Morgunblaðið - 23.05.2002, Síða 53
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 53
EINN af hornstein-
um jafnaðar og fé-
lagshyggju er að
grunnþjónusta sé góð
og aðgengileg öllum
íbúum sérhvers sveit-
arfélags. Samfylkingin
í Hafnarfirði leggur
áherslu á að bæjar-
félagið standi að slíkri
grunnþjónustu eins og
t.d. skólahaldi og starf-
ræki hana af krafti og
metnaði.
Samfylkingin í Hafn-
arfirði mun ekki standa
að einkaframkvæmda-
samningum um bygg-
ingu þjónustuhúsnæðis
þar sem bæjarfélagið borgar bygg-
ingarkostnað að fullu með 25 ára
leigugjöldum en eignast ekkert.
Á sama hátt munum við ekki bjóða
út til einkaaðila grunnþjónustu eins
og skólahald í hverfisskólum bæjar-
ins.
Áhugasamir aðilar eiga að geta
sótt um það til sveitarfélagsins að
starfrækja einkaskóla, en nemendur
verða að hafa val, ekki er hægt að
skylda neinn til að sækja einkaskóla.
Ávallt verður að bjóða upp á hverf-
isskóla og sveitarfélagið á fyrst og
fremst að einbeita sér að því að veita
öllum nemendum jöfn tækifæri hvað
menntun varðar og sýna metnað
með framsæknu skólastarfi.
Klárum einsetninguna
Í einsetningarmálum höfum við
skýra stefnu. Einsetningu allra
grunnskóla verður lokið fyrir haust-
ið 2004. Óbreytt skólaskipan verður í
Norður- og Vesturbæ. Hönnun og
framkvæmdir vegna stækkunar og
endurbóta á Víðistaðaskóla hefjast
sumarið 2002. Einsetning í Set-
bergshverfi verður
leyst innan hverfisins.
Byggður verður nýr
skóli í Setbergshverfi
fyrir 1.–3. bekk, sem
mögulegt verður síðar
að breyta í leikskóla.
Við Hvaleyrarskóla
verða skoðaðir mögu-
leikar á viðbótarbygg-
ingu eða tímabundinni
notkun lausra kennslu-
stofa.
Stefnumörkun varð-
andi grunn- og leik-
skólastarf á ekki bara
að snúast um bygging-
ar, innra starf skólanna
er það sem mestu máli skiptir. Sam-
fylkingin mun leggja áherslu á eft-
irtalin atriði á næsta kjörtímabili:
Í grunnskólum verður boðið upp á
næringarríkan mat í hádeginu frá og
með haustinu 2002 í þeim skólum
sem hafa til þess aðstöðu. Því verður
síðar fylgt eftir í öðrum grunnskól-
um.
Öllum leik- og grunnskólum verð-
ur gert kleift að fylgja eftir skóla-
stefnu sinni og þróa hana enn frekar.
Fylgt verður eftir nýjungum og
framþróun í skólastarfi og tryggt
metnaðarfullt skólastarf í Hafnar-
firði, þar sem bæjarfélagið er leið-
andi samstarfsaðili í skólasamfélag-
inu. Lögð verður rækt við innra starf
skólanna og aðbúnað nemenda og
starfsfólks.
Samfylkingin leggur höfuðáherslu
á að öll börn njóti sama réttar og
sömu þjónustu hjá bæjarfélaginu
sama í hvaða skólahverfi þau búa.
Aðalnámskrá sé fylgt og lögboðnum
kennslutímafjölda fullnægt.
Stuðningur við börn með sértæka
námsörðugleika verður aukinn og
hugað verður að 2ja kennara kerfi í
1.–3. bekk grunnskólans.
Daggæsla og leikskólar
Samfylkingin hefur skýra stefnu í
leikskóla og daggæslu málum.
Mikilvægt er að stytta þann langa
biðlista eftir leikskólavist, sem for-
eldrar standa frammi fyrir í dag.
Þegar í sumar verður byrjað á bygg-
ingu fjögurra deilda leikskóla við
Haukahraun í stað Hraunkots. Hald-
ið verður áfram uppbyggingu í leik-
skólamálum með byggingu leikskóla
í Áslandi og á Völlum auk stækkunar
leikskólanna Hvamms og Smára-
lundar.
Endurbætur verða gerðar á eldri
leikskólum bæjarins og sérstaklega
hugað að leiksvæðum, leiktækjum
og öryggismálum.
Teknar verða upp nýjar reglur um
niðurgreiðslur vegna daggæslu-
gjalda. Greidd verða niður gjöld til
dagforeldra frá því rétti til fæðing-
arorlofs lýkur, í stað niðurgreiðslu til
foreldra barna frá tveggja ára aldri
eins og nú er. Jafnframt verða nið-
urgreiðslur á daggæslugjöldum
hækkaðar til samræmis við það sem
gildir í nágrannasveitarfélögunum.
Stefna okkar Samfylkingarfólks í
Hafnarfirði er skýr og afdráttarlaus,
við þökkum frábærar móttökur bæj-
arbúa við stefnuskrá okkar. Tökum
þátt í ábyrgri og jákvæðri uppbygg-
ingu Hafnarfjarðar. XS 25. maí, þitt
atkvæði skiptir máli.
Skýr og afdrátt-
arlaus stefna
Ellý
Erlingsdóttir
Hafnarfjörður
Stefna okkar Samfylk-
ingarfólks í Hafnarfirði,
segir Ellý Erlingsdóttir,
er skýr og afdráttar-
laus.
Höfundur er grunnskólakennari og
skipar þriðja sætið á lista Samfylk-
ingarinnar í Hafnarfirði.
ÁSMUNDUR Jóns-
son framkvæmda-
stjóri, 3. maður á lista
framsóknarmanna í
Garðabæ, skrifaði
grein í Morgunblaðið
16. maí sl. sem síðan
er endurtekin orðrétt
í nýútkomnu málgagni
framsóknarmanna í
Garðabæ. Í greinun-
um eru óvenju grófar
ásakanir og dylgjur í
garð þess fólks sem
farið hefur með stjórn
bæjarfélagsins undan-
farin ár. Sérstaklega
gerir Ásmundur að
umtalsefni lóðaúthlutanir í Garða-
bæ og úrskurð þann sem félags-
málaráðuneytið felldi á liðnum
vetri.
Ásmundur virðist því miður ekki
vera upplýstur um það að síðustu
úthlutanir hafa verið unnar í fullu
samráði meirihluta og minnihluta í
bæjarráði. Hef ég, sem formaður
bæjarráðs, lagt sérstaka áherslu á
einróma niðurstöðu við afgreiðslu
umsókna í bæjarráði.
Bæði verklag og
vinnureglur eru þær
sömu og tíðkast hafa
um land allt árum
saman þ.e.a.s. tekið
hefur tillit til efna-
hags, fjölskyldustærð-
ar, hvort viðkomandi
hafi sótt um lóð áður
og fleiri þátta. Að
þessari vinnu komu
fulltrúar allra flokka.
Þeir voru fyllilega
sáttir við vinnuaðferð-
ir og niðurstöður og
aldrei voru gerðar af
hálfu minnihlutans at-
hugasemdir við vinnu-
aðferðir eða úthlutanir.
Fulltrúar minni og meirihluta
greiddu úthlutununum atkvæði
nema varabæjarfulltrúi Framsókn-
arflokksins sem sat hjá um málið
við síðustu úthlutun. Fjarvera Ein-
ar Sveinbjörnsson bæjarfulltrúa
var tilkomin þar sem tillaga lá fyr-
ir á fundinum um að úthluta hon-
um lóð enda uppfyllti umsókn hans
öll þau skilyrði sem sett höfðu ver-
ið í viðmiðunarreglum.
Ásmundur gagnrýnir nú stjórn-
sýslu og vinnubrögð varðandi lóða-
úthlutanir undanfarin ár en hann
virðist ekki hafa séð ástæðu til að
kynna sér forsöguna eða veita
samflokksmönnum sínum ráð á
liðnum misserum. Viðmiðunarregl-
ur sem stuðst var við hafa reynst
sveitarfélögum vel og stuðlað að
sanngjarnri úthlutun. Við þær
mátti styðjast allt þar til R-listinn
í Reykjavík setti öll lóðamál á höf-
uðborgarsvæðinu í uppnám með
uppboði á lóðum og óraunhæfu
verðlagi. Afleiðing af stefnu R-
listans var sprenging í eftirspurn
eftir lóðum í öðrum sveitarfélög-
um.
Nýtt lagaumhverfi kallar þar að
auki á það að sveitarfélög um allt
land setji niður enn skýrari reglur
um lóðaúthlutanir. Unnið er að
slíkum reglum í Garðabæ, sem
munu m.a. byggjast á þeim venj-
um sem mótast hafa og nýst hafa
sveitarfélögum vel. Þær verða
auglýstar á næstu mánuðum og við
þær verður stuðst við næstu út-
hlutun, vonandi í góðu samstarfi
minni- og meirihluta í bæjarstjórn
Garðabæjar líkt og verið hefur á
undanförnum árum.
Einhugur um lóða-
úthlutanir í Garðabæ
Erling
Ásgeirsson
Garðabær
Fulltrúar allra flokka
voru fyllilega sáttir við
vinnuaðferðir og nið-
urstöður, segir Erling
Ásgeirsson, og aldrei
voru gerðar athuga-
semdir við vinnuaðferð-
ir eða úthlutanir.
Höfundur er formaður bæjarráðs í
Garðabæ.
Á góðum bíl í Danmörku
Hringdu til AVIS í síma 591-4000
Pantaðu AVIS bílinn þinn áður en þú ferðast – Það borgar sig
Innifalið í verði er ótakmarkaður
akstur, trygging, vsk.
og flugvallargjald.
Flokkur A Opel Corsa kr. 3.500,- á dag
(miðað við lágmarksleigu 7 daga)
Flokkur A Opel Corsa kr. 4.700,- á dag
(miðað við lágmarksleigu 3 daga)
Einnig tilboð á öðrum tegundum bíla.
Ef þú ert með farseðil til Kaupmanna-
hafnar áttu möguleika á glaðningi.
www.avis.is
Við
reynum
betur
Stúdentamyndir
Austurströnd 8
Sími 511 1200
og maka þeirra verður haldið á
Kiðjabergsvelli, Grímsnesi,
sunnudaginn 26. maí.
Skráning á staðnum.
Ræst út milli kl. 10 og 11.30.
Golfmót
www.husa.is
milli meistara og sveina