Morgunblaðið - 23.05.2002, Page 39

Morgunblaðið - 23.05.2002, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 39 alþjóða- fyrstu á gon-bygg- sveitar- kílómetra rgunarað- ið rústir vikið við mun um- þar flókn- a spreng- – meðal nig bygg- il úr stáli trók þeg- sem beið r ekkert af bognu umhverf- m. Allar fylgdust tæður við llt öðrum kring var Þar fór unarstarf ngan að- m brann á rn var því vað er að hygli fjöl- 11. sept- a í Okla- yti ekki læpavett- svæðið sé ki þekkja gott sam- og björg- forsenda m sig geti un sönn- annslífa. stundað hygli fjöl- nir hátt- á björg- gerist er t á með- aríkjanna allt,“ seg- í annað. ástæðum arfsmenn íki betur Spurður um björgunarstarfið í Pentagon segir Perks að þrátt fyrir að flugvélin sem lenti á byggingunni hafi flogið í gegnum þrjár af sex byggingum sem mynda Pentagon hafi hún staðið af sér árásina betur en á horfðist í fyrstu. „Meðal þess sem menn óttuðust var að þak á hluta byggingarinnar myndi hrynja. Þegar við komum voru yfir 30 súlur eyðilagðar eða við það að hrynja. Verkefni okkar var að byggja stoðir undir þakið til að koma í veg fyrir að það félli saman.“ Spurður um atburðina við WTC segist Perks vera í sömu sporum og margir aðrir slökkviliðsmenn sem misstu kunningja og vini þeg- ar turnarnir féllu. „Við vissum strax frá upphafi að margir slökkviliðsmenn áttu þarna í hlut og atburðirnar urðu fljótt mjög persónulegir. Það sem maður reynir að gera er að halda einbeitingunni,“ segir hann. Perks missti sjálfur 13 félaga sína á Manhattan. „Við erum fyrst og fremst búnir tækjum til að vinna við stein- steypt hús en þarna vorum við að eiga við stál sem þarf að skera mjög mikið í sundur áður en hægt er að flytja það á brott. Þótt við hefðum einhver tök á því að skera í sundur stál höfðum við ekki þann búnað við höndina strax frá upphafi.“ Perks bendir á að senda hafi þurft sérstaklega eftir tækjum til að klippa í sundur stál. „WTC var bara hrúga af stáli. Ég held að það hafi liðið sex vikur frá því að björgunaraðgerðir hóf- ust og þar til þeir komu niður á steinsteypu. Tölvur, símar, skrif- borð og annað sem maður býst við að finna í skrifstofuhúsnæði var ekki til að dreifa þar sem það hafði annaðhvort eyðilagst við hrunið eða í brunanum.“ Aðspurð- ur hvað hafi breyst frá því hryðju- verkaárásirnar voru gerðar á Bandaríkin 11. september í fyrra segir Perks að mikið óunnnið verk sé fyrir höndum en að rústabjörg- unarsveitir hafi jafnframt náð eyrum stjórnvalda. „Stjórnvöld eru mun meira með hugann við atriði sem hafa skipt björgunarsveitarmenn miklu máli um langa hríð. Við höfum áhyggj- ur af búnaði, þjálfun og bygging- um og það virðist sem björgunar- sveitarmenn hafi í fyrsta sinn eignast málsvara. Verkefni, sem áður var slegið á frest, eru nú sett í framkvæmd,“ segir Dewey Perks. Bandaríska sveitin aðstoði Íslendinga í neyð Sólveig Þorvaldsdóttir, fram- kvæmdastjóri Almannavarna rík- isins, segir nokkurn aðdraganda að samstarfi Íslands og Banda- ríkjanna á sviði rústabjörgunar. Sólveig starfaði um árabil í banda- rísku alþjóðasveitinni en sneri heim árið 1996 og hóf þegar að kanna möguleika á samstarfi. Á grundvelli varnarsamnings Bandaríkjanna og Íslands hófst samstarfið með formlegum