Morgunblaðið - 19.06.2002, Side 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
PÁLL Arnar Guð-
mundsson prentsmiður
lést aðfaranótt 18. júní,
eftir langvarandi veik-
indi. Hann var á fimm-
tugasta og öðru aldurs-
ári.
Páll Arnar fæddist 3.
ágúst 1950 á Barða-
stöðum í Staðarsveit á
Snæfellsnesi. Foreldr-
ar hans voru Guð-
mundur Pálsson bóndi
og Anna Herdís Jóns-
dóttir ljósmóðir.
Hann hóf nám í
Prentsmiðjunni Eddu
árið 1970 og lauk námi í október árið
1973. Hlaut hann meistararéttindi í
maí 1984. Páll Arnar starfaði um ára-
bil hjá Morgunblaðinu. Hann vann í
Prentsmiðju Morgunblaðsins á árun-
um 1975 til 1979 og hóf störf að nýju
hjá Morgunblaðinu
1996 og starfaði þar til
síðustu áramóta. Páll
Arnar starfaði hjá
Frjálsri fjölmiðlun
1979–1987, í Prent-
smiðjunni Odda 1987–
1992 og hjá Skjaldborg
1992–1993. Hann stofn-
aði fyrirtækið Letra-
Prentþjónustu árið
1993 og starfaði þar til
1996.
Eftirlifandi eigin-
kona Páls Arnars er
Þóra Vigdís Guð-
mundsdóttir og eignuð-
ust þau tvö börn. Páll Arnar lætur
einnig eftir sig þrjú börn af fyrra
hjónabandi.
Morgunblaðið þakkar Páli Arnari
fyrir farsæl störf og sendir fjölskyldu
hans innilegar samúðarkveðjur.
Andlát
PÁLL ARNAR
GUÐMUNDSSON
TUTTUGU manna áhöfn var bjargað
eftir að nóta- og togskipið Guðrún
Gísladóttir KE-15 strandaði við Lofo-
ten í Norður-Noregi í gærmorgun. Í
tvígang mistókst að koma skipinu á
flot í gærkvöldi. Til stóð að reyna það
að nýju við háflóð klukkan sex í morg-
un að íslenskum tíma. 300 tonn af olíu
eru um borð í skipinu og óttast norsk
yfirvöld olíuleka frá því.
Guðrún Gísladóttir var á leið til
löndunar með einn stærsta síldar-
farm Íslandssögunnar, samkvæmt
upplýsingum skipverja, og átti um
þrjár sjómílur ófarnar til hafnar í
Leknesi þegar það steytti á skeri.
Norska strandgæslan fékk tilkynn-
ingu um strandið rétt fyrir klukkan
níu í gærmorgun að íslenskum tíma.
Helgi Bjarnason, háseti á Guðrúnu
Gísladóttur, segir að snarpt högg hafi
komið á skipið og áhöfnin hafi strax
farið frá borði í björgunarbáta þar
sem skipið hafi um leið tekið að halla.
Alls liðu um 45 mínútur frá því að til-
kynnt var um strandið þar til skip-
verjar voru komnir um borð í björg-
unarbátinn Skomvær III. Hann segir
að mennirnir hafi beðið í um 30 mín-
útum eftir skipinu í björgunarbátun-
ur, ekki hafi væst um þá meðan á bið-
inni stóð en þeir voru í flotgöllum.
Helgi segir að skerin sem skipið
steytti á hafi ekki verið merkt inn á
sjókort skipsins og norska strand-
gæslan hafi staðfest það í gær. Norsk
yfirvöld segja orsakir slyssins enn
ókunnar.
Skipið lá í um 45° halla á strandstað
mestan part gærdagsins, en náði að
reisa sig nokkuð við í gærkvöldi. Sjór
gekk inn í skipið að framanverðu þar
sem gat kom á skrokk þess. Tom
Hansen, hjá Mengunarvörnum Nor-
egs sem tóku við yfirumsjón aðgerða
af norska hernum um miðjan dag í
gær, segir að sjó hafi verið dælt úr
skipinu og að því yrði haldið áfram yf-
ir nóttina. Í skipinu eru 300 tonn af
hráolíu, 2 tonn af smurolíu og tæp 900
tonn af frystri síld sem veidd voru úr
norsk-íslenska síldarstofninum.
