Morgunblaðið - 23.05.2002, Side 43
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 43
EIN þeirra spurninga sem við
frambjóðendur á Akureyri höfum
fengið nú í aðdraganda kosninga er
spurningin: Um hvað er kosið? Það er
eðlilegt að fólk spyrji sem svo því
sumum getur reynst erfitt að gera
upp hug sinn.
Í mínum huga er svarið við þessari
spurningu einfalt. Kosningarnar snú-
ast um það hvort við Akureyringar
viljum að bæjarfélaginu verði stýrt
undir sömu formerkjum næstu fjögur
árin og því hefur verið stýrt á yfir-
standandi kjörtímabili. Akureyringar
munu kjósa um festu og stöðugleika í
stjórn bæjarins. Akureyringar munu
kjósa um það hvort þeir vilja fela
stjórn bæjarins fulltrúum sem þora
að gefa loforð og vilja standa við þau.
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins
þora, vilja og geta. Um það snúast
kosningarnar 25. maí á Akureyri.
Jákvætt hugarfar
Sú hugarfarsbreyting sem orðið
hefur hjá bæjarbúum á kjörtíma-
bilinu er aðalástæða þess að Akureyri
er vaxandi bær sem hefur endur-
heimt forystuhlutverk sitt meðal
sveitarfélaga í landinu. Við sjálfstæð-
ismenn viljum áfram vinna að því að
auka tiltrú og bjartsýni Akureyringa
og annarra landsmanna á það sam-
félag sem dafnar hér í bæ.
Barlómskórinn sem hljómaði iðu-
lega við ýmis tækifæri hér á árum áð-
ur er, sem betur fer, að mestu þagn-
aður, en þó ber enn við að nokkrir
frambjóðendur reki annað veifið upp
þessi gamalkunnu ramakvein. Til-
gangurinn er væntanlega sá að fá
hinn almenna bæjarbúa til þess að
trúa því að allt sé komið í óefni og
hvergi vonarglætu að sjá. Þetta
háttalag frambjóðenda, í fjórar vikur
á fjögurra ára fresti, ber ekki vitni
um að þeir hafi trú á almennri skyn-
semi kjósenda. Það sjá það allir sem
vilja sjá að bærinn okkar hefur vaxið
og blómgast á síðustu fjórum árum.
Margt hefur áunnist og mörg góð
verkefni framundan að vinna.
Við Akureyringar þurfum ekki á
barlómi að halda og vonandi hefur
hann siglt burt með þeim fræga ryð-
dalli Omnyu. Þessi fleyta, sem líta má
á sem holdtekju kyrrstöðu og bar-
lómskórsins á kjörtímabilinu 1994–
1998, siglir nú á aðrar veiðislóðir en
Akureyrarbæ. Farvel, Omnya, farvel
allt það sem hún var orðin táknmynd
fyrir.
Betra veður?
Á almennum kynningarfundi þar
sem frambjóðendur D-listans kynntu
stefnuna fyrir komandi kjörtímabil
benti ég á til gamans að góð ástæða til
þess að kjósa D-listann væri að hér
hefði veðurfar batnað á kjörtíma-
bilinu. Þessi fullyrðing var auðvitað
sett fram meira í gamni en alvöru en
þó liggur í henni sannleikskorn. Ak-
ureyri og Akureyringar hafa á kjör-
tímabilinu öðlast aukinn kraft og
bjartsýni eftir stöðnun og fram-
kvæmdaleysi áranna á undan. Bjart-
sýnin og baráttuhugurinn sem ein-
kennt hefur Akureyringa undanfarin
fjögur ár gera það að verkum að góða
veðrið sem hér ríkir virðist enn betra.
Um það verður kosið 25. maí. Bjart-
sýni og baráttuhug til framtíðar.
Það væri líka hægt að svara ofan-
greindri spurningu með annarri
spurningu: Viljum við Akureyringar
kalla yfir okkur að nýju þá kyrrstöðu
sem hér ríkti á árunum 1994–1998,
eða viljum við áfram
þann kraft sem einkennt
hefur kjörtímabilið
1998–2002? Um þetta,
fyrst og fremst, snúast
bæjarstjórnarkosning-
arnar á Akureyri hinn
25. maí.
Metnaðarfull
stefna D-listans
Ég hvet fólk eindregið
til að bera saman stefnu-
skrár flokkanna sem í
framboði eru og einnig
framboðslistana sjálfa.
Það er trú mín að D-list-
inn komi sterkur frá
þeim samanburði. Í ítar-
legri og metnaðarfullri stefnuskrá
okkar er horft til framtíðar og mann-
valið á listanum er mikið. Eitt af því
sem gerir D-listann að
öflugum og góðum
kosti fyrir kjósendur
er að þar er saman
kominn mjög sam-
stilltur hópur, jákvætt
fólk sem vill berjast af
fullu afli fyrir framför-
um og farsæld í bæn-
um.
Ég vil að lokum
hvetja kjósendur á
Akureyri til að neyta
atkvæðisréttar síns og
hafa þannig bein áhrif
á það hverjir veita
bænum okkar forystu
næstu fjögur árin.
Um hvað
er kosið
á Akureyri?
Kristján Þór
Júlíusson
Akureyri
Akureyringar munu
kjósa um það,
segir Kristján Þór
Júlíusson, hvort þeir
vilja fela stjórn bæj-
arins fulltrúum sem
þora að gefa loforð og
vilja standa við þau.
Höfundur er bæjarstjóri
á Akureyri og skipar 1. sæti
D-lista Sjálfstæðisflokks.
Frá
Miðjarðarhafinu
í apótekið þitt
„Pharmaceutical - Grade“
ólífuolía í gelhylkjum með
vítamínum, jurtum og/eða
steinefnum.
Heilsuleikur
Þú gætir unnið ferð til
Spánar!
Aðeins í Plúsapótekunum
www.plusapotek.is