Morgunblaðið - 23.05.2002, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 23.05.2002, Blaðsíða 37
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 37 ÁHERSLUR Sjálfstæðisflokks- ins í málefnum öryrkja og aldraðra eru skýrar og einfaldar. Fast- eignaskattur verður lækkaður, mest hjá þeim sem standa höllum fæti. Þannig getur fólk búið áfram heima hjá sér. Með trúverðugum aðgerðum verður eytt biðlistum eftir hjúkr- unarrýmum á næstu 4 árum. Þannig fá þeir skjól sem ekki geta annast um sig sjálfir. Ég hef kynnt mér þessi mál vel og ígrundað. Ekki eru efasemdir í huga mínum um að Birni Bjarnasyni og fé- lögum hans í Sjálfstæðisflokknum takist að hrinda mikilvægum áformum sínum í framkvæmd. Sama er að segja um hugmyndir sjálfstæðismanna um lausn á vanda heilsugæslunnar og heim- ilislækna í Reykjavík en þar hefur ríkt ófremdarástand undanfarið. Treysti Birni Jón Gunnar Hannesson Höfundur er læknir. Reykjavík Ekki eru efasemdir í huga mínum, segir Jón Gunnar Hannesson, að Birni Bjarnasyni og félögum hans í Sjálf- stæðisflokknum takist að hrinda mikilvægum áformum sínum í framkvæmd. SORGLEGT er að fylgjast með vinnu- brögðum framsóknar- manna í Garðabæ á lokaspretti kosninga- baráttunnar. Liður í persónulegri herferð gegn undirritaðri er grein sem birtist í Morgunblaðinu í gær eftir Ragnar M. Magnússon og Guðjón Ólafsson frambjóð- endur Framsóknar- flokksins. Fram til þessa hef ég kosið að svara ekki níðrógi framsóknarmanna en í grein Ragnars og Guðjóns kemur fram svo mikill uppspuni að óhjákvæmilegt er að leiðrétta hann. Sagt er að laun ÁHB séu 870 þúsund á mánuði. Rétt er að heild- arlaun ÁHB eru 830 þúsund á mánuði. Sagt er að laun ÁHB fyrir stjórnarstörf í SSH séu 65 þúsund á mánuði. Rétt er að ÁHB þiggur engin laun fyrir setu í stjórn SSH. Sagt er að laun ÁHB fyrir stjórnarstörf í SHS séu 65 þúsund á mánuði. Rétt er að ÁHB fær um 33 þúsund í laun fyrir stjórnar- störf í SHS. Sagt er að ÁHB fái eftir kosn- ingar til viðbótar 100 þúsund á mánuði fyrir það að verða bæj- arfulltrúi. Rétt er að ÁHB fær engar viðbótargreiðslur fyrir að sitja bæjarráðsfundi eða bæjar- stjórnarfundi þó að hún verði kos- in bæjarfulltrúi. Sagt er að ÁHB fái einhverjar sposlur eftir kosning- ar fyrir setu í nefnd- um. Rétt er að samn- ingur bæjarstjórnar Garðabæjar felur í sér að bæjarstjóri þiggur ein heildarlaun og engar aukagreiðslur þar fyrir utan. Bæj- arstjóri þiggur því engin laun fyrir störf í þeim nefndum og ráð- um sem hann situr í. Sagt er að mánað- arlaun ÁHB hækki því í 1,2 m.kr. eftir kosningar. Rétt er að mánaðarlaunin hækka ekki um krónu eftir kosningar og heildarlaun nú fara ekki yfir 860 þúsund á mánuði. Sagt er að ÁHB hafi áður verið í starfi hjá Háskólanum í Reykjavík þar sem launin hafi verið 250 þús- und á mánuði fyrir skrifstofustörf. Rétt er að ÁHB var framkvæmda- stjóri nýsköpunar- og þróunar- sviðs HR auk þess sem undirrituð sinnti þar námskeiðum. Samtals voru heildarlaun hjá HR á mánuði þá um 500 þúsund en frá árinu 2000 hefur launavísitala hækkað verulega. Þegar ÁHB tók við sem bæjarstjóri í október 2000 voru laun undirritaðrar um 650 þúsund á mánuði en síðan hafa þau hækk- að í samræmi við kjarasamninga og launavísitölu. Sagt er að ÁHB hafi hærri laun en aðrir framkvæmdastjórar sveit- arfélaga. Þegar litið er á árslaun framkvæmdastjóra kemur í ljós að það er ekki rétt. Í Garðabæ er sá háttur hafður á að bæjarstjóri fær ein heildarlaun fyrir sín störf og engar greiðslur þar fyrir utan, en í mörgum sveitarfélögum fá fram- kvæmdastjórarnir lægri heildar- laun en þar að auki er greitt fyrir ýmis störf í þágu bæjarfélaganna. Dapurlegt er að sjá að Fram- sóknarflokkurinn í Garðabæ skuli ekki treysta sér í málefnalega kosningabaráttu. Málflutningur þeirra hefur einkennst af níðrógi og persónulegum árásum í garð pólitískra andstæðinga. Slík kosn- ingabarátta er byggð á sandi og dæmir fyrst og fremst þá einstak- linga sem viðhafa slík vinnubrögð. Uppspuni Fram- sóknarflokksins í Garðabæ um launagreiðslur Ásdís Halla Bragadóttir Höfundur er bæjarstjóri í Garðabæ. Garðabær Framsóknarmenn hafa nú algjörlega farið yfir strikið, segir Ásdís Halla Bragadóttir, í persónu- legum árásum sínum og ómerkilegum rangfærslum. Súrefnisvörur Karin Herzog Silhouette festingar, heldur sett sér það markmið að veita góða og öfluga þjónustu og gera fólki kleift að búa eins lengi heima og kostur er og að lifa með reisn á eigin heimili. Þeg- ar öll sagan er sögð og rekstur og fjárfestingar skoðaðar í samhengi kemur í ljós að um sjö milljörðum var varið til þessa málaflokks á síðustu átta árum. Fleira mætti nefna í þessu sam- bandi, enda af nógu að taka. Til dæmis að frá árinu 1997 hefur Reykjavíkurlistinn staðið fyrir hækkun viðmiðunar á afslætti eldri borgara af fasteignagjöldum um 71%. Aðalatriðið er þó sú skýra framtíðarsýn sem blasir við borg- arbúum í þessum málaflokki eftir sögulega viljayfirlýsingu borgaryf- irvalda og heilbrigðisráðherra. Þar er tekið á brýnu úrlausnarefni sem pólitísk samstaða hefur verið um að bæta úr. Það er eftir öðru að sjálfstæðismenn hyggist nú leggja stein í götu þessa brýna málefnis og lýsir sárri málefnafátækt, svo ekki sé fastar að orði kveðið. 284 rými næstu fimm ár Í viljayfirlýsingunni um upp- byggingu hjúkrunarrýma frá 13. maí sl. er kveðið á um byggingu 284 nýrra hjúkrunarrýma fyrir aldraða í Reykjavík á tímabilinu 2003–2007. Með undirrituninni skuldbatt Reykjavíkurborg sig til að reiða fram 1,4 milljarð króna þessi fjögur ár til verkefnisins en heilbrigðisráðherra mun beita sér fyrir að fé fáist á fjárlögum til þess að þetta geti orðið að veruleika. Með yfirlýsingunni hafa heilbrigð- isráðherra og borgarstjóri gert með sér samkomulag um hvernig staðið skuli að verkinu og fjár- mögnun þess. Skýr vilji beggja málsaðila liggur þannig fyrir. Aðdragandi þeirrar viljayfirlýs- ingar sem nú hefur verið gerð er langur. Uppbygging og rekstur hjúkrunarheimila er á verksviði ríkisins. Framkvæmdasjóður aldr- aðra ákvarðar og fjármagnar að stærstum hluta uppbyggingu hjúkrunarrýma, en sjóðurinn heyr- ir undir heilbrigðisráðherra. Bygg- ing hjúkrunarheimila ræðst af því hvað ríkisvaldið er tilbúið að kosta rekstur margra hjúkrunarrýma. Á undanförnum árum hefur upp- bygging hjúkrunarrýma að mestu átt sér stað utan höfuðborgar- svæðisins. Þess vegna er ástæða til að fagna þeim eindregna vilja sem fram kemur í viljayfirlýsingunni af hálfu ráðherrans til að taka á ára- tugagömlum vanda hér í Reykja- vík. Nú liggur fyrir viljayfirlýsing um að byggja nýtt hjúkrunarheim- ili í Sogamýri með 100 rýmum, tilbúið í janúar 1995. Í Eir verði rýmum fjölgað um 30 á tímabilinu 2003–2005, Hrafnista verði stækk- uð um 30 rými á tímabilinu 2003– 2005, Droplaugarstaðir verði stækkaðir um 14 rými á árinu 1995 og nýtt hjúkrunarheimili í Reykja- vík, með 100 hjúkrunarrýmum, á að verða tilbúið í byrjun árs 2007. Til þess að stuðla að því að hjúkrunarrýmin sem kveðið er á um í yfirlýsingunni verði að veru- leika hvet ég Reykvíkinga til þess að kjósa Reykjavíkurlistann í kosningunum nú á laugardag. Það skiptir máli hverjir fara með stjórn borgarinnar á næstu fjórum árum. Höfundur er borgarstjóri í Reykjavík og skipar 8. sæti Reykjavíkurlistans. Samanburður á framlögum til þjón- ustu og framkvæmda fyrir aldraða í Reykjavík á tveimur árabilum sýnir aukna áherslu Reykjavíkurlistans á þjónustu við aldraða. þessu markmið er náð að öll tveggja ára börn og eldri geti fengið vistun viljum við stiga skrefið lengra og bjóða yngri börnum dvöl á leikskóla. Foreldrar og forráðamenn barna eru meðvituð um það mikla og þroskandi starf sem fram fer á leikskólum því óska margir eftir því að börn þeirra fái dvöl á leikskóla fyrir tveggja ára aldur. Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að koma til móts við þessar óskir for- eldra og bjóða börnum frá 18 mán- aða aldri leikskólapláss á komandi kjörtímabili. Börn haf mismundi getu, reynslu og þroska. Leikskólinn tekur tillit til ólíkra þarfa hvers einskaks barns. Því starfa einnig leikskólasérkenn- arar á leikskólum sem sinna þessum ólíku þörfum barnanna með sér- kennslu. Meginmarkmið með sér- kennslu í leikskólum er að tryggja að börn með þroskahamlanir fái notið leikskóladvalar sinnar og að skapa aðtöðu til að þau geti þroskast sem best í leikskólanum. Til að geta kom- ið sem best til móts við þarfir allra barna vill Sjálfstæðisflokkurinn efla enn frekar sérkennslu í leikskólun- um, auka fjármagn til sérfræðiað- stoðar, s.s. sálfræðiráðgjafar, iðju- þjálfa og talmeinafræðings. Aukið sjálfstæði skólanna Undanfarin tvö ár hefur verið í gangi tilraunaverkefni í einum leik- skóla Kópavogs um fjárhagslegt sjálfstæði. Í fjárhagslegu sjálfstæði felst að gerður var samningur við skólann um að hann fengi ákveðna fjárhæð til að reka skólann. Skólinn á að skila skýrslu um árangurinn nú í haust en þegar er ljóst að þetta verk- efni hefur gengið mjög vel. Skólinn hefur getað hagrætt í rekstri og nýtt þannig aukið fjármagn til að efla enn frekar innra starf skólans. Sjálf- stæðiflokkurinn telur að leikskólarn- ir séu vel í stakk búnir til að taka yfir fjárhagslegan reksur skólanna og mun því leggja áherslu á að allir leik- skólar Kópavogs verði fjárhagslega sjálfstæðir á næstu árum. Höfundur er bæjarfulltrúi og skipar 4. sæti D-lista í Kópavogi. Kópavogur Skólinn hefur getað hagrætt, segir Sigurrós Þorgrímsdóttir, og nýtt aukið fjármagn til að efla innra starf skólans.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.