Morgunblaðið - 23.05.2002, Qupperneq 46
UMRÆÐAN
46 FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Sjálfstæðisflokkur-
inn í Reykjavík með
Björn Bjarnason í fylk-
ingarbrjósti hefur farið
mikinn í umræðum um
landfyllingar og grjót-
nám í yfirstandandi
kosningabaráttu. Ekki
hefur Björn sparað
stóru orðin í þeim efn-
um, heldur kveðið fast
að og hvað eftir annað
talað um það sem hann
kallar yfirvofandi um-
hverfisslys. En ef rýnt
er í málflutning Björns
varðandi grjótnám á
Geldingarnesi og land-
fyllingu í Ánanaustum
vakna spurningar um trúverðug-
leika og tvískinnung.
Er Björn Bjarnason á móti
landfyllingum?
Það er ekkert sem bendir til þess
að Björn sé ósáttur við þær landfyll-
ingar, sem stór hluti Reykjavíkur
hvílir á; Grófina, Hafnarstræti, Sæ-
braut, Granda eða Örfirisey. Hann
hefur alveg þagað um uppfylling-
arnar við Elliðaárósinn-Geirsnefið
og hann hefur heldur ekki mótmælt
landfyllingunni sem sjálfstæðis-
menn í Garðabæ eru að leggja drög
að í Arnarnesvogi, þó er það svæði á
náttúruminjaskrá og alþjóðlega
mikilvægt fuglaverndarsvæði. En
hann er alveg að fara á límingunum
vegna uppfyllingarinnar sem
Reykjavíkurlistinn áætlar að gerð
verði við Ánanaust. Að öðru leyti
hefur Björn ekki heyrst mótmæla
landfyllingum. En uppfylling við
Ánanaust yrði í hans augum hvorki
meira né minna en um-
hverfisslys!
Er Björn Bjarnason
á móti grjótnámi?
Varla, a.m.k. lagðist
hann ekki gegn því á
Alþingi að reist yrði
jarðvegsstífla við
Kárahnjúka úr 10
milljón rúmmetrum af
grjóti og jarðvegi, sem
tekinn yrði úr fjölda
efnisnáma og jarð-
ganga sem boruð yrðu
vegna virkjanafram-
kvæmdanna á hálendi
Íslands, svæði sem er
nánast ósnortið, hefur gífurlega hátt
náttúruverndargildi og er að hluta
til friðlýst. En hann er á móti grjót-
námi í útjaðri Reykjavíkurborgar,
að vísu ekki grjótnáminu, sem var
við Austurbæjarskóla, Öskjuhlíð eða
Sjómannaskólann. En hann er alveg
að fjúka af skaftinu vegna grjót-
námunnar á Geldinganesinu. Lýs-
ingarnar á skaðanum eru svo há-
stemmdar að honum er orðið tamt
að tala um „suðurhlíðar“ Geldinga-
nessins og kallar grjótnámið hik-
laust umhverfisslys. Ekki nóg með
það, því þegar hann leggur saman
áhrif væntanlegrar uppfyllingar við
Ánanaust og grjótnáms í Geldinga-
nesi sér hann fyrir sér tvöfalt um-
hverfisslys!
Er Björn Bjarnason
umhverfisverndarsinni?
Í úrskurði Skipulagsstofnunar um
grjótnám á Geldinganesi, sem birt-
ur var síðla árs 1997, kemur fram að
engar athugasemdir hafi borist á
kynningartíma matsskýrslu, en eins
og kunnugt er voru umhverfisáhrif
grjótnámsins metin eins og lög gera
ráð fyrir. Hvað var Björn eiginlega
að hugsa á meðan skýrslan var opin
til kynningar og matsferlið var í
þeim farvegi að hægt hefði verið að
hafa áhrif á framgang mála? Honum
hlýtur að hafa verið fullkunnugt um
aðferðir þær sem viðhafðar eru við
mat á umhverfisáhrifum og þá hug-
myndafræði sem þar liggur að baki.
Hann átti jú sæti á Alþingi þegar
lögin um mat á umhverfisáhrifum
voru sett en hann virðist ekki
áhugasamur um að nýta sér þær
leiðir sem lögin gera ráð fyrir og
standa öllum opnar; leiðir sem bein-
línis eru til þess ætlaðar að fólk geti
haft áhrif á gang mála áður en
ákvarðanir eru teknar. Slíkt hefur
fólk gert á afgerandi hátt þegar
stærri framkvæmdir hafa verið til
umfjöllunar, t.d. risavaxnar fram-
kvæmdir á hálendi Íslands sem
Björn Bjarnason hefur stutt sem
þingmaður og ráðherra Sjálfstæð-
isflokksins. Björn Bjarnason hefur
ekki andað út úr sér einu orði um
umhverfisslys þegar það hefur verið
til umfjöllunar að sökkva Þjórsár-
verum eða færa Jöklu úr náttúru-
legum farvegi sínum og veita henni í
Lagarfljót. Er Björn Bjarnason trú-
verðugur málsvari umhverfisvernd-
ar eða ber málflutningur hans vott
um tvískinnung?
Trúverðug-
leiki eða tví-
skinnungur?
Kolbrún
Halldórsdóttir
Reykjavík
Björn hefur ekki andað
út úr sér einu orði um
umhverfisslys, segir
Kolbrún Halldórs-
dóttir, þegar það hefur
verið til umfjöllunar að
sökkva Þjórsárverum.
Höfundur er 17. þingmaður
Reykvíkinga.
Á ÁRUNUM 1980 til
2000 fjölgaði Íslending-
um um 23%. Á sama
tíma fjölgaði íbúum
höfuðborgarsvæðisins
um 44%, íbúum á Ak-
ureyri um 15%, en íbú-
um landsbyggðar utan
Akureyrar fækkaði um
3%. Á þessum tíma
hafa Framsóknar- og
Sjálfstæðisflokkur far-
ið með byggðamál í rík-
isstjórn Íslands.
Stjórnvöld hafa sam-
ið svokallaðar byggða-
áætlanir til að snúa
þessari þróun við, en
hafa litlum sem engum árangri náð.
Það hefur í raun verið átakanlegt að
horfa upp á úrræða- og framtaks-
leysi ráðamanna í þess-
um málaflokki. Einu og
einu beini hefur verið
hent í landsbyggðina,
jafnréttisstofu hér og
einstaka störfum þar.
En tölurnar sýna að
vinna stjórnvalda í
þessum málaflokki hef-
ur verið ómarkviss og
langt frá því að skila ár-
angri, þrátt fyrir marg-
samþykktar byggða-
áætlanir skömmu fyrir
kosningar.
Nú hefur iðnaðarráð-
herra kynnt enn eina
nýja byggðaáætlun þar
sem sérstök áhersla er
lögð á Akureyri og Eyjafjörð sem
vaxtarsvæði utan suðvesturhornsins.
Þessu ber að fagna en jafnframt að
minnast þess hvernig stjórnvöld hafa
staðið sig til þessa við framkvæmd
fyrri byggðaáætlana.
Orð og efndir
Ég nefni bara eitt dæmi: Í fyrri
byggðaáætlunum hefur áhersla verið
lögð á eflingu náms á landsbyggðinni
og sérstaklega rætt um fjarnám og
verklegt nám í því samhengi. Á sama
tíma hafa stjórnendur Verkmennta-
skólans á Akureyri þurft að berjast
fyrir hverri krónu sem fengist hefur
frá ríkinu til þess að halda úti fjar-
kennslu skólans þar sem nú stunda
rúmlega 600 nemendur nám. Á sama
tíma hefur verknám í Verkmennta-
skólanum átt mjög undir högg að
sækja.
Fjárveitingar til skólans duga
hvergi til að halda úti því fjölbreytta
verk- og listnámi sem þar hefur verið
í boði. Þetta vita þeir sem vilja vita,
menntamálaráðherra þar á meðal.
Staðreyndin er sú að ef halda á úti
öflugu verk- og listnámi utan höfuð-
borgarsvæðisins kostar það meira fé
en ríkisstjórnin hefur ætlað til þess.
Hér verða efndir að fylgja orðum.
Hér duga ekki fögur fyrirheit í
byggðaáætlunum. Hér duga ekki
ræður um mikilvægi verklegs náms á
framhaldsskólastigi. Í þessu máli
eins og öðrum þurfa stjórnmálamenn
að fylgja markaðri stefnu byggða-
áætlana, en ekki heykjast á fram-
kvæmdinni þegar að henni kemur.
Þetta er einungis eitt dæmi um
það hvernig orð og efndir stjórnar-
flokkana í byggðamálum fara ekki
saman. Ég vona sannarlega að við
sjáum fram á betri tíð með þeirri
áætlun sem nú hefur verið samþykkt
á alþingi. Ég vona sannarlega að
þingmenn stjórnarflokkanna taki á
sig rögg og standi við stóru orðin. Ég
vona sannarlega að bæjarstjórnar-
menn Framsóknarflokks og Sjálf-
stæðisflokks hafi manndóm í sér til
þess að standa á réttlátum kröfum
okkar um að löngu gefin loforð verði
efnd.
En ég á ekki sérstaklega von á því.
Af því að sporin hræða.
Þau sýna að undirlægjuháttur og
virðing fyrir flokksvaldi ráða því
hvernig að málum er staðið fremur
en hagsmunir fólksins sem um ræðir.
Það er hlutverk bæjarstjórnar Ak-
ureyrar á hverjum tíma að standa á
rétti bæjarbúa gagnvart ríkinu, en
ekki að leyfa stjórnvöldum að lofa
öllu fögru en standa síðan við minnst
af því.
Af slíkum vinnubrögðum höfum
við fengið nóg.
Um lands-
byggð, loforð
og undirlægju
Hermann
Tómasson
Akureyri
Reynslan sýnir, segir
Hermann Tómasson, að
undirlægjuháttur og
virðing fyrir flokksvaldi
ráða meiru um athafnir
bæjarstjórnarmanna en
hagsmunir fólksins í
bænum.
Höfundur skipar 2. sæti á lista
Samfylkingarinnar á Akureyri.
Sveitarfélagið Ár-
borg þarf að marka sér
stefnu í málefnum inn-
flytjenda, eða nýbúa
eins og oft er sagt. Í
Árborg eru búsettir
innflytjendur frá
mörgum löndum, til
lengri eða skemmri
tíma. Árborg þarf að
sýna þessu fólki þá
gestrisni sem við Ís-
lendingar erum gjarn-
an annálaðir fyrir. Það
gerum við ekki ein-
göngu með því að bjóða
fólkið velkomið, við
þurfum að sýna það í
verki. Nýbúar þurfa að
finna að þeir séu velkomnir með því
að við séum tilbúin að leiðbeina þeim
um réttindi þeirra og þegnskyldur.
Kynna fyrir þeim land og þjóð og
kenna þeim íslensku.
Læra að vera Íslendingur
Við þurfum að bjóða innflytjend-
um kerfisbundið upp á leiðsögn um
íslenskt þjóðfélagskerfi, siði og venj-
ur, kynna þeim atvinnutækifærin,
húsnæðismarkaðinn og skólakerfið.
Það þarf að vera til staður, fjöl-
skyldumiðstöð, sem fólk getur leitað
til og fengið aðstoð við að fóta sig í
þessu samfélagi. Við viljum að inn-
flytjendum, jafnt og
öðrum, vegni vel en það
er sameiginlegur hagur
allra að svo sé. Hjálp-
um þeim við aðlög-
unina! Nýbúabörn
þurfa sérstakar mót-
tökur í skólunum, allt
frá leikskóla og upp úr.
Því fyrr sem þau læra
tungumálið því betri
verður þeirra fé-
lagslega færni, sem er
um leið lykillinn að því
að sú kennsla sem skól-
arnir bjóða upp á geti
nýst þeim.
Nýbúar eru ekki
bara fólk frá framandi
löndum í öðrum heimsálfum. Þeir
geta verið frá nágrannalöndunum.
