUGSTJÓRAR í Bandaríkjun-
um fá ekki að bera byssur í flug-
stjórnarklefanum. Talsmaður
Bandaríkjastjórnar tilkynnti þetta
í fyrrakvöld en þúsundir flug-
manna höfðu skrifað undir bæn-
arskjal þess efnis, að þeim yrði
leyft að geyma skammbyssur í
flugstjórnarklefanum, svo verjast
mætti flugræningjum.
John W. Magaw, sem ábyrgur
er fyrir öryggi í samgöngum,
sagði fyrir þingnefnd Bandaríkja-
þings að mikilvægt væri að flug-
menn hefðu hugann eingöngu við
að fljúga flugvélum sínum. Stjórn-
völd myndu grípa til annarra ráð-
stafana til að tryggja öryggi
þeirra.
Fram kom þó í máli Magaws að
ekki væri útilokað að flugmönnum
og öðrum úr áhöfn flugvéla yrði
heimilað að ganga með annars
konar skotvopn, þ.e. rafbyssur
sem t.d. gefið gætu hættulegum
einstaklingum rafmagnsstraum,
og þannig tekið þá úr umferð, en
sem ekki væru banvæn.
Nokkrir þingmenn mótmæltu
þegar afstöðu Magaws og sögðust
ætla að berjast áfram fyrir því að
veitt yrði heimild fyrir því, að
skotvopn yrðu geymd í flugklef-
anum.
Benti Duane E. Woerth, forseti
Samtaka flugmanna í Bandaríkj-
unum, en meðlimir félagsins eru
um 62 þúsund talsins, á að til-
lögur stjórnvalda gerðu ráð fyrir
að herþotur Bandaríkjahers skytu
niður hverja þá farþegaflugvél,
sem hryðjuverkamenn hefðu tekið
á sitt vald. „Í því ljósi á ég erfitt
með að skilja hvers vegna fulltrú-
ar sömu stjórnvalda vilja ekki
gefa flugmönnum tækifæri til að
koma í veg fyrir slíkan harmleik,“
sagði Woerth.
Engar byssur í
flugstjórnarklefann
Washington. The Washington Post.
mbl.isFRÉTTIR