Morgunblaðið - 23.05.2002, Side 45

Morgunblaðið - 23.05.2002, Side 45
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 45 Þessi einstaka eyja á sér fjölmarga aðdáendur enda ríkir hér andrúms- loft sem er einstakt í heiminum og náttuúrfegurð sem á engan sinn líka. Glæsileg hótel við ströndina eða í hjarta Havana og hér getur þú valið um spennandi kynnisferðir með fararstjórum Heimsferða sem eru hér á heimavelli. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Verð kr. 79.950 M.v. MasterCardávísun að upphæð kr. 5.000. Almennt verð án ávísunar kr. 84.950. M.v. 2 í herbergi með morgun- mat, flug, skattar, gisting, fararstjórn. Hótel Arenas Doradas **** Glæsilegt 4 stjörnu hótel við ströndina með frábærum aðbúnaði. Kúba 5. nóvember - 7 nætur frá 79.950 kr. MIKIÐ hefur verið rætt og ritað um lóða- skortinn í Reykjavík á undanförnum vikum, en hann hefur leitt til þess að fjöldi fjöl- skyldna, auk fyrir- tækja, hefur flutt úr borginni til nágranna- sveitafélaganna þar sem staðið hefur verið vel að þessum mála- flokki og ný hverfi hafa sprottið upp. Það sama er ekki hægt að segja um núverandi stjórn borgarinnar, sem varla hefur aðhafst neitt í þessum málum og stað- ið illa að því litla sem gert hefur ver- ið. Þegar litið er til baka, blasir við að eina nýja hverfið sem hefur verið skipulagt og byggt upp á tveimur síðustu kjörtímabilum, heilum átta árum, er Grafarholtshverfið. Við út- hlutun lóða í þessu ágæta hverfi var farin svokölluð uppboðsleið. Upp- boðsleiðin er í því fólgin að hæstbjóð- andi fær lóðirnar. Þessi aðferð olli því að sárafáir einstkalingar gátu keppt við byggingafyrirtækin sem buðu í lóðirnar og verðið fór langt upp fyrir það sem eðlilegt var miðað við verðlag. Gamalgróin og sterk byggingafyrirtæki buðu þó ekki í lóðirnar sem boðnar voru, þar sem þau sáu fram á að geta ekki velt hinu háa lóðaverði áfram út í verðlagið á húsnæðinu fullbúnu og selt íbúðirnar á samsvarandi hærra verði. Það hef- ur svo komið á daginn að þeir aðilar sem réðust í framkvæmdir í Grafar- holtinu og sitja nú uppi með tilbúnar íbúðir, gengur illa að selja þær vegna hins háa verðs sem þeir þurfa að fá fyrir þær, til að standa undir kostn- aði og fá eitthvað fyrir sinn snúð. Af- leiðingar þessa fyrirkomulags hafa ekki látið á sér standa, en þær hafa gert það að verkum að íbúðarverð og leigu- verð í höfuðborginni hefur hækkað veru- lega. Ef litið er til baka og skoðað hvernig þessum málaflokki var stjórnað í tíð sjálfstæðismanna, þegar þeir skipulögðu byggð og úthlutun lóða í Grafarvogi, kemur í ljós að þar var einstak- lingum og bygginga- fyrirtækjum gefinn kostur á lóðum á sann- gjörnu verði. Nægjan- legt framboð var til staðar og lengi vel var hægt að velja úr lóðum. Verð lóða í Grafarholti með upp- boðsfyrirkomulaginu er þrisvar til fjórum sinnum hærra en verð var við úthlutun sambærilegra lóða í Graf- arvogi. Nái Sjálfstæðisflokkurinn meiri- hluta ætlar hann að tryggja nægar lóðir í borginni, bæði fyrir fólk og fyrirtæki og afnema lóðauppboð. Hann ætlar að haga gatnagerðar- gjöldum og söluverði lóða í samræmi við kostnað borgarinnar við gerð nýrra byggingarsvæða. Í kosningabaráttu sinni hefur Sjálfstæðisflokkurinn lofað að stöðva umhverfisslysið sem nú þegar er haf- ið í Geldinganesi. Að byggja stór- skipahöfn og atvinnusvæði sem óum- flýjanlega verður að fylgja höfninni, er í andstöðu við hugmyndir Sjálf- stæðisfokksins og í andstöðu við hagsmuni Reykvíkinga, bæði þeirra sem vilja eiga kost á lóðum á falleg- um útsýnisstað og þeirra sem þegar hafa búið sér heimili í Grafavoginum og sjá fram á, með óbreyttu ástandi, að fá umferð og mengun sem fylgir hafnarsvæði rétt við húsvegginn. Geldinganesið er kjörið til íbúðar- byggðar og þar væri hægt að koma fyrir allt að tíu þúsund manna byggð. Lengi hefur vantað lóðir fyrir smærri einbýlishús og raðhús á einni hæð, sem mikil eftirspurn hefur ver- ið eftir og lítið sem ekkert framboð hefur verið á í stjórnartíð R-listans. Tilvalið væri að reisa slíka byggð í suðurhlíðum nessins. Norðanmegin mætti hins vegar reisa minni fjöl- býlishús, sem einnig hefur verið skortur á undanfarin ár. Þeir sem komið hafa út í Geldinga- nes hafa sannfærst um hversu tilval- inn þessi fallegi staður er fyrir slíka byggð og hversu illa væri farið með þessa perlu ef nýta ætti hana eins og R-listamenn hyggjast gera. Hina, sem ekki hafa komið út í nesið, vil ég hvetja til að leggja leið sína þangað og dæma sjálfir. Um leið má sjá stærð margumræddrar gryfju R-listans og velta fyrir sér hvort menn vilja fimmfalda stærð hennar og byggja stórskipahöfn, eins og Ingibjörg Sólrún og skó- sveinar hennar ætla sér, eða hvort betur færi á að geta ekið þarna um fallegt íbúðarhverfi í sunnudagsbílt- úrum framtíðarinnar. Leggjum lóð okkar á rétta vogar- skál. Það getur þýtt lóðir í Geldinga- nesi fyrir íbúa Reykjavíkur. Setjum Reykjavík og um leið íbúa hennar í fyrsta sæti. Lóð fyrir lóðir! Benedikt Geirsson Reykjavík Leggjum lóð okkar á rétta vogarskál, segir Benedikt Geirsson. Það getur þýtt lóðir í Geld- inganesi fyrir íbúa Reykjavíkur. Höfundur skipar 13. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. HVERFIN austan Elliðaáa eru hvert um sig afar falleg og hvert um sig státar af eigin sérstöðu frá náttúrunnar hendi. En það er enginn vandi að spilla þeim með handahófskennd- um skipulagsaðgerð- um eins og dæmin sanna. Ég sem íbúi í Grafarvogi og áður í Árbæjarhverfi hef mikinn áhuga á skipu- lagsmálum hverfanna, ásamt mörgum öðrum þáttum sem snerta daglegt líf íbúa þeirra. Bæta þarf öryggi þeirra sem fara um hverfin gangandi og hjólandi. Gera íþrótta- og heilsugæslumálum hærra undir höfði. Löggæslumál eru mjög brýnt úrlausnarverkefni svo eitthvað sé nefnt. Landssímalóðin er mér ofarlega í huga, en ég bý í Rimahverfi Graf- arvogs. Einnig búa þar synir mínir tveir með sínar fjölskyldur. Það geitungabú sem ég kalla svo – og reisa á þar – sökum umferðaröng- þveitis, þéttleika, háhýsa og fjölda íbúða veldur mér miklum áhyggj- um. Eikum sökum þess að borg- aryfirvöldum ber engin skylda til þess að skipuleggja reitinn með þessum hætti. Borgin á ekki einu sinni lóðina. Og þegar talsmaður eiganda svæðisins hótaði undir rós íbúum Rimahverfisins á fundi því að ef við héldum okkur ekki á mottunni yrði lóðin skipulögð undir iðnaðarstarfsemi. Þvílík er fram- koman við okkur og borgaryfirvöld ganga undir svona fólki. Íbúar við Garðhús eiga samúð mína alla eftir úrskurð um- hverfisráðherra um lagningu Hallsvegar. Fram kemur í úr- skurðinum að kostn- aðurinn við að leggja veginn í stokk sé 480 milljónir eða 350 millj- ónir umfram hefð- bundna veglagningu, sem eru smáaurar miðað við þær 700 milljónir sem fóru í að breyta Hafnarhúsinu í Listasafn Reykjavíkur fyrir listaakademíuna og þá þrjá milljarða sem Reykja- víkurborg telur sig hafa efni á að leggja í byggingu tónlistarhallar. Ég vil einnig beina orðum mín- um til íbúa hinna hverfanna austan Elliðaáa. Sérstaða Kjalarness er nálægðin við sveitina og þær stór- kostlegu fjörur sem hverfið hefur. En Kjalnesingar mega búa við skólahúsnæði sem vart heldur vindi né vatni og dagvistunarmál eru í ólestri. Seinkun Sundabraut- ar kemur mjög illa við þá sem og Grafarvogsbúa. Árbærinn hefur verið gleymdur svo árum skiptir. Svæðið ofan stíflu er ein samfelld náttúruperla sem tengir saman Árbæ og Breiðholt á afar skemmti- legan hátt. Þarna þarf að taka til hendinni og gera svæðið enn not- endavænna. Breiðholtið er það hverfi sem býður upp á stórkoslegt útsýni í allar áttir og fallegt lands- lag. Gafarvogurinn hefur mjög fjöl- breytilegt landslag, víðsýnt er þar og fallegar fjörur. Þetta gerir hverfið afar sérstakt. En eitt hafa hverfin fjögur sam- eiginlegt. Það er afar slælegt viðald á flestum þáttum sem borgin á að framkvæma. Ræktuð beð drabbast niður, gangstéttar og vegkantar krosssprungið svo árum skiptir. En það er ekki öll nótt úti enn fyrir okkur sem búum í úthverf- unum. Ef við berum gæfu til að bjóða F-listann velkominn í hverfin okkar með Ólaf F. Magnússon og Margréti Sverrisdóttur í broddi fylkingar mun F-listinn ná odda- stöðu í komandi kosningum, hverf- unum til framdráttar. Oddviti eins framboðsins í Reykjavík komst svo ósmekklega að orði að kalla hverfin austan Ell- iðaáa viðhengi. Þetta sýnir best það að við sem búum í úthverf- unum þurfum að standa saman og berjast fyrir réttlátri skiptingu framkvæmda í Reykjavík Aðeins um Geldinganesið. Við í F-listanum höfum þá trú að innan skamms tíma nái skynsemin yfir- höndinni og sveitarfélög á Stór- Reykjavíkursvæðinu sameinist, því sé ekki þörf á því að taka Eiðsvík- ina frá fyrir stórskipahöfn. Geld- inganesið verði skipulagt sem íbúð- arbyggð. Byggt verði glerþak yfir grjótnámuna og þar verði heilsárs skrúðgarður með sædýrasafni framan við námumunnann. Þetta tvennt mun nýtast margfalt fleir- um en tónlistarhöll og vera ein- stakt á heimsvísu. F-listinn og út- hverfi Reykjavík- ur eiga samleið Björgvin E. Arngrímsson Reykjavík Ef við berum gæfu til að bjóða F-listann velkom- inn, segir Björgvin E. Arngrímsson, mun hverfunum okkar farn- ast vel. Höfundur skipar 25. sæti F-listans í Reykjavík. KONUR kjósa R- listann skrifar Guðjón Friðriksson í Morgun- blaðið síðastliðinn þriðjudag. Það voru þá fréttir. Hvers vegna bætir hann því ekki við að konur kjósa líka D-listann, það hlýtur að vera jafnfréttnæmt. Eða eru þær þúsundir kvenna sem kjósa D- listann ekki konur? Málflutningur Guð- jóns ber keim af þeirri gömlu aðferð vinstri- manna að eigna sér jafnrétti kvenna og karla og gefa í skyn að enginn hvorki vilji né geti sinnt þeim mál- um nema þeir. Hvílík fjarstæða! Sjálfstæðisflokkurinn er í raun stærsta kvennahreyfing landsins, hvergi eru fleiri konur félagsbundn- ar í nokkurri hreyfingu. Hann var fyrstur flokka til að kalla konur til forystu bæði á sviði sveitarstjórna og landsmála og innan hans fer fram öflug og framsækin umræða um jafnréttismál. Niðurstöður þeirrar umræðu koma skýrt fram í málflutningi og gjörðum flokksins og vil ég sérstaklega minna á ný lög um fæðingarorlof sem forsætis- ráðherra gaf fyrirheit um við setn- ingu ráðstefnunnar Konur og lýð- ræði haustið 1999. Lögin sem sett voru í kjölfarið eru einhver mik- ilvægasta aðgerð á sviði jafnréttismála undanfarin ár og þá ekki aðeins hvað varð- ar jöfnun fjölskyldu- ábyrgðar kynjanna heldur einnig stöðu þeirra á vinnumark- aðnum. Það sér hver maður sem skoðar stefnuskrá D-listans fyrir þessar borgarstjórnarkosn- ingar að jafnréttismál- in eru þar lykilmál. Að gefa annað í skyn er fals. Það sér líka hver maður sem það vill að D-listinn í Reykjavík ber fram fríðan flokk öflugra kvenna sem eru reiðubúnar til að vinna að þessum málum og draga hvergi af sér. Og ekki bara kvenna heldur líka karla sem ekki þykir síður mikilvægt að koma þessum málum í lag. Guðjón fer mikinn í að draga athyglina að kvennavali R- listans en lætur þess ógetið að þær sem kjósa þann bræðing eru líka að kjósa Árna Þór, Alfreð Þorsteins- son og Stefán Jón svo tínt sé til úr framvarðarsveit listans. Er ekki kominn tími til að Reykvíkingar fái ærlega umræðu um þau mál sem á þeim brenna í stað hálfsannleika og misvísandi upplýsinga? Er ekki kominn tími til að velja til forystu samstilltan hóp kvenna og karla sem er meira en reiðubúinn til að vinna af dugnaði og djörfung að jafnrétti kynjanna? Fólk sem kann að hlusta á kjósendur en telur sig ekki sjálft vita allt best? Það segir enginn konum hvað þær kjósa. Eins og ævinlega í kosningum svarar hver fyrir sig. Svari hver fyrir sig Sigríður Dúna Kristmundsdóttir Reykjavík Eru þær þúsundir kvenna, segir Sigríður Dúna Kristmunds- dóttir, sem kjósa D- listann ekki konur? Höfundur er prófessor við Háskóla Íslands og fyrrverandi þingkona Kvennalistans í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.