hætti árið 2000 og meðal annars hélt 25 manna hópur í júli í fyrra til Fair- fax í Virginíu til að fræðast um rústabjörgun. „Það er mjög mikilvægt einnig að vera í góðum tengslum við öfl- uga erlenda rústabjörgunarsveit ef við þyrftum á að halda. Ef við þyrftum á þessari sveit að halda myndi það ganga mjög hratt fyrir sig,“ segir Sólveig, en verið er að vinna að nánara samstarfi á því sviði. Áætlað er að viðbragðstími bandarísku björgunarsveitarinnar yrði rétt um hálfur sólarhringur. Námskeiðið sem nú er haldið er ætlað að kenna undirstöðuatriði í brotvinnu, stoðvinnu og hífingum. Því lýkur með verklegri æfingu í Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi þar sem reynt verður að líkja eftir raunverulegum aðstæðum. Í vik- unni verða einnig haldnir fyrir- lestrar um ýmsa þætti er lúta að björgun úr rústum, meðal annars störf lækna, verkfræðinga og hjúkrunarfræðinga á slysstað og leit í rústum með aðstoð hunda og með sérstökum leitartækjum. ústabjörgun í Pentagon og WTC miðla af eigin reynslu prenginga eru ólík- r náttúruhamfarir f stáli. Ég held að það hafi liðið sex vikur frá því að björgunaraðgerðir hófust og þar á steinsteypu,“ segir Dewy Perks um aðkomuna að rústum World Trade Center. Morgunblaðið/Golli Slökkviliðs- og björgunarmenn af öllu landinu hafa undanfarna daga fengið kennslu í rústabjörgun undir stjórn bandarískra og íslenskra leiðbeinenda. Hér eru frá hægri: Dewey Perks, yfirmaður alþjóðasveit- arinnar, Sólveig Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Almannavarna rík- isins, Brynjar Friðriksson, slökkviliðsmaður og leiðbeinandi, og Pétur Ingi Guðmundsson, leiðbeinandi, Hjálparsveit skáta Kópavogi. Slökkvistöðin í Fairfax Svona var umhorfs við Pentagon-bygginguna fyrstu dagana eftir hryðjuverkin 11. september. Hópur slökkviliðsmanna frá Fairfax, undir stjórn Dewey Perks, var á meðal hinna fyrstu á staðinn. BO Fernholm, formaðurAlþjóðahvalveiðiráðsins,segir að aðild Íslands aðhvalveiðiráðinu hafi ver- ið hafnað vegna þess að Ísland hafi sett fyrirvara við samþykktir ráðs- ins. Nýtt aðildarskjal hafi engu breytt vegna þess að það hafi efn- islega falið í sér sömu fyrirvara og áður. Hann vísar því á bug að hafa brotið reglur ráðsins eða fund- arsköp. Árni M. Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra og Stefán Ásmundsson, formaður íslensku sendinefn- arinnar á ársfundi hvalveiðiráðs- ins, hafa báðir gagnrýnt Bo Fern- holm harðlega fyrir fundarstjórn og fyrir að hafa brotið reglur ráðs- ins. Stefán sagði í Morgunblaðinu sl. þirðjudag. „Á fundinum ákvað for- maður hvalveiðiráðsins, Svíinn Bo Fernholm, að taka sömu afstöðu og hafði komið fram hjá Bandaríkja- mönnum og líta ekki á þetta sem venjulegt aðildarskjal og þar með tók hann þátt í því að vinna ekki samkvæmt samningnum. Þar með voru vörsluaðili samningsins og formaðurinn búnir að ganga bein- línis gegn 10. gr. samningsins, sem er mjög skýr að þessu leyti. Að sjálfsögðu er það hlutverk vörslu- aðila og formanns að vera hlut- lausir. Formaðurinn ákvað að ákvörðun sem var tekin í fyrra myndi gilda líka um þetta nýja skjal Íslands, ákvörðun sem er tekin u.þ.b. ári áð- ur en skjalið er lagt fram, á þeirri forsendu að fyrirvarinn væri nán- ast sá sami. Þar með er verið að virða aðildarskjal Íslands að vett- ugi.“ Sama afgreiðsla og fyrir ári Fernholm var spurður hvers vegna aðild Íslands að hval- veiðiráðinu hefði ekki verið sam- þykkt. „Ástæðan fyrir því að hval- veiðiráðið hafnaði aðild Íslands að ráðinu er sú að Ísland setti fyr- irvara við aðild sinni. Það voru nokkrir nýir meðlimir samþykktir og þær þjóðir voru boðnar vel- komnar í ráðið á fundinum. Aðeins Ísland reyndi að fá aðild að hval- veiðiráðinu með því að setja fyr- irvara við samþykktir ráðsins. Að- ild á þessum grundvelli var ekki samþykkt á síðasta ári og var ekki heldur samþykkt í ár.“ Fyrir nokkrum dögum lagði Ís- land fram nýtt aðildarskjal. Hvers vegna var þetta nýja skjal ekki samþykkt? „Vegna þess að þetta aðild- arskjal innhélt alveg sömu fyrirvar- anna og settir voru fram á síðasta ári. Þess vegna var staðan alveg sú sama í ár og í fyrra. Orðalag í þessu nýja aðildarskjali var alveg það sama og í fyrra. Eina breytingin er að í nýja skjalinu var bætt við nokkrum línum þar sem segir að Ís- land muni sjálft taka ákvörðun um hvenær þessir fyrirvarar taki gildi. Meginatriðið er að Ísland vill setja einhliða fyrirvara við aðild og fyr- irvarinn er sá sami og áður.“ Ísland ætti að óska eftir aðild án fyrirvara Stefán Ásmundsson, formaður ís- lensku sendinefndarinnar, sagði í samtali við Morgunblaðið að þú, sem formaður hvalveiðiráðsins, hefðir brotið reglur hvalveiðiráðs- ins. Hverju svarar þú þessum ásök- unum? „Þetta er hans afstaða en ég er ekki sammála henni. Ég taldi að ég yrði að taka mið af afgreiðslum málsins á síðasta ársfundi. Málið hlaut sömu afgreiðslu nú og á síð- asta ári, sem er að sjálfsögðu hin eðlilega afstaða. Hin lagalega staða er hins vegar óskýr. Það er hægt að túlka þjóðarrétt með ólíkum hætti. Hans túlkun á þjóðarrétti er ekki sú eina rétta. Það eru til túlkanir á þjóðarrétti sem eru andstæðar þeim sem Stefán hefur haldið fram.“ Stefán hélt því einnig fram að þú hefðir brotið fundarsköp þegar að- ild Íslands var til umræðu á árs- fundinum. „Það er rétt að hann hélt þessu fram, en ég er ekki sammála þess- um fullyrðingum hans. Ég lagði undir atkvæði fundarins þann ágreining sem upp kom um stjórn fundarins með sama hætti og önnur mál voru lögð undir atkvæði fund- arins.“ Telur þú að hvalveiðiráðið hafi vald til að greiða atkvæði um þá fyrirvara sem Ísland hefur sett fyr- ir aðild sinni? „Já, ég tel svo vera og meirihluti aðildarþjóða hvalveiðiráðsins er á sama máli.“ Hvað finnst þér um þá afstöðu Ís- lands að ganga út af fundi hval- veiðiráðsins? „Það sem ég tel að Ísland eigi að gera er að ganga í hvalveiðiráðið með sama hætti og aðrar þjóðir hafa gert, þ.e. án fyrirvara. Ísland yrði án efa boðið velkomið og ég tel að aðildarþjóðirnar vilji að Ísland taki fullan þátt í störfum ráðsins,“ sagði Fernholm. Reuters Bo Fernholm vísar á bug ásökunum Íslendinga um að óeðlilega hafi verið staðið að atkvæðagreiðslu um aðild Íslands að ráðinu. Hann hvetur Íslendinga til að gerast aðilar að ráðinu án fyrirvara. Bo Fernholm, formaður hval- veiðiráðsins, um gagnrýni Íslands Nýtt aðildar- skjal hafði að geyma sömu fyrirvara og áður

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.