Morgunblaðið - 23.05.2002, Page 65

Morgunblaðið - 23.05.2002, Page 65
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 65 SUNNUDAGINN 19. maí var birt í Morgunblaðinu mjög áhugaverð grein „Uppboð hér og þar“ eftir Ein- ar Fal Ingólfsson. Hann fjallaði um síðasta listmuna- uppboð Gallerí Fold í Súlnasal Hótel Sögu í sam- anburði við upp- boð hjá Sothebys og Christie’s í New York. Meðal annars kom fram að hjá Christie’s voru listaverk seld á uppboði fyrir 126–495 milljónir króna, en á Íslandi frá 4.000 upp í 1.410.000 króna. Að lokum spyr Einar Falur „hvort verð- ið sem hér er greitt fyrir gott verk á uppboðum sé sanngjarnt og eðli- legt“. Hverju er um að kenna að lista- menn hér á landi fá ekki mannsæm- andi laun fyrir vinnu sína? Að mínu áliti er fyrst og fremst listamönn- unum sjálfum um að kenna. Sumir af þeim bjóða verk sín í gjafavöruversl- un eða listhúsum fyrir hlægilegt verð, sem dugir ekki einu sinni fyrir myndarömmum. Listamaður getur ekki endalaust gefið vinnu sína. Hann þarf að hafa fyrir kostnaði við gerð listaverka sinna og vinnu eins og aðrir í okkar þjóðfélagi. Þetta ýtir undir að hann framleiði alls konar skyndilist. Gjafavöruverslanir hér á landi eru hlaðnar af þess háttar verkum. Sjálf útskrifaðist ég úr Listahá- skóla Íslands á síðasta ári með BA gráðu í grafík. Listamannaferill minn er rétt að byrja, ég á eftir að berjast til að komast áfram í þessum harða listamannaheimi til þess að öðlast viðurkenningu. Hefur einhver velt fyrir sér hvað mörg prósent af nemendum, sem útskrifast úr lista- skólum vinna við sitt fag? 10 eða 20 prósent, held ég. Hvers vegna er svo há talan þeirra, sem gefast upp á myndlistasköpun sinni? Peninga- leysi, stuðningsleysi eða ófag- mennska starfsfólks í listhúsum? Það er fyrir neðan virðingu mína að selja verk mín hjá einhverjum list- munasala, sem hefur ekkert vit á myndlist. Eitt af þeim fáu listhúsum sem sinna sínu hlutverki af fag- mennsku er Gallerí Fold. Annað mál sem mig langar til að taka upp í þessari grein er um starfsheitið myndlistamaður. Ég hef oft lesið í blöðum að sjálfmenntaður maður á sviði myndlistar er kynntur sem myndlistamaður eða listamað- ur. Húsmæður úti í bæ, sem kunna að setja plástur á sár barna sinna, kallar enginn lækna. Handlögnum heimilisföður er bannað að auglýsa sig sem t.d. pípulagningameistara eða rafvirkja vegna þess að hann hefur ekki lært þessi fög og hefur ekki prófskírteini. Hvers vegna er frístundamálari kallaður opinber- lega myndlistamaður? Myndlistar- nám er mjög langt og erfitt. Ánægjulegt væri ef fólk bæri virð- ingu fyrir starfi listamanna eins og annarra og er það undir okkur sjálf- um komið. OLGA PÁLSDÓTTIR, myndlistarmaður, Krummahólum 4, Reykjavík. Hugleiðingar um listmunaupp- boð og starfsheiti listamanna Frá Olgu Pálsdóttur: Olga Pálsdóttir EINN af þekktari forkólfum lík- amsræktarstöðva, góður og gegn brautryðjandi sem afar margt gott hefur gert á sínu sviði, skrifaði mikla ádeilugrein á R-listann í Morgunblaðið nýlega. Jónína Benediktsdóttir deilir þar á, að í nýbyggingu Orkuveitunnar í Árbæ er gert ráð fyrir fullvaxinni líkamsræktarstöð sem leigð verði út til „einkaaðila“ og borgarbúar jafnt sem starfsmenn hafi fullan aðgang að. Við þurfum oft að greina á milli persónulegra hagsmuna og al- mennra, í ljósi þessa er ekkert óeðli- legt að Jónína hafi hlaupið til og sett óánægju sína á blað sem hagsmuna- aðili. En það sem snýr að fólkinu sem býr í borginni lýtur oft öðrum lögmálum. Fólk, sem stundar heilsurækt, kærir sig kollótt um það hver er eigandi húsnæðisins, það er algjört aukaatriði! Ef borgarfyrir- tæki getur samfara nýbyggingu gef- ið borgarbúum í Árbæ og öðrum í sömu aksturslínu í Grafarholti, syðst í Grafarvogi og Kjalarnesi kost á góðu aðgengi við nýja vel staðsetta líkamsræktarstöð í húsi Orkuveitunnar í Árbæ, þá fagna því örugglega fjölmargir Reykvíkingar. Í jaðri Árbæjar fara tugþúsundir fólks á hverjum degi inn til borg- arinnar og til baka. Ekki er vitað um nein ný áform einkaaðila í þjónustu við heilsurækt á þessu svæði eða rekstri líkamsræktarstöðva. Það að opinbert fyrirtæki ákveði að hætta við rekstur á einkaheilsurækt fyrir starfsmenn sína, en ákveði frekar að gera ráð fyrir opinni líkamsræktar- stöð sem borgarbúar geti nýtt við hlið starfsmanna, er framtak sem ber nýrri hugsun og framtíðarsýn gott vitni. Orkuveitan en öflugt og framsækið fyrirtæki í eigu okkar Reykvíkinga og fleiri, það að fyr- irtækið vilji leggja sitt af mörkum við að byggja upp orku líkamans er frábært framtak! Því hefur verið lýst yfir að reksturinn verði boðinn út til leigu, eigendur WorldClass t.d. hafa ekkert við þetta að athuga eftir viðtölum að dæma, sé slíkt gert á jafnréttisgrundvelli, flóknara var það nú ekki! Davíð Oddsson lét byggja Ráð- húsið, þar er leigður út rekstur kaffihúss, í tíð Davíðs var Perlan byggð, þar er veitingareksturinn boðinn út! Ég ásamt hundruðum þúsunda gesta hef notið þessarar frábæru staðsetningar á góðum veitingahúsum, ég hef ekki frétt af því að gestir séu almennt að spá í það hver eigi húsin! En í þessum þrem tilvikum, Árbæ, Öskjuhlíð og við Tjörnina, eru borgarfyrirtæki að nýta sér uppbyggingu til að skapa „einkaaðilum ný tækifæri“ og er það vel. Í nýlegu DV-viðtali kom Jónína inn á sinn rekstur og jákvæðan stuðning fjármálastofnana. Engum, sem það viðtal las, kemur á óvart að hennar fyrirtæki ætli ekki að bjóða í rekstur líkamsræktarstöðvar í Árbæ, heldur sé öll áhersla lögð á að treysta það sem fyrir er, enda eðli- legt. Því er óþarfi að vera að ónotast út í R-listann og Ingibjörgu Sólrúnu af þessu tilefni, enda sjálfsagt allir sem vilja gengi Jónínu og hennar fyrirtækja sem best. Því lofsverða framtaki Orkuveit- unnar að ætla að gefa tugþúsundum borgarbúa enn betra aðgengi að lík- amsrækt ber að fagna og er frábær nútímastefna. Svo skemmtilegt sem það er, þá eiga þau það a.m.k. sam- eiginlegt í þessum málum, Davíð O., Ingibjörg Sólrún og Alfreð Þ. að horfa lengra en niður á tærnar á sér. PÁLMI PÁLMASON, Gimli, 116 Kjalarnesi. Ádeila kroppatemjarans! Frá Pálma Pálmasyni: Pálmi Pálmason KOSNINGAUMRÆÐAN snýst nú mikið um samanburð þeirra tveggja borgarstjóraefna, sem til greina koma, og er þá ljóst, hvað Morgun- blaðið er að fara með hvítasunnu- dagsblaði sínu tæpri viku fyrir kjör- dag. Bæði fá þau, borgarstjóraefnin, heila opnu til að kynna sig og sín bar- áttumál. Viðmælendur þeirra eru þeir sömu og spurningarnar áþekk- ar, svo að málfar beggja ætti að kom- ast jafnt til skila. Það er því ekki frá- leitt að líta svo á að verið sé að gefa þeim kost á að sýna kjósendum, hvaða mann þau hafi að geyma, burt- séð frá kosningaloforðunum, sem fólk er farið að kunna utanbókar og hætt að taka bókstaflega eftir langa og harðvítuga umræðu í öllum fjöl- miðlum. Hér vil ég því aðeins draga fram síðustu spurninguna, sem fram var borin, og svör þeirra beggja við henni. Spurningin var þannig: Hvers vegna á fólk ekki að kjósa (D/R)-listann? En svörin voru eftir- farandi: Ingibjörg Sólrún, borgarstjóri svarar: „Ég legg það ekki í vana minn að fella palladóma yfir andstæðingun- um þó að ég geti tekist hart á við þá um pólitík – og hef enga þörf fyrir að sverta þeirra frambjóðendur eða málstað. Mér leiðist pólitísk barátta, sem er háð undir neikvæðum for- merkjum. Ég hef reynt að temja mér það í pólitík að leggja fram mín sjón- armið, segja fyrir hvað ég stend og leita eftir stuðningi á þeim forsend- um. Ég ætla að halda mér við það eins lengi og kostur er.“ Björn Bjarnason, fyrrv. ráðherra menntamála svarar: „Ef fólk kýs R-listann, þá er það að lýsa yfir vilja til að halda áfram þeirri kyrrstöðu og doða, sem setur æ meiri svip á borgarlífið. Með R– listanum er tryggt að áfram verður safnað skuldum, árlegar vaxta- greiðslur skipta milljörðum af öllum þessum skuldum og munu halda áfram að vaxa með þeim. Með R-list- anum er tryggt að Orkuveitan mun halda áfram að veikjast. Með R-list- anum er tryggt að Geldinganesið verður eyðilagt með tvöföldu um- ferðarslysi. Með R-listanum er tryggt að biðlistarnir munu halda áfram að lengjast. Með R-listanum er tryggt að óánægja með félagslega þjónustu mun halda áfram að aukast. Með R-listanum er tryggt að áfram verður álit íbúa haft að engu við skipulag á óbyggðum svæðum í næsta nágrenni þeirra. Er ekki gott að hafa nú tækifæri til að breyta?“ Hverjum verður ekki hugsað til orða Hallgríms Péturssonar að þess- um lestri loknum? „Oft má af máli þekkja manninn, hver helst hann er, sig mun fyrst sjálfan blekkja sá með lastmælgi fer. Góður af geði hreinu góðorður reynist víst; fullur af illu einu illyrðin sparir sízt.“ (Hallgrímur Pétursson.) JÓN HAFSTEINN JÓNSSON, Stangarholti 7, Reykjavík. „Oft má af máli þekkja“ Frá Jóni Hafsteini Jónssyni: FRÉTTIR SJÖ punda urriði veiddist í Með- afellsvatni um síðustu helgi og að sögn Hermanns Ingólfssonar á Hjalla í Kjós hefur ekki veiðst ann- ar eins fiskur í vatninu í tvö ár. „Þetta var gríðarlega fallegur fisk- ur sem tók silfraða Lippu, en veiði- maðurinn veiddi frá báti,“ sagði Hermann í samtali við Morgun- blaðið. Hermann sagði veiðina í vatninu hafa verið góða í vor og þó nokkuð af 1,5 til 3 punda urriða hefði veiðst og einnig smærri fiskur í bland. „Það er bæði veitt frá bát- um og landi, en þeir veiða mest sem þekkja vatnið vel, eðlilega,“ bætti Hermann við. Göngutúr SVFR Stangaveiðifélag Reykjavíkur ætlar að brjóta upp kosningadag- inn, nk. laugardag, með því að bjóða áhugasömum upp á göngu- ferð að völdum veiðistöðum í Gljúf- urá og Norðurá í Borgarfirði. Að sögn Bergs Steingrímssonar verð- ur þess gætt að menn hafi nægan tíma til að huga að kosningunum, lagt sé af stað frá SVFR klukkan 9 að morgni og áætlaður komutími til Reykjavíkur sé um klukkan fimm. „Stefán Hallur Jónsson sýnir mönnum Gljúfurá og Jón G. Bald- vinsson leiðir menn í leyndardóma Norðurár, þeir gjörþekkja báðir árnar. Það verður líka boðið upp á kaffi í veiðihúsinu í Norðurá og m.a. þess vegna þarf að skrá sig hjá okkur í síðasta lagi á föstudag- inn,“ bætti Bergur við. Laxar gengnir Staðfest hefur verið, að laxar hafi sést bæði í Norðurá og Úlf- arsá, við Skerin og á Brotinu í Norðurá og í Sjávarfossinum í Úlf- arsá. Í Úlfarsá var um þrjá u.þ.b. 5 punda fiska að ræða. Einnig hafa borist óstaðfestar fregnir af löxum í Laxá í Kjós og Laxá í Leirársveit. Þó nokkuð hefur verið kíkt í Elliðaárnar, en ekki hefur heyrst að neitt kvikt hafi sést þar enn sem komið er. Morgunblaðið/Einar Falur Þriggja punda bleikja úr Hlíðarvatni. ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? Bolta- urriði úr Meðal- fellsvatni NIÐURSTÖÐUR nýlegrar könnun- ar Gallup sýna að 85% svarenda vilja láta banna reykingar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, bæði innan- húss og utan. Þessi eindregna af- staða kom bæði fram hjá þeim sem sóttu garðinn síðasta árið, sem var tæpur helmingur aðspurðra, og hjá öðrum. Það vekur athygli að tveir af hverjum þremur sem reykja vilja láta banna reykingar í garðinum, segir í frétt frá tóbaksvarnanefnd. Haft er eftir Tómasi Guðjónssyni, forstöðumanni Fjölskyldu- og hús- dýragarðsins, að í sumar verði gestir hvattir til að reykja ekki í garðinum og í ljósi reynslunnar verði tekin af- staða til þess hvort reykingar verði ekki bannaðar mð öllu. Könnunin var gerð dagana 20. febrúar til 4. mars 2002. Þetta var símakönnun með 1.200 manna slembiúrtaki úr þjóðskrá, 16 til 75 ára. Svarhlutfall var 69,4%. Um 85% vilja banna reykingar Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn VEFUR sem ætlaður er sem upplýs- ingavefur fyrir framboð sjálfstæðis- manna á Hornafirði hefur verið opn- aður. Það var Magnús Jónasson sem tók vefinn formlega í notkun á kosn- ingaskrifstofunni. Vefurinn er smíð- aður af Hátíðni og vistaður á vef- þjóni sem er hluti af IP-netþjónustu fyrirtækisins. Slóð vefjarins er http:// www.hfn.is/XD_ Opnun vefjar sjálfstæðismanna á Hornafirði HÖRÐUR H. Bjarnason sendiherra afhenti föstudaginn 17. maí, Jóhann- esi Páli II páfa trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands hjá Páfagarði, með aðsetur í Strasbourg. Afhending trúnaðarbréfs hjá Páfagarði VARNARLIÐSMENN bjóða til ár- legrar vorhátíðar á Keflavíkurflug- velli laugardaginn 25. maí. Hátíðin er með „karnival“-sniði og fer fram í stóra flugskýlinu næst vatnstanki vallarins frá klukkan ell- efu að morgni til fjögur síðdegis. Fjölbreytt skemmtun fyrir alla fjölskylduna verður í boði, lifandi tón- list, þrautir, leikir, matur og hressing og sýningar af ýmsu tagi, og björg- unarþyrla og annar búnaður varnar- liðsins til sýnis á svæðinu, segir í fréttatilkynningu. Aðgangur er ókeypis og allir vel- komnir. Umferð er um Grænáshlið ofan Njarðvíkur. Gestir eru vinsam- lega beðnir að hafa ekki með sér hunda, segir ennfremur í tilkynningu. Vorhátíð varn- arliðsmanna Aðalfundur All- iance française AÐALFUNDUR Alliance française verður haldinn þriðjudag 28. maí kl. 20.30 í húsakynnum Alliance fran- çaise (Hringbraut 121, 3. hæð.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.