Norsk yfirvöld óttuðust mjög olíu-
leka frá skipinu en engin olía hefur
enn lekið út úr því og sagðist Hansen
bjartsýnn á að svo verði ekki haldist
veðrið gott. Olían er í mið- og aftur-
hluta skipsins, en það er fremsti hluti
skipsins sem er laskaður. Ekki liggur
fyrir hve miklar skemmdir urðu á
skipinu, en síðdegis í gær var of mikill
öldugangur til að hægt væri að kafa
að því. Til stóð að kafað yrði að skip-
inu í nótt. Veður á strandstað var milt,
ekki mikill vindur en þoka.
Tvær tilraunir til að koma skipinu á
flot voru gerðar í gærkvöldi, en mis-
heppnuðust báðar. Á miðnætti í nótt
kom Tromsø, skip norsku strand-
gæslunnar, á strandstaðinn en það er
búið dælum og öðrum mengunar-
varnarbúnaði. Til stóð að reyna að
koma skipinu aftur á flot á háflóði
klukkan 6 í morgun.
Um 100 manns tóku þátt
í björgunaraðgerðum
John Espen Lien, yfirmaður upp-
lýsingadeildar norska hersins í Norð-
ur-Noregi, segir að alls hafi þrír bátar
frá norsku strandgæslunni tekið þátt
í björgunaraðgerðinni, auk björgun-
arbátsins Skomvær III. Einnig hafi
tvær þyrlur verið notaðar og sú þriðja
verið til taks. Alls telur hann að um
100 manns hafi komið að björguninni.
Fataverslun opnuð fyrir skip-
verjana við komuna í land
Helgi segir að vel fari um skipverj-
ana. Síðdegis í gær komu 18 þeirra í
land í Leknesi, en tveir tóku áfram
þátt í björgunaraðgerðum á strand-
stað. Helgi segir að vel hafi verið tekið
á móti þeim. Verslun í þorpinu var
opnuð sérstaklega fyrir þá og þeim
gert kleift að kaupa sér föt, en þeir
voru yfirhafna- og skólausir. Þeir
dvelja nú á hóteli í Leknesi og hafa
það ágætt, að sögn Helga.
Örn Erlingsson hjá útgerðarfélag-
inu Festi fór utan í gær ásamt fulltrúa
frá Tryggingamiðstöðinni sem
tryggði skipið. Guðrún Gísladóttir er
eitt af nýrri skipum íslenska flotans.
Það kom til landsins síðasta haust frá
Kína þar sem það var smíðað. Skipið
er 71 m á lengd, 14 m á breidd og
2.626 brúttótonn.
Mannbjörg varð þegar Guðrún Gísladóttir KE-15 strandaði við Lofoten í N-Noregi
Reyna átti að koma skip-
inu á flot á morgunflóði
Ljósmynd/Willy Hauge/Fiskaren
Guðrún Gísladóttir KE-15 hallaði um 45° á strandstað en seint í gærkvöldi tókst að rétta skipið við þegar vatni hafði verið dælt úr því. Til stóð að reyna
að ná skipinu á flot á háflóði klukkan 6 í morgun að íslenskum tíma, en í gær misheppnuðust tvær tilraunir til þess. Hér sést björgunarbáturinn Skom-
vær III sem bjargaði áhöfn skipsins um 45 mínútum eftir að tilkynnt var um strandið. Þá hafði áhöfn skipsins beðið í björgunarbátum í um 30 mínútur.
!"
#
$
%
ALLMÖRGUM mótmælaspjöldum
með áletrunum á borð við „Vér mót-
mælum allir“ og „Ég skammast mín“
var haldið á loft við hátíðarhöld á
Austurvelli á mánudagsmorgun. Áð-
ur hafði lögregla lagt hald á nokkur
slík spjöld og eitt garðhlið úr áli með
áföstu mótmælaspjaldi.
Ingimundur Einarsson varalög-
reglustjóri segir aðgerðir lögreglu
réttmætar og styðst m.a. við tvo
hæstarréttardóma í því tilliti.
Jónas Hallsson aðstoðaryfirlög-
regluþjónn, sem stjórnaði aðgerðum
á vettvangi, segir að heimild lög-
reglu hafi byggst á því að um var að
ræða hátíðarsvæði. Í slíkum tilfellum
beri lögreglu skylda til að koma í veg
fyrir að skugga beri á hátíðarhöldin.
„Það var ætlunin að láta ekki þá
ásýnd verða á þessari samkomu að
mótmælaspjöldum væri haldið uppi.
