Morgunblaðið - 23.05.2002, Page 50

Morgunblaðið - 23.05.2002, Page 50
UMRÆÐAN 50 FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hafnarfjarðarhöfn hefur allt frá því á 14. öld verið þekkt sem einstaklega góð höfn frá náttúrunnar hendi. Þangað sigldu Þjóð- verjar og Englending- ar og versluðu; Þjóð- verjar þó lengst. Vegna góðs skipalægis og að höfnina lagði ekki ís á vetrum sóttu þangað þeir sem sáu hag sinn bestan í sjó- sókn og siglingum. Hafnarfjörður, sem dregur nafn sitt af höfninni, hefur því byggst upp sem einn stærsti útgerðar- og siglingabær á Íslandi. Hafnarfjarðarhöfn hefur ætíð verið í fararbroddi í uppbyggingu þjónustu við viðskiptavini sína, allt frá því að fyrsta hafskipabryggjan á Íslandi var formlega tekin í notk- un árið 1913. Byggingarsaga Hafnarfjarðar- hafnar sýnir berlega hversu mikils virði höfnin er og aðstaða í og við hana skiptir miklu í atvinnulífi bæj- arins, enda margfeldisáhrif starf- semi hafnarinnar gríðarleg. Þjónustan Með breyttum útgerðarháttum og stækkun skipa hefur Hafnar- fjarðarhöfn kappkostað að vera vakandi yfir velferð viðskiptavina sinna, þannig að þeir sem þangað sigla og eiga viðskipti njóti góðrar og fjölbreyttrar þjónustu. Fyrirtæki sem þjóna sjávarút- vegi hafa mörg hver byggst hér upp og þróað starfsemi sína. Síðar hafa fleiri valið sér staðsetningu þar vegna aukinnar um- ferðar um höfnina í áranna rás. Á síðustu tæpum tveim áratugum höf- um við Hafnfirðingar sem og aðrir lands- menn staðið frammi fyrir miklum breyting- um í sjávarútvegi, út- gerð og landvinnslu Við höfum horft á báta okkar og togara sigla burt úr bænum til annarra landshluta ef ekki lengra. Þrátt fyrir þær breytingar og stundum erfiðleika sem það hefur valdið okkur höfum við horft fram á veginn og leitað nýrra leiða. Horft til framtíðar Árið 1994 var hafinn undirbún- ingur að stækkun hafnarinnar utan garða. Var þá horft til þess að reisa nýjan öldubrjót til verndar innri höfninni, vegalögn að öldu- brjótnum og 150 metra viðlegu- rými. Árið 1998 var tekin sú ákvörðun í framhaldi af þeim breytingum sem höfnin stóð frammi fyrir að innan fárra mánaða myndi hún ekki lengur byggja afkomu sína einvörðungu á heimaflota heldur verða fyrsta höfnin á landinu sem myndi byggja afkomu sína á öðrum viðskiptum. Koma þurfti nýja land- inu upp á 23 hektara í bygging- arhæft ástand, lengja viðleguna í 200 metra og byggja þar með upp þróunarsvæði fyrir fyrirtækin sem voru farin að huga að stækkun. Þá þurfti að gera nýjum fyrirtækjum kleift að koma sér fyrir á nýja hafnarsvæðinu og þar með efla til muna þjónustu við skipaflotann. Eru þessar framkvæmdir með þeim mestu sem Hafnarfjarðarhöfn hefur ráðist í og mikið gleðiefni hvað þær hafa gengið hratt og vel fyrir sig þar sem um áratuga ef ekki árhundraða framtíðarupp- byggingu er að ræða. Fyrirtækin Það er Hafnarfjarðarhöfn mikill styrkur að eiga að þau öflugu fyr- irtæki sem þegar hafa komið sér fyrir í suðurhöfninni; fyrirtæki sem hafa og sjá sínum hag best borgið hér. Fjölbreytileiki í hafnsækinni starfsemi er sterkasti þáttur hverr- ar hafnar og þá um leið hvatning til enn frekari þróunar fyrirtækj- anna. Samhliða þróun og þeirri upp- byggingu sem höfnin hefur staðið fyrir hefur verið unnin stefnumót- un sem er sú fyrsta í 93 ára sögu hafnarinnar. Rammafjárhagsáætl- un 2002-2007 fyrir Hafnarfjarðar- höfn var samþykkt nú í byrjun maí. Nauðsynlegt er hafnarsjóði að gera slíka áætlun þar sem hún er stjórn- tæki fyrir allan hafnarrekstur. Straumsvík Í Hafnarfirði eru tvær hafnir, sú sem áður er getið, „höfnin í bæn- um“, og Straumsvíkurhöfn en hún er suð-vestan við bæinn. Í Straumsvík er álverið sem hug- ar að enn frekari stækkun innan tíðar og er þar ein af dýpstu höfn- um landsins. Ofan Straumsvíkur er Hellnahraun en þar er að byggjast upp eitt fjölbreyttasta létt- og gróf- iðnaðarsvæði á suðvesturhorni landsins. Þar eru tengsl við sam- göngur góðar og verða enn betri innan fárra ára með breikkun og færslu á Reykjanesbraut. Þar eru líka ótæmandi möguleikar fyrir fyrirtæki með hafnsækna starf- semi. Tækifærin Hafnarfjarðarhöfn á sér bjarta framtíð áfram sem hingað til. Hafnarsjóður hefur lagt mikið af mörkum Hafnarfjarðarbæ til heilla í atvinnuuppbyggingu. Í náinni framtíð fara fyrirtæki að koma sér enn frekar fyrir í Suðurhöfninni þar sem aðstaðan er góð, þjónustan með því besta sem gerist og hag þeirra vel borgið í ört vaxandi bæj- arfélagi. Hafnarfjarðarhöfn, þróun og uppbygging Valgerður Sigurðardóttir Hafnarfjörður Hafnarfjarðarhöfn, segir Valgerður Sigurðardóttir, á sér bjarta framtíð áfram sem hingað til. Höfundur er bæjarfulltrúi og skipar 2. sæti á D-lista. ÁRIÐ 1991 þóknaðist Davíð okkar Oddssyni að hverfa til æðstu metorða í stjórnmálalífi þegna sinna. Mörgum fannst það harla tímabært. Undir frumlegri og dugmikilli stjórnsemi leiðtogans höfðu meðstjórnendur hans í borgarstjórninni gerzt mak- ráðir og frumkvæði hafði að lang- mestu leyti komið frá hinum brott- gengna. Deilur um eftirmann ollu leiðindum í röðum borgarfulltrúa flokksins, sem voru leyst til bráða- birgða, þegar sóttur var til starfa borgarstjóra farsældarlegur og litlít- ill embættismaður með takmarkaða útgeislan. Fyrir kosningarnar 1994 ágerðist vandræðagangur flokkslist- ans, sem endaði í endurnýjun topp- stykkisins. Hálfgerðum pólitískum afgöngum var raðað á listann og flokkurinn glataði trúverðugleika og höfðun. Tveir snjallir markaðsmenn, Helgi Hjörvar og Hrannar Arnarson, höfðu kynnt frábæra hugmynd í röðun and- stöðuflokkanna. Myndað var kosningabandalag undir stýri Ingibjargar Sólrúnar, sem bæði hafði setið í borgarstjórn fyrir Kvennalistann og á Alþingi fyrir sama. Pólitísk framganga hennar, heiðarleiki í málflutningi, stráksleg stríðnis-„element“ og þróttmikil og glaðleg raddbeiting áunnu stelpunni hylli í snarpri kosningabaráttu og kosningabandalagið velti hinum lemstraða flokki úr stjórn Reykjavík- ur. Ingibjörg Sólrún hefur borið höfuð og herðar yfir aðra kjörna fulltrúa liðin tvö kjörtímabil. Málefnaleg kunnáttusemi og innsæi, eljusemi og sérdeilis vel heppnuð dagleg mark- aðssetning í fjölmiðlum landsins hef- ur haldið henni í forystunni. En fyrst og fremst hefur hún haft orð fyrir heiðarleika, sem ekki hefur verið dreginn í efa – fyrr en kannski ný- lega. Reyndar hefur hún stokkað anzi mikið upp í margra kynslóða erfða- góssi flokksins í embættaveldi borg- arinnar, þar sem miklum skipulags- breytingum hefur verið komið á, flestum til bóta, og kvenvæðingin hefur vitanlega haft þar nokkurn for- gang. Slagorð Ingibjargar Sólrúnar 1994 var að hún vildi verða borgar- stjóri allra Reykvíkinga. Reyndar sjálfsagður hlutur og allir fyrri borg- arstjórar flokksins voru líka borgar- stjórar allra Reykvíkinga, voru bara ekki eins frumlegir að búa til vel heppnaða frasa í kosningabaráttunni. En aðgengi borgaranna að borgar- stýrunni hefur stórversnað; til að ná fundi hennar hefur þurft að knýja á dyr margra og ýmissa steigurlátra kvenna, sem sýna lysthafendum mis- lítinn skilning. Þetta hefur veikt „ímynd“ borgarstýrunnar nokkuð. Kosningaslagurinn nú stendur því miður ekki mikið um málefni – heldur um tvo leiðtoga, eða „ímyndir“ þeirra. Markaðsmenn R-listans voru nú sendir í pólitíska útlegð, voru af hin- um heiðvirðu samstarfsmönnum ekki álitnir nógu flekklausir, en í staðinn fengnir sjálfumglaðir spjallrásagosar og jákvæðir sagnaritarar, auk nokk- urra þokkadísa. En auglýsingar R- listans miðast allar við foringjann, ýmist situr hún fremst í lítilli skóla- stofu og „börnin“ sitja þæg og góð að baki henni eða breiðfilmumynd af sama foringja í heilsíðuauglýsingu og svifmynd af Reykjavík í baksýn. Enda hefur R-listinn valið til halds og traust aðilja, sem m.a.s. tókst að selja íslenzku þjóðinni jákvæða „ímynd“ af núverandi forseta lýðveldisins. Það var talið þéna betur hagsmun- um flokksins að kasta fyrir róða kvenbaráttujaxlinum Ingu Jónu og fá karlbaráttujaxlinn Björn Bjarnason til forystu í þessum kosningum. Björn Bjarnason er ótrúlega heiðar- legur og hreinleg sál – af stjórnmála- manni að vera. Útgeislun í meðallagi og fer batnandi, dugnaður ógurlegur og skipulagður með afbrigðum. Björn er eins og vínið – hefur batnað mikið með aldrinum og er að heita má nú fullþroska. Til meðreiðar á lista flokksins eru ýmsir pólitískir afgang- ar fyrri ára, glaðbeittur og jákvæður sjónvarpsgosi, vinsæll á elli- stofnunum, einnig hinn óguðlega þrasgefni Guðlaugur Þór, sem getur talað nær alla frá fylgi við flokkinn. Auglýsingar flokksins eru vel heppn- aður áróður, dálítið skemmtilega ósvífinn – og svo hefur komið frábær heilsíðumynd af hinum „átta ljós- kum“, sem sitja listann, stillt upp til þjónustu reiðubúnar fyrir framan Perluna, sem Alfreð Þorsteinsson getur hugsð sér að gera að súlu- dansstað. Fari svo, að R-listinn tapi borginni fyrir lista flokksins eða lista Ólafs læknis, er það hvorki að kenna slakri framgöngu borgarstýrunnar né góðri framgöngu Björns og ljóskanna átta. Það verður að þakka hinum kunna at- hafnajöfri Alfreð Þorsteinssyni, sem hefur leyft kjósendum að skyggnast inní refjar og spillingu hins pólitíska valds, sem honum hefur verið falið, m.a. af Ingibjörgu Sólrúnu Gísladótt- ur. Ingibjörg Al- freðsdóttir? Höfundur er fornbókasali. Reykjavík Kosningaslagurinn nú stendur því miður ekki mikið um málefni, segir Bragi Kristjónsson, heldur um tvo leiðtoga, eða „ímyndir“ þeirra. FIMMTUDAGINN 16. maí birtist í Morg- unblaðinu grein eftir Hallveigu Skúladóttur undir fyrirsögninni: „Efndir í stað orða.“ Höfundur hefur annaðhvort fengið rangar upplýsingar eða þekkir ekki málið nógu vel. Það sem hún veit ekki, er að framsóknarmenn hafa alltaf barist fyrir bættum hag Höfða og við höfum náð þeim árangri, að í fyrsta skipti í sögu Höfða hefur bæjarstjóður ekki þurft að taka þátt í rekstri hans. Sú tillaga, sem Hallveig minnist á í grein sinni um nýja nefnd, er nefnd á nefnd ofan þar sem önnur er starfandi fyrir sem mælir þjónustuþörf aldraðra á hverjum tíma. Þegar sjálfstæðis- menn koma með tillögu um að skera niður nefndir bæta þeir öðr- um við. Varðandi aðra tillögu, sem vitnað er í hjá sjálfstæðismönnum, vita þeir sem eitthvað vita um þessi mál að þetta er samvinna ríkis og bæjar sem verið er að vinna að í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga og ráðu- neytanna sem að málunum koma. Hallveig trúir því að hún sé ein af þeim sem séu að finna upp hjólið. Hafa skal það sem sannara reynist: – Höfundur segir orðrétt: „Heildarlausnir eru hinsvegar látnar sitja á hakanum en rekst- urinn réttur af með vissu millibili.“ Þjóðin yrði glöð ef Hallveig fyndi heildarlausn við þeim vanda sem blasir við. Hún kemur ekki með hana í sinni grein frekar en aðrir sem skrifa fyrir Sjálfstæð- isflokkinn. – Fyrir um það bil tveimur vikum voru stofnuð í Reykjavík samtök þar sem sam- an var komið fólk sem starfar við sambærilegt heimili og Dvalarheimilið Höfða. Þar á að leita lausna og í þá nefnd þyrfti Hallveig að komast. – „Reksturinn réttur af með vissu millibili,“ segir höfundur. Auðvitað má kalla það hvaða nafni sem menn vilja. Vandinn er til staðar og allir viðurkenna hann. Fólk, sem setur fram slíkar full- yrðingar, ætti frekar að skrifa um eitthvað sem það þekkir. – Hallveig minnist ekki á það í grein sinni að á síðustu fjórum ár- um hefur okkur tekist að fá 23 hjúkrunarrými á Höfða til viðbótar þeim sem fyrir voru með dyggri aðstoð fv. heilbrigðisráðherra. Það hefur gjörbreytt stöðunni eins og hún er í dag – en betur má ef duga skal því sjúklingum í hópi aldraðra fjölgar. Við höfum farið fram á 15 hjúkrunarrými í viðbót. Á árinu 2000 fékk Höfði 40 milljónir króna á fjáraukalögum og var það til að leysa vandann frá síðasta ári. – Höfði er fallegt heimili og okk- ur öllum til sóma. Þar er frábært starfsfólk og þar er vel farið með fé. Gleymum því ekki að þetta er stór vinnustaður sem skilar miklu til bæjarins aftur. – Hvað varðar félagsstarf eldri borgara á Akranesi hefur orðið gjörbylting í tíð núverandi meiri- hluta því búið er að taka á leigu húsnæði til 15 ára. Það var ánægjulegt að hlusta á eldri borg- ara lýsa yfir gleði sinni með húsið en félag þeirra hafði verið á hrak- hólum með húsnæði. Sjálfstæðis- menn tóku þeirri tillögu ekki fagn- andi og studdu okkar ekki þar. – Á Akranesi hafa málefni aldr- aðra verið í mikilli uppbyggingu núverandi meirihluta og okkur hefur tekist að koma mörgum mik- ilvægum málum í höfn. Ég hvet menn til að fylgjast með fram- göngu sjálfstæðismanna þegar kemur að framkvæmdum fyrir þennan málaflokk. Andstaða sjálf- stæðismanna birtist jafnan þegar þarf að fara að framkvæma eins og nýlegt dæmi úr Reykjavík sýnir. – Framsóknarmenn hafa sýnt og sannað að þeir láta verkin tala. Höfum það sem sannara reynist. Sjálfstæðismenn, notið ekki þenn- an málaflokk til að níðast á þeim sem þar hafa vel unnið síðustu 4 ár. Málefni eldri borgara á Akranesi Sigríður Gróa Kristjánsdóttir Höfundur er bæjarfulltrúi og formaður stjórnar Höfða. Akranes Höfði er fallegt heimili, segir Sigríður Gróa Kristjánsdóttir, og okkur öllum til sóma.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.