Morgunblaðið - 23.05.2002, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 23.05.2002, Blaðsíða 59
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 59 ✝ Gunnar Halldórs-son fæddist á Skeggjastöðum 16. janúar 1925. Hann lést 15. maí síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Guðrún Gísla- dóttir frá Bitru og Halldór Jónsson Skeggjastöðum. Systkini Gunnars eru: Margrét, Bjarn- heiður, Gísli og Guð- mundur Helgi. Bjarnheiður og Gísli eru látin. Gunnar giftist Sigríði Guð- jónsdóttur frá Bollastöðum, f. 25. jan. 1933. Þau eiga fimm börn: 1) Kristín, f. 31. mars 1956, gift Jóni Gíslasyni, þau eru bændur á Lundi og eiga fjögur börn. 2) Skeggi, f. 20. júlí 1959, sambýlis- kona Ellen Bergan, þau eru bænd- ur á Skeggjastöðum og eiga eina dóttur. 3) Halldóra, skólafulltrúi í Fjölbrautaskóla Suðurlands, f. 31. maí 1965, búsett á Læk. 4) Gauti, f. 1. des 1969, sambýliskona Guð- björg Jónsdóttir, þau eru bændur á Læk og eiga þrjú börn. 5) Bolli, versl- unarmaður í Reykja- vík, f. 13. júlí 1972. Gunnar ólst upp hjá foreldrum sínum á Skeggjastöðum og tók við búi þeirra 1955. Hann fór á Íþróttaskóla Sigurð- ar Greipssonar í Haukadal, bænda- skóla á Hvanneyri og sótti námskeið sem völ var á. Hann stundaði ýmsa ígripavinnu á yngri árum, vann hjá hernum, fór á vertíðar í Vestmannaeyjum, Keflavík og Höfnum. Hann hafði heimilisfang á Skeggjastöðum alla tíð og var bóndi þar frá 1955 til 1998, síðustu árin í félagsbúi með Skeggja syni sínum sem nú er tekinn við að öllu leyti. Útför Gunnars verður gerð frá Hraungerðiskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Í dag er kvaddur hinstu kveðju Gunnar bóndi á Skeggjastöðum. Á kveðjustund hvarflar hugur minn til baka heim í sveitina mína kæru og minningin um gott samstarf og vin- áttu gagntekur allt annað. Skeggja- staðir liggja um þjóðbraut þvera og margur hefur þegið aðstoð og beina frá því góða fólki sem þar hefur bú- ið. Við sem sóttum nám í barnaskól- anum í Þingborg áttum fjölskylduna að Skeggjastöðum sem nágranna og góðgjörðarmenn. Við krakkarnir vorum send til að sækja mjólkina í fjósið til Gunnars bónda og oft var brugðið á leik í hlöðunni eða ærslast á hlöðunum hjá bóndanum og stund- um brá hann á leik með okkur. Ég vil á kveðjustund þakka þeim Skeggjastaðahjónum fyrir alla vel- vildina og hjálpina við okkur krakk- ana á þessum árum. Gunnar átti sér stóra drauma fyr- ir sveit sína og var ötull baráttumað- ur fyrir framförum. Alla tíð starfaði hann af eldmóði fyrir ungmenna- félagið Baldur. Nýtt félagsheimili var hans hjartans mál og voru íþróttir og æskulýðsmál honum efst í huga. Við sem vorum að stíga okk- ar fyrstu skref í félagsmálum áttum hauk í horni þar sem Gunnar var. Árum saman gaf hann út og skrifaði blaðið Huginn, safnaði fróðleik um menn og málefni, og eru mörg við- tölin sem hann tók við fólk góðar heimildir um lífið og lífsbaráttuna á síðustu öld. Hann var trúr ung- mennafélagshugsjóninni, barðist fyrir reglusemi og var sjálfur mikill reglumaður allt sitt líf. Eftirminni- legt var að vinna með honum við undirbúning þorrablóta og 17. júní hátíða í Einbúa, sem hann og hans kynslóð bjó út sem lítinn Ólympíu- leikvang á óvenju fögrum stað upp undir klettunum við Hvítá. Leiklist var Gunnari hugleikin allt lífið, hann vissi hvað unglingurinn feiminn og hlédrægur hafði gott af því að komast á sviðið og spreyta sig. Sjálfur var hann afburða leikari, hafði karlmannlega og sterka söng- rödd og átti eftirminnilegar senur. Þegar ungmennafélögin í Flóanum settu upp Nýrársnóttina í Þjórsár- veri undir leikstjórn Eyvindar Er- lendssonar var það óumdeilt að Gunnar skyldi leika álfakónginn sem hann gerði af slíkum tilþrifum að enn minnast menn þess. Í upphafi búskapar síns bjuggu Gunnar og Sigga við lélega aðstöðu en þau hafa ræktað og byggt jörðina upp með börnum sínum þannig að sómi er að. Gunnar var áhugamaður um velgengni landbúnaðarins og bætta stöðu bænda. Margar góðar stundir hef ég átt í eldhúskróknum á Skeggjastöðum í gegnum tíðina sem ég vil þakka við leiðarlok. Það hefur verið gott að eiga Gunnar að sem vin og flokksfélaga eftir að pólitískt starf varð mitt hlutskipti. Gunnar var karlmenni að burðum og vel íþróttum búinn, þar var erfitt að sjá hraustmennið glíma við heilsubrest og sjúkdóm sem enginn kann enn ráð við, minnið og tjáningin að fjara út. Nú verður hann kvaddur frá kirkjunni í Hraungerði þar sem hans góða söngrödd hljómaði í ára- tugi. Ég kveð Gunnar með söknuði og það er bjart yfir minningunni um góðan mann. Við Margrét sendum eiginkonu og börnum innilegar sam- úðarkveðjur. Guðni Ágústsson. GUNNAR HALLDÓRSSON YFIR vetrartímann eru kyrrð- arstundir í Hallgrímskirkju hvern fimmtudag í hádeginu. Síðustu kyrrðarstundir þessa vors verða fimmtudag 23. maí og fimmtudag 30. maí. Fyrri kyrrðarstundin verð- ur í umsjá sr. Jóns Bjarman en sú síðari í umsjá sr. Jóns D. Hróbjarts- sonar. Hörður Áskelsson kantor leikur á orgel kirkjunnar báða dagana en fyrri daginn, 23. maí, munu Guðrún Sigríður Birgisdóttir og Hörður leika samleik á flautu og orgel. Eftir stundina í kirkjunni er boð- ið upp á súpu og brauð í safn- aðarsalnum á vægu verði. Þessar kyrrðarstundir hefjast svo aftur í september. Í júlí og ágúst verða org- eltónleikar á fimmtudögum kl. 12.00. Hvern þriðjudag eru bæ- naguðsþjónustur kl. 10.30 árdegis í kapellu á orgellofti kirkjunnar og eru þær einnig allt sumarið. Hægt er að koma bænarefnum til prest- anna eða á skrifstofu kirkjunnar kl. 9-18 daglega. Kyrrðarstundir í Hallgrímskirkju Morgunblaðið/Ásdís Hallgrímskirkja. Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa kl. 14–17 í neðri safnaðarsal. Sönghóp- ur undir stjórn organista. Breiðholtskirkja. Mömmumorgunn föstudag kl. 10–12. Dómkirkjan. Opið hús í safnaðarheim- ilinu kl. 14–16. Kaffi og með því á vægu verði. Ýmsar uppákomur. Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Léttur málsverður í safnaðarheimili eftir stundina. Háteigskirkja. Foreldramorgunn kl. 10. Íhugun kl. 19. Taizé-messa kl. 20. Langholtskirkja. Foreldra- og barna- morgunn. Fræðsla: Slysavarnir barna, Þórunn Júl- íusdóttir hjúkrunarfræðingur. Söngstund og kaffispjall. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45–7.05. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Orgeltónlist í kirkjunni kl. 12–12.10. Að stundinni lokinni er málsverður í safnaðarheimili. Fella- og Hólakirkja. Helgistund í Gerðu- bergi kl. 10.30. Digraneskirkja. Bænastund kl. 12. Bænaefnum má koma til kirkjuvarða. Grafarvogskirkja. Foreldramorgnar kl. 10–12. Fræðandi og skemmtilegar sam- verustundir. Ýmiss konar fyrirlestrar. Allt- af heitt á könnunni, djús og brauð fyrir börnin. Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar kl. 16.30. Kópavogskirkja. Starf með eldri borg- urum í dag kl. 14.30–16.30 í safnaðar- heimilinu Borgum. Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund kl. 21. Tónlist, ritningarlestur, hugleiðing og bæn. Bænarefnum má koma til presta kirkjunnar og djákna. Hressing í safnaðarheimilinu eftir stundina. Ath. í júní breytist tíminn og verða þessar stundir þar með kl. 22. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safn- aðarheimili Strandbergs, kl. 10–12. Op- ið hús fyrir 8–9 ára börn í safnaðarheim- ilinu Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17–18.30. Víðistaðakirkja. Foreldrastund kl. 13– 15. Kjörið tækifæri fyrir heimavinnandi foreldra með ung börn að koma saman og eiga skemmtilega samveru í safn- aðarheimili kirkjunnar. Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld kl. 20. Landakirkja: Kl. 10 síðasti foreldra- morgunn vetrarins, farið verður út í guðs græna að gefa öndunum. Kl. 19.30 lok- aður fundur um 12 sporin, andlegt ferða- lag, í safnaðarheimilinu. Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir velkomnir. Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna- stund kl. 12. Bænaefnum má koma til prestanna. Eftir stundina er hægt að kaupa léttan hádegisverð í Safnaðar- heimili. Glerárkirkja. Opið hús fyrir foreldra og börn kl. 10–12. Safnaðarstarf ;   ,'  '     ,    - .  -    . 0/$01(( 5,-  - -#  !)" $ !5 5 + <    , "    /    (     "      ). .) .            4   '%  " ' "  # "   " %( "  '%   " %!!"  "   " $  "  - )   " "")*%     ""  "  E  %  :>"   " !, (!"  %)*%'%  1 F 1 " 1 F :>" 1 "#  " %    "  : " :*51 "#    ,2,#  1 F )*") " )*" %) " ) " )*"+ !'     ( "     ' 0/ (00 3( 1 '  *!G E - %         3         "1       $%&& %) % 5 )  ("   " $ %& 6 A  6 ("   !" "5#  "  ("  " : %,  %!   %) %("   # %   "+ ;   , 0  - .   #    0/$01(' 2 ( ) # !  !  ,   + :0   (                 , ""  -# " +   ,  '         -   . -#         .  "      "      #  0 10 660 .( 1220  !  ! -#  ,#   ' , -#% ?8 E - % + )   ,  '     "        .      ) 0  .           " -          / ( 0      "C "" " (""    ":>"   , ""# "C "" " (%"# %H 6 %#! "C ""    "   " " ) " )*" %) " ) " )*"+ ;    ,  '     ,    -    .   -       .  '               0/:(1 ' 2 9   (  # %-#% IJ #>5 -5+ )  , '    "     0       ! 5 , ""#  9 5# !) " " $ %" !: "   ! 5   "!) " "  #> ##  :#"# ) " )*" %) " ) " )*"+
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.