Morgunblaðið - 23.05.2002, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 23.05.2002, Qupperneq 47
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 47 TUGÞÚSUNDIR landsmanna og er- lendra gesta hafa lagt leið sína út í Viðey eftir að Reykjavíkur- borg réðst í það stór- virki á níunda ára- tugnum að endur- byggja Viðeyjarstofu, koma kirkjunni í gott horf og bæta alla að- stöðu í eyjunni. Viðey er í senn náttúruvin og menningarperla þar sem hægt er að njóta fræðslu, halda fundi, ráðstefnur eða veislur. Þá er gaman að ganga um eyna og kynnast fjöl- skrúðugri náttúru hennar og síð- ast en ekki síst, að eiga kyrrð- arstund í kirkjunni. Í nýju aðalskipulagi R-listans er gert ráð fyrir höfn í Geldinganesi og göngubrú út í Viðey úr Gufu- nesi. Frá upphafi hafa þeir, sem best þekkja til eyjunnar, lagst gegn brúarsmíðinni og fara þar fremstir í flokki Þórir Stephensen, fyrrverandi staðarhaldari í Viðey, Ingólfur Guðmundsson, formaður Viðeyingafélagsins, Ólafur Steph- ensen landeigandi í Viðey og Ör- lygur Hálfdánarson Viðeyingur. Þá hafa Fuglaverndarfélag Íslands og Náttúruvernd ríkisins einnig mótmælt brúartengingunni. Meirihluti gegn brú Hingað til hefur Viðey fyrst og fremst verið náttúruvin og menningarperla og þar hefur ekki verið skipulögð íbúabyggð. Margt bendir til þess að fyrirhuguð göngu- brú skaði núverandi hlutverk eyjunnar og dragi úr sérstöðu hennar.  Með göngubrú út í Viðey væri hætta á að rottur, kettir og minkur komist óhindruð út í eyna og vinni þar spjöll á fuglavarpi og öðru náttúrulífi.  Þótt aðeins verði um göngu- brú að ræða er ljóst að hún verður mikið mannvirki. Vegna mikils vinds og sjógangs sem oft gætir úti á sundum er líklegt að brúin verði nokkuð háreist og að smíða þurfi eins konar búr utan um brúna til varnar notendum hennar.  Eins og með mörg önnur gæluverkefni R-listans hafa engar tölur um kostnað við verkefnið verið lagðar fram. Ljóst er hins vegar að brúin yrði mikið mann- virki og kostnaður við hana myndi líklega hlaupa á hundruð milljóna króna. Síðastliðið sumar efndi Reykja- víkurborg til viðhorfskönnunar um framtíð Viðeyjar meðal gesta sem heimsóttu eyna og jafnframt á nokkrum vinnustöðum í Reykjavík. Gott hefði verið að hafa könnunina til hliðsjónar við umræður í fjöl- miðlum og á vettvangi borgar- stjórnar en einhverra hluta vegna hefur R-listinn ekki sett þær fram í dagsljósið. Þó hefur komið fram að samkvæmt könnuninni er mikill meirihluti borgarbúa eindregið andvígur umræddri brúarsmíð. Í Morgunsblaðsgrein eftir einn af frambjóðendum R-listans, 16. maí, var upptalning á náttúruperl- um í nágrenni borgarinnar sem Reykvíkingar geta notið, en ekki var Viðey talin með þar. Vonandi er þar einungis gleymsku um að kenna. Furðu sætir að R-listinn skuli halda fast við þá skoðun að smíða brú út í Viðey þegar litið er til þess hve margt mælir gegn fram- kvæmdinni auk þess sem andstaða við hugmyndina er einörð og al- menn. Með brúarhugmyndinni vill R-listinn e.t.v. reyna að breiða yfir það klúður, sem einkennt hefur málefni Viðeyjar síðustu misseri eða eftir að embætti staðarhaldara þar úti var lagt niður. Viðeyjar- klúður R-listans Kjartan Magnússon Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Reykjavík Margt bendir til þess, segir Kjartan Magn- ússon, að fyrirhuguð göngubrú út í Viðey skaði sérstöðu eyj- arinnar og náttúru hennar. FYRIR nokkru skrif- aði Guðrún Pétursdóttir varaborgarfulltrúi grein í Morgunblaðið og býsnaðist yfir því að í nýju aðalskipulagi Reykjavíkur væri göngustígurinn við Ægisíðu slitinn í sundur af flugbraut og útivist- arsvæðið þar eyðilagt. Beinir hún sjónum sín- um sérstaklega að vík einni við enda flug- brautarinnar nálægt Starhaga og segir að nú séu dagar hennar taldir ef skipulagsáform Reykjavíkurlistans verða að veruleika. Það er