Hins vegar var svo mikið magn af
þessum blöðum skyndilega komið á
loft að ég ákvað að aðhafast ekki
frekar í þeim efnum af ótta við að
valda ókyrrð og leiðindum sem
kæmu til með að varpa ennþá leið-
inlegri blæ á hátíðarhöldin,“ segir
Jónas.
Hann telur að mótmælin hafi verið
ómarkviss, ekki var tilgreint hverju
verið var að mótmæla heldur hafi
einungis staðið á þeim að fólkið væri
að mótmæla eða að það skammaðist
sín en ekki hafi komið fram fyrir
hvað. Þetta hafi sett leiðinlegan svip
á hátíðarhöldin og margir hátíðar-
gestir hafi verið afar sárir út í mót-
mælendur.
Þegar fjallkonan gekk út af Aust-
urvelli eftir að hafa flutt ávarp kast-
aði einn mótmælenda spjaldi sínu að
henni. Aðspurður segir Jónas að
þetta hafi að svo komnu ekki orðið að
lögreglumáli.
Ingimundur Einarsson varalög-
reglustjóri minnir á að Austurvöllur
hafi verið þéttskipaður, en um 1500–
2000 manns fylgdust með hátíðar-
dagskránni.
„Að mínu viti hafði lögregla fulla
heimild til að taka af mönnum þessi
tól enda var þarna fjöldi manns, háir
sem lágir og flestir prúðbúnir, sem
kom saman til að fagna þjóðhátíð-
inni. Ég lít svo á að það hefði verið
ábyrgðarhluti af hálfu lögreglu að
leyfa mönnum að fara inn í hópinn
með þessi tól,“ segir Ingimundur.
Aðspurður segir hann að hætta hafi
verið á að þeim yrði beitt gegn fólki
eða rækjust í hátíðargesti og gætu
þannig valdið meiðslum. Hann minn-
ir á að það sé m.a. hlutverk lögreglu
að gæta öryggis einstaklinga eða al-
mennings. Hitt sé annað mál hvort
lögregla hefði átt að hafa afskipti af
þeim u.þ.b. 30 manns sem drógu upp
spjöld eftir að þeir voru komnir inn í
mannfjöldann.
Varalögreglustjóri í Reykjavík um aðgerðir lögreglu á Austurvelli
Skýrar heimildir
studdar dómum
Morgunblaðið/Kristinn
Allmargir héldu á lofti spjöldum þar sem vitnað var í fræg orð frá Þjóð-
fundinum 1851. „Vér mótmælum allir,“ sögðu flestir fundarmenn í einu
hljóði eftir að Trampe stiftamtmaður hafði slitið fundinum.
VEGNA vatnavaxta fór brúin yfir
Þverá við Vopnafjörð í ána í fyrrinótt
og var Sunnudalsvegi því lokað. Brú-
in, sem er 18 metra stikkbitabrú, er
gjörónýt og stendur einungis annar
af tveimur stöplum hennar eftir, að
sögn Einars Þorvarðarsonar, um-
dæmisstjóra Vegagerðarinnar á
Austurlandi.
Brúin yfir Kaldá í Jökulsárhlíð
hafði einnig sigið talsvert í gær-
morgun, hún var brotin og var henni
lokað fyrir allri umferð. Ekki var út-
lit fyrir að hún yrði opnuð aftur í
gær. Í gær stóð til að umferð léttra
bíla yrði beint á aðra brú ofar við
ána. Brúin yfir Kaldá er 46 metra
löng steypt plötubrú og byggð 1974,
að sögn Einars.
Þá lokaðist hringvegurinn í Jök-
uldal í gær þar sem ný fylling skol-
aðist úr veginum en umferð var beint
um Austurdal.
Skriða féll á veginn á Hólmahálsi á
Norðfjarðarvegi í fyrradag en búið
var að hreinsa til og opna veginn aft-
ur í gær. Við Mjóafjörð fór vegurinn
einnig í sundur við Hesteyri. Þá urðu
smáskemmdir víða vegna óveðurins
og vatnselgsins, ræsi lokuðust sums
staðar vegna vatnagangs og aur-
hlaupa.
Þegar að var komið í gærmorg-
un kom í ljós að Þveráin hafði
tekið brúna með sér.
Talsverðar vega-
skemmdir vegna óveð-
ursins á Austurlandi
Brúin yfir
Þverá fór
í ána