Morgunblaðið - 23.05.2002, Page 72

Morgunblaðið - 23.05.2002, Page 72
72 FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fyrir 1250 punkta færðu bíómiða. Sýnd kl. 5.45, 8.30 og 10. Vit 380. Einnig sýnd í lúxussal VIP Hvernig er hægt að flýja fortíð sem þú manst ekki eftir? FRÁ LEIKSTJÓRA THE SHAWSHANK REDEMPTION OG THE GREEN MILE Sýnd í lúxus kl. 6.15 og 10. B. i. 16. Vit nr. 380. Hasartryllir ársins. Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B. i. 16. Vit 377. kvikmyndir.is 1/2kvikmyndir.is ÓHT Rás 2 Sýnd kl. 4. Ísl tal. Vit nr. 370.  kvikmyndir.is  MBL Sýnd kl. 4. Ísl tal. Vit 358. Sýnd kl. 6 og 8. Vit 367  kvikmyndir.is Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i.12 ára. Vit 375. 150 kr. í boði VISA ef greitt er með VISA kreditkorti  DV Sýnd kl. 4. Ísl tal. Vit 338 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit 379. Sýnd kl. 7.30 og 10.15. B. i. 16. HK DV HJ Mbl Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. Sýnd kl. 5 og 9. B. i. 16. JOHN Q. Sýnd kl. 5. B.i.12 Sýnd kl. 8. B.i.12 Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.  ÓHT Rás 2 1/2HK DV Kvikmyndir.com „Snilld“ HK DV HL Mbl Kvikmyndir.com Sýnd kl. 10.30. Hér kemur útgáfa sem hefur aldrei sést áður. Meistaraverk Francis Ford Coppola er hér með fullkomnað. 52 mín. lengri en upprunalega útgáfan. Einstök bíóupplifun sem eingöngu er hægt að njóta á stærsta sýningartjaldi landsins. POPPLEIFAFRÆÐINGAR hafa grafið upp lag með bresku sveitinni sálugu The Smiths. Lagið heitir „A Matter of Op- inion“ og fannst við rannsóknir vegna nýrrar bókar sem mun rekja feril sveitarinnar í þaula. Poppfræðingurinn Simon Goddard, sem skrifar í popp- fagtímaritið Uncut, var að gramsa í snældusafni Mikes Joyce trommara er hann rakst á lagið. „Það voru ósungin lög þarna og spennandi tilbrigði við þekkt lög,“ segir Goddard. „En það var ólýsanlegt að rekast á lag sem enginn hefur minnst á fyrr“. Lagið er frá 1982, fyrsta starfsári sveitarinnar. Sitt sýnist hverjum The Smiths Nýtt Smiths-lag? TOM Waits er sá listamaður sem ég átti síst von á að myndi „bregð- ast“ af þeim stórfiskum sem eiga plötur í ár. Og það stendur heima, Waits skilar inn ekki einni, heldur tveimur listasmíð- um í líki tveggja hljómdiska, Alice og Blood Money. Poppfræðingum hefur verið tíð- rætt um áferðarmun þessara tveggja verka og hann er vissulega til staðar, þó í fyrstu hljómi þær afar álíka. Líkast til vegna þess að Waits hefur í gegnum árin hægt og bítandi byggt sér hljóðheim, sem á engan sér líka í dægurtónlist samtímans – ferli sem hófst á Swordfishtrombon- es (1983). Frá fyrstu sekúndu, í báð- um tilfellum, veistu að þú ert að hlusta á Tom Waits og engan annan. Alltént ber Alice viðkunnanlegri svip þessa myndarlega tvíhöfða. Waits er í rólegum og rómantískum gír, svona alla jafna; og styðst við minni úr gömlum djassi og óræðri leikhústónlist; öllu vafið smekklega inn í þennan einstaka „Sirkus dauð- ans“ –brag sem einatt hefur legið yf- ir seinni tíma verkum Waits. Hér er á ferðinni pottþétt smíð sem er eiginlega ekki hægt að setja út á. Kannski eitt, sjá nánar um það hér að neðan…  Tónlist Sá mjúki Tom Waits Alice Anti Þýðari helmingur frábærrar tvíböku frá Waits. Hér eru á ferðinni tólf ára gömul lög sem voru upphaflega samin fyrir leik- rit. Arnar Eggert Thoroddsen Lykillög: „Flower’s Grave“, „Komm- ienezuspadt“, „Reeperbahn“, „Alice“. HÉR er hungraðri og harðari Wa- its á ferðinni en sá angurværi sem lötraði um Alice. Alltumlykjandi er undarleg ára af grimmd og geð- veiki og verkið í heild sinni afar til- komumikið. Opnunarlag plöt- unnar, „Misery is the River of the World“, er t.a.m. eitt það besta sinnar tegundar sem ég hefi lengi heyrt – Waits organdi titil lagsins trekk í trekk sem andsetinn væri á afar áhrifamikinn hátt. „Fjölleikahús dauðans“ eða „kab- arett kölska“ – hljóðheimur Waits er sannarlega sérstakur og er engu lík- ur. Eina sem hægt væri að setja út á Alice/Blood Money tvennuna er að Waits hættir til að vera fyrirsjáan- legur; það er oft auðvelt að geta sér til um hvað komi næst innan ein- stakra laga. En þegar um svona glæsta fram- kvæmd á „Waits-tónlistinni“ er að ræða eru umkvartanir sem þessar hreinn og beinn tittlingaskítur. Það er því um að gera að „bíða“ ekki heldur kynna sér Tom Waits og tón- list hans. Því þessi tvenna hans er hæglega það besta sem út hefur komið í ár.  Tom Waits Blood Money Anti Myrkari helmingur tvíbökunnar og harð- ari undir tönn. Lögin voru samin fyrir sér- staka uppfærslu á Woyzeck Bruchners. Arnar Eggert Thoroddsen Lykillög: „Misery is the River of the World“, „Coney Island Baby“, „God’s Away on Business“, „Starving in the Belly of a Whale“. Sá harði Málarar - Múrarar - Píparar - Smiðir Dúkarar - Rafvirkjar - Ræstitæknar Til þjónustu reiðubúnir! Eitt númer - 511 1707 www.handlaginn.is handlaginn@handlaginn.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.