með ólík- indum hvernig sjálfstæðimenn vaða elginn í umræðu um borgarmál en þegar grannt er skoðað stendur ekki steinn yfir steini. Þannig er það með þessa vík og þetta útivistarsvæði. Staðreyndir málsins eru þessar: Í að- alskipulaginu 1962-1983 er umrætt svæði skil- greint sem útivistar- svæði. Allar götur síðan í aðalskipulaginu 1984- 2004 sem unnið var und- ir forystu Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar borgar- fulltrúa sjálfstæðis- manna, hefur svæðið verið skilgreint sem helgunarsvæði flug- brautarinnnar. Nýtt að- alskipulag gerir ekki ráð fyrir breytingum varðandi þetta svæði í þá veru að ekki sé mögulegt að stunda úti- vist þar lengur. Útivist hefur þrifist á þessu svæði á undanförnum áratug- um þrátt fyrir að svæðið sé innan helgunarsvæðis flugbrautarinnar og hafi verið það í tvo áratugi. Ný skipu- lagsreglugerð veldur því að helgunar- svæðið er ekki sýnt í sérstökum lit á nýju aðalskipulagskorti eins og áður var heldur er svæðið sýnt í sama lit og flugvallarsvæðið sjálft. Þetta hefur ekkert með notkun svæðisins að gera og Guðrún Pétursdóttir hefði getað sparað sér stóru orðin með því einu að kynna sér málið ögn betur. En það virðist ekki henta þeim sjálfstæðis- mönnum um þessar mundir. Hinsveg- ar má benda á það að nýtt aðalskipu- lag opnar fyrir þann möguleika að svæðið verði skilgreint sem útivistar- svæði eftir 2024 þegar ekki er lengur þörf á helgunarsvæði fyrir flugbraut- ina. Músarholusjónar- mið Guðrúnar Pétursdóttur Árni Þór Sigurðsson Reykjavík Það er með ólíkindum hvernig sjálfstæð- ismenn vaða elginn í umræðu um borgarmál, segir Árni Þór Sigurðs- son, en þegar grannt er skoðað stendur ekki steinn yfir steini. Höfundur skipar 1. sæti Reykjavíkurlistans. NÚ þegar borgarbú- ar ganga til kosninga og velja sér stjórnend- ur til næstu fjögurra ára er gott að hafa það í huga að sl. átta ár, undir stjórn R-listans, hafa einkennst af ráð- leysi og hrossakaup- um. Það hefur alltaf ein- kennt samkrull flokk- anna á vinstri væng stjórn- mála hér á landi, að hver höndin er upp á móti annarri. Kosningaloforðin frá 1994 og 1998 hafa flest- öll verið svikin og ein aðalástæðan fyrir því er að það hefur aldrei náðst algjör einhugur í röðum þessara flokka. Það er heldur engin furða að ekkert skuli geta gengið hjá þessum flokkum. Þarna eru gamlir komm- únistar, gamlir kratar, gamlar kvennalistakonur og framsókn, allir vilja vera fremstir og allir vilja ráða. Völdin eru það sem skiptir máli og allur tími fer í eilíf hrossakaup og málamiðlanir. Allt er unnið með hangandi hendi og slíkt kann ekki góðri lukku að stýra. Reykjavík þarfnast stöðugleika og styrkrar stjórnar, þar sem höfuðáhersla er lögð á það að standa við samninga. Orð skulu standa, er oft sagt, og það á líka við um kosningaloforð. Sundr- ung og vingulsháttur R-listans hefur opin- berast sl. átta ár og nú er mál að linni. Við sjáum þetta alls staðar. Það eru engin stefnumarkmið hvað snertir stöðumælamál- in í miðbænum. Þar ræður aðeins það sjón- armið að sekta sem flesta. Við vitum að áframhaldandi stjórn R-listans leiðir aðeins til enn frekari hækk- ana á stöðumælasekt- unum, það er ekkert á stefnuskrá flokksins að lækka þær. Málefni skemmtistaða í miðbæn- um, sérstaklega hinna erótísku, eru endalaust vandræðaefni. Nú síðast afrekaði R-listinn það að banna einkadansinn, aðaltekjulind erótísku dansaranna, og spurt er: Hvernig á að framkvæma þetta bann? Verður settur maður eða menn á vegum borgarinnar til að fylgja þessu eftir inni á stöðunum? Eitthvað mun það kosta borgarbúa og hvaða gæðingar R-listans fá þann starfa að eyða kvöldunum á erótísku stöðunum? Málefni leigjenda í borginni hafa algjörlega verið hundsuð þessi átta ár og ekki er fyrirsjáanlegt að nokk- uð muni gerast hjá R-listanum eftir kosningar. Það mun áfram ríkja Villta Vesturs-ástand í þeim málum. Engin festa, aðeins sundrung! Málefni fátækra eru algerlega sniðgengin. Með því að loka augun- um telur R-listafólkið að vandamálið hverfi bara af sjálfu sér. Það er eng- in fátækt í þeirra röðum (nema and- leg)og þá getur hún ekki átt sér stað annars staðar. Enginn kærleikur, engin samúð! Þetta eru aðeins nokkur þeirra mála, sem kosið verður um. Hinn kosturinn er að kjósa D-listann, lista sjálfstæðismanna. Það hefur orðið afar kröftug endurnýjun í röðum þeirra og einkennist af festu og góð- um stefnumálum. Þeir bjóða breyt- ingar og að sjálfsögðu eiga borg- arbúar að þiggja það boð. D-listinn hefur gert samning við tilvonandi kjósendur og samninga verður að standa við. Það er hægt að ganga eftir því, eftir kosningar, að staðið sé við þann samning. Innantóm og ábyrgðarlaus kosningaloforð R- listans sl. átta ár hafa reynst hjóm eitt og það eru engin teikn á himni um að það verði staðið við hin nýju. Ungt fólk, bæði í árum og anda, einkennir D-listann. Kjósum festu í stað sundrungar, víðsýni í stað ving- ulsháttar. Ó, borg, mín borg. Breytt borg til batnaðar, undir öruggri stjórn D- listans, og Björn Bjarnason í for- ystu. X-D á kjördag. Ó, borg, mín borg Ægir Geirdal Reykjavík Breytt borg til batn- aðar, undir öruggri stjórn D-listans, segir Ægir Geirdal, og Björn Bjarnason í forystu. Höfundur er listamaður. Stúdentamyndir Austurströnd 8 Sími 511 1200 MEGINMARKMIÐ stjórnmálamanna er að skapa réttlátt og framsýnt þjóðfélag, þar sem hver einstak- lingur getur notið hæfileika sinna til fullnustu og fær nauð- synlegan stuðning samfélagsins, þegar hann þarf á því að halda. Til að ná þess- um markmiðum verð- ur stjórnmálamaður að vera í nánu samstarfi við almenning, sem veit best út frá eigin aðstæðum, hvar skórinn kreppir á hverjum tíma. Stjórnmálamaðurinn verður að hlusta og veita svörun og úrlausn eftir því sem tök eru á. Í síðustu viku skrifaði ég pistil á heimasíðu mína, www.althingi.is/- astam um mismunandi aðgengi og stjórnunarstíl borgarstjóraefnanna tveggja í Reykjavík, Björns Bjarna- sonar og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Svörun við pistlinum gefur mér tilefni til að fjalla frekar um málið. Í pistlinum ræddi ég um ná- granna minn sem hefur reynt að ná fundi núverandi borgarstjóra um nokkurra vikna skeið, án árangurs. Samt hefur hann hringt vikulega, eld- snemma á þriðjudags- morgnum, þegar tekn- ar eru niður pantanir um viðtal við borgar- stjóra. Enn bíður hann eftir viðtali. Þegar hann loksins hefur náð sambandi við skrif- stofu borgarstjóra eru viðtalstímarnir ýmist fullir eða þeir hafa ver- ið felldir niður. Viðbrögð við pistli mínum benda til að reynsla nágranna míns sé ekki eins- dæmi. Dæmi er um einstakling sem reyndi í fimm vikur að fá viðtal, ár- angurslaust. Hann er hættur að reyna. Björn Bjarnason, borgarstjóra- efni Sjálfstæðisflokksins, er á hinn bóginn frumkvöðull að nýrri nálgun við umbjóðendur sína, með gagn- virkri heimasíðu og opnu aðgengi gegnum tölvupóst. Þúsundir lands- manna hafa nýtt sér þennan greiða aðgang að stjórnmálamanninum. Einstaklingur sem sendi Birni tölvupóst nýverið, fékk svar eftir 5 mínútur! Það er ekki einsdæmi. Þá er alþekkt að biðlistar eftir viðtali við menntamálaráðherra voru ekki til meðan Björn gegndi því embætti. Reykvíkingar vilja geta rætt við þá sem þeir kjósa til trúnaðarstarfa. Á laugardaginn er valið milli tveggja leiðtoga til borgarstjóra. Ólíkt yrðu Reykvíkingar betur tengdir við borgarstjóra sinn með Björn Bjarnason sem leiðtoga. Fimm mínútna eða fimm vikna bið eftir svari Ásta Möller Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Reykjavík Reykvíkingar vilja, seg- ir Ásta Möller, geta rætt við þá sem þeir kjósa til trúnaðarstarfa.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.