En tungumálið getur staðið öllum
fyrir þrifum sem ætla að setjast hér
að og þjóðfélagsgerðin er sérsniðin
að okkur Íslendingum. Því þarf fólk
að læra að vera Íslendingar.
Hvernig virkar samfélagið?
Hér í Árborg búa margir sem hafa
tímabundið verið nýbúar einhvers
staðar í heiminum og eiga því auð-
velt með að setja sig í spor þeirra.
Margir hafa reynt að rata um í þjóð-
félagi þar sem móðurmálið dugar
ekki með áleitnar spurningar, eins
og t.d. hvar finn ég lækni, hvenær er
við hæfi að leita til lögreglu, hvað
býður heilbrigðiskerfið upp á? Hvað
er félagsleg aðstoð og fyrir hverja er
hún? Hvernig virkar skattkerfið,
tryggingakerfið og margt, margt
fleira? Við í Samfylkingunni erum
sannfærð um að góðar viðtökur og
viðeigandi leiðsögn í upphafi séu
mikilvægar forsendur þess að nýbú-
ar festi rætur og auðgi íslenskt sam-
félag.
Allir velkomn-
ir í Árborg!
Heiður
Eysteinsdóttir
Höfundur er frambjóðandi
Samfylkingarinnar í Árborg.
Árborg
Við viljum að innflytj-
endum, jafnt og öðrum,
vegni vel, segir Heiður
Eysteinsdóttir, en það
er sameiginlegur hagur
allra að svo sé.
FINNBOGI
Björnsson reynir að
svara grein minni frá
16. maí sl. í Morgun-
blaðinu um yfirlýs-
ingu mína sem for-
manns Sjálfstæðis-
félags Gerðahrepps.
Ástæða þess að yfir-
lýsingin er birt er sú
að fjöldi sjálfstæðis-
manna í Gerðahreppi
hafði haft samband
við mig og vildi ganga
úr Sjálfstæðisfélaginu
vegna tengsla sem
talinn voru vera við
H-listann.
Ekki virðist nokkur leið fyrir H-
listamenn að skrifa eina einustu
grein án þess að moka skít yfir
starfsmann Gerðahrepps, Sigurð
Jónsson sveitarstjóra.
Ég sem hef verið flokksbundinn
sjálfstæðismaður frá unglingsárum
og fylgst mjög náið með sveit-
arstjórnamálum er alveg fullfær
um að mynda mér skoðanir sjálfur
á málefnum Gerðahrepps, Finn-
bogi. Þú kvartar yfir
að mál hafi ekki kom-
ið til umræðu á fund-
um Sjálfstæðisfélags-
ins. Það var reynt á
síðasta aðalfundi sem
þú mættir ekki á og
fáir voru þar til svara
fyrir H-listann. Þú
minnist á safnahús við
Garðskaga, það hefur
aldrei verið ætlun
nokkurs að Gerða-
hreppur byggi þar
ferðatengda þjónustu.
Það verður gert af
einkafyrirtæki en ekki
af opinberu fé, það er
stefna sjálfstæðismanna.
Þér var sent erindi um íbúðir
fyrir aldraða til skoðunar hjá
stjórn Garðvangs á síðasta ári. Þar
var hægt að þæfa málið fram að
kosningum til að reyna að gera
það torkennilegt í augum annarra
sveitarfélaga, einnig reynir þú í
grein þinni að persónugera hita-
veituna við sjálfan þig. Það vita
allir betur, Finnbogi, að þú vannst
á móti einkavæðingu hitaveitunn-
ar, á móti stefnu sjálfstæðismanna
á Suðurnesjum.
Ég hvet Garðbúa til að kjósa nú-
verandi meirihluta F-listann í
kosningunum 25. maí nk.
Deilurnar
í Garðinum
Gunnar Häsler
Gerðahreppur
Ég hvet Garðbúa, segir
Gunnar Häsler, til að
kjósa núverandi
meirihluta.
Höfundur er formaður Sjálfstæð-
isfélags Gerðahrepps.