Morgunblaðið - 23.05.2002, Qupperneq 64
64 FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
VIÐ hérna í suðurhlutanum á Selja-
hverfinu finnum okkur svolítið af-
skipt í ýmsum málum hjá Reykjavík-
urborg.
Stutt er síðan gæsluvellinum okk-
ar við Tungusel var lokað gegn
áskorun mörg hundruð mótmæl-
enda.
Til stóð að hætta rekstri bóka-
safnsins okkar, en sem betur fer
tókst að bjarga þeirri yndislegu
stofnun þvert á vilja borgarinnar.
Skólalóðin við Ölduselsskólann er
enn ófrágengin og sumpart hættu-
leg. Ekki hefur heldur verið gerð til-
raun til að opna skólasundlaugina þó
ekki væri nema dagpart til almenn-
ingsnota, a.mk fyrir aldraða og for-
eldra með lítil börn eins og þó var
lofað að kanna á sínum tíma.
Fallegi dalurinn okkar með lækn-
um og kirkjunni er afskiptur og allur
í órækt.
Loks eru það gangstéttirnar. Nú
höfum við búið hér sum í allt að 25 ár
en enn er frágangi gangstíga ekki
lokið og ekkert bólar á framkvæmd-
um. Fyrst má nefna að nú er risin ný
og glæsileg byggð Kópavogsmegin
við hverfið. Þangað er okkur gang-
andi ekki fært nema á vöðlum og
stígvélum vegna vöntunar á teng-
ingu yfir mýrina milli hverfanna. Ef
við viljum fara þangað í heimsókn er
akstur í 10 mínútur á hraðbraut oft
valinn fram yfir 5 mínútna gang.
Svo er það leiðin í Mjóddina.
Þannig hagar til að þessi þjónustu-
kjarni okkar Breiðholtsbúa er í
stuttu göngufæri frá hverfinu. Þang-
að sækjum við og börnin okkar bíó
og þar eru ágætar verslanir og þjón-
ustufyrirtæki og þaðan fara stræt-
isvagnar í allar áttir. Þangað eigum
við úr Seljahverfinu því oft erindi og
hollt og heilsusamlegt er að ganga
þessa leið. Ekki er þó allt sem sýnist.
Nýlega voru sett göng undir
Breiðholtsbrautina og er það til bóta.
Hitt er verra að á leið úr Suður- Selj-
um að Mjóddinni þurfum við, þessi
gangandi, að fara a.m.k. tvisvar sinn-
um yfir akbraut með mikilli og
hraðri umferð og þess utan er lega
gangstíga þannig að ekki er beint að-
laðandi að fara eftir þeim. Á stórum
kafla frá Ölduseli að undirgöngunum
er einungis gangstétt öðrum megin.
Enga stétt er að finna á stórum hluta
sunnan til í Skógarselinu. Meðfram
ÍR-vellinum veður gangandi maður í
leðju og drullu. Síðan liggur svo stíg-
urinn norðan til í sveig frá götunni
gegnum dimmt skógarrjóður úr allri
augsýn. Virkar þessi hluti ógnvekj-
andi fyrir vegfarandann sem þá
sneiðir hjá staðnum með því að
stytta sér leið eftir akbrautinni. Sem
sagt ekki gott.
Hér þarf að skoða og framkvæma.
Núna er átak í gangi í ýmsum
borgarmálum. Enn einu sinni t.d bú-
ið að helluleggja á blessuðum Lauga-
veginum. Til stendur að færa hluta
af Geldinganesinu vestur í Bráðræði.
Ýmsar merkar menningarbyggingar
eru á teikniborðinu o.fl o.fl. Pening-
arnir og tækin eru greinilega til.
Þess vegna vil ég hvetja ykkur,
ágætu borgarstjórnendur, til að
kanna hvernig annars staðar í borg-
inni háttar til og drífa í þessum litlu
framkvæmdaþáttum sem skipta
okkur, almennu kjósendurna, þó svo
miklu máli. Þeir geta ráðið því hvar
krossinn lendir á kjörseðlinum. Von-
andi sjáum við röska Reykjavíkur-
borgarstarfsmenn á ferðinni hér í
Seljahverfinu fyrir kjördag.
GUÐRÍÐUR HARALDSDÓTTIR,
Þingaseli 4, Reykjavík.
Sitthvað má laga í
Seljahverfinu líka
Frá Guðríði H. Haraldsdóttur:
SVEITUNGI minn, Jón G. Gunn-
laugsson frambjóðandi sjálfstæðis-
manna í Bessastaðahreppi, er þeirr-
ar skoðunar að allir sem eru á lista
Álftaneshreyfingarinnar, sem stefnir
að því að fella núverandi meirihluta,
séu svo ánægðir með störf Sjálfstæð-
isflokksins að þeir vilji ekki búa ann-
ars staðar. Þetta kom fram í grein
sem hann skrifaði í Morgunblaðið á
laugardaginn. Hann virðist því líta á
það sem stuðningsyfirlýsingu við
sjálfstæðismenn að menn skuli ekki
flytja úr byggðarlaginu.
Mér líst alls ekki á stefnu Sjálf-
stæðisflokksins hér á Álftanesi. Ég
er á móti því að hann ætlar að breyta
svip og anda Bessastaðahrepps með
því að einskorða nánast byggingar á
næstu árum við blokkir. Ég hef líka
áhyggjur af því hvernig skuldir hafa
aukist í tíð núverandi meirihluta og
tel skuldasöfnunina takmarka fram-
tíðarmöguleika sveitarfélagsins. Mér
finnst það heldur ekki til fyrirmynd-
ar að sjálfstæðismenn ætli á næstu
árum að haga skólamálum með þeim
hætti að um eitthvert skeið þarf að
leysa vanda í húsnæðismálum skól-
ans með lausum skólastofum.
Mér finnst margir hafa sömu
áhyggjur og ég, og geri mér því góð-
ar vonir um að Álftaneshreyfingin
felli núverandi meirihluta. Stefna
sjálfstæðismanna og verk breyta því
hins vegar ekki að mér finnst Álfta-
nesið vera perla höfuðborgarsvæðis-
ins. Lýðræðið ræður, og ég ætla ekki
að flytja þó sjálfstæðismenn vinni
kosningarnar. En mér finnst það
mikill oflátungsháttur þegar sjálf-
stæðismenn í Bessastaðahreppi
túlka það sem stuðning við stefnu
sína að konur einsog ég, sem eru ann-
arrar skoðunar en þeir um þróun
sveitarfélagsins, skuli ekki flytja úr
sveitarfélaginu!
Það skyldi þó ekki vera að þeir sjái
fram á að sameinað afl Álftanes-
hreyfingarinnar kollvarpi veldi
þeirra á Álftanesi? Sannast þá hið
fornkveðna, að dramb er falli næst.
SANDRA FRANKS,
formaður Samfylkingarinnar
í Bessastaðahreppi.
Álftanesið er perla
höfuðborgarsvæðisins
Frá Söndru Franks: