Morgunblaðið - 23.05.2002, Qupperneq 67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 67
DAGBÓK
Verslun fyrir konur
Laugavegi 44, s. 562 8070 og Mjódd s. 557 5900.
Sumarfrakkar
15% afsláttur af sumarfrökkum.
Þrjár gerðirb - fjórir litir.
Verið velkomnar
Með morgunkaffinu STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert aðlaðandi og hefur
góðar gáfur. Þú getur sann-
fært hvern sem er um hvað
sem er. Þú nýtur lífsins og
að vera innan um fólk. Þú
mátt búast við breytingum á
högum þínum á þessu ári.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú skalt fara eftir ráðum góðs
vinar í samskiptum við ætt-
ingja þinn í dag. Einhver sem
þekkir ekki vel til mála mun
viðra ákveðnar skoðanir.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Sjálfstraustið er í góðu lagi í
dag og þér gengur vel að
verkstýra öðrum. Þú sérð
hvað þarf að gera og hvernig
best er að gera það.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þér liði miklu betur ef þú
hreyfðir þig meira. Leikir eða
léttar æfingar munu veita þér
ánægju og styrk þegar til
lengri tíma er litið.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Fjölskylduleyndarmál kunna
að kvisast út í dag. En það
gæti verið best fyrir alla aðila
að fá þau upp á yfirborðið.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Hversdagslegar samræður
kunna skyndilega að fá dýpri
merkingu því þær hafa áhrif á
framtíðardrauma þína. Þú
heyrir af nýrri hugmynd og
veltir fyrir þér að breyta um
stefnu.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Fólk ber sérstaklega mikla
virðingu fyrir þér í dag. En þú
gerir þér jafnframt grein fyrir
að ef þú vilt sitja áfram í þessu
hásæti þarft þú að kosta tals-
verðu til.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Ferðalög í útlöndum eða sam-
ræður við fólk frá öðrum
menningarsvæðum heilla þig í
dag. Þú vilt læra eitthvað nýtt
og víkka sjóndeildarhringinn.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Ábyrgð þín eykst í dag því
aðrir búast við því að þú takir
frumkvæðið í einhverju. Þú
munt valda því hæglega og því
skalt þú ekki skorast undan.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það gætu komið upp erfiðleik-
ar í sambandi sem reyna á
krafta þína. Mikilvæg reynsla
fæst ekki alltaf án sársauka.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú vilt hugsa um heilsuna og
mataræðið. Ef þú ert það sem
þú borðar ættir þú að draga
úr neyslu á fæðu sem er ekki
holl fyrir þig.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Börn sjá þér fyrir nægum
verkefnum í dag. Þú skalt
hafa það hugfast að uppeldi
og menntun ungra barna er
eitt mikilvægasta hlutverk
sem til er.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er léttir að vita af því að
þú getur reitt þig á fjárhags-
legan stuðning frá einhverj-
um nákomnum. Þessi stuðn-
ingur er einnig til hagsbóta
fyrir fjölskyldu og heimilið.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
TOR Helness lék listir sín-
ar í þætti gærdagsins, en
nú er það Bandaríkjamað-
urinn Lew Standsby sem
er í sviðsljósinu. Spilið kom
upp í síðustu lotu úrslita-
leiks Bandaríkjamanna og
Norðmanna á HM.
Norður
♠ D87
♥ ÁG7
♦ K43
♣7643
Vestur Austur
♠ K52 ♠ G106
♥ 43 ♥ K9652
♦ G10987 ♦ 2
♣D52 ♣KG98
Suður
♠ Á943
♥ D108
♦ ÁD65
♣Á10
Á báðum borðum varð
suður sagnhafi í þremur
gröndum með tígulgosa út.
Norðmaðurinn Glenn
Grötheim tók með drottn-
ingu og svínaði strax fyrir
hjartakóng. Austur drap
og banaði spilinu snarlega
með því að skipta yfir í
lauf.
Stansby fór betur af stað
– hann byrjaði á því að
spila spaða að drottning-
unni. Vestur dúkkaði og
drottningin hélt. Stansby
tók þá spaðaás og spilaði
enn spaða, sem vestur átti
á kóng. Í vestur var Tor
Helness og hann skipti ná-
kvæmt yfir í smátt lauf yfir
á kóng Helgemos í austur.
Stansby dúkkaði þann slag
og nú var staðan þessi:
Norður
♠ --
♥ ÁG7
♦ K4
♣764
Vestur Austur
♠ -- ♠ --
♥ 43 ♥ K9652
♦ 10987 ♦ --
♣D5 ♣G98
Suður
♠ 4
♥ D108
♦ Á65
♣Á
Austur spilaði aftur laufi
og vestur var í vanda.
Hann stíflar litinn með því
að láta fimmuna og Hel-
ness lét því drottninguna
undir. Spilið fer auðvitað
niður ef sagnhafi svínar
fyrir hjartakóng, en
Stansby hafði tilfinningu
fyrir legunni og fór aðra
leið. Hann tók spaða-
slaginn, fór inn í borð á tíg-
ulkóng og sendi austur svo
inn á lauf! Helgemo gat
tekið tvo laufslagi, en varð
á endanum að spila hjarta
upp í gaffalinn. Níu slagir.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 g6 6. Be3
Bg7 7. f3 O-O 8. Dd2 Rc6 9.
Bc4 Rd7 10. O-O-O Rb6 11.
Bb3 Ra5 12. De2 Bd7 13. h4
Hc8 14. h5 Rbc4
15. hxg6 fxg6 16.
Bg5 Hf7 17. Kb1
Df8 18. Df2 e6 19.
Dh4 Bh8 20. f4
Rxb3 21. axb3 Re3
22. Hd3 e5 23.
Rdb5 Bxb5 24.
Rxb5 exf4 25.
Hxd6 Hxc2
Staðan kom upp
á Reykjavíkur-
skákmótinu sem
lauk í mars. Em-
anuel Berg
(2.500) hafði hvítt
gegn Snorra G.
Bergssyni (2.275). 26.
Hxg6+! og svartur gafst
upp. Emanuel þessi var
hársbreidd frá áfanga að
stórmeistaratitli en tap í
tveim síðustu umferðunum
kom í veg fyrir það. Hann er
eitt mesta efni Svía og teflir
af mikilli hörku.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
LJÓÐABROT
BARMAHLÍÐ
Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna,
blágresið blíða,
berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!
Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina
leitandi leyna.
Blómmóðir bezta,
beztu jarðar gæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?
- - -
Jón Þ. Thoroddsen
FRÉTTIR
Ef hann slægi lóðina
oftar, þá væri ekki
svona erfitt að finna
sláttuvélina.
Ég vona að þú sért
sáttur við fisk í kvöld-
matinn.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
JACOPO, sem er 16 ára
ítalskur drengur, óskar eftir
íslenskum pennavinum.
Hann hefur áhuga á að
skiptast á frímerkjum.
Jacopo Barbarito,
Via Umberto Moricca 40,
00167 Roma,
Italia.
NADINE er 31 árs gömul
frönsk kona, búsett í Bret-
landi. Hún hefur áhuga á að
eignast íslenska pennavini.
Nadine Brunel,
Flat 1, Burmans House,
Pump Lane,
Bury St. Edmunds IP33,
1HN, England.
HANS, sem er á besta aldri,
óskar eftir pennavini með
frímerkjaskipti í huga.
Hann safnaðar stimpluðum
frímerkjum með góðum og
greinilegum stimplum. Læt-
ur dönsk frímerki á móti.
Hans Jørgen Bæk,
Jungersenvej,
DK - 9800 Hjørring,
Danmark.
Pennavinir
LEIÐRÉTT
NAFN Árna Magnússonar, for-
manns Félags ökuleiðsögumanna,
féll niður í ályktun frá Félagi öku-
leiðsögumanna, Ökuleiðsögn hefur
lengi tíðkast hér á landi, í blaðinu sl.
sunnudag. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
MERKILEGI KLÚBBURINN, sem
er frímerkjaklúbbur á vegum Ís-
landspósts fyrir 6-12 ára börn, í
samvinnu við Félag íslenskra
myndlistarkennara stóð fyrir sam-
keppni um hönnun á íslensku frí-
merki sem gefið verður út árið
2003.
Allir nemendur í 5.-7. bekkjum í
grunnskólum landsins gátu tekið
þátt í að teikna mynd um vináttuna
og sent tillögur sínar fyrir 10. jan-
úar sl. Börnin túlkuðu viðfangs-
efnið vinátta. Þrettán skólar sendu
170 myndir í forkeppnina, sex af
höfuðborgarsvæðinu og sjö af
landsbyggðinni.
Tillöguna, sem valin var í 1. sæti,
á Örn Ágústsson í 5. bekk Korpu-
skóla og verður gefin út á frímerki
árið 2003. Verðlaun voru 50.000 kr.
og ársmappa með íslenskum frí-
merkjum. Einnig voru veitt verð-
laun í hverjum aldursárgangi, kr.
15.000 og ársmappa með íslenskum
frímerkjum. Verðlaunahafar eru: 5.
bekkur, Örn Ágústsson í Korpu-
skóla, 6. bekkur, Atli Freyr Reim-
arsson í Grunnskóla Þorlákshafnar,
7. bekkur, Nína Hjördís Þorkels-
dóttir í Grandaskóla. Þetta segir í
frétt frá Íslandspósti.
Vinátta á
frímerki
Örn Ágústsson í Korpuskóla
með verðlaunamyndina sem
kemur á frímerki árið 2003.
Söfnun vegna bruna
STOFNAÐUR hefur verið reikning-
ur í Landsbanka í Mjódd nr: 0115-
05-70393, til hjálpar fjölskyldunni
sem missti allt sitt í eldsvoða í Fann-
arfelli 2 miðvikudaginn 8. maí sl. Allt
var ótryggt, segir í fréttatilkynn-
ingu.
MEISTARAVARNIR við hjúkrun-
arfræðideild Háskóla Íslands fara
fram dagana 24.–28. maí í Eirbergi.
Anna Ólafía Sigurðardóttir mun
gangast undir meistarapróf föstu-
daginn 24. maí kl. 13 og heldur fyr-
irlestur um verkefni sitt: Fræðsla og
stuðningsmeðferð fyrir foreldra
barna og unglinga með krabbamein.
Hluti af rannsóknarstarfi Önnu Ólaf-
ar var að hanna og útbúa sérstaka
vefsíðu með upplýsingum og fræðslu
fyrir foreldra krabbameinsveikra
barna og unglinga og er þetta í
fyrsta sinn sem slík vefsíða er gerð
hér á landi, svo vitað sé.
Elísabet Guðmundsdóttir mun
gangast undir meistarapróf mánu-
daginn 27. maí kl. 13 og halda fyr-
irlestur um verkefni sitt: Árangurs-
mælingar í hjúkrun. Matsþættir
hjúkrunar á Landspítala – háskóla-
sjúkrahúsi. Í rannsókninni var notað
mælitækið NOC – Survey, spurn-
ingalisti með 260 matsþáttum sem
tengjast líðan, ástandi og framförum
hvers skjólstæðings, en ná einnig til
fjölskyldu, umönnunaraðila og sam-
félagslegra þátta.
Eygló Ingadóttir gengst undir
meistarapróf mánudaginn 27. maí kl.
10 og heldur fyrirlestur um verkefni
sitt: Andlega vanlíðan eftir barns-
burð. Hefur stuðningsmeðferð
hjúkrunarfræðinga áhrif? Tilgangur
rannsóknarinnar var að kanna hvort
sérhannað námskeið fyrir hjúkrun-
arfræðinga leiddi af sér stuðnings-
meðferð sem annars vegar minnkaði
þunglyndiseinkenni kvenna með
andlega vanlíðan eftir barnsburð og
hins vegar streitu þeirra í foreldra-
hutverki.
Ólöf Kristjánsdóttir gengst undir
meistarapróf þriðjudaginn 28. maí
kl. 11 og heldur fyrirlestur um verk-
efni sitt: Tónlist til að draga úr sárs-
auka við 9. bekkjar bólusetningu í
vöðva. Tilgangur þessa rannsóknar-
verkefnis var að meta hvort tónlist
sem hugardreifing dragi úr verkja-
skynjun 14 ára nemenda við bólu-
setningu í vöðva, annars vegar við
mænuveiki og hins vegar við barna-
veiki og stífkrampa. Áhrif tónlistar
voru metin meðan á bólusetningun-
um stóð og 3–6 mínútum síðar.
Meistaravarnir
við hjúkrunar-
fræðideild HÍ
Fyrirlestrar
um hönnun
skrifstofustóla
KIRSTI Vandraas verkefnisstjóri
HÅG í Noregi mun halda tvo fyr-
irlestra um hönnun skrifstofustóla,
heilsuvernd og lausnir á heilsu-
vandamálum sitjandi fólks, föstu-
daginn 24. maí. Fyrirlestrarnir
verða á ensku og verða í verslun EG
skrifstofubúnaðar ehf. í Ármúla 20.
Fyrri fyrirlesturinn er ætlaður
sjúkraþjálfurum og iðjuþjálfum og
öðrum þeim sem kanna vandamál
fólks sem vinnur sitjandi. Fyrirlest-
urinn er kl. 9-10. Opnað með morg-
unkaffi kl. 8.30. Seinni fyrirlestur-
inn, „Getur heilsuvæn hönnun verið
list?“, er ætlaður arkitektum, innan-
hússarkitektum og öðrum þeim sem
atvinnu hafa af því að ráðleggja
starfsfólki á skrifstofu um húsgögn
og vinnuvernd og er kl. 15-16.
Happdrætti: Þátttakendum gefst
kostur á að leggja inn nafnspjald sitt
og verður dregið úr spjöldunum,
tveir heppnir þátttakandur fá síðan
HÅG H03 360 skrifstofustól. Út-
dráttur verður kynntur á heimasíð-
unni www.skrifstofa.is. Skráning
þátttöku er í síma eða tölvupósti á
skrifstofa@skrifstofa.is.