Morgunblaðið - 23.05.2002, Page 38

Morgunblaðið - 23.05.2002, Page 38
38 FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. TÍU MANNA hópur frábandarísku alþjóða-sveitinni í Fairfax íVirginíu er staddur hér á landi um þessar mundir til að kenna 36 íslenskum slökkviliðs- og björgunarveitarmönnum und- irstöðuatriði rústabjörgunar. Að auki koma að kennslunni 25 ís- lenskir leiðbeinendur sem áður hafa notið tilsagnar hópsins. Bandaríski hópurinn hefur starfað við björgunaraðgerðir í tengslum við jarðskálfta og hryðjuverk víðsvegar um heiminn á undanförnum árum, meðal ann- ars við rústir World Trade Cent- er-turnanna í New York og Penta- gon-byggingarinnar skammt frá Washington. Verkefnið sem um ræðir er lið- ur í samstarfi Office for Foreign Disaster Assistance, sem er bandarísk alþjóðastofnun á sviði björgunaraðstoðar, sendiráðs Bandaríkjanna á Íslandi, Al- mannavarna ríkisins, Brunamála- stofnunar, Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Slökkviliðs höf- uðborgarsvæðisins. Í bandaríska hópnum eru slökkviliðsmenn, hundaþjálfari og verkfræðingur. Áhugi á björgun úr rústum aukist Að sögn Dewey Perks, yfir- manns alþjóðasveitarinnar, hefur áhugi stjórnvalda á starfsemi rústabjörgunarsveita aukist til muna eftir hryðjuverkaárásirnar á Washington og New York 11. september síðastliðinn og meðal annars hefur tengslanet milli stjórnvalda og rústabjörgunar- sveita verið eflt til muna. Sólveig Þorvaldsdóttir, fram- kvæmdastjóri Almannavarna rík- isins, segir heimsókn sveitarinnar hingað til lands vera lið í að efla rústabjörgunarstarfsemi hér á landi, einkum með tilliti til jarð- skjálftahættu. Hún segir að verið sé að ganga frá samkomulagi við bandarísku sveitina um að hún komi að aðstoð við rústabjörgun hér á landi ef þörf krefur. Áætlað er að við- bragðstími sveitarinnar yrði um það bil hálfur sólarhringur. Bandaríska alþjóðasveitin í Fairfax í Virginíu hefur starfað við rústabjörgun frá því öflugur jarðskjálfti reið yfir Mexíkó árið 1985. Dewey Perks segir að eftir jarðskjálftann hafi mönnum orðið ljóst að skortur væri á samhæf- ingu ólíkra þátta innan björgunar- starfseminnar. Það hafi orðið til þess að hafin var uppbygging á starfsemi sem í daglegu tali er nefnd „rústabjörgun“. „Rústabjörgun snýst ekki ein- ungis um að brjóta steypu og byggja stoðir heldur koma þar við sögu þættir eins og verkfræði- kunnátta, hjúkrun- og læknisað- stoð, áætlanagerð og birgða- stjórnun. Mikilvægasti hluti rústabjörgunar er þó án efa leit- arstarfið,“ segir Dewey Perks. Að sögn Perks er aðalstarfs- vettvangur sveitarinnar í Banda- ríkjunum og nágrannaríkjunum, Mexíkó og Kanada, auk Suður- Ameríku. Árið 1988 hélt sveitin í fyrsta sinn utan svæðisins vegna jarðskjálfta í Armeníu. Árið 1990 fór sveitin til Filippseyja í tengslum við jarðskjálfta og árið 1998 til Nairobi vegna sprengju- árásar á bandaríska sendiráðið þar í landi. Árið 1999 hélt sveitin í tvígang til Tyrklands vegna jarð- skjálfta og einnig til Taívan. Missti 13 félaga sína við WTC Að auki hefur sveitin starfað við björgunaraðgerðir vegna felli- bylja við austurströnd Bandaríkj- anna auk björgunaraðgerða vegna sprengingarinnar í stjórnsýslu- húsinu í Oklahoma-borg árið árið 1995 og nú síðast við við World Trade Center-turnana í New York og Pentagon-bygginguna í Wash- ington í september síðastliðnum. „Ef við horfum til þess hvernig rústabjörgunarsveitir í Bandaíkj- unum voru skipulagðar, var þeim fyrst og fremst ætlað að vinna við rústir af völdum náttúruhamfara. Tjón af mannavöldum kom næst á eftir þar sem okkur grunaði ekki að við ættum eftir að fást við slíkt í Bandaríkjunum. Sprengingin í Oklahoma staðfesti að við höfðum rangt fyrir okkur og að við þyrft- um að horfa til hryðjuverka í þessu sambandi,“ segir Perks. Hann segir mikinn mun vera á tjóni af völdum sprengingar og vegna náttúruhamfara. „Þegar jarðskjálfti verður myndast venjulega holrými innan í byggingunni sem hrynur sem eykur um leið líkurnar á því að einhverjir finnist á lífi í rústunum. Þegar bygging hrynur hins vegar af völdum sprengingar brotnar hún gersamlega í mél.“ Perks segir aðstæður við rústa- björgunarsvæði í tengslum við hryðjuverk mun verri en vegna jarðskjálfta og gæta þarf mun betur að hinum slösuðu og að ör- yggi björgunarmanna og leitar- hunda. Sem dæmi brotnar gler í smáflísar af völdum sprengingar en flest út við jarðskjálfta. Þegar hryðjuverkaárásirnar voru gerðar á Bandaríkin 11. september í fyrra voru Perks og samstarfsmenn hans í sveitinni á meðal þeirra vettvang við Pentag inguna en höfuðstöðvar innar eru einungis í 13 k fjarlægð. „Umfangsmestu björ gerðirnar fóru fram vi WTC-byggingarnar. Atv Pentagon var hins vegar fangsmeira og aðgerðir þ ari en til að mynda vegna ingarinnar í Oklahoma annars vegna þess hvern ingin var reist. WTC var að megninu ti sem varð að stórum rykst ar turnarnir hrundu. Það björgunarmanna þar va nema gríðarlegt magn a stáli. Að auki var svæðið u is WTC sýnlegt öllum myndavélar heimsins með rústunum.“ Perks bendir á að aðst Pentagon hafi verið af al toga. „Pentagon og svæðið í k mun meira einangrað. fram margháttað björgu sem fjölmiðlar höfðu en gang að. Sú spurning sem vörum fjölmiðla dag hver undantekningarlaust: „Hv gerast innandyra?““ Perks bendir á að ath miðla vegna atburðanna ember og sprenginganna homa og Nairobi brey þeirri staðreynd að um gl vang sé að ræða og að s hættulegt þeim sem ekk til aðstæðna. Mikið og g starf milli löggæsluaðila o unarsveitarmanna sé því þess að hvorir aðilar um starfað óáreittir við öflu unargagna og björgun ma „Það sem við höfum bent á í gamni er ekki ath miðla heldur heimsókn settra stjórnmálamanna unarsvæðin. Þegar það g öllu björgunarstarfi hætt an. Þegar forseti Banda mætir á svæðið stöðvast a ir Perks og brosir út Hann segir þetta eina af þess að hann og samsta hans í alþjóðasveitinni lí við að vinna á nóttunni. Bandarískir slökkviliðsmenn sem unnu við rú Rústir vegna sp ar rústum eftir Dewey Perks, yfirmaður alþjóðlegrar rústabjörgunarsveitar, sem m.a. tók þátt í björgun úr rústum í Pentagon og World Trade Center, er staddur hér á landi í þeim tilgangi að kenna björgun úr rústum. Verið er að ganga frá samkomulagi um að sveitin aðstoði Íslendinga á hættutímum. „WTC var bara hrúga af til þeir komu niður á Slökkvistöðin í Fairfax Starfsmaður slökkviliðsins í Fairfax í Virginíu vinnur við turnstoð í Pentagon. BROTINN POTTUR VIÐ LAUGARDALSLAUG Meðferð borgaryfirvalda á mál-efnum líkamsræktarstöðvarvið Laugardalslaug hefur vakið ýmsar spurningar. Tæp tvö ár eru síðan frágengið var að samið yrði við Björn Leifsson í World Class um framkvæmd- irnar, en fyrr í þessum mánuði var tilefni til að rifja upp þá samninga í fréttum hér í Morgunblaðinu. Ýmis ummæli Stein- unnar Valdísar Óskarsdóttur, formanns Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur, hafa síðan einkum orðið til þess að þetta mál hefur undið upp á sig á síðum Morg- unblaðsins. Í Morgunblaðinu 14. maí sl. sagði Steinunn Valdís að samið hefði verið við Björn Leifsson vegna þess að aðrir hefðu ekki haft áhuga á að reka líkamsrækt- arstöð í Laugardalnum. Þessi frétt kall- aði þegar á viðbrögð framkvæmdastjóra Hreyfingar, Ágústu Johnson, sem sýndi fram á það með bréfum hvern áhuga hún og fyrirtæki hennar hefðu sýnt málinu. Þá kom jafnframt fram að það hefði láðst hjá borginni að láta Hreyfingu vita af því, þegar ákveðið var að ganga til við- ræðna við Björn Leifsson og að borg- arstjóri hefði beðizt afsökunar á því með bréfi. Í frétt í blaðinu 21. maí, í framhaldi af fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í ÍTR um sama mál, sagði Steinunn Valdís að það hefði verið mat manna að áhugi og geta annarra aðila en Björns hefðu ekki verið eins mikil og hans og því hefði þetta orðið niðurstaðan. Þegar Morgun- blaðið leitaði eftir upplýsingum um hvernig þetta mat á áhuga og fjárhags- legri getu hefði farið fram, kom í ljós að engin slík formleg athugun fór fram. Í frétt í blaðinu í gær kom jafnframt fram hjá Stefáni Hermannssyni borgarverk- fræðingi að hann og framkvæmdastjóri ÍTR hefðu komizt að þeirri niðurstöðu að fleiri en einn hefðu áhuga á að reka lík- amsræktarstöðina og því lagt til við borgarráð að farið yrði í forval, auglýst eftir mögulegum þátttakendum og fjár- hagsstaða þeirra m.a. könnuð en þetta hefði ekki orðið ofan á í borgarráði. Í sömu frétt sagði Steinunn Valdís að það mat að áhugi og geta annarra hefði verið minni en hjá Birni hefði verið byggt á umsögn borgarverkfræðings og framkvæmdastjóra ÍTR. Í Morgun- blaðinu í dag kemur skýrt og greinilega fram að borgarverkfræðingur og fram- kvæmdastjóri ÍTR komust þvert á móti að þeirri niðurstöðu að áfram hefðu bæði fyrirtæki Björns Leifssonar og Hreyfing áhuga á málinu og lögðu ekkert mat á mismunandi áhuga eða getu fyrirtækj- anna. Í Morgunblaðinu í dag hefur málflutn- ingur Steinunnar Valdísar enn tekið breytingum og nú gefur hún upp sem eina ástæðuna fyrir ákvörðun í málinu að Björn Leifsson hefði átt að njóta frum- kvæðis síns í málinu. Það er röksemd sem getur verið góð og gild, en hefur ekki verið meginatriði áður hjá borgar- fulltrúanum. Steinunn Valdís spyr í Morgunblaðinu í dag hvort fréttaflutningur blaðsins af þessu máli tengist á einhvern hátt kom- andi kosningum og „áróðursstríði minni- hlutans í borgarstjórn Reykjavíkur“. Af framansögðu má ljóst vera að megin- ástæðan fyrir tíðum fréttaflutningi af málinu undanfarna daga er að ummæli Steinunnar sjálfrar gefa einatt tilefni til að leitað sé frekari skýringa og kemur þá gjarnan í ljós að málflutningur borgar- fulltrúans hefur verið „misvísandi“ eins og hún orðar það sjálf. Það er þó ekki aðalatriðið. Það, sem stendur eftir, þegar þær upplýsingar sem komið hafa fram hér í blaðinu und- anfarna daga eru skoðaðar, er að borg- aryfirvöld virðast hafa gengið framhjá Hreyfingu í þessu máli en tekið fyrir- tæki Björns Leifssonar fram yfir af ástæðum, sem hafa ekki verið fyllilega skýrðar nema með því að hann hafi átt að njóta frumkvæðis síns að málinu. Það má hins vegar spyrja hvort skattgreiðendur í Reykjavík eigi að sætta sig við þá skýr- ingu. Var t.d. einhvern tímann kannað til fulls hvort aðrir en Björn Leifsson væru reiðubúnir að greiða meira fyrir hina eft- irsóttu lóð í Laugardal? Vinnubrögðin í þessu máli koma satt að segja á óvart, miðað við það mikla gæðaátak sem gert hefur verið í opin- berri stjórnsýslu, þar á meðal hjá Reykjavíkurborg, á undanförnum árum. AÐSTOÐ VIÐ AUSTUR-TÍMOR Allir lýðræðissinnar hljóta að fagnaþví þegar smáþjóð varpar af sér oki kúgunar og harðstjórnar líkt og íbúar Austur-Tímor hafa nú gert. Þróunin í Austur-Tímor á undanförnum árum hef- ur hins vegar sérstaka skírskotun hér á landi vegna þeirra tengsla, sem myndast hafa við eina helstu frelsishetju Austur- Tímora, José Ramos Horta, fyrir atbeina Kvennalistans. Þrjár Kvennalistakonur, Anna Ólafsdóttir Björnsson, Kristín Ást- geirsdóttir og Kristín Einarsdóttir sendu árið 1995 bréf til norsku Nóbels- nefndarinnar og tilnefndu Horta og Carl- os Bela biskup til friðarverðlauna Nób- els. Þetta gerðu þær að frumkvæði Kristínar Ástgeirsdóttur, sem árið áður hafði kynnt sér málefni Austur-Tímor og frelsisbaráttu íbúanna. Kristín tilnefndi þá áfram næstu árin þótt stöllur hennar væru horfnar af þingi. Árið 1997 fengu þeir síðan friðarverðlaunin og buðu þá Kvennalistakonunum þremur til Óslóar til að vera viðstaddar afhendingu þeirra. Vitaskuld voru fleiri öfl að verki, þegar nefndin ákvað að veita frelsisbaráttu íbúa Austur-Tímor stuðning, en þrýst- ingur Kvennalistans en það má heldur ekki vanmeta áhrif hvers og eins í sam- eiginlegu átaki og það er ljóst að frið- arverðlaunin höfðu áhrif á framhaldið, bæði með því að vekja athygli umheims- ins á áþján Austur-Tímor og efla frels- isbaráttuna. Horta er nú utanríkisráðherra Austur- Tímor. Hann hefur heimsótt Ísland oftar en einu sinni og þekkir því til Íslendinga. Íslendingar hafa nú þegar hafist handa við að aðstoða Austur-Tímor við að byggja upp sjávarútveg í landinu og það var við hæfi að Ingimundur Sigfús- son, sendiherra Íslands í Japan, skyldi vera viðstaddur þegar hið nýja ríki var stofnað. Það getur verið erfitt fyrir lítið land á borð við Ísland að láta að sér kveða í þró- unarmálum með sama hætti og stærri ríkjum er kleift. Í Austur-Tímor er hins vegar tækifæri fyrir Íslendinga til að veita ríki með nýfengið sjálfstæði aðstoð fyrstu skrefin með viðráðanlegum hætti. Kristín Ástgeirsdóttir sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að íbúar Austur- Tímor myndu þurfa á mikilli aðstoð og stuðningi að halda á næstu árum. Að öðr- um ólöstuðum hlýtur að vera nærtækast að horfa til hennar um að leiða slíkt verk